Morgunblaðið - 20.01.1994, Side 4
4
morgunb.lað;d FIMMTUDAGUR, 20. JANÚAR. 1994
Nauðungaruppboð á íbúðum Húsnæðisnefndar Hafnarfjarðar
14 íbúðir boðnar upp
vegna greiðsluerfiðleika
HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins auglýsti nauðungaruppboð á 14 íbúðum
í eigu Húsnæðisnefndar Hafnarfjarðar um síðustu helgi. Jóna Ósk Guð-
jónsdóttir, formaður Húsnæðisnefndar Hafnarfjarðar, segir að íbúðirn-
ar hafi verið auglýstar af sérstöku tilefni þar sem hún hafi „staðið i
samningaumleitunum við stofnunina ýmissa hluta vegna og þetta er
angi af því, ásamt erfiðri greiðslustöðu nefndarinnar. Við. höfum lent
í smá basli út af deilumálum sem við höfum átt í.“ Jóna Ósk segir að
verið sé að semja um ákveðnar greiðslur milli þessara aðila og uppboðs-
ferlið fari sjálfkrafa af stað án tillits til hver er eignaraðili.
Jóna Ósk kvaðst í samtali við
Morgunblaðið ekki vilja gera upp-
skátt hve skuldir Húsnæðisnefndar
væru miklar en kvaðst gera sér von-
ir um að greiðsluerfíðleikum hennar
linnti fyrr en seinna. Húsnæðisnefnd
greindi á við Húsnæðisstofnun og
væri um háar upphæðir að ræða, en
síðan sæti Húsnæðisnefnd uppi með
eldri skuldir frá stjóm verkamanna-
bústaða. Jóna Ósk kvaðst ekki hafa
handbærar tölur um hversu margar
íbúðir eru skráðar á nafn nefndarinn-
ar eða í hennar eigu, þar sem sú
tala sé mjög breytileg. Jóna Ósk sagði
öruggt að íbúðir þær sem auglýstar
voru yrðu aldrei boðnar upp, en ekki
væri hægt að fyrirbyggja að auglýst
yrði siðar nauðungaruppboð á flein
íbúðum í eigu nefndarinnar þar sem
ekki væri gerður greinarmunur á
þinglýstum eigendum í uppboðsmeð-
ferð.
Vanskil vegna innlausnarlána
Samkvæmt upplýsingum frá Hús-
næðisstofnun eru uppboðsbeiðnimar
tvíþættar, annars vegar vegna al-
mennra og félagslegra kaupleigu-
íbúða sem Hafnarfjarðarbær á og
hins vegar vegna skuida Húsnæðis-
nefndar við Byggingasjóð verka-
manna, sem stafa af vanskilum á
greiðslu áhvílandi lána úr sjóðnum
sem tekin vom til að innieysa félags-
legar íbúðir til endursölu. Veðdeild
Landsbanka óskaði eftir uppboðs-
beiðni þegar lánin gjaldféllu. Sigurð-
ur E. Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Húsnæðisstofnunar ríkisins,
segir það ekki einsdæmi að óskað sé
uppboðs á íbúðum í eigu eða umsjá
húsnæðisnefnda á landinu, hafí upp-
gjör dregist úr hófi. „Við settum lög-
fræðideild okkar í gang í haust með
það verkefni að taka í lurginn á hús-
næðisnefndum sem okkur fannst vera
orðnar eftir á, og reyndar ekki bara
húsnæðisnefndum, heldur nokkmm
öðmm félagslegum framkvæmdarað-
ilum líka. Þetta hefur borið tilætlaðan
árangur. Hvað varðar íbúðirnar í
Hafnarfírði hefur uppgjör verið lengi
á döfínni eins og alkunna er úr frétt-
um, en að því er ég best veit er upp-
gjör væntanlegt innan tíðar,“ segir
Sigurður.
Húsnæðisstofnun mun hætta að
veita lán vegna innlausnar og end-
ursölu 1. mars nk., þar sem ekki
þykir ástæða lengur til að hafa milli-
göngu vegna viðunandi framboðs á
kaupendum.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00
<7
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veöurspá kl. 16.30 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 20. JANÚAR
YFIRLIT: Skammt norðaustur af landinu er 970 mb lægð, sem hreyfist
norðaustur, en við Hvarf er 965 mb lægð, sem hreyfist austnorðaust-
ur. Heldur kólnar í nótt en hlýnar á morgun.
