Morgunblaðið - 18.01.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.01.1994, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1994 Ágúst Einarsson, formaður bankaráðs Seðlabanka, um launakjör bankastjóra Stærsta Laun ríkisbankastjóranna ætti að lækka um þriðjung RÉTT væri og skynsamlegt að færa niður laun bankastjóra Lands- banka íslands og Búnaðarbanka íslands til samræmis við laun bankastjóra Seðlabanka, segir Ágiist Einarsson, formaður banka- ráðs Seðlabanka. „Ég sé ekki hvernig hægt er að gera þetta öðru vísi, hvort sem eitthvert meðaltal er fundið eða aðrar aðferðir notaðar til lækkunar, því ljóst er að ekki er hægt að hreyfa laun til hækkunar á þeim tímum sem nú eru, það er útilokað,“ segir Ágúst. í athugun Ríkisendurskoðunar á launakjörum bankastjóra ríkisbankanna sem kynnt var sl. föstudag kom í ljós að bankastjór- ar Landsbanka og Búnaðarbanka hafa að meðaltali þriðjungi hærri árslaun en bankastjórar Seðlabanka. Formenn bankaráð- anna funda með viðskiptaráðherra að hans ósk kl. 3.30 í dag, þar sem launakerfi bankastjóra og bankaráða verða rædd. sem þetta launafyrirkomulag tíðk- ast víða annars staðar í þjóðfélag- inu. Til þessa hefur ekki tekist að stokka upp núverandi launkerfí og óvíst hvort það verði gert vegna athugunarinnar nú. Ef það yrði gert þyrfti að stokka upp allt kerf- ið og slík aðgerð myndi ná víðar heldur en aðeins til bankastjóra eða þá að laun í öðrum bönkum verði færð niður til samræmis við Seðlabanka. Að einhvetju leyti má skýra launakjör bankastjóra ríki- sviðskiptabankanna á þann hátt að þeir eru að taka laun frá fyrir- tækjum í eigu bankanna og hvort að það fyrirkomulag verði aflagt er spurning sem ég er ekki í að- stöðu til að svara, þó ég myndi telja það æskilegt,“ segir hann. Ágúst segir að athugun Ríkis- endurskoðunar verði rædd innan bankaráðs Seðlabanka á næstunni og hinn mikli launamunur sem hún leiðir í ljós. „Mér kemur á óvart hversu launakjörin eru há í ríkisviðskipta- bönkunum og það er áberandi í þessari athugun hvað launakjör Seðlabankans eru miklu lægri en hinna bankanna,“ segir Ágúst. „Launakjör í Seðlabankanum hafa legið fyrir og verið í opinberri umræðu og ég vissi ekki annað en að þau væru svipuð í hinum bönkunum og því vekja þessar niðurstöður furðu mína. Til dæmis eru aðstoðarbankastjórar í Lands- banka íslands með hærri laun en bankastjórar Seðlabanka sem mér þykir afskaplega rangt og óeði- legt.“ Athugun Ríkisendurskoðun- ar sýnir að það ár, sem tekið var fyrir, voru laun bankastjóra Land- banka og Búnaðarbanka að meðal- tali rúmar níu milljónir króna, en laun bankastjóra Seðlabanka rúm- ar sex milljónir króna. „Gróft reiknað munar þriðjungi. Mér finnst laun í Seðlabankanum ósköp hæfileg og tel því laun hinna bankastjóranna of há, þótt ég sé ekki viss um að þessi launakjör séu mjög frábrugðin því sem geng- ur og gerist á sambærilegum stöð- um á hinum fijálsa vinnumark- aði,“ segir Ágúst. „Við sem sitjum í bankaráðunum berum hins vegar ábyrgð á launakjörum í þeim og bankaráð viðkomandi banka hljóta að ræða vandlega þessar niður- stöður, því launamunurinn getur ekki talist eðlilegur." Taki ekki laun á mörgum stöðum Ágúst kveðst lengi hafa verið þeirrar skoðunar að launakjör í þjóðfélaginu, einkum laun opin- berra starfsmanna, eigi að taka mið af því að vera heildarlaun og að ekki sé um aukagreiðslur að ræða. „Ég tel t.d. eðlilegt varð- andi