Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 1
88 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
64. tbl. 82. árg.
FÖSTUDAGUR18. MARZ 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Friðarsamstarf Atlantshafsbandalagsins
Rússar sækjast
eftir samstarfi
Moskvu. Reuter.
PAVEL Gratsjov, varnarmálaráðherra Rússlands, sagði í gær að
Rússar kynnu að undirrita samning við Atlantshafsbandalagið
(NATO) um Samstarf í þágu friðar fyrir mánaðamót.
„Hópar sérfræðinga eru nú þeg-
ar að ganga frá afstöðu okkar í
smáatriðum, byggða á sérstakri
stöðu Rússlands," sagði Gratsjov
eftir að hafa rætt samninginn við
William Perry, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna. Þótt
stjórnin í Moskvu virðist ætla að
ganga til friðarsamstarfsins er
hluti þingsins andvígur því. Vlad-
ímír Lúkín, formaður utanríkis-
málanefndar Dúmunnar, neðri
deildar þingsins, líkti áformunum
við nauðgun á þingfundi í gær.
„Gangi Rússar til þessa samstarfs
við NATO er það eins og þegar
nauðgari setur stúlku tvo kosti
eftir að hafa króað hana af: annað-
hvort lætur hún undan honum eða
að hann nær fram vilja sínum hvað
sem hún segir,“ sagði hann.
Sergej Júshenko, formaður
varnarmálanefndar Dúmunnar,
sagði nefndina hafa samþykkt að
Rússar ættu ekki að ganga til sam-
starfsins nema sérstaða Rússlands
sem kjarnorkuveldis yrði viður-
kennd.
Togaradeilan í
Færeyj nm leyst
Þórshöfn. Frá Grækaris Djurhuus Magnussen, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMTÖK togaraeigenda í Færeyjum samþykktu í gær að hætta
verkfallsaðgerðum og halda skipunum aftur til veiða. Var búist
við, að fyrstu skipin færu út þá um kvöldið.
Skakkiturn-
inn réttir sig
Pisa. Reuter.
SKAKKI turninn í Pisa er byrj-
aður að reisa sig við að sögn
vísindamanna og kemur til
álita að opna hann aftur fyrir
ferðamönnum.
Vísindamenn hafa unnið að því
að hindra að turninn hallaðist
frekar þar sem hætta var talin á
að hann hryndi. Var sett á hann
stangarvog neðarlega í júlí í fyrra
og það hefur ekki aðeins stöðvað
hallann heldur reist turninn við.
Arne Poulsen, framkvæmda-
stjóri Togarafélagsins, sagði, að
náðst hefði samkomulag við lands-
stjórnina um hve mikill aukaafli í
þorski, ýsu og karfa mætti vera
og verður miðað við einn sameigin-
legan kvóta í þessum tegundum
fyrir skipin en ekki sérstakan kvóta
á skip. Auk þess heimilaði sjáv-
arútvegsnefnd lögþingsins togur-
unum að selja allt að 30% aflans
erlendis án þess að fjármagns-
styrkir til þeirra lækkuðu.
Að síðustu hafa landsstjórnin
og sjávarútvegsnefndin lofað að
endurskoða kvótalögin fyrir 10.
ágúst næstkomandi.
Páfi þiggur boð
um heimsókn
til ísraels
JÓHANNES Páll páfi ræddj í gær
stöðuna í friðarviðræðum ísraela
og araba við Yitzhak Rabin, for-
sætisráðherra Israels, og þáði boð
hans um að heimsækja Landið
helga. Rabin sagði eftir hálfrar
klukkustundar fund þeirra í Páfa-
garði að ekki hefði enn verið
ákveðið hvenær heimsóknin yrði.
ísrael og Páfagarður náðu sögu-
legu samkomulagi um gagn-
kvæma viðurkenningu í desember
og búist er við að ríkin taki upp
formlegt stjórnmálasamband og
skiptist á sendiherrum fyrir lok
ársins. Páfi hefur oft látið í Ijós
þá von að hann geti farið til
Landsins helga og beðið fyrir friði
milli ísraela og araba. Síðasti
páfinn sem fór þangað var Páll
VI árið 1964. Myndin er af fundi
páfa og Rabins í gær.
Opnaðfyrir
samgöngur
milli hverfa
í Sarajevo
Sarajevo. Reuter.
SERBAR og múslimar I Bosníu
sömdu í gær fyrir tilstilli Sam-
einuðu þjóðanna (SÞ) um að
opna samgönguleiðir milli
hverfa borgarinnar.
