Morgunblaðið - 18.01.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1994
15
Kjósum
ÞORBERG
ADALSTEINSSON
í 6. sætið
Schtitz og Bach
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Heinrich Schiitz og Johann Seb-
astian Bach áttu furðu margt sam-
eiginlegt, þó hundrað ár skildu þá
að en Schutz var fæddur 1585 og
Bach 1685. í kirkjutónlist sinni
notaði Schiitz oftast ekki fleiri
hljóðfæri en t.d. tvær fiðlur, ásamt
orgeli og semba! „continuo". Matt-
heusarpassían eftir Schiitz er hreint
kórverk (án undirleiks) og í trúar-
verkum þessa góða tónskálds var
finna ýmsar leikrænar tiltektir, sem
einnig getur að heyra hjá Bach.
Ekki er vel vitað hversu vel Johann
Sebastian þekkti verk Schiitz en
mörg verka hans voru fáanleg í
prentuðum útgáfum og ættmenn
Bachs höfðu haft tónsmíðar Schiitz
mjög um hönd. Fyrir Norður-
landabúa ætti það að vera fróðlegt,
að Schiitz starfaði í Kaupmanna-
höfn hjá Kristjáni IV. á árunum
1633, með smá hvíldum, til 1655,
er hann ssettist að í Dresden.
Schutz lærði hjá Giovanni Gabrieli
og hugsanlega eitthvað hjá Monte-
verdi og færði Þjóðvetjum hinn stór-
brotna kórstíl Feneyinga, enda eru
verk hans sá grunnur sem Bach
síðar byggir á sín stórvirki.
Á tónleikum í Áskirkju sl. sunnu-
dag voru flutt verk sem einu nafni
nefnast Geistiche Konserte, eftir
Sehutz. Þessi verk mætti sem best
flytja við messur, því um er að
ræða stuttar hugleiðingar um ýmis-
legt efni tekið úr Ritningunni.
Fyrsta verkið var dæmisagan um
faríseann og tollheimtumanninn
(Lúk. 18. 10-14) og er bænakafli
faríseans og tollheimtumannsins
sérlega leikrænn og áhrifamikill og
var mjög vel sunginn. Eins og fyrr
segir mætti sem best nota slíka
tónlist við venjulegar messur og þá
syngja á íslensku. Sama má segja
um aðra þættir úr „Andlegu kon-
sertunum", sem fluttir voru að
þessu sinni en efni þeirra er sótt í
Sálmana og Predikarann.
Flytjendur voru Margrét Bóas-
dóttir, Sverrir Guðjónsson, Guð-
laugur Viktorsson, Ragnar Davíðs-
son, er sáu um allan söng með
miklum ágætum, og hljóðfæraleik-
ur, sem einnig var vel framfærður,
var í höndum Rutar Ingólfsdóttur,
Lilju Hjaltadóttur, Svövu Bern-
harðsdóttur, Richards Korn, Kol-
beins Bjarnasonar og Guðrúnar
Óskarsdóttur.
Eftir hlé var brugðið á léttari
strengi og flutt Kaffikantatan eftir
J.S. Bach og þá boðið upp á kaffi
og te með konfekti í félagsheimili
kirkjunnar. Kaffikantatan er
skemmtilegt verk og fjallar um
geðillan föður og kaffiþyrsta dóttur
hans. Hún fær að giftast, er hún
lætur af ástríðufullri kaffidrykkju
sinni en hyggst setja mannsefni
sínu þau skilyrði að mega, að vígslu
lokinni auðvitað, hella upp á kaffi,
eins henni sjálfri þykir best. Mar-
grét Bóasdóttir söng dótturina mjög
vel og Ragnar Davíðsson lék og
söng föðurinn af glæsibrag. Sögu-
maður var Guðlaugur Viktorsson
og gerði hann margt ágætlega, þó
oft vantaði á að hann væri sáttur
við hlutverkið og ætti á stundum
nokkuð erfitt með „leggja" röddina
svo vel færi. Guðrún Oskarsdóttir
lék á sembal og var leikur hennar
áberandi vel útfærður.
Þetta voru skemmtilegir tónleik-
ar, er hófust með tilheyrandi trúar-
legri alvöru en lauk með græsku-
lausu gamni. Mætti sem best út-
færa þess hugmynd frekar og flytja
þá sveitakantötuna, með sama
hætti og bjóða þá upp á náttúru-
vænar landbúnaðarvörur. Varla
væri þó mögulegt að bjóða upp á
pípureikingar meðal hljómleika-
gesta, þar sem Bach lofsyngur þá
íþrótt. Margt fleira er að finna í
veraldlegu kantötunum eftir Bach
en hann mun hafa samið nærri
fjörutíu slíkar, þó nokkrar þeirra
séu glataðar og aðrar aðeins til í
ófullkomnum slitrum.
Stuðningsmenn
Árna Sigfússonar
í 2. sætið
í prófkjöri sjólfstæðismanna
hafa opnað kosningaskrif-
stofu ó Suðurlandsbraut 4,
símar 6841 óó og 6841 54
Opið fró hódegi dag hvern
og fram eftir kvöldi.
Skandia
I Prófkjör
Sjálfstæðismanna
I í Reykjavík.
VAKNAÐU!
1/ldAGE
HÁRSNYRTI-
VÖRURNAR
ö
13010
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTÍG
gl KERFISÞRÓUN HF.
FÁKAFENI 11 - SÍMI 688055
Þriðjungur íslenskra heimila er ótryggður.
Býr Jjölskylda þín við slíkt óöryggi ?
Óhöpp gera ekki boð á undan sér og erfitt er að
varast þau. Lítil óhöpp sem stór geta hæglega
sett varanlegt strik í fjáriiag heimilisins. Á tímum
samdráttar og erfiðrar íjáihagsstöðu heimilanna
koma slík áfÖU verr við eldhúsbuddumar en
nokkm sinni.
Skandia býður heimilis- og húseigendatryggingar
á verði og kjömm sem flest heimili ættu að ráða við.
slysatryggingu í ífítíma.
Öryggisráðgjafar Skandia heimsækja flesta þá
sem panta húseigendatryggingu og leiðbeina
um öryggismál á staðnum, eigend-
unum að kostnaðarlausu.
ipafcö)
Ef þú kaupir bæði heimilis- og
húseigendatryggingar fyrir 1. mars
n.k. færðu vandaðan reykskynjara í bónus.
msoD
Húseigendatryggingin vemdar eigendur fyrir
skakkaföllum vegna tjóna á húseignum.