Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
Uppgefnir menntamenn
_________Leiklist____________
Súsanna Svavarsdóttir
Nemendaleikhúsið - Lindarbæ
SUMARGESTIR
Höfundur:_ Maxím Gorkí
Þýðandi: Árni Bergmann
Leikmynd og búningar:
Stigur Steinþórsson
Lýsing: Egill Ingibergsson
Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson
Tsjekov skrifaði um uppgefinn
aðal. í Sumargestum skrifar
Gorkí um uppgefna menntamenn
og notar til þess umhverfi frá
Tsjekov, sumardvalarstað úti á
landi. Og þetta verk minnir að
mörgu öðru leyti á Tsjekov. Þarna
er saman kominn hópur fólks,
ásamt hinni ómissandi gömlu
fóstru, Söshu; leikur barnálega
leiki, talar í innantómum frösum,
hefur enga stjóm á tilfinningum
sínum og athöfnum og er að drep-
ast úr leiðindum. En vegna þess
hversu meistaralega verkið er
skrifað koma óteljandi sannleikar
fram í dráumum, vonum og þrám
persónanna.
Hópur þessara menntamanna
hefur ekki staðið undir þeim vænt-
ingum sem voru gerðar til þeirra.
Ekki heldur undir eigin vænting-
um. Þau standa andspænis því að
vera venjulegt fólk. Með verka-
lýðsbakgrunn áttu þau að breyta
heiminum með því einu að fara í
ósköp hefðbundið embættisnám,
eins og læknisfræði og lögfræði.
En það er nú einu sinni svo að
heimurinn er gríðarstór og tími
hans endalaus meðan manneskjan
er svo ósköp smá og tími hennar
naumur. Hvað getur hún gert?
Smám saman hafa miklar hug-
sjónir vikið hjá þessum hópi —
óskilgreindar hugsjónir að vísu —
fyrir persónulegri angist og van-
mætti. Persónurnar eyða svo mik-
illi orku í að þjást í eigin lífi og
þar sem það er eina lífið sem þær
eiga, fær það fjallstórt vægi og
veröldin og hennar sorgir verða
að smámunum. Svona er nú hægt
að hafa endaskipti á hlutunum —
enda kannski enginn sem getur
sagt til um hver só hin rétta upp-
röðun.
Eins og fyrri sýningar þess leik-
hóps sem nú útskrifast úr Leiklist-
arskóla íslands eru Sumargestir
það sem hægt er að kalla „þrusu-
sýning“ á vondu nútímamáli. Eg
fer ekki ofan af því að hópurinn
er einhver sá besti og jafnasti sem
hefur komið úr skólanum í langan
tíma. Það er unun að horfa á
þessa átta urtgu leikara vinna.
Benedikt Erlingsson leikur
Sergei Basof, málafærslumann,
ákaflega skemmtilegt hlutverk.
Það lítur út fyrir að allt hafi geng-
ið Sergei í haginn — en svo er
nú ekki nema á yfírborðinu. Bene-
dikt sem hefur í vetur verið meira
í hlutverkum sem eru í hrotta-
fengnari eða kaldari kantinum
sýndi hér á sér nýja hlið og í at-
riði þar sem Sergei reynir að nálg-
ast Varvöru, eiginkonu sína, var
vinna hans frábær; dásamlegt
vald yfír tjáningu á vanmætti,
sorg og ást sem sem á sér enga
von. Varvöru leikur Margrét Vil-
hjálmsdóttir. Varvara er alla jafna
stillt kona og þolinmóð en ýmsar
uppákomur verða til þess að hún
missir gersamlega stjóm á sér.
Yfirborðs stilling Varvöru helgast
af því að hún-lifir í draumi um
að komast í burtu. Ohamingja
hennar með einum manni er slík
að hún lætur sig dreyma um ann-
an. Það tekur hana nokkurn tíma
að átta sig á því að hún getur
yfirgefið eiginmanninn fyrir sjálfa
sig — þarf ekki að vera fyrir ann-
an mann. Margrét leikur Varvöru
af miklu öryggi og skilar vel doða
hennar og sveiflum, draumum
hennar og einurð.
Hilmir Snær Guðnason leikur
Vlas, bróður Varvöru. Vlas hefur
tekið að sér að vera trúðurinn í
þessum hópi sem ella myndi drep-
ast úr leiðindum. Hann er ungur
og virðist kvensamur, en er í raun-
inni að leita að samastað fyrir
miklar tilfinningar. Hann lítur á
ástina sem útgönguleið og er til
í að fóma öllu fyrir hana. Hlut-
verk Vlas er kannski fremur lítið
spennandi fyrir leikara, þótt kar-
akterinn sé áhugaverður í sam-
hengi verksins en vinna Hilmis
við þetta hlutverk er nákvæm og
vönduð. Hann skilar vel ágengri
ólgunni sem býr undir brosandi
leikaraskapnum.
