Morgunblaðið - 18.03.1994, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
5
Bændur hækka
verð á svínakjöti
Verð 20 krónum lægra en í nóvember
SVINAKJÖT hækkar í verði á næstu dögrjm, en Valur Þorvaldsson,
framkvæmdasljóri Svínaræktarfélags íslands, segir að verðið muni
eftir sem áður verða 20 krónum lægra en í nóvember á síðasta ári.
„Þetta er hækkun á verði sem er fáránlegt," segir hann. „Menn eru
að þessu núna vegna þess að markaðurinn skapar þeim ekki Iífsskilyrði."
Valur segir að verðlækkanir síð-
ustu tveggja mánaða séu fáránlegar
og undanfarið hafi nánast verið um
útsölu á svínakjöti að ræða.
í nóvember var skilaverð til bænda
280 kr./kg en í febrúar hafi það verið
komið niður í 241 kr./kg, segir hann.
í mars hafi verðið enn lækkað og far-
ið niður í 220 kr./kg og nú vilji bænd-
ur að verðið verði 260 kr./kg.
Samstaða meðal svínabænda
Valur sagði að samstaða ríki um
hækkunina hjá svínabændum um að
láta kjötið ekki fara á lægra verði.
Bændur eigi um það að velja hvort
þeir selji grísinn eða ekki. Ef tekjur
búanna dugi ekki fyrir útgjöldum
stefni í óefni.
Póstur og sími
Akvæði um
enga bóta-
ábyrgð tek-
in fram á
eyðublöðum
GUÐMUNDUR Björnsson, aðstoð-
arpóst- og símamálastjóri, segir
að stofnunin hyggist upplýsa við-
skiptavini sína betur um takmörk-
un á bótaábyrgð og verður hún
framvegis tekin fram á eyðublöð-
um sem fólk undirritar þegar það
sækir um sima.
Umboðsmaður Alþingis komst að
þeirri niðurstöðu nýlega að stofnunin
gæti ekki firrt sig bótaábyrgð með
þvi einu að taka það fram í gjaldskrá.
Guðmundur átti fund með lög-
fræðingi stofnunarinnar á mánudag
og er niðurstaða þess fundar að
umboðsmaður hafi ekki átt við að
stofnuninni væri ekki heimilt að tak-
marka bótaábyrgð, heldur þyrfti að
upplýsa viðskiptavini Pósts og síma
betur um þá takmörkun. Það hyggst
stofnunin gera og verður framvegis
tekið fram á eyðublöðum að Póstur
og sími beri ekki ábyrgð á mistökum
sem kunna að verða vegna af-
greiðslu símtala og símskeyta.
----------» ♦ ♦-----
Hann segir að þessar 260 kr. séu
eftir sem áður lægra verð en viðmið-
unarverð Svínaræktarfélagsins, en
það sé nú 285 kr./kg.
Valur bendir á að undanfarin ár
hafi verð svínakjöts lækkað jafnt og
þétt og búist sé við að sú þróun
haldi áfram.
Morgunblaðið/Sverrir
Snjór og blíða
GÓÐ AÐSÓKN hefur verið í skíða-
svæðið í Bláfjöllum í vikunni og
metaðsókn var á þriðjudag og í
gær, að sögn Siguijóns Einarsson-
ar. Allt að 3.000 manns komu á
svæðið þessa tvo daga og er það
eins og á þokkalegum sunnudegi,
að sögn Siguijóns. „Þetta snýst
allt um veðrið," segir hann. Skárri
tíð hefur verið í vetur en í fyrra
og eru forráðamenn skíðasvæðis-
ins þokkalega ánægðir með að-
sóknina það sem af er árinu. Á
laugardag verður suðaustanátt,
bjart og kalt, en á sunnudag hlýn-
ar í veðri, vindur verður allhvass
og snjókoma og slydda verður á
Suðvesturlandi.
Davíð með
landsliðinu
til Japans
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
fer í dag, föstudag, til Japans í
fylgd landsliðs Islands í knatt-
spyrnu sem leikur vináttuleik við
fyrstu deildar lið stórfyrirtækisins
Hitachi í nágrenni Tókýó á mánu-
dag. Ferð ráðherrans er farin í
boði Japansk-íslenska félagsins.
Forsætisráðherra verður í Japan
til miðvikudags en samkvæmt
upplýsingum Morgunblaðsins mun
Davíð Oddsson einnig hitta þar-
lenda ráðamenn að máli, e.t.v. þar
á meðal Morihiro Hosokawa, for-
sætisráðherra landsins.
Þá mun forsætisráðherra skoða
eftirlíkinguna af Höfða sem reist
hefur verið í Nikko-þjóðgarðinum í
Japan, en hann var sem kunnugt er
borgarstjóri Reykjavíkur þegar leið-
togafundur Gorbatsjovs og Reagans
var haldinn í húsinu.
Þá verður forsætisráðherra við-
staddur leik íslenska landsliðsins við
Iið Hitatchi en með því leikur m.a.
brasilíski leikmaðurinn Careca, sem
áður lék með Napólí.
Asía
austræn
og
heillandi!
Asía er stærsta og fjölbreytilegasta álfa heims. Þar eru íburðarmiklir ferða-
mannastaðir með glæsileika á hverju strái og menningarsamfélög sem
varðveita fornar hefðir og lifnaðarhætti. Matargerðarlist í Asíu er heims-
fræg og menning og listir Asíubúa byggja á mörg þúsund ára hefð.
SAS og Flugleiðir bjóða upp á fjölmarga ferðamöguleika til Asíu og
auðvelt er að sameina viðskiptaferðina og fríið með fjölskyldunni.
Komið og fáið nýjan og glæsilegan ferðabækling um Asíu.
Keflavík - Bangkok............................79.000*..........................89.000**
Keflavík - Singapore..........................89.000*..........................99.000**
Keflavík - Hong Kong..........................89.000*..........................99.000**
Keflavík - Peking............................93.000*..........................103.000**
Keflavík - Tokyo..............................93.000*.........................112.000**
*Bókunarfyrirvari 14 dagar.
Lágmarksdvöl 6 dagar, hámarksdvöl 1 mánuður. Bamaafsláttur 50%.
**Bókunarfyrirvari enginn.
Lágmarksdvöl engin, hámarksdvöl 9 mánuðir. Barnaafsláttur 50%.
[slenskur fiugvallarskattur er 1.340 kr.
Hafðu samband við söluskrifstofu SAS eða Flugleiða eða ferðaskrifstofuna þína.
SAS, sími 622211. Flugleiðir, sími 690300.
/S///S4S FLUCLEIÐIR