Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
Tollverðir í Frakklandi fá ný fyrirmæli frá ráðuneyti
Ollum hömlum verið létt af
innflutningi íslensks fisks
80 tonn í fjórum gámum fóru athugasemdalaust í gegn í gær
kvætt við fréttunum og sagðist
Pétur hafa verið upptekinn í allan
gærdag við að gera nýja samninga
við þá. „Þeir voru spenntir að gera
nýja samninga þannig að við finn-
um strax fyrir jákvæðum áhrifum
og aukinni sölu. Við erum bjart-
sýnir og ánægðir með að vera
komnir á fullt aftur,“ sagði Pétur.
Pétur sagðist vita að starfs-
menn íslenska sendiráðsins í Par-
ís, íslenskir embættismenn í
Brussel og á íslandi hefðu beitt
landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðuneytið í París miklum þrýst-
ingi síðustu daga og hann taldi
að það starf væri nú að skila
árangri.
STARFSMÖNNUM tollyfirvalda í Frakklandi bárust á þriðjudag
óformleg fyrirmæli frá franska landbúnaðar- og sjávarútvegs-
ráðuneytinu um að setja íslenskan fisk ekki í heilbrigðisskoðun
og beita innflutning á honum engum hömlum.
Á þetta reyndi í gær hjá Iceland-
ic France, dótturfyrirtæki Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna, í
París þegar flutt voru inn 80 tonn
af frystum fiski í fjórum gámum
sem komu frá íslandi í gegnum
Antwerpen í Belgíu.
Tóku fréttunum
með fyrirvara
Að sögn Péturs Einarssonar,
starfsmanns Icelandic France,
hringdi tengiliður fyrirtækisins hjá
tollinum í það á þriðjudag og lét
vita um þessi nýju fyrirmæli. Pét-
ur sagðist ekki vita hver hefði
sent tilmælin né hversu víðtæk þau
væru. Hann sagðist þó hafa heyrt
að þau tækju sérstaklega til ís-
lensks fisks en það væri óstaðfest.
Pétur segir að starfsmenn Ice-
landic France hafí tekið fréttunum
með fyrirvara og ekki gert neinar
ráðstafanir fyrr en í gær þegar
ljóst var að gámarnir fjórir höfðu
runnið í gegn, eins og Pétur sagði.
Þá hefði verið haft samband við
viðskiptavini og þeir látnir vita að
málið væri nánast leyst.
Spenntir að gera samninga
Kaupendur brugðust strax já-
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 18. MARZ
YFIRLIT: Skammt auður af landinu er 1.007 mb lægð og frá henni lægðardrag til
norðvesturs. Yfir Norður-Grænlandi er 1.030 mb hæð.
SPÁ: Fremur hæg noröaustanátt á landinu, nema vlð suðausturatröndlna, þar
verður allhvasst eða hvasst. Él á annesjum norðanlands og austan, en snjókoma
við suðausturströndina.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytlleg átt og léttskýjað um norðan- og austan-
vert landið en þykknar senniiega upp með suðaustlægri átt um suðvestan- og
vestanvert landið. Frost 2 til 15 stig, en fer að hlýna suðvestanlands.
HORFUR Á SUNNUDAG: Allhvöss eða hvösa suðaustlæg átt og snjókoma en 8íð-
ar slydda eða rigning um sunnanvert landið. Hlýnandi veður.
HORFUR Á MÁNUDAG: Austan stinningskaldi og ál eða snjókoma á miðum og
annesjum um norðanvert landið, en annars suðvestankaldi eða stinningskaldi.
Skúrir eða slydduél um sunnan- og vestanvert landið. Hiti 0 til 5 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 19.30, 22.30. Svar-
sími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
o & & & A Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig..
r r r * f * * * * • A * 10° Hitastig
f f f f f * f f * / * * * * * V v V V Súid J
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél El = Þoka S
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30 ígær)
Á Suðurlandi eru flestir aðalvegir færir en þó er aðeins fært fyrir jeppa og stærri
bíla um Mýrdalssand, en að öðru leyti er fært með ströndlnni austur á Austfirði.
i uppsveitum á Suðurlandi eru þó ýmsir vegir þungfærir eða ófærir. Ófært er um
Mosfellsheiði og Kjósarakarð og einnig um Geldingadraga og Bröttubrekku. A
Vestfjörðum er þungfært um ísafjarðardjúp og ófært um Steingrímsfjarðarheiöi en
ráðgert er að moka þar á morgun. Á Norðausturlsndi og Austurlandi er ófært um
Fljótsheiði og Vatnsskarð eystra en þungfært á út-Héraði. Annars eru vegir víðast
færir. Víða er dálítil hálka á vegum þó einkum á Suðvesturlandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirlftl I sfma 91-631500 og f grænni
línu 99-6315. Vegagerðin.
xn VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hitl veður Akureyri +4 skýjað Reykjavik +3 léttskýjað
Björgvin 0 slyddué!
Helsinki 0 snjóél á síð.klst.
Kaupmannahöfr 4 skýjað
Narssarssuaq +13 léttskýjað
Nuuk +10 skýjað
Ósló 4 léttskýjsð
Stokkhólmur 4 skýjað
Þórshöfn 0 snjóél
Algarve 20 heiðskfrt
Amsterdam 6 skúrásíð.klst.