Þórhallur Guðmundsson leikur
Iækninn Dúdakof sem er stöðugt
að gera sig að fífli vegna ástar
sinnar á Varvöru. Dúdakof og
kona hans, Olga, — sem leikin er
af Guðlaugu Elísabetu Ólafsdótt-
ur — eru kómísku týpurnar í sýn-
ingunni. Þau eru mjög ósamstæð
hjón og hamingjulaus og eins og
það sé ekki nógu hlægilegt út af
fyrir sig er túlkun þeirra Þórhalls
og Guðlaugar á persónunum
geysilega skemmtileg.
Lækninn Maríu Lvovnu leikur
Halla Margrét Jóhannesdóttir.
María er hugsjónamanneskja, sem
reynir að breyta öllum í kringum
sig. Hún vill vera rödd sannleik-
ans og leggja mikið af mörkum
til að breyta heiminum. Rétt eins
og hlutverk Vlas er þetta ekkert
sérlega skemmtilegt hlutverk fyr-
ir leikara. Það er fremur eintóna
og flatt og gefur Höllu ekki bein-
línis tækifæri til að sýna hvað í
henni býr. Það hefur hún hins
vegar gert í öðrum sýningum
Nemendaleikhússins og vinna
hennar við hlutverk hinnar stilltu
Maríu er mjög góð.
Sigiún Ólafsdóttir leikur Júlíu,
konu Pjotrs nokkurs Súslofs, sem
er verkfræðingur. Júlía er til í að
afla sér töiuverðrar þekkingar á
karlmönnum á meðan maður
hennar drekkur og virðist ekkert
ósátt við ástandið, þótt hjóna-
bandshamingja hennar sé hreint
ekki meiri en annarra. Sigrún leik-
ur hlutverk Júlíu á lifandi og örlít-
ið skoplegan hátt. Hins vegar
finnst mér hún hafa fengið dálítið
svipuð hlutverk í sýningum Nem-
endaleikhúsi í vetur. Mér þætti
gaman að sjá hana leika eitthvað
annað en kynferðislega „obsessí-
var“ týpur.
Gestaleikarar í Sumargestum
eru þau Þröstur Leó Gunnarsson,
sem leikur Súslf, Magnús Jóns-
son, sem leikur rithöfundinn Sja-
límof, Sigurður Karlsson, sem
leikur Dvoétotsje, frænda Súslofs,
og Margrét Helga Jóhannsdóttir
sem leikur fóstruna Sösju. Leikur
þeirra allra er mjög góður.
Leikmyndin er mikið konfekt
fyrir augað. Það er síður en svo
að allt þar hafí notagildi fyrir
framgang verksins, en þeim mun
meira fyrir andrúmsloft sýningar-
innar og það sama má segja um
lýsingu. Samspil þessara þátta er
gott og ber vott um hugmynda-
auðgi og vandvirkni.
Leikstjórnin er djörf og
skemmtileg. í henni finnst mér
gæta áhrifa frá sýningunni á
Mávinum, sem var jólasýning
Þjóðleikhússins. Þótt mér finnist
uppsetning Kjartans á Tsjekov-
verkinu Platanov, í Borgarleik-
húsinu, vera einhver vandaðasta
og skemmtilegasta uppsetning ís-
lensks leikstjóra á verkum rússn-
esku risanna hingað til gengur
hann skrefi lengra í þessari sýn-
ingu. Hún er ekki eins fáguð og
fínleg, heldur leikur Kjartan sér
hér meira með grófa þætti mann-
lífsins, teygjir tilfinningar — og
stjórnleysi á þeim — mun lengra,
leyfir kómískum afleiðingum þess
að njóta sín betur og er djarfari
í notkun á kyrrstöðu og þögn.
Leikaraskapurinn í mannlegum
samskiptum verður því mun sýni-
legri. Verkið og dýrðlegur texti
þess gefur virkilega tilefni til
þeirrar niðurstöðu sem birtist á
sviðinu í Sumargestum, en djörf
leikstjóm er það sem gerir dýrð-
legt verk að góðri sýningu.
Upprennandi íslendingar á lýðveldisári. Leikskólabörn á Grænuborg
1944.
Fj ölskyldan
á lýðveldisári
ÞANN 19. mars verður opnuð á Árbæjarsafni sýningin Reykjavík
’44 - Fjölskyldan á lýðveldisári. Sýningin er sett upp í tilefni 50
ára afmælis lýðveldis á íslandi. Þar er brugðið upp mynd af lífshátt-
um Reykjavíkurfjölskyldunnar á lýðveldisárinu 1944. Á það vel við
þar sem nú er ár fjölskyldunnar. Sýningargestir fylgja fimm manna '
fjölskyldu í lífi og starfi, m.a. í skóla, á heimili, á vinnustað og í
tómstundum, auk þess sem hátíðarhöldunum 17. og 18. júní eru
gerð skil. Um er að ræða sögusýningu þar sem sýndir eru munir,
myndir og skjöl. Þessi hátíðarsýning er unnin í samvinnu Árbæjar-
safns og Borgarskjalasafns Reykjavíkur.
