Morgunblaðið - 08.03.1994, Síða 43

Morgunblaðið - 08.03.1994, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. MARZ 1994 43 TymrT 1 í WM Á leið út á lífíð tóku þeir ranga beygju inn í martröð. Þá hófst æsilegur flótti upp á líf og dauða þar sem enginn getur verið öruggur um líf sitt. Aðalhlutverkið er í höndum Emilio Esteves (Loaded Weapon 1) og leik- stjóri er Stephen Hopkins sem leikstýrði m.a. Predator 2. Sýnd kl. 5,7,9 og 11.15. Bönnuð innan 16 ára. BANVÆN MÓÐIR SKILNAÐURINN -í ATTIEFTIRAÐ , Æ BREYTASTI MARTRÖÐ Einn mesti sálfræðiþriller seinni tíma. Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð i. 14 ára. * * * a.i. Mbi. Rómantísk gamanmynd Aðalhlutv. Matt Dillon, Annabella Sciorra, Marie-Louise Parker og Wllllam Hurt Sýnd kl. 5,7,9 og 11. SÍMI: 19000 Loksins er hún komin Arizona Dream Einhver athyglisverðasta mynd sem gerð heffur verið. Aðalhl.: Johnny Depp, Jerry Lewis, Fay Dunaway og Lili Taylor. Leikstjóri: Emir Kusturica. Sýnd kl. 5 og 9. FAREWELL MV CONCUBINE a [,íjg £u GÁrn _ .. Far vel frilla min Kosin besta myndin í Cannes ’93 ásamt Píanó. Tilnefnd til Óskarsverðlauna ’94 sem besta erlenda myndin. „Ein sterkasta og vandaðasta mynd síðari ára.“ ★ ★★★ Rás 2. „Mynd sem enginn má missa af.“ ★ ★★★ S.V. Mbl. „Einhver mikilfenglegasta mynd sem sést hefur á hvíta tjaldinu.“ ★ ★ ★ ★ H. H„ Pressan. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð innan 12 ára. KRYDDLEGIN HJÖRTU AAsóknarmesta erlsnda myndin í USA frá upphafl. ★ ★★★ H. H., Pressan. ★★★.!. K., Eintak. ★★★H. K., D.V. ★ ★★1/2 S. V., Mbl. ★ ★ ★hallar í fjórar, Ó. T., Rás 2. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. FlÓMi saklcysingjans Sýnd kl. 5, 7, 9 óg 11. Stranglega b. i. 16 ára. Miðav. kr. 350 PlANÓ Tilnefnd til 8 Óskarsverðlauna m.a. besta myndin. „Píanó, fimm stjörnur af fjórum mögul. ★ ★ ★ ★ ★ Q.Ó. Pressan Sýnd kl. 4.55, 6.50, 9 og 11.05. Þéttsetin íbúð Kvikmyndir Amaldur Indriðason Nóttin sem við aldrei hittumst („The Night We Never Met“). Sýnd í Sagabíó. Leikstjórn og handrit: Warren Leight. Aðal- hlutverk: Matthew Broderick, Annabella Sciorra, Kevin And- erson, Jeanne Tripplehorn. í gamanmyndinni Nóttin sem við aldrei hittumst leikur Matthew Broderick einhleypan ostasölu- mann sem leigir íbúð tvo daga í viku. Annabella Sciorra er frí- stundamálari og gift eiganda þvottahúss og leigir sömu íbúð aðra tvo daga í viku. Kevin Ander- son er uppastrákur sem á íbúðina og notar hana hina daga vikunnar fyrir sig og uppavini sína til að fíflast í og forðast dauðyflislega verðandi eiginkonu sína. Sciorra er dauðleið í þrautleið- inlegu hjónabandi en líst vel á Broderick, sem hefur íbúðina á undan henni, þótt hún hafi aldrei séð hann. Broderick skilur eftir fyrir hana gómsætan mat og blóm og annað slíkt en á annars í mest- um brösum með sitt ástarlíf. Þeg- ar hún afræður að halda framhjá manninum sínum bankar hún uppá hjá honum í íbúðinni. Nema þá hefur hann skipt um daga við uppagerpið Anderson, sem er eins gallaður og Broderick er fullkom- inn, en hún veit ekki meir því hún hefur hvorugan séð og skellir sér útí tóma vitleysu. Og þannig er myndin nokkurn veginn, tóm vitleysa, sem fer allt of seint í gang; ef það væri ekki fyrir þrælskemmtilega túlkun Andersons á uppatittinum færi hún sennilega aldrei í gang. Þetta