Morgunblaðið - 03.02.1994, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1994
Halldór Blöndal sagði að frum-
varpið nú fæli í sér að ákvörðun
verðjöfnunargjalda væri í höndum
landbúnaðarráðherra og staðfest
væri bann við því að fluttar væru inn
landbúnaðarvörur ef nóg væri til af
þeim í landinu. „Þetta þýðir á mæltu
máli að það er óbreytt ástand. Það
stendur hvorki til að færa út bann
við innflutningi landbúnaðarvara né
hækka verð á landbúnaðarvörum
með því að leggja á þær vörugjald
á nýja vöruflokka. Um leið er stað-
fest vald ráðherra til að leggja verð-
jöfnunargjöld á þær vörur sem eru
á listunum með frumvarpinu ef sú
staða kemur upp að ráðherra og
framleiðsluráð landbúnaðarins telja
ástæðu til að heimila innflutning,"
sagði Halldór Blöndal.
Þingflokkar stjómarflokkanna
fjölluðu um drög að frumvarpinu á
mánudag í síðustu viku, en ekki var
þó endanlega afgreitt fyrr en í gær
hvaða vörur ættu að vera á bannlist-
anum. Á listann hefur nú meðal ann-
ars verið bætt öllu pasta með Iqot-
innihaldi en fyrir var á listanum
pasta með yfír 20% kjötinnihaldi. Þá
er sérstakur viðauki með lista yfir
þær vörur sem heimilað er að flytja
til landsins samkvæmt samningnum
um Evrópskt efnahagssvæði, svo
sem ákveðnar tegundir af smjörlíki
og súpur með kjötinnihaldi. í athuga-
semdum með frumvarpinu kemur
fram, að þetta sé gert til að auka
við heimildir til álagningar verðjöfn-
unargjalda.
Heimsókn Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra til Noregs
Ræða þorskveiðar í
Smugu og Barentshafí
Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, frcttaritara Morgunbladsins.
ÞORSTEINN Pálsson, sjávarútvegsráðherra Islands, kom í gær í opin-
bera heimsókn til Óslóar „með farteskið fullt af vandamálum" eins og
sagði í frétt frá NTR-fréttastofunni. í dag, fimmtudag, er búist við
að veiðar íslendinga í Smugunni verði ræddar á fundi með norska sjáv-
arútvegsráðherranum, Jan Henry T. Olsen.-
I norsku blöðunum segir að Þor- með starfsbróður sínum, Jan Henry
Morgunblaðið/Sverrir
Með búvörulagafrumvarpið
HALLDÓR Blöndal landbúnaðarráðherra með frumvarpið í gær.
LandbúnaðarráðherTa um búvörufnimvarp
Forræði yfír verð-
jöfnun staðfest
STJÓRNARFRUMVARP um breytingu á búvörulögum var lagt fram
á Alþingi í gær. Samkvæmt því er innflutningur á tilteknum vörum
óheimill nema með heimild landbúnaðarráðherra og er miðað við að
þetta gpldi fram til gildistöku GATT-samkomulagsins. I viðaukum með
frumvarpinu eru Iistar yfir þær vörur sem við er átt. Halldór Blöndal
landbúnaðarráðherra segir að frumvarpið staðfesti enn frekar það
samkomulag sem ríkisstjórnin gerði í desember og staðfest hafi verið
með lögunum 21. desember.
ástand þá mánuði sem eftir eru þar
til GATT gengur í gildi. Óvissu sé
að öllu leyti eytt með því að setja
frumvarpið fram þannig að taldar
séu upp allar þær vörur sem bannað
sé að flytja inn.
„Þegar GATT-samkomulagið
gengur í gildi verður bannað að
banna og þá verður ekkert leyfisveit-
ingavald til lengur. Þá fellur það úr
gildi að landbúnáðarráðuneytið geti
leyft eða bannað innflutning. GATT
er um það að menn geti lagt á tolla
til þess að jafna upp misgengi og
samkvæmt tollalögum eru þeir
ákvarðaðir í fjármálaráðuneytinu."
Sighvatur segir að ef það forræði
ætti að vera í landbúnaðarráðuneyt-
inu þyrfti augljóslega að breyta tolla-
lögum.
Sjá bls. 43: „Búvör'ulagafrum-
varpið lagt fram ...“
steinn muni varla fá hjálp í Noregi
við að leysa vandamál íslendinga í
tengslum við fískveiðar en það nýj-
asta eru kaup íslenskra útvegsmanna
á fímm togurum í Kanada. Þá hefur
það vakið athygli í Noregi að íslensk-
ir útvegsmenn hóta að skrá skip sín
undir hentifána og senda þau til veiða
, á alþjóðlegum hafsvæðum, ef til vill
í Barentshafí og Smugunni.