Barcelons vantar
Berlín 5 snjóél á síö.klst.
Chicago +6 skýjað
Feneyjar 15 þokumóða
Frankfurt 8 skúrásfð.klst.
Glasgow 5 skúrásíð.klst.
Hamborg 2 haglél ó síft.klst.
London 8 skýjað
Los Angeles 14 alskýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Madríd vantar
Malaga 19 heiðskírt
Mallorca vantar
Montreal +13 snjókoma
NewYork +6 snjóél
Orlando 9 léttskýjað
París 10 skúrásíð.klst.
Madelra 17 hálfskýjað
Röm 15 skýjað
Vín 6 skýjað
Washington +4 léttskýjað
Wlnnipeg 1 alskýjað
Heimild: Veðurstofa Islands
(Byggt a veðurspá kl. 16.30 í gær)
IDAG kl. 12.00
Ljósmynd/Jón Stefánsson
Á slysadeild eftirharðan árekstur
MAÐUR var fluttur á sjúkrahús eftir að bíll sem hann var farþegi
í lenti í árekstri og hafnaði síðan á Ijósastaur við Nýbýlaveg í
Kópavogi laust fyrir klukkan 18 í gær. Aðrir sem hlut áttu að
máli meiddust ekki. Ekki fengust upplýsingar um meiðsli mannsins
í gær.
Hæstiréttur fellir niður lögbann á tannsmið
Kröfum Tannlækna-
félags Islands hafnað
Niðurstöðum héraðsdómara hnekkt
HÆSTIRÉTTUR felldi í gær úr gildi lögbann, sem að kröfu Tann-
læknafélags íslands hafði verið lagt við því að Bryndís Kristinsdótt-
ir tannsmiður mátaði tanngóma sem hún smíðaði í sjúklinga. Tann-
læknar töldu slíkt brjóta gegn lögvernduðum hagsmunum sínum.
Bryndís hafði árið 1992 gert
samning við Tryggingastofnun rík-
isins um að sjúkratryggingar
greiddu hluta af kostnaði sjúklinga
hennar og töldu tannlæknar að
samningurinn gerði ráð fyrir að
hún stundaði tannlækningar sem
hún hefði ekki leyfi og réttindi til.
Hafði starfað sjálfstætt í
tuttugu ár
í dómi Hæstaréttar segir að
Bryndís hafi starfað sjálfstætt við
tannsmíði án milligöngu tannlækna
í tæp 20 ár og hafí allan þann tíma
tekið mót af tanngómum og mátað
gervitanngarða. Hún hafí marg-
sinnis haft samband við landlækni
um starfsemi sína en 1986 áminnti
tannlæknir hana fyrir brot á tann-
læknalögum. Að öðru leyti hafi
íslenskt prestsembætti í Gautaborg
Séra Jón Dalbú Hró-
bjartsson fær stöðuna
SERA Jón Dalbú Hróbiartsson hefur verið ráðinn prestur í Gauta-
borg og segir biskup Islands, séra Ólafur Skúlason, að best væri
að hann tæki til starfa sem fyrst,
Umsóknarfrestur rann út síðast-
liðinn þriðjudag og bárust níu um-
sóknir um stöðuna, sem veitt var í
samráði við Tryggingastofnun rík-
isins. Séra Olafur Skúlason sagði í
samtali við Morgunblaðið að íslend-
ingar í Gautaborg biðu spenntir
eftir því að nýi presturinn tæki til
starfa. Honum er ætlað að þjónusta
íslendinga sem búsettir eru í Gauta-
borg eða í margvislegum erinda-
gerðum. Gerður hefur verið samn-
ingur við sjúkrahús í borginni um
líffæraflutninga og koma margir
íslendingar þangað af þeim sökum,
bæði sjúklingar og aðstandendur,
auk þes? sem margt fólk af íslensku
bergi brotið býr í nágrenni borgar-
innar.
Átta umsækjendur
Umsækjendur um stöðuna voru
séra Ágúst Sigurðsson, Baldur Jóhannsson, Ingólfur Guðmunds-
Kristjánsson, Flosi Magnússon, son, Jón Dalbú Hróbjartsson og
Hannes Bjömsson, Hjörtur Magni Þórhallur Heimisson.
starfsemin verið látin afskiptalaus
af hálfu opinberra aaðila þrátt fyr-
ir ítrekaðar kærur tannlækna allt
frá 1973.
Ekki lagaskilyrði fyrir
lögbanni
„Þegar þetta er virt og hliðsjón
höfð af deiluefni málsaðila og hags-
munum, er því tengjast... er ljóst,
að eigi var fullnægt skilyrðum
[laga] til þess að lögbannskrafa
stefnda mætti ná fram að ganga,“
segir Hæstiréttur og vísar m.a til
lagaákvæðis um að lögbann megi
ekki leggja við athöfn ef sýnt sé
fram á að stórfelldur munur sé a
hagsmunum gerðarþola af því að
athöfn fari fram, og hagsmunum
gerðarbeiðanda af að fyrirbyggja
hana.
!
I
I
I
I
I
!
I
»
I
!
I
\
i
I
I
I
i
l
l
i
i
i
I