Óbreyttir borgarar hafa ekki
komist milli hverfa múslima og
Serba í næstum tvö ár eða frá því
að umsátur Serba um borgina
hófst. Gangi samkomulagið í gær
eftir verður breyting hér á frá og
með næsta miðvikudegi. Verða þá
vissar götur milli svæða á valdi
deiluaðila opnaðar fyrir almennri
umferð einvörðungu en viðskipti
og verslun milli hverfa verður
áfram bönnuð.
Friður hefur ríkt að mestu í
Sarajevo í rúman mánuð. Að sögn
talsmanns SÞ voru aðgerðir til
þess að aflétta umsátri Serba um
múslimabæinn Maglaj í norður-
hluta Bosníu auknar í gær.
Ástandið þar er sagt skelfilegt,
matvæli, lyf og eldsneyti af skorn-
um skammti og hvorki rafmagn
né rennandi vatn að hafa. Fullyrt
var í gær að verið væri að kanna
möguleika á að setja Serbum í
Maglaj úrslitakosti á borð við þá
sem gripið var til er umsátrinu um
Sarajevo var aflétt á dögunum.
Reuter.
Drottningarmóður vel gætt
BRETAR minntust í gær dags Patreks, dýrlings sem kristnaði mest-
an hluta íra á 5. öld, eftir Krist. Var myndin tekin við hátíðahöld í
London og situr Elísabet drottningarmóðir umleikin liðsmönnum líf-
varðar Bretadrottningar, írska varðliðsins.
Skoðanakönniin sýnir ánægju í Noregi með niðurstöðuna í Brussel
Spáð markaðssókn
með sjávarafurðir
Ósló. Frd Jan Gunnar Furuly, fréttaritara Morgunblaðsins.
SKOÐANAKÖNNUN sem gerð var í Noregi fyrir dagblaðið Verdens
Gang á miðvikudag gefur til kynna að 51% kjósenda séu ánægð með
niðurstöðu aðildarviðræðnanna við Evrópusambandið, ESB, í Bruss-
el. Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegsráðherra Noregs, telur að með
aðildarsamningnum í Brussel hafi tekist að tryggja vel hagsmuni
útflutningsfyrirtækja Norðmanna í atvinnugreininni. Fiskiskip frá
ríkjum ESB muni í stórum dráttum ekki fá víðtækari aðgang að
norskum fiskimiðum en þau hafi í dag. Gro Harlem Brundtland for-
sætisráðherra sagði á þingi í gær, að Norðmenn hefðu tryggt sér
yfirráð yfir nær öllum afla á Noregsmiðum.
sem atvinnuvegurinn getur notfært
sér með frjálsum aðgangi að ESB
og þann aflgjafa sem felst í því að
aukin fullvinnsla verður mun arð-
samari."
Olsen getur verið ánægður með
könnun Verdens Gang, 59% að-
spurðra telja að hann hafi staðið sig
vel í Brussel.
Gro Harlem Brundtland sagði að
Norðmenn hefðu náð hagstæðri nið-
urstöðu á öllum sviðum aðildar-
samninganna. „Við höfum meiri
áhrif innan ESB en með því að
standa utan við. Við höfum ekki
giatað sjálfsákvörðunarréttinum. I
reynd hefur sá réttur styrkst gagn-
vart þáttum sem við elta hefðum
ekki haft nokkur áhrif á,“ sagði
forsætisráðherrann.
Sjá „Afli ESB ...“ á bls. 24.
Reuter
Jan Henry T. Olsen segir að
tvennt skipti sköpum fyrir framtíð
norsks sjávarútvegs og fiskvinnslu.
Annars vegar að afli verði nægur
og vel takist til við fiskeldi, hins
vegar að hráefnið verði fullunnið í
landinu til að auka söluverðmætið
á erlendum mörkuðum.
„Miklar tollalækkanir sem við
fáum á fullunnum afurðum veita
fiskiðnaðinum mun betri skilyrði en
við höfum á evrópska efnahags-
svæðinu (EES),“ segir Olsen. „Fullt
tollfrelsi frá því aðildin tekur gildi
mun lækka tollana árlega um 380
milljónir króna [3.700 milljónir ís-
lenskra kr.] eða 180 milljónum
[1.700 milljónum íslenskra kr.]
meira en endanleg niðurstaða hefði
orðið af EES-samningnum. Að auki
má nefna möguleika á mörkuðunum