Morgunblaðið - 20.01.1994, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 20.01.1994, Qupperneq 1
80t’SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 15.tbl. 82. árg. FIMMTUDAGUR 20. JANUAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tímamótasamningur Króata og Serba Vilja eðlileg sam- skipti ríkjanna Genf. Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRAR Serbíu og Króatíu skrifuðu í gær undir samning um að koma samskiptum ríkjanna í eðlilegt horf, þremur árum eftir að Króatar sögðu sig úr lögum við júgóslavn- eska sambandsríkið. Virðist sem samkomulagið hafi aukið þrýst- ing á múslima í Bosníu og aðeins nokkrum mínútum eftir undir- ritun þess sagði talsmaður Alija Izetbegovic Bosníuforseta, að hann hefði fallist á tillögu Króata um að alþjóðlegur gerðardóm- ur fjallaði um deilur þjóðarbrotanna og landakröfur þeirra. Franjo Tudjman, forseti Króat- íu, sagði í gær, að samkomulagið væri stórt skref í átt til eðlilegra samskipta Serba og Króata og væri nú unnið að því að finna lausn á vandamálum serbneska minni- hlutans í Króatíu en hann hefur Ovissa um bmarsmíði Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt- ur, fréttaritara Morgunblaðsins. EFTIR fund forsætisráðherra Danmerkur og Svíþjóðar í Málmey í gær þykir ljóst að framkvæmdir við Eyrarsunds- brúna muni dragast fram á haust og þar með er fram- kvæmdinni stefnt í tvísýnu. Danir hafa þegar ákveðið að hætta við framkvæmdir, sem byrjað er á. Eftir að sænska stjórnin frestaði í síðustu viku að gefa grænt ljós á brúarbygginguna, fór Poul Nyr- up Rasmussen forsætisráðherra fram á fund í Kaupmannahöfn með Carl Bildt, forsætisráðherra Sví- þjóðar. Bildt neitaði að láta kalla sig fyrir á þennan hátt, svo úr varð að ráðherrarnir hittust í Málmey í gær. Bildt tilkynnti Nyr- up Rasmussen að Svíar héldu fast við að leggja flókin tölvulíkön fyr- ir sænska vatnadómstólinn, en þau verða ekki tilbúin fyrr en eftir hálft ár. Þýskir stjórnmálamenn lýstu í gær yfir áhyggjum af því að for- sendur fyrir tengingu Danmerkur og Þýskalands með brú eða göngum væru brostnar vegna óvissunnar um Eystrasaltsbrúna. lýst yfir stofnun sjálfstæðs ríkis í Krajina-héraði. Ekki er enn ljóst hvenær formleg stjórnmálatengsl verða tekin upp milli ríkjanna en eins konar fulltrúaskrifstofur verða opnaðar ekki seinna en 15. febrúar nk. Eiga þær að vinna að því að koma samgöngum og fjar- skiptum milli ríkjanna í lag. Sáttasemjararnir Owen lávarð- ur og Thorvald Stoltenberg sögðu í Genf í gær, að þeir væru ánægð- ir með samkomulag Króata og Serba og virðast þeir og fleiri von- ast til, að það geti orðið fyrirmynd að fleiri samningum milli þjóðanna í Júgóslavíu sem var. Reuter Fimbulkuldi í Bandaríkjunum MIKLAR frosthörkur hafa verið í stórum hluta Bandaríkjanna undanfarna daga og hefur frostið orðið mest 40 gráður á nokkrum stöðum. Hafa á þriðja tug manna látist vegna hins kalda veðurs og í dag verða flestar opinberar skrifstofur í Washing- ton lokaðar vegna veðurs. Er það gert að beiðni orkufyrirtækja en mikið álag hefur verið á húshitun- arkerfi í borginni. Á myndinni má sjá mann taka mynd af miðborg Chicago en vegna kuldans hefur mikil þoka myndast yfir Michiganvatni. Stj