bankastjóra að þeir fengju ein laun sem duga ættu fyrir öllu, þar með talin ýmis fríðindi sem menn hafa oft fengið greidd sér- staklega, þannig að menn væru ekki að taka laun á mörgum stöð- um. Þetta eru ekki ný sannindi en þarna væri um mikla breytingu á launakerfínu að ræða, auk þess Morgunblaðið/Sverrir Kveikt var á lýsingu við hús Eimskips í gær í tilefni af 80 ára afmæli félagsins. Viðstaddir voru stjórnarmenn Eimskips og forráðamenn borgarinnar ásamt fleiri. F.v.: Hörður Sigur- gestsson forstjóri, Jón H. Bergs stjórnarmað- ur, Markús Örn Antonsson borgarstjóri, Stein- unn Ármannsdóttir borgarstjórafrú og Indriði Pálsson stjórnarformaður Eimskips. Lýsing Eimskipafélagshússins ÁTTATÍU ár voru liðin í gær frá stofnun Hf. Eimskipafélags íslands. Af því tilefni var at- höfn við Eimskipafélagshúsið í Pósthússtræti 2. Þá var form- lega kveikt á nýjum lýsingar: búnaði sem lýsir upp húsið. I tilefni af þessum tímamótum í sögu félagsins flutti Indnði Pálsson ávarp en Steinunn Ár- mannsdóttir borgarstgórafrú tendraði ljósin. í gangi er sérstakt átak til að hvetja húseigendur í gamla mið- bænum að lýsa upp hús sín og er lýsingin á húsi Eimskips liður í því átaki og blasir húsið vel við þeim sem eiga leið um nýju Geirsgötuna. Kristján Jóhannsson kynningarfull- trúi hjá Eimskipafélaginu sagði í samtali við Morgunblaðið að einnig hefði verið rætt um í samráði við Þróunarfélag Reykjavíkur að lýsa upp Menntaskólann í Reykjavík, Dómhúsið í Austurstræti, Stjórnar- ráðshúsið og Seðlabankahúsið auk Ingólfs Amarsonar, sem búið er að setja á stall að nýju, en engar ákvarðanir hafi verið teknar sem standi. Bygging hússins hófst árið 1919 en í júli 1921 flutti Hf. Eimskipafé- lag Islands skrifstofur sínar í hús- ið. Margvísleg starfsemi hefur far- ið fram í húsinu á þeim tæpu 73 árum sem liðin eru frá því það var tekið í notkun. Má þar m.a. nefna skrifstofur tryggingafélaganna Sjóvátryggingafélags íslands og Trolle og Rothe; auk skrifstofu Verslunarráðs Islands. Bæjar- stjóm, síðar borgarstjóm Reykja- víkur, hélt fundi sína í Kaupþings- salnum á 5. hæð hússins um aldar- fjórðungsskeið. Þá er að nefna skó- verslun Hvannbergsbræðra og verslun Gunnþórunnar Halldórs- dóttur á jarðhæð hússins auk raka- rastofu Sigurðar Ólafssonar svo nokkuð sé nefnt. í Eimskipafélags- húsinu eru nú einvörðungu skrif- stofur Eimskips. LSD-málið í fjögrir ár \ TVEIR piltar um tvítugt sitja í j gæsluvarðhaldi grunaðir um að ’ hafa flutt inn til landsins talsvert magn af ofskynjunarlyfinu LSD , en fíkniefnalögreglan lagði hald á * 347 skammta af LSD og 85 grömm af ofskynjunarsveppum við húsleit á heimilum fimm ungmenna í Garðabæ, Reykjavík og Hafnar- firði á föstudagskvöld og aðfara- nótt laugardagsins. Þetta er mesta magn af LSD sem lögregla hér á landi hefur komist yfir í 4 ár. Talið er að piltamir, sem sitja í haldi, hafi flutt inn efnið auk magns sem þeim hafði tekist að dreifa áður en þeir vom handteknir milli jóla og nýárs, en þá fóru þeir úr landi. Á föstudagskvöldið var stöðvaði fíkniefnalögreglan á Kringlumýrar- braut bifreið sem 19 ára piltur, ánn- ar þeirra sem gninaðir eru um inn- | flutninginn, ók. í bílnum fundust 100 skammtar af LSD. Hinn sem situr í haldi var síðar um kvöldið handtek- | inn á heimili sínu en þar fundust 55 skammtar af efninu og 160 þúsund krónur. Pjórar húsleitir til viðbótar k vom gerðar á föstudag og aðfara- 9 nótt