Morgunblaðið - 18.03.1994, Page 17
Skriðdalur
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
17
Hreindýr skemma gróð-
ur á skógræktarsvæði
Egilsstöðum.
HREINDÝR hafa unnið skemmdir á trjáplöntum víða í Skriðdal að
undanförnu vegna tíðra heimsókna niður á láglendið. Hreindýrin
fara um í þó nokkuð stórum hópum, allt upp í nokkur hundruð
saman. Fátt virðist stöðva dýrin og vippa þau sér léttilega yfir flest-
ar girðingar og rekast illa sé reynt að stugga við þeim.
Það er ekki heiglum hent að
rækta skóg á íslandi og það er því
mjög niðurdrepandi fyrir þá sem
við þessa iðju fást að fá hreindýr
í heimsókn sem traðka niður við-
kvæman gróðurinn, að því er virð-
ist að tilefnislausu. Slíkt hefur
gerst í Skriðdal að undanförnu og
hefur heimsókn hreindýra verið
árviss undanfarin ár.
Skarphéðin Þórisson líffræðing-
ur segir að hér sé fyrst og fremst
um að ræða dýr í ætisleit því jarð-
bönn eru til fjalla og heiða. Dýrin
éti þó ekki tijáplönturnar heldur
nudda sér utan í þær og eyði-
leggja, auk þess að traðka þær
niður. Um eins metra háar plöntur
fara verst út úr þessu nuddi dýr-
anna. Litlar rannsóknir hafa verið
gerðar á því af hveiju dýrin leggj-
ast á plönturnar. Nefndur hefur
verið kláði vegna missis horna, en
Landskeppni
í eðlisfræði
Urslit fara
það hefur ekki verið vísindalega
sannað og segir Skarphéðinn að
rannsóknir vanti á þessu atferli
dýranna. Þó standi til að þær fari
fram á vegum Veiðistjóra og í sam-
ráði við Skógrækt ríkisins og Hér-
aðsskóga.
Morgunblaðið/Benedikt Sigurðsson
Eyðilegging
HREINDÝRIN skemma trjágróðurinn þar sem þau fara um í flokk-
um um Skriðdal.
Hvað er til ráða?
Ýmsum hugmyndum um úrbæt-
ur hefur skotið upp kollinum, þar
á meðal að reisa háar girðingar,
en slíkt er kostnaðarsamt og ekki
ljóst hver bæri kostnaðinn af því.
I annan stað halda girðingar dýrun-
um mjög illa í burtu því þau stökkva
yfir þær flestar. Bændur hafa reynt
að reka dýrin burtu en það er
skammgóður vermir, nema þeim
mun lengra sé farið með þau.
Skarphéðinn telur fækkun dýrana
ekki koma til greina sem lausn á
vandanum, nema fækkað yrði veru-
lega í stofninum, enda þarf ekki
mörg dýr til að valda miklu tjóni.
Að hans mati verður að rannsaka
þetta atferli dýranna og í fram-
haldi af því að taka ákvörðun um
hvað sé helst að gera. _ gg
Miðvikudag - Fimmtudag - Föstudag - Laugardag
ló,- IV. mars
190 NEMENDUR frá 12 fram-
haldsskólum um allt land, tóku
þátt í forkeppni Landskeppni í
eðlisfræði sem Eðlisfræðafélag
íslands og Félag raungreina-
kennara gengust fyrir 1. mars
sl. Efstur í keppninni varð Gunn-
laugur Þór Briem, Menntaskól-
anum í Reykjavík, með 21,25
stig af 25 mögulegum.
14 keppendum er nú boðið til ;
úrslitakeppni og þeir valdir með |
hliðsjón af árangri og að nokkru
leyti að þeir uppfylli aldursmörk \
Ólympíuleikanna í eðlisfræði.
Munu keppendur glíma við fræði-
leg verkefni úr eðlisfræði og fram-
kvæma tilraunir ásamt skýrslu-
gerð. Verðlaunaafhending fer
fram 19. mars og eru veitt bóka-
verðlaun fyrir góðan árangur í
forkeppnini en peningaverðlaun
fyrir góðan árangur í úrslita-
keppninni.
Þessum nemendum er boðið til
úrslitakeppninnar. Frá Mennta-
skólanum á Akureyri: Sveinbirni
Pétri Guðmundssyni. Frá Mennta-
skólanum við Hamrahlíð: Loga
Ragnarssyni. Frá Menntaskólan-
um í Reykjavík: Arnari Má Hrafn-
kellssyni, Gunnlaugi Þór Briem,
Styrmi Sigurjónssyni, Burkna
Pálssyni, Þórði Ægi Bjarnasyni,
Tómasi Þorsteinssyni, Alfreð
Haukssyni, Ingólfi Ágústssyni,
Guðmundi Hafsteinssyni, Stefáni
Bjarna Sigurðssyni, Skúla Guð-
mundssyni. Frá Verslunarskóla
íslands: Þórólfi Jónssyni.
Allt að 5 efstu keppendur í úr-
slitakeppninni munu verða fulltrú-
ar íslands á 24. Ólympíuleikunum
í eðlisfræði sem haldnir verða í
Peking í Kína 10.-18. júlí á sumri
komanda. Þeir þurfa þó að upp-
fylla það skilyrði leikanna að vera
yngri en tvítugir 30. júní 1994.
Dagskrá úrslitakeppninnar er
sem hér segir: Laugardagur 19.
mars kl. 9-12, fræðilegur hluti,
VR II í Hí, sunnudagur 20. mars
kl. 9—12.30, verklegur hluti, VR I
í HÍ, kl. 16.30-18, verðlaunaf-
hending, Skólabæ.
kynnir Kringlukast
r
vor
r a
/
vorum
-alslætti
KRINGMN
Afgreiðslutínii Kringlimnar;
Mánudaga tilfimmtudaga 10-18.30,
föstudaga 10-19 oglaugardaga 10-16.
1 vmnni
fram um
helgina