Morgunblaðið - 08.03.1994, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8, MARZ 1994
RJVÐ.A UGL YSINGAR
Hárgreiðslumeistari
- sveinn
Samstarfsaðili um rekstur á stofu, sem er
í örum vexti, óskast.
Upplýsingar í síma 627420.
Verkstjórn
- saltfiskverkun
Verkstjóra vantar í saltfiskverkun úti á landi,
tímabundið. Mættu vera tveir samhentir
aðilar eða par. Þurfa að geta annast hirðingu
véla og tækja. Meðmæli æskileg.
Skriflegar umsóknir sendist auglýsingadeild
Mbl. fyrir 15. mars, merktar: SPIG - 10707.“
Sölumaður -
fasteignasala
Rótgróin fasteignasala óskar eftir að ráða
kröftugan sölumann. Viðkomandi þarf helst
að hafa reynslu í fasteignasölu. Leitað er að
aðila sem getur unnið sjálfstætt. Viðkomandi
þarf að geta hafið störf fljótlega.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
fyrir 11. mars nk., merktar: „E - 13096“.
Hómjfeimg
Matreiðslumeistari
Vegna aukinna umsvifa auglýsum við eftir
yfirmanni í eldhús mánuðina júní, júlí
og ágúst á komandi sumri.
Við leitum að vönum matreiðslumeistara,
sem getur tekið að sér, auk matreiðslunnar,
innkaup og stjórnun í 6 til 8 manna eldhúsi.
ÁNING ferðaþjónusta rekur tvö sumarhótel
í Skagafirði og hefur um 40 manna starfslið.
Umsóknirskulu sendarfyrir 15. mars nk. til:
ÁNINGAR ferðaþjónustu,
sími 95-36717, fax 95-36087,
pósthólf 117, 550 Sauðárkróki.
Mosfellsbær
Sumarstörf
Mosfellsbær auglýsir til umsóknar eftirfar-
andi sumarstörf árið 1994:
Vinnuskóli og skólagarðar. Yfirflokksstjórar,
flokksstjórar og leiðbeinendur við skóla-
garða. Æskilegt er að umsækjendur hafi
reynslu í stjórnun og hafi unnið við almenn
ræktunarstörf.
Einnig er laust til umsóknar skrifstofustarf
t fyrir vinnuskólann. Reynsla í almennum skrif-
stofustörfum er nauðsynleg.
Verkamenn. Til umsóknar eru störf verka-
manna við garðyrkju, gangstéttagerð og
önnur tilfallandi verkefni.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjar-
skrifstofu. Umsóknarfrestur er til 30. mars.
Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma
666218 daglega milli kl. 11-12.
Garðyrkjustjóri.
Framhaldsaðalfundur
Gigtarfélagsins
verður haldinn mánudaginn 14. mars nk. í
Ármúla 5, 3. hæð, kl. 17.30.
Dagskrá: Lagabreytingatillögur.
Gigtarfélag íslands.
Fræðslufundur
á vegum Minja og sögu verður haldinn í
Þjóðminjasafni íslands í dag, þriðjudaginn
8. mars, og hefst kl. 17.00. Fyrirlesarar eru
tveir, Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, og
Sigríður Th. Erlendsdóttir, sagnfræðingur.
Sigríður Th. Erlendsdóttir, kynnir bók sína:
Veröld sem ég vil. Saga Kvenréttindafélags
íslands 1907-1992.
Guðjón Friðriksson kynnir annað bindi af
Sögu Reykjavíkur, sem fjallar um sögu borg-
arinnar á millistríðsárunum, og kemur út á
næstu vikum.
Fundurinn er öllum opinn.
Stjórnin.
Málverkauppboð
Óskum eftir myndum fyrir næsta málverka-
uppboð. Fyrir viðskiptavin okkar leitum við
að góðum verkum eftir Jón Stefánsson og
Ásgrím Jónsson. Vinsamlegast hafið sam-
band sem fyrst. Opið virka daga frá kl. 12-18.
BÖRG
við Austurvöll,
sími 24211.
Atvinnuleyfi til leiguaksturs
Á næstunni verður úthlutað atvinnuleyfum
til leiguaksturs fólksbifreiða á félagssvæði
Bifreiðastjórafélagsins Frama í samræmi við
ákvæði laga og reglugerða þar um. Þeir ein-
ir koma til álita við úthlutun, sem fullnægja
skilyrðum laga nr. 77/1989 um leigubifreiðir.
