Morgunblaðið - 18.03.1994, Blaðsíða 11
MOHGUNBI.ÁÐIÐ FÖSTl'DAGUR 18. MARZ Í094 '
11
A rauðum grunni
________Myndlist______________
Bragi Ásgeirsson
Myndlistarkonan Anna Gunn-
laugsdóttir sýnir fram til 27. marz
31 myndverk í Listaskála alþýðu við
Grensásveg.
Anna hefur haldið nokkrar sýning-
ar áður og myndefni hennar hafa
aðallega verið konur og þá mikið til
andlit af kpnum sem hún hefur fært
í stílinn. Ásjónurnar hafa stundum
verið harðar og spyijandi líkt og
væru þær tákngervingar fyrir stöðu
kvenna í nútímasamfélagi.
Bn ekki skal fortekið að hér sé
allt eins á ferðinni ást á myndefninu
líkt og sumir málarar hafa málað
kyrralífsmyndir eða fjöll allt sitt líf
og þó nokkrir með frábærum árangri.
Myndefnið skiptir þannig ekki að-
almáli heldur úrvinnsla þess og satt
að segja er konan svo heillandi við-
fangsefni myndrænt séð að mörgum
málurum hefur ekki enst lífið til að
tæma myndefnið að nokkru ráði.
Þetta verður að teljast veigamesta
sýning Önnu til þessa, ekki fyrir fjölda
myndverka né stærðar þeirra, heldur
vegna þess að mun meiri umbrot og
átök eru í þeim en nokkru sinni fyrr.
Anna færist meira í fang í mörgum
myndverkanna, en áður hefur sést
frá hennar hendi og hún er að hverfa
frá þeim vanavinnubrögðum sem
vildu stundum einkenna myndir
hennar. Aldrei verður sú vísa of oft
kveðin að hvert málverk sem málað
er telst nýr og ókannaður heimur en
síður bein framlenging og endurtekn-
ing á því sem áður var málað, þótt
persónueinkennin skíni í gegn. En
persónueinkenni fær enginn með því
að endurtaka sig, heldur auka stöð-
ugt á íjölbreytnina og leitast við að
fjarlægjast sem mest sitt eigið sjálf.
Þessu má líkja við, að þegar menn
standa á gati við blöndun olíulita og
finna ekki réttu blæbrigðin, er oftar
Anna Gunnlaugsdóttir.
en ekki vænlegast að blanda í litinn
ólíklegasta lit litrófsins!
Listrýnirinn varð fljótlega var við
umtalsverðar brejAingar á virjnu-
brögðum listakonunnar og það kem-
ur helst fram í mýkri og efniskennd-
ari meðhöndlun litarins og léttari
uppbyggingu formheilda. Þar að auki
eru myndirnar mun betur málaðar
en áður og hreyfa meira við innri
kviku myndflatarins.
Þetta á einkum við í ýmsum vel
máluðum myndum líkt og „Mæðgur“
(3), „Fósturlandsins Freyja“ (7),
Mjallhvít" (19), „Blá“ (20) og „Upp-
spretta" (21). En sennilega eru rauðu
konumyndimar athyglisverðasta
framlag Önnu til íslenzkrar myndlist-
ar til þessa, svo sem „Rauð kona“
(11), Tvö í rauðu“ (13) og „Upprisa"
(26).
Þá ber að geta einnar myndar, sem
er öðruvísi en allar aðrar, „Léttir"
(Brýr að baki), sem er létt og leik-
andi máluð og kann að vera fyrir-
boði nýrra tíðinda frá pentskúfi Önnu
Gunnlaugsdóttur.
DAGBÓK
SELJAKIRKJA: Fyrirbænastund
í kirkjunni í dag kl. 18. Fyrirbæna-
efnum veitt móttaka á skrifstofu
safnaðarins. Öllum opið.
DIGRANESPRESTAKALL:
Biblíulestur í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg í kvöld kl. 20.30.