Sýningin er til húsa í svonefndu
Kornhúsi frá Vopnafírði sem byggt
var um 1820 og staðsett er syðst á
lóð Árbæjarsafns.
Sérstök áhersla er lögð á að höfða
til skólafólks, auk hinna almennu
safngesta. Alla virka daga mun safn-
kennari Árbæjarsafns taka á móti
skólafólki. Fram til sumars, þ.e. frá
mars til maí, verður sýningin öllum
opin á sunnudögum kl. 13-17 og
hefur Menningamefnd samþykkt að
þá verði aðgangur ókeypis. Fyrsti
almenni opnunardagur verður 20.
mars. Til viðbótar verður sýningin
opin í júní, júlí og ágúst á hefðbundn-
um opnunartíma safnsins, en sýning-
in mun standa til 1996.
Við sýningaropnunina 19. mars
kl. 16 er ætlunin að hefja dagskrána
með söng Háskólakórsins. Því næst
verða flutt þrjú ávörp. Fyrst býður
undirrituð gesti sýningarinnar vel-
komna og því næst heldur Júlíus
Hafstein formaður Iýðveldishátíðar-
nefndar Reykjavíkur stutta tölu. Að
lokum mun Hulda Valtýsdóttir, for-
maður Menningarmálanefndar
Reykjavíkur, flytja ávarp og opna
sýninguna formlega. Þá verður gest-
um boðið að skoða sýninguna og þá
mun Jónas Þórir leika lög á flygil.
Margrét Hallgrímsdóttir,
borgarminjavörður.
Óperudraugiirinn á Akureyri
ÞAÐ hefur komist sú hefð á að
Leikfélag Akureyrar frumsýni
söngvaverk í lok hvers leikárs
og það verður ekki brugðið út
af venjunni þetta árið, því hafnar
eru æfingar á Óperudraugnum
eftir Ken Hill með söngperlum
úr ýmsum frægum óperum eftir
Offenbach, Donizetti, Verdi,
Gounod, Weber og Mozart.
í fréttatilkynningu segir: Þessi
leikgerð á Óperudraugnum, sem er
byggð á sögu Gaston Leroux, er
óperuspaug með dularfullu ívafi og
ást og afbrýði er ekki langt undan.
Leikgerð Kens Hills er nú á fjölun-
um víða um heim og þykir hin
mesta leikhúsupplifun.
Þórhildur Þorleifsdóttir er leik-
stjóri, tónlistarstjóri er Gerrit Schu-
il, leikmynd og búninga gerir Sigur-
jón Jóhannsson. Ljósahönnuður er
Ingvar Björnsson og Böðvar Guð-
mundsson hefur íslenskað Óperu-
drauginn.
Leikarar og söngvarar í Óperu-
draugnum eru: Bergþór Pálsson,
Marta G. Halldórsdóttir, Ragnar
Davíðsson, Már Magnússon, Ág-
ústa Sigrún Ágústsdóttir, Gestur
Einar Jónasson, Aðalsteinn Berg-
dal, Þráinn Karlsson, Sigurveig
Jónsdóttir, Dofri Hermannsson,
Rósa Guðný Þórsdóttir, Ingibjörg
Gréta Gísladóttir, Sigurþór Albert
Heimisson, Sunna Borg o.fl. auk
hljómsveitar og aðstoðarmanna.
(Fréttatilkynning)
Listahátíð í Seltjarnarneskirkju
„FASTAN, dauði og pína Jesú“ er yfirskrift listahátíðar sem haldin
verður í Seltjarnarneskirkju 20. mars til 4. apríl. Sýndar verða mynd-
ir barna á nesinu og haldnir tónleikar sem flestir hefjast kl. 20.30.
leikar. Rúrik Haraldsson leikari flytur
Hátíðin hefst með messu á sunnu-
daginn og um kvöldið verða tónleik-
ar Gunnars Kvarans sellóleikara og
Selkórsins. Þann 24. verða nem-
endatónleikar Tónlistarskóla Sel-
tjarnamess og þann 27. kennaratón-
ljóð þann 30. Á Föstudaginn langa
koma fram söngkonurnar Elísabet
Eiríksdóttir og Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Vilhelmína Ólafsdóttir
liíanóleikari og Bryndís Pétursdóttir
leikkona. A páskadag verður guðs-
þjónusta kl. 8 með helgileik nemenda
í Ballettskóla Guðbjargar Björgvins.
Og annan dag páska tónleikar Safn-
aðarkórs Seltjamaess, Kammerkórs-
ins og Kammersveitar Seltjarnarness.
Hátíðin verður opin á helgidögum
kl. 10-14 og aðra daga 17-19. Að-
gangseyrir er enginn og allir vel-
komnir.