„Við höfum okkar vandamál," var
það eina sem Þorsteinn Pálsson sagði
við fréttamann NTB við komuna til
Noregs. Hann vildi ekki tjá sig um
kaupin á kanadísku togurunum, sem
hefur vakið reiði Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna.
Þorsteinn átti í gær stuttan fund
með Gro Harlem Brundtland, forsæt-
isráðherra Noregs. Þaðan hélt ráð-
herrann í Munch-safnið, þar sem
hann hitti fulltrúa hagsmunasam-
taka í norskum sjávarútvegi og fisk-
iðnaði. í gærkvöldi sat Þorsteinn
kvöldverð í boði Norges Fiskarlag.
I dag, fímmtudag, mun ráðherr-
ann eiga tveggja klukkustunda fund
T. Olsen. Munu þeir ræða þorskveið-
ar í Barentshafí og ráðstefnu Sam-
einuðu þjóðanna um úthafsveiðar en
þar eiga löndin sameiginlegra hags-
mun að gæta. Hafa Norðmenn hvað
eftir annað bent á það að með veiðum
sínum í Smugunni gangi íslendingar
gegn hagsmunum sínum. Þá verða
Þorsteini kynntar aðildarviðræður
Noregs að Evrópubandalaginu og
áhrif EES-samningsins.
Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra
Gjaldskrá STEFs með
samþykki ráðuneytis
GJALDSKRÁ Sambands tónskálda og eigenda flutningsréttar, STEF,
er samþykkt hjá menntamálaráðuneytinu að sögn Ólafs G. Einarsson-
ar. Ráðherrann segir að hún sé sett með vísun í höfundalög og í henni
séu ákvæði sem veiti heimild til innheimtu gjalds fyrir flutning utan
útvarps. Ólafur segir einnig að samkvæmt sínum heimildum sé verið
að reyna innheimtu á þessum forsendum hérlendis í fyrsta sinn og
kunni það að valda þessum viðbrögðum. Innheimta fyrir flutning utan
útvaiTis hafi tíðkast á Norðurlöndum til þessa þótt hún sé ný hér.
Ólafur segir að gjaldskrá samtak-
anna sé sett með vísun í höfundalög-
in og þau hafí heimild til þess að
heimta gjald af tónlistarflutningi ut-
Atvinnuleysi í Garðinum
Mikil breytmg til batn-
aðar á örfáum dögrim
Garði.
MJÖG hefir slegið á atvinnuleys-
ið undanfarna daga. Nú eru 27
skráðir atvinnulausir en þegar
verst lét um miðjan janúar voru
95 á atvinnuleysisskránni.
Flestir hinna atvinnulausu eru
verkamenn, eða 20 manns, þrír eru
í iðnsveinafélögum, einn verkstjóri
og einn sjómaður. íbúar í Garðinum
voru 1. des sl. 1.110, 555 konur
og 555 karlar. Atvinnuleysið mæl-
ist skv. þessu 2,4%.
Góð aðsókn hefír verið í nýju
íþróttahöllina okkar. 5.136 manns
komu í húsið og þar af komu tæp-
lega 1.200 manns í sundið þrátt
fyrir að laugin sé útilaug og válynd
veður. Arnór
an útvarps. Gjaldskráin hafí verið
samþykkt hjá ráðuneytinu og í henni
sé kveðið á um innheimtu af verslun-
um og öðrum þjónustufýrirtækjum.
Ráðherrann segist vona að ekki hafí
verið farið út fyrir heimild laga með
setningu gjaldskrárinnar og það
verði skoðað á næstunni. Hann segir
að innheimta á þessum forsendum
hafí tíðkast á Norðurlöndunum til
þessa. Nú sé verið að taka þetta upp
hér í fyrsta sinn og viðbrögðin þess
vegna á þessa lund. „Ég þarf að
skoða þetta mál betur en ég vona
að það hafi ekki verið farið út fyrir
heimild laga,“ segir Ólafur. Hann
vildi ekki tjá sig um það á þessu
stigi hvort reglur um flutning utan
útvarps yrðu endurskoðaðar. Að-
spurður hvort segja mætti að verið
væri að marginnheimta fýrir sama
hlutinn sagði Ólafur að ekki væri
hægt að fullyrða um það á þessu
stigi málsins.