SPÁ: Sunnan og suðvestan kaldi eða stinningskaldi og snjókoma, slydda
eða slydduél víða um land. Hiti 4-3 til +3 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestan og suðvestan átt á landinu. Él um
vestanvert landið og einnig á annesjum norðanlands, en þurrt og sums
staðar bjart veður annars staðar. Frost á biiinu 4-12 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG: Áfram verður vestlæg átt og kalt í veðri.
Éljagangur víða um land, þó síst suðaustan- og austanlands.
HORFUR Á SUNNUDAG: Búast má við að vindur snúist til norðlægrar
áttar, meö éljum norðan- og austanlands, en birtir til á suðvestur- og
vesturlandi.Áfram verður frost um allt land.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30.Svarsimi Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o & & Ö o Sunnan, 4 vindstig. Vlndörín sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig.
r r r * / * * * * • JL * 10° Hitastig
r r r r r * / / * / * * * * * V v V y Súld I
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka S
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30 ígær)
Flestir þjóðvegir landsins eru nú færir, en umtalsverð hálka er mjög víða
á vegum landsins. Á Vestfjörðum er íært frá Brjánslæk til Patreksfjarð-
ar og Bíldudals en Botns- og Breiðadalsheiðar eru ófærar og þungfært
er um vegi í Ísafjarðardjúpí. Fært er um Mývatns- og Möðrudalsöræfi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilfnu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavik hiti +2 +2 veður hálfskýjað léttskýjað
Bergen 3 skýjað
Helelnki +13 skýjað
Kaupmannahöfn 4 þokumóða
Narssarssuaq +7 snjókoma
Nuuk +12 alskýjað
Osló +4 skýjað
Stokkhólmur 1 snjókoma
Þórshöfn vantar
Algarve 12 skýjað
Amsterdam 4 þokumóða
Barceiona 6 skýjað
Berlín 3 alskýjað
Chlcago +28 heiðskirt
Feneyjar 7 heiðskírt
Frankfurt +1 snjókoma
Glasgow 4 úricoma
Hamborg 2 súld
London 6 léttskýjað
Los Angeles 11 léttskýjað
Lúxemborg +3 hrímþoka
Madrid 4 léttskýjað
Maiaga 11 skýjað
Mallorca 12 alskýjað
Montreal +29 léttskýjað -
NewYork +19 heiðskírt
Orlando S alskýjað
París 0 skýjað
Madeira 15 iéttskýjað
Róm vantar
Vín 2 heiðskirt
Washlngton +19 heiðskírt
Winnipeg +32 heiðskírt
Morgunblaðið/Júlíus
Fluttur á sjúkrahús
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, kom með skipverjann sem
slasaðist alvarlega í Borgarspítalann um kl. 15 í gær.
Tveir skipveijar slösuð-
ust við vinnu um borð
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
sótti í gær slasaðan sjómann um
borð í Sigurborgu VE 121. Mað-
urinn var mikið slasaður á
bijósti og var hann fluttur í
Borgarspítalann. Þá hafði fé-
lagi hans úr áhöfninni olnboga-
brotnað og var farið með hann
til Djúpavogs.
Slysið varð um kl. 9.30 í gær-
morgun. Hlerar höfðu flækst sam-
an og unnu mennirnir tveir við að
losa þá í sundur. Einhver slaki mun
hafa komið og slegið mennina
harkalega niður. Annar þeirra
hlaut mikla áverka á brjósti, en
hinn olnbogabrotnaði og slasaðist
á öxl.
Haft var samband við lækni á
Höfn, sem fór út í skipið með hafn-
sögubátnum á Höfn, en Sigur-
borgu var ófært inn ósinn. Ekki
var hægt að hífa manninn um
borð í hafnsögubátinn vegna sjó-
gangs og kom þyrla Landhelgis-
gæslunnar að skipinu kl. 11.45.
