Morgunblaðið - 17.03.1994, Blaðsíða 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1994
V;
» i
Kaos
Kaos er rokksveit úr Reykjavík, skipuð Edvaldi Morth-
ens söngvara, sem söng með Suicidal Diarrhea á síð-
ustu tilraunum, Eyjólfi R. Eiríkssyni gitarleikara, Jó-
hannesi K. Péturssyni bassaleikara og Jóni Birni Val-
geirssyni trommuleikara og Viðari Jónssyni gítarleik-
urum. Meðalaldur liðsmanna er ríflega 21 ár, en Kaos
leikur nýbylgjuþungarokk.
Vocal Pahros
Vocal Pahros er garðbæsk sveit, skipuð Þóri Þórissyni
trommuleikara, Einari Þór Guðmundssyni söngvara
og bassaleikara og Bjarna Friðrikssyni gítarleikara.
Vocal Pahros-liðar segjast leika bara rokk, ekkert
þungarokk eða ballöðuvæl.
Opus Dei
Opus Dei tók þátt í siðustu Músíktilraunum og vakti
þá nokkra athygli, enda komst sveitin í úrslit. Verka-
menn Drottins eru þeir Gylfi Blöndal bassaleikari, sem
er nýr í sveitinni, Einar Einarsson gítarleikari, Óttar
Rolfsson söngvari og Hreiðar Smári Grétarsson
trommuleikari. Meðalaldur sveitarmanna eru rétt rúm
sextán ár, en þeir segjast leika „bara rokk“.
MUSIKTILRAUIMIR
ÁRLEG hljómsveitakeppni félagsmiðstöðvarinnar
Tónabæjar hófst síðastliðinn fimmtudag og í kvöld
er annað undanúrslitakvöldið af þremur, en þriðja
og síðasta undanúrslitakvöldið verður svo fimmtu-
daginn 24. mars og úrslit 25. mars. Á hveiju kvöldi
komast tvær hljómsveitir áfram, þijár ef dómnefnd
telur ástæðu til, og keppa síðan föstudaginn eftir
síðasta tilraunakvöldið um hljóðverstíma, sem duga
eiga til að koma sveitunum sem Ienda í þremur efstu
sætunum á plast, en aukinheldur fær athyglisverð-
asta hljómsveit tilraunanna hljóðverstíma í verðlaun.
Áhorfendur á undanúrslitakvöldunum þremur velja
tvær sigursveitir, en til að tryggja að ekki sé gengið
fram hjá neinum getur sérstök dómnefnd ákveðið að
hleypa hljómsveit áfram sýnist henni sem svo.
Sigurlaunin í Músíktilraunum eru jafnan hljóðverstím-
ar og að þessu sinni gefur Skífan 25 tíma í Sýrlandi í
Maus
Maus er nýrokksveit úr Reykjavík skipuð Birgir Erni
Péturssyni gítarleikara og söngvara, Páli Ragnari
Pálssyni gítarleikara, Eggerti Gíslasyni bassaleikara
og Daníel Þorsteinssyni trommuleikara. Meðalaldur
þeirra félaga er rúm átján ár.
Mound
Mound er rokksveit af Suðurnesjum, sem skipuð er
Guðmundi Sigurðssyni gitarleikara, Bjarna Rafni
Garðarssyni trommuleikara, Þráni Guðbjörnssyni gít-
arleikara og söngvara og Guðmundi Vigfússyni bassa-
leikara. Meðalaldur sveitarmanna er um átján ár, en
Mound leikur hart rokk, sem nálgast þungarokk.
fyrstu verðlaun, Spor 25 tíma í Gijótnámunni í önnur
verðlaun og Hljóðriti gefur 20 tíma í þriðju verðlaun.
Stúdíó Stef gefur svo athyglisverðustu hljómsveitinni 20
tíma. Þessu til viðbótar fær besti gítarleikarinn gítar frá
Hljóðfæraverslun Steina, besti söngvarinn fær Shure
hljóðnema frá Tónabúðinni á Akureyri, besti bassaleikar-
inn úttekt frá Skífunni og besti trommarinn fær úttekt
frá Samspili. Aðrir sem gefa verðlaun eru Rín, Paul
Bemburg, Pizzahúsið og Japís. Stýrktaraðilar Músíktil-
rauna eru Hard Rock Café, Jón Bakan og Vífilfell/Coca
Cola. Einnig á Tónabær samstarf við Rás 2 um kynn-
ingu á tilraununum í útvarpi og verður úrslitakvöldinu
meðal annars útvarpað beint.
Gestasveit kvöldsins verður hljómsveitin geðþekka
Ham, sem leikur áður en keppnin hefst og síðan á með-
an atkvæði eru talin í lokin. Gestum verður hleypt inn
frá því rétt fyrir átta.
Árni Matthíasson tók saman
Burp Corpse
Því kræsilega nafni Burp Corpse, heitir hljómsveit af
Selfossi, en þaðan hafa komið nokkrar rokksveitir í
þyngri kantinum á undanfarnar Músíktilraunir. Liðs-
menn eru Stefán Ólafsson söngvari, Ólafur Á. Másson
og Óskar Gestsson gítarleikarar, Rúnar Már Geirsson
trommuleikara og Magnús Halldór Pálsson bassaleik-
ari. Meðalaldur sveitarmanna er rúm sextán ár, en eins
og nafnið bendir til leikur sveitin ómengað dauðarokk.
Man
Man er hljómsveit úr Mosfellsbæ, skipuð Valdimar
Kristjánssyni trommuleikara, Birgi Thorarensen
bassaleikara, Steinari Gíslasyni gítarleikara og söngv-
ara og Áslaugu Kristjánsdóttur söngkonu. Man leikur
rokk með afbrigðum, en meðalaldur sveitarmanna er
tæp tuttugu ár.
Empty
Empty heitir þungarokksveit úr Sandgerði. Hana skipa
Heiðar Siguijónsson trommuleikari, Ólafur Högni
Egilsson gitarleikari, Viggó Mariasson söngvari og
Pálmar Guðmundsson bassaleikari. Þeir félagar eru
allir á átjánda árinu.
Embrace
Embrace heitir reykvísk keyrsluþungarokksveit. í
faðmlögum eru Almar Þór Þorgeirsson gítarleikari,
Vagn Leví Sigurðarson gitarleikari og söngvari, ívar
R. Jónsson bassaleikari og Daníel Elíasson trommuleik-
ari. Meðalaldur sveitarmanna, er rétt tæp tuttugu ár.
Insol
Insol er annað nafn á Ingólfi Sigurðssyni sem kemur
einn fram, þ.e. sem trúbadúr. Ingólfur, sem leikur á
gítar og syngur, segist helst heillast af þjóðlagatónlist
og það skili sér vísast í tónlist hans, en lítið minna
gaman hafi hann af rokki, svo niðurstaðan verði líkleg-
ast blanda af þjóðlagapoppi og -rokki. Ingólfur er á
24. árinu.