Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
21
Sjálfstætt fyrirtæki um
innanlandsflugið?
TAPREKSTUR á innanlandsflugi Flugleiða kom mjög til umræðu á
aðalfundi félagsins i gær en tap á því nam alls um 125 milljónum
króna á síðasta ári. Hörður Sigurgestsson, stjórnarformaður, sagði
í ræðu sinni að það væri afdráttarlaust markmið að þessi þjónusta
væri rekin með hagnaði, eins og aðrar einingar í rekstri félagsins.
Þessu markmiði yrði áfram fylgt eftir og þær breytingar gerðar á
rekstrinum sem þarf til að ná jafnvægi. Hann sagði að til greina
kæmi að innanlandsflugið yrði sett í sjálfstætt fyrirtæki. A aðalfundin-
um var bent á að Flugleiðir hefðu þurft að mæta vaxandi samkeppni
í innanlandsflugi og að samkeppni frá einkabílum hefði aukist með
betra vegakerfi.
Framboð í innanlandsflugi
minnkaði um rúmlega 1% en flutn-
ingar minnkuðu um rúmlega 4% á
milli og hleðslunýting versnaði um
tæplega 2 prósentustig. Stjórn fé-
lagsins samþykkti um mitt síðasta
ár að flugáætlun og rekstur innan-
landsflugsins skyldi miðast við þijár
Fokker 50 flugvélar og reynt skyldi
að leigja fjórðu Fokker 50 flugvélina
til annars flugfélags. Hún var leigð
til Austrian Airlines í íjóra mánuði
á síðasta ári en ekki hefur enn tek-
ist að afla fleiri verkefna.
Sigurður Helgason sagði á fundi
með blaðamönnum í gær að offram-
boð væri á Fokker-vélum eins og
öðrum vélum en það færi þó minnk-
andi. „Við leggjum áherslu á að losa
okkur við eina Fokker 50 vél í eitt
eða tvö ár og síðan erum við að fara
í ýmsar aðrar hagræðingaraðgerðir
enn frekar í innanlandsfluginu."
Leifur Magnússon, framkvæmda-
stjóri hjá Flugleiðum, sagði í sam-
taii við Morgunblaðið að tvö verk-
efni væru í sjónmáli fyrir fjórðu
Fokker-vélina erlendis. Eitt verk-
efnið gæti fallið til í sumar og ann-
að í október nk. Hann sagði að
markmið félagsins væri að draga
úr tapinu með öllum tiltækum ráð-
um og unnið væri að úttekt á öllum
mögulegum valkostum í því sam-
bandi.
Flugleiðir hafa Fokker-vélamar á
kaupleigu í tíu ár en samningur um
eina vélina gerir ráð fyrir að hægt
sé að segja honum upp þegar fímm
ár eru liðin af leigutímanum.
í umræðum á aðalfundinum sagði
Hörður Sigurgestsson að það væri
ljóst að félagið hefði vel getað kom-
ist af með þijár flugvélar. „Það var
mat forráðamanna félagsins þegar
vélarnar vom leigðar að það væri
hæfilegt að leigja fjórar vélar til að
geta sinnt flestum og öllum þeim
verkefnum sem væru á boðstólum
á markaðnum bæði innanlands, til
Færeyja og Grænlands." Hann sagði
að eftirspurn hefði hins vegar
minnkað verulega hér innanlands
eftir innanlandsflugi en þegar vél-
amar hefðu verið leigðar hefði verið
gert ráð fyrir aukinni eftirspum.
Holland
Hoogovens
mínnkar tap
Ijmuiden, Hollandi. Reuter.
Hollenzka ál- og stálfyrirtæk-
ið Hoogovens skar niður tap
um rúmlega helming 1993 og
spáir þvi að það muni skila
arði 1994.
Fyrirtækið segir að tapið 1993
hafí numið 234 milljónum gyl-
lina (123 milljónum dollara), að
meðtöldum sérstökum útgjöld-
um að upphæð 62 milljónir gyl-
lina (32,6 milljónir dollarar)
vegna niðurskurðar og endur-
skipulagningar, og minnkað úr
595 milljónnum gyllina (312
milljónum dollara) árið áður.
Hoogovens hefur orðið
óþyrmilega fyrir barðinu á sam-
drættinum í Evrópu og eyðandi
samkeppni af völdum offram-
boðs, en dregið saman seglin og
sér nú fram á betri daga.
NÓRUCA
Barna- og unglinga-
skíðaskór
Ríkisrekstur
Nýtt samskiptaform ráðuneyta
NÝTT samskiptaform ráðuneytis og stofnana, svokölluð samnings-
stjórnun, verður kynnt á ráðstefnu á vegum fjármálaráðuneytisins
í næstu viku. Þetta er þáttur í stefnu fjármálaráðherra um nýskipan
í ríkisrekstri en samningsstjórnun er skilgreind sem formlegur samn-
ingur milli ráðuneytis og stofnunar þar sem annars vegar er kveðið
á um áherslur í starfsemi stofnunar og þann árangur sem hún skuld-
bindur sig til að ná og hins vegar um fjárveitinguna og það sjálf-
stæði sem hún hefur til að ná settum markmiðum.
„Á síðari árum hafa mörg vest-
ræn ríki reynt samningsstjórnun,"
segir Friðrik Sophusson, fjármála-
ráðherra. „Reynslan hefur sýnt að
þetta er vandmeðfarin en um leið
skilvirk aðgerð til að bæta ríkis-
reksturinn. Það má í raun orða
þetta þannig að í samningnum sé
kveðið á um hvaða „þjónustu“
stofnun