órnmálaóvissan í Rússlandi dregst á langinn Ótti við óðaverðbólgu og efnahagsöngþveiti Moskvu. Reuter. ÁTÖKIN um skipan nýrrar stjórnar í Rússlandi virðast standa milli Borísar Jeltsíns forseta og Viktors Tsjernomyrdíns forsæt- isráðherra og er tekist á um framtíð Borísar Fjodorovs fjármála- ráðherra, sem er helsti umbótasinninn í stjórninni eftir afsögn Jegors Gajdars, aðstoðarforsætisráðherra. Fréttastofan Interfax ságði í gærkvöídi að Tsjernómyrdín hefði fallist á að hafa Fjod- orov áfram í stjórninni en enn er óvíst hvort að hann samþykki það sjálfur. Er því spáð, að verði umbótastefnunni ekki haklið áfram muni verðbólgan fara innan tíðar í 100% á mánuði. Banka- menn skoruðu í gær á Jeltsín að grípa í taumana til að koma í veg fyrir öngþveiti í efnahagsmálum. Clinton íKaliforníu BILL Clinton, Bandaríkja- forseti, kom í gær til Los Angeles til að kynna sér aðstæður í borginni í kjölfar jarðskjálftans sem reið yfir á mánudag og kostaði 40 manns lífið. Hefur tjónið vegna eyðileggingarinnar verið metið á um 30 millj- arða dala en það er mesta tjón sem orðið hefur í jarð- skjálfta í Bandaríkjunum. Á myndinni má sjá Clinton ræða við verkfræðing um vegaskemmdir. Reuter. „Ég hef ekki sagt af mér og mun ekki gera það verði umbóta- stefnunni í efnahagsmálum haldið áfram,“ sagði Fjodorov við Inter- fax-fréttastofuna í gær en fyrr í vikunni setti hann það skilyrði fyrir að gegna fjármálaráðherra- embættinu áfram, að Víktor Ge- rashtsjenko segði af sér sem seðlabankastjóri og afturhalds- maðurinn Alexander Zaverjúkha sem aðstoðarforsætisráðherra. Að sögn rússneskra fjölmiðla hafnaði Víktor Tsjernomyrdín forsætis- ráðherra þessum skilyrðum og í gær virtist Fjodorov einnig hafa fallið frá þeim. Hann krefst þess hins vegar, að hann fái embætti aðstoðarforsætisráðherra auk fjármálaráðherraembættisins. I gærkvöldi var haft eftir honum að hann hefði ekki fallið frá þeirri kröfu. Fjodorov var sýnd sú óvirðing í gær að vera neitað um aðgang að Kreml þar sem hann ætlaði að vera á fundi í öryggisráðinu undir forsæti Jeltsíns. Talsmaður Fjod- orovs sagði, að verðirnir hefðu sagt, að nafn hans væri ekki að finna á lista yfir þátttakendur í fundinum. „Þetta þarf ekki að hafa neina pólitíska þýðingu," sagði talsmaðurinn. „Hugsanlega voru þeir með rangan lista. Það væri ekkert nýtt.“ Til stóð að skýra frá myndun nýrrar stjórnar síðastliðinn mánu- dag en afsögn Jegors Gajdars, oddvita umbótasinna, þykir hafa leitt í ljós mikla valdabaráttu inn- an stjórnarinnar. í tilkynningu frá forsetaskrifstofunni í gær sagði, að Jeltsín myndi halda áfram til- raunum til stjórnarmyndunar næstu daga. Ummæli „skýrð“ Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins sagði í gær að leitað hefði verið skýringa hjá Rússum á þeim ummælum Andrei Kozyrevs utanríkisráðherra að rússneskar hersveitir myndi ekki yfirgefa algjörlega fyrrum Sovét- lýðveldi. Sagði hann Rússa hafa lýst því yfir að líklega hefðu um- mæli ráðherrans verið „brengluð“ af fréttastofunni sem greindi frá þeim. Hann sagði að skýit hefði verið út hvað ráðherrann hefði í raun átt við og að stefna Rússa gagnvart Eystrasaltsríkjunum væri greinilega óbreytt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.