laugardags, í Reykjavík, Garðabæ og Hafnarfírði. Við þær leitir fundust um 200 skammtar af LSD, auk 85 gr. af ofskynjunar- sveppum, auk 3 gr. af amfetamíni og áhalda til neyslu fíkniefna. -----» » ♦---- Prófkjör sjálf- stæðismanna Júlíus Haf- steinstefn- i ir á 2. sæti j JÚLÍUS Hafstein borgarfulltrúi stefnir á annað sætið í prófkjöri , Sjálfstæðisfiokksins í iok mánaðar > vegna komandi borgarstjórnar- kosninga. Að sögn Júlíusar gengur kosningabaráttan vel. „Það hefur legið fyrir nokkuð lengi að ég gefí kost á mér í annað sætið, það er tímabært að breyta til. Magn- ús L. Sveinsson hefur verið í 2. sæti síðastliðin átta ár. Þeir hljóta því að sækjast eftir efri sætunum sem eru borgarfulltrúar fyrir,“ segir Júlíus. Hann segist hafa lýst yfír stuðningi við Markús Örn Antonsson borgar- stjóra og því liggi annað sætið bein- ast við. „Kosningabaráttan gengur vel og ég mun áfram standa fyrir þau mál- efni sem ég hef staðið fyrir hingað til l í borgarstjórn, það er umhverfis- og I ferðamál og stuðning við atvinnulífið. Ég var til dæmis fyrstur borgarfull- . tnía til að lýsa því yfir að styðja f ætti hugmyndir um að fella niður aðstöðugjaldið óg studdi dyggilega þegar það var gert. Auk þess að | styðja aðrar ákvarðanir meirihlut- ans,“ segir Júlíus Hafstein að lokum. í dag Rehn í aðra umferð______________ Elisabeth Rehn ogMartti Ahtisaari hlutu flest atkvæði í fyrrí umferð finnsku forsetakosninganna 24 Ein stærsta stundin_____________ Ólafur Ámi Bjarnason tenórsöngv- ari fann fyrir jákvæðum straumum í Carnegie Hall 28 Lítið ntúl að svindla___________ Jón Þorvarðarson segir lítið mál að svindla á bifreiðatryggingum ætli fólk sér það 37 Leiðari Evrópuför Clintons 28 íþróttir ► íslenska kvennalandsliðið í handknattieik komst áfram í Evrópukeppninni, en karlaliðið er úr Ieik. Keflavík og Njarðvík leika til úrslita i bikarkeppni KKÍ. Bæjarútgerð haí'in á ný í Krossvík á Akranesi BÆJARSTJÓRN Akraness samþykkti á sunnudaginn að endurreisa útgerðarfyrirtækið Krossvík, sem á sinum tíma var í eigu bæjarins, en gekk síðan inn í Haförninn hf., sem fengið hefur greiðslustöðvun til 15. mars næstkomandi. Að sögn Ingvars Ingvarssonar forseta bæjarstjórnar fylgir togarinn Höfðavík útgerðarfyrirtækinu, en skip- ið hélt á veiðar á laugardaginn. Ingvar sagði í samtali við Morgun- blaðið að Akranesbær leggði ekki fram fé vegna þessara rekstrar- breytinga, en hins vegar yfirtæki Krossvík 342 milljóna króna skuld- ir sem hvíla á Höfðavíkinni. Auk Höfðavíkur var togarinn Sæfari í eigu Hafarnarins og sagði Ingvar að Kirkjusandur sem er í eigu Landsbanka íslands myndi taka það skip. Hann sagði að sam- komulag væri um að Höfðavíkin fái kvóta beggja skipanna þetta kvóta- ár, en fyrir mitt árið yrði hins veg- ar að liggja fyrir hvernig farið verð- ur með Sæfara og kvóta hans. Kvóti Höfðavíkur á þessu kvótaári er að sögn Ingvars 2.400 þorsk- ígildi en kvóti Sæfara er tæplega 1.300 þorskígildi. Hann sagði að það lægi Ijóst fyrir að til þess að gera Krossvík að rekstrarhæfri ein- | ingu þyrfti að koma aukið fé inn í reksturinn. „Bærinn tekur til sín þetta fyrir- tæki sem fór inn í Haförninn á sín- um tíma, og er því kominn í bæjar- k útgerð á ný. Með þessu er verið að reyna að bjarga því að kvótinn fari ekki úr bænum, en nú er verið að vinna í því að bjarga fiskvinnslunni líka,“ sagði Ingvar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.