Væntanleg atvinnuleyfi taka gildi 1. júlí nk.
Auk þess að sækja um atvinnuleyfi fyrir
rekstur hefðbundinnar leigubifreiðar er heim-
ilt að sækja um sérstakt atvinnuleyfi til rekst-
urs Eðalbifreiðar (Limousine), samkvæmt
nánari reglum þar um og gætu þau atvinnu-
leyfi tekið gildi fyrr.
Nefndin áskilur sér rétt til skoðunar öku-
tækja væntalegra leyfishafa eftir að leyfum
hefur verið úthlutað og áður en akstur hefst.
Umsóknareyðubiöð liggja frammi á skrifstofu
Bifreiðafélagsins Frama, Fellsmúla 26,
Reykjavík, þar sem allar frekari upplýsingar
eru veittar.
Umsóknum skal skilað þangað eigi síðar en
29. mars 1994, en umsóknum um eðalvagna
skal skila eigi síðar en 17. mars 1994.
Allar eldri umsóknir þarf að endurnýja.
F.h. umsjónarnefndar fólksbifreiða
á höfuðborgarsvæðinu,
Ragnar Júlíusson, formaður.
Útboð gangstétta 1994
Bæjarsjóður Garðabæjar óskar eftir tilboðum
í gerð gangstétta.
Helstu magntölur eru:
• Gangstéttar 4.600 m2
• Burðarlag 1.000 m3
Verkinu skal að fullu lokið 1. ágúst 1994.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstof-
unum í Garðabæ, Sveinatungu við Vífils-
staðaveg, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 14 þann 22.
mars 1994 á skrifstofu bæjarverkfræðings.
Bæjarverkfræðingurinn í Garðabæ.
Garðabær
Útboð
Hofsstaðaskóli, jarðvinna
Bæjarsjóður Garðabæjar óskareftir tilboðum
í jarðvinnu við götu að og á lóð Hofsstaða-
skóla.
Helstu magntölur eru:
• Skering 13.000 m3
• Burðarlag 6.000 m3
Verkinu skal að fullu lokið 1. maí 1994.
Útboðsgögn verða afhent á bæjarskrifstof-
unum í Garðabæ, Sveinatungu við Vífils-
staðaveg, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 11 þann 15.
mars 1994 á skrifstofu bæjarverkfræðings.
Bæjarverkfræðingurinn í Garðabæ.
Útboö
Klæðning
Verkvangur hf., fyrir hönd Húsfélagsins Vest-
urbergi 118-120 og 122, óskar eftir tilboðum
í klæðningu og málun o.fl. Flatarmál klæðn-
ingar er u.þ.b. 800 m2.
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðju-
deginum 8. mars nk. á skrifstofu vorri, Net-
hyl 2, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
15. mars 1994 kl. 16.00.
VERKVANGUR h.f.
VERKFRÆÐISTOFA
ISIethyl 2, 110 Rvík, síml 677690.
Norðurljósin
Höfum opnað heilsustúdíó í Borgarkringl-
unni, 4. hæð.
Andlitslyfting
m/trimm-form vöðvaþjálfun, leiser og Nova-
fone. Árangur eftir fyrsta tíma. Sogæða/-
sellonuddtæki: Betra útlit, bætt heilsa.
Trimm-form líkamsvöðvaþjálfun + fitu-
brennsla. Vatnsgufa.
Heilun
v/migreni, vöðvabólgu, streitu og bakverk.
Opnunartilboð. Sími 36677.
Birna Smith,
Þórunn B. Guðmundsdóttir.
FYRIRTÆKIASALAN
Wi PQI A Siðumúli 15 • Páll Bergsson
VAIvjLA Slmi812262 • Fax812539
Matvöruframleiðsla
Leitum fyrir fyrirtæki á sviði matvörufram-
leiðslu að samstarfsaðila og/eða hluthafa.
Fyrirtækið er ungt en í örum vexti og fram-
leiðir ýmsar tegundir matvöru, aðalega
undir eigin merki. Til greina kemur aðili
sem lagt gæti fram fjármagn og starf í
fyrirtækinu við stjórnun og markaðsstörf.
Sala hlutafjár til fjárfestis vel möguleg.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
'Zoufi ðf 4aLi ItfnövteAja, i 10 ón