er lítt merkileg rómantísk gaman- mynd sem er alltaf við það að fara út í misskilningsfarsa án þess þó að stíga skrefið til fulls og reiðir sig á þijár ólíkar sögur sem eiga þessa einu íbúð sameig- inlega en aðeins ein þeirra er nógu athyglisverð og fyndin til að smella og það er sagan af uppan- um óþolandi, sem Anderson leikur með allar réttu áherslurnar í lýs- ingu á vita hugsunarlausum dek- urdreng. Handrit og leikstjórn er á ábyrgð Warren Leight sem virðist stefna á fjölbreytilegar mannlýs- ingar en hefur ekki erindi sem erfiði. Stjarna myndarinnar, Matthew Broderick, hefur dauf- legasta hlutverkið ostasölu- mannsins sem ekkert gengur í kvennamálum og þegar saga hans hverfur af tjaldinu um miðbikið til að gefa hinum sögunum tveim- ur pláss til að smella saman í misheppnaða framhjáhaldinu, saknar maður hans ekki hið minnsta. Hann er svo litlaus per- sóna að jafnvel hinn þekkilegi og ágæti gamanleikari Broderick getur ekki lyft henni upp. Og saga Sciorra er svo drungaleg, hennar hjónaband svo ömurlegt, að mað- ur veltir því fyrir sér hvort það eigi yfirleitt heima í gríni eins og þessu því Sciorra virðist sífellt vera með tárvot augun. Fjórða persóna myndarinnar skýrir ágætlega af hveiju megnið af gamninu í myndinni er ófyndið. Það er frönsk listakona og fyrrum kærasta Brodericks en Jeanne Tripplehorn ofleikur hana hrylli- lega og franski hreimurinn hennar er í einu orði sagt ægilegur. Nóttin sem við aldrei hittumst nær sér nokkuð á Strik undir lok- in áður en snyrtileg.og löngu fyrir- séð málalok eru hnýtt á sögurnar en það kemur of seint til bjargar. Morgunblaðið/Björn Blöndal Fegurð á Reykjanesi STÚLKURNAR sem taka þátt í fegurðarsamkeppni Suðurnesja í ár. í aftari röð frá vinstri eru: Birg- itta ína Unnsteinsdóttir, Sunneva Sigurðardóttir, Rakel Þorsteinsdóttir, Lovísa Aðalheiður Guðmunds- dóttir og Gunnur Magnúsdóttir. í miðröðinni eru: Birgitta María Vilbergsdóttir, Sigríður Margrét Oddsóttir, Sólrún Björk Guðmundsdóttir og Karlotta Bryndís Maloney. Fremst eru: Helga Dögg Jó- hannsdóttir og María Erla Pálsdóttir. 11 þátttakendur í fegurð- arsamkeppni Suðumesja Keflavík. FEGURÐARSAMKEPPNI Suðurnesja fer fram í Stapa í Njarðvík nk. laugardag og að þessu sinni taka 11 stúlkur þátt í keppninni. Þær eru: Gunnur Magnúsdóttir 18 ára, Sunneva Sigurðardóttir 19 ára, Sólrún Björk Guðmundsdóttir 19 ára, Birgitta María Vilbergs- dóttir 18 ára, Karlotta Bryndís Maloney 20 ára, Rakel Þorsteins- dóttir 19 ára, allar úr Keflavík. Lovísa Aðalheiður Guðmundsdótt- ir 18 ára og María Erla Pálsdóttir 18 ára úr Innri-Njarðvík, Sigríð- ur Margrét Oddsdóttir 17 ára úr Njarðvík, Birgitta Ina Unnarsdótt- ir 18 ára úr Garði og Helga Dögg Jóhannsdóttir 19 ára úr Grindavík. Ágústa Jónsdóttir, umboðsmað- sagði í samtali við Morgunblaðið ur keppninnar á, Suðurnesjum, að stúlkurnar hefðu verið valdar eftir ábendingum í janúar og síðan hefði sjálfur undirbúningurinn haf- ist í febrúar. Ágústa sér sjálf um þjálfun og sviðsframkomu, en einn- ig koma við sögu Anna Lea Björns- dóttir hjá Líkamsrækt Önnu Leu og Bróa, Þel hárhús og snyrtistof- an Smart. Að sögn Ágústu er mik- ill áhugi fyrir keppninni og útlit fyrir að færri komist að en vilja til að fylgjast með henni. -BB

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.