Bond Evans aðalforstjóri bandaríska álfyrirtækisins Alumax
Jákvætt fyrir áliðnaðinn að
Rússar dragi úr framleiðslu
Allri óvissu eytt
Sighvatur Björgvinsson viðskipta-
ráðherra sagðist vera mjög ánægður
með að nú væri komin full sátt um
innflutning landbúnaðarafurða sem
gengi út á að varðveita óbreytt
BOND Evans, aðalforsljóri bandaríska álfyrirtækisins Alumax, sem er
eitt þriggja álfyrirtækjanna í Atlantsálshópnum segir að vissulega fel-
ist jákvæð teikn í því fyrir heimsmarkaðinn i álframleiðslu að Rússar
skuli hafa fallist á að draga úr álframleiðslu sinni sem nemur 500
þúsund tonnum á næstu 6 mánuðum. Evans sagði í samtali við Morgun-
blaðið að líkur þess að jafnvægi kæmist á framboð og eftirspum eftir
áli, fyrr en ætla hefði mátt til þessa, ykjust við þessa ákvörðun Rússanna.
í dag
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins leggja fram 18 ályktunartillög-
ur í kvöld 16
124 erindi um fjárhagsaöstoð
Aldrei hafa eins margir leitað ásjár
Félagsmálastofnunar á Akureyri
og 1 janúar 18
Umdeildur hiskup
Enskur biskup sem trúði hvorki á
meyfæðingu né upprisu Krists sest
í helgan stein í sumar 24
Leiðari
Löggjöf og réttarríki 26
Viðskipti/A tvinnulíf
► Markmið og framtíðarsýn
Skeljungs - Viðskipti með vöm-
skiptanetum - Myndir yfir á
geisladiska - Hugvitskonur -
Afengiseinkasala og EES
Dagskrá
^ Mexíkóskur kvikmyndaiðnað-
ur á uppleið - Tíu bestu iýósna-
myndirnar - Hægt að djamnia
með átrúnaðargoðinu í gegnum
tölvu - Myndbönd - Bíó
„Eins og ég hef áður sagt við
Morgunblaðið, þá er skoðun mín á
Atlantsálverkefninu óbreytt, það
verður góður og fýsilegur kostur að
reisa nýja álbræðslu á Keilisnesi,
þegar markaðsaðstæður í heiminum
leyfa það. Hversu mikil áhrif þessi
ákvörðun Rússanna hefur, get ég
ekki sagt til um nú, en ég tel hana
vissulega vera jákvæða vísbendingu
í þá veru að rússneskir álframleið-
endur séu að átta sig á gildi mark-
aðslögmálanna," sagði Evans. Hann
bendir á að bandarískir álframleið-
endur hafi dregið úr ársframleiðslu
sinni sem nemur 700 þúsund tonnum
og þar af hafi Alumax eitt minnkað
ársframleiðslu sína um 106 þúsund
tonn.
Áhrifin á markaðinn mikil
„Ég held að enginn álframleiðandi
á Vesturlöndum hafí gert sér í hug-
arlund að allt í einu væri hægt að
skella yfír 1,5 milljónum tonna á
markaðinn af áli, frá fyrrum komm-
únistaríkjum í austri. Við höfum
ekki hugmynd um hvert allt þetta
magn fór áður, en skyndilega stóð-
um við frammi fyrir því að þessu
hafði bara verið skellt á markað.
Áhrifín á markaðinn voru auðvitað
gríðarleg, og hafa stöðvað tíma-
bundið alla frekari uppbyggingu á
þessu sviði,“ segir Evans.
Evans segir að það sé nauðsyn-
legt fyrir Rússa að gera sér grein
fyrir því, að aðeins brot af álfram-
leiðslufyrirtækjum þeirra geti talist
samkeppnishæf. „Mörg álver þeirra
eru gjörsamlega úrelt og standast
engan veginn þær umhverfís- og
tæknikröfur sem gerðar eru til slíkra
stóriðjufyrirtækja í dag, en Rússar
virðast ekki enn hafa sætt sig við,
að eina leiðin fyrir þá til þess að
vera samkeppnishæfir á þessu sviði,
er að loka gömlu, úreltu verksmiðj-
unum, draga úr framleiðslu sinni,
og endurbyggja síðan nýjar full-
komnar verksmiðjur, eftir því sem
markaðurinn leyfír,“ sagði Evans.
„Líkur þess að jafnvægi komist á
milli framboðs og eftirspurnar eftir
áli fyrr en gert hefur verið ráð fyr-
ir, aukast að mínu mati við það að
Rússar hafa nú fallist á að draga
úr álframleiðslu sinni, því Rússar
virðast hafa fullan hug á því að
verða hluti af heimsmarkaðinum í
þeim skilningi að framleiðsla þeirra,
markaðssetning og verðlagning áls!
verði háð markaðslögmálum," sagði
Bond Evans, aðalforstjóri Alumax
að lokum.