Þá var sjógangur enn of mikill til
að hægt væri að hífa skipveijann,
sem slasaðist alvarlega, um borð
í þyrluna. Sigurborg sigldi austur
fyrir Stokksnes, þar sem betra
sjólag var. Þar var maðurinn hífð-
ur um borð kl. 12.40. Lent var við
heilsugæslustöðina á Höfn, þar
sem maðurinn var undirbúinn til
flutnings suður og þyrlan lenti svo
við Borgarspítalann um kl. 15. Þar
gekkst maðurinn undir aðgerð í
gærkvöldi.
Læknirinn á Höfn var áfram um
borð í Sigurborgu og hlúði að hin-
um skipveijanum, en skipinu var
siglt til Djúpavogs.
Atlantaleig-
ir Aröbum
fjórar þotur
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta í
Mosfellsbæ hefur gert nýjan
samning við Saudi Arabian
Airlines og leigir Atlanta flug-
félaginu fjórar Boeing 747
breiðþotur næsta sumar.
Samningurinn tekur gildi 1.
apríl og segir Arngrímur Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri
félagsins, að um svipaðan
samning sé að ræða og gerður
var síðasta sumar.
Hann segist búast við að svip-
aður földi Islendinga fái vinnu í
tengslum við samninginn, en
tæplega 150 íslendingar voru
við störf í Saudi Arabíu síðasta
sumar.
Samningurinn nær fram í
september og verða vélamar
notaðar við pílagrímaflug, svo-
kallað kennaraflug, en um
230.000 erlendir kennarar vinna
í landinu, og einnig áætlunarflug
á vegum Saudi Arabian Airlines.
Einnig hefur samningur flug-
félagsins við þýska flugfélagið
Lufthansa verið endumýjaður,
en Atlanta hefur leigt félaginu
eina 737-200 vél til fragtflugs
innan Evrópu.
Franz Mixa látinn
DR. Franz Mixa, prófessor dr.
phil., tónskáld og tónlistarkennari
í Reykjavík og síðar í Graz í Aust-
urríki, lést 16. janúar sl. á sjúkra-
húsi í Miinchen í Þýskalandi.
Franz Mixa fæddist 3. júní 1902.
Franz Mixa kom hingað til lands
í október 1929 að loknu tónlistar-
námi við Háskólann í Vín, en hann
var ráðinn til að stjóma tónlistar-
flutningi á 1.000 ára afmælishátíð
Alþingis. Hann sneri síðan aftur til
landsins 1931 og gerðist kennari við
Tónlistarskólann í Reykjavík, sem
þá var nýstofnaður. Hérlendis var
Franz ein helsta driffjöður í tónlistar-
lífí á ámnum fyrir seinni heimsstyij-
öld, stjórnaði m.a. Hljómsveit
Reykjavíkur og stóð að uppfærslu
Meyjaskemmunnar eftir Schubert
árið 1934, Systrunum frá Prag 1936
og Bláu kápunni 1937. Franz bjó hér
til ársins 1938 þegar hann gerðist
kennari og síðar skólastjóri Tónlist-
arskólans í Graz í Austurríki. Hann
samdi þijár óperur, þar á meðal óper-
una Traum ein Leben og óperuna
um Fjalla-Eyvind, sem tileinkuð var
íslensku þjóðinni og flutt hérlendis
af Sinfóníuhljómsveit íslands árið
1987, fímm sinfóníur, óratoríur og
meira en 100 sönglög.
Hann kvæntist Katrínu Ólafsdótt-
ur, dóttur Borghildar Thorsteinsson
og Ólafs Björnssonar, annars stofn-
anda Morgunblaðsins, árið 1934 og
eignuðust þau tvo syni. Þau slitu
samvistir. Franz kvæntist eftirlifandi
eiginkonu sinni 1949, Herthu Töp-
per-Mixa, óperusöngkonu. Hann fór
á eftirlaun frá Graz fyrir tilskilinn
tíma árið 1957 til að geta sinnt ferh
konu sinnar og eigin tónsmíðum. Þau
fluttu til Múnchen, en Franz bárust
áfram fjölmargar beiðnir um tón-
smíðar frá Austurríki.