SJOUNDA dags aðventistar á
Islandi: Á laugardag:
AÐVENTKIRKJAN, Ingólfs-
stræti 19: Biblíurannsókn kl. 9.45.
Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
David West.
SAFNAÐARHEIMILI aðvent-
ista, Blikabraut 2, Keflavík:
Guðsþjónusta kl. 10.15. Biblíu-
rannsókn að guðsþjónustu lokinni.
Ræðumaður Elías Theodórsson.
SAFNAÐARHEIMILI aðvent-
ista, Gagnheiði 40, Selfossi:
Guðsþjónusta kl. 10. Biblíurann-
sókn að guðsþjónustu lokinni.
Ræðumaður Björgvin Snorrason.
AÐVENTKIRKJAN, Brekastíg
17, Vestmannaeyjum: Biblíu-
rannsókn kl. 10.
AÐVENTSÖFNUÐURINN
Hafnarfirði, Góðtemplarahús-
inu, Suðurgötu 7: Samkoma kl.
10. Ræðumaður Steinþór Þórðar-
son.
1944
1994
Lýðveldi Islands
50ára
Lýðveldismatseðill kr. 1.944
Forréttir:
H.B. fiskisúpa með fínnt skomu grænmeti
Ferskmarineraður lax með kryddjurtasósu og salati
Salat með súrsætu graskeri, sveppum og stökkri svartrót
Kjúklinga- og ostapasta með parmesan og ratatouille
Aðalréttir:
Grilluð sinnepskjúklingabringa með hrísgrjónum og hunangssoya
Ofnbakaður lax með gljáðu grænmeti og tómatestragonsósu
Grillaður nautavöðvi með sveppum, sellerírót og shallottulauk
Steikt lambafilé með röstikartöflum og snjóbaunum
Kr. 1.944
Eftirréttir:
Súkkulaðimousseterrine með ferskri vanillusósu og jarðarberjum
Heit heimabökuð eplakaka með vanilluís og karamellusósu
Myntuís með berjasósu og ávöxtum
Kr. 50
Ath. Eftirréttur á 50 kr. aðeins með tilboði
Borðað í Gyllta sal - slappað af í Pálmasal
Opið til kl. 01 virka daga og kl. 03 um helgar.
Njótið lífsins á Borginni
- það er aðeins ein Hótel Borg
Hólel llorg símar 11440 o« 1124
Tilboð á TOTI leirlampa
á kr. 5.565,-
BAÐSLOPPAR fyrir stráka og
stelpur. Verð frá kr. 2.600,-
VIÐSKIPTAVINIR
ATHUGIÐ!
OPIÐ VIRKA DAGA
10.00 - 18.00
OGLAUGARDAGA
10.00-14.00
LAUGAVEGI 13 - SÍIVll (91) 625870
OLL HELSTU
GREIÐSLUKJÖR:
Glæsilegur PACINO
sófi og svefnsófi
á ótrúlega lágu verði!
Á stóru myndinni má sjá
PACINO sófann (svefnsófa),
vandaðan koparlampa og
þægilega púða.
Verð:
Pacino-sófinn kr. 39.900,- stgr.
Pacino-svefnsófinn kr. 51.900,- stgr.
Koparlampinn á tilboði kr. 6.895,- stgr.
Púðar frá kr. 1.450,-.
Nýtt greiðslukortatímabil er hafið!
AFRICA og CAMP leikstjóra-
stólarnir eru komnir aftur! Africa
kr. 3.400,- og Camp kr. 2.600,-
MYNDA-
RAMMAR utan
um fermingar-
myndirnar.
habitat
HUSCOCN EINGÓNCU
ÚR RÆKTUÐUM SKÓOI!
RÚMTEPPI í fjölmörgum litum
og stærðum. Verð frá kr. 2.900,-
SÆNGURVERASETT og
SÆNGUR í miklu úrvali.
HABITAT ÍSLAND - ENGLAND - FRAKKLAND - SPÁNN - HOLLAND - BELGÍA - MARTINIQUE - SINGAPORE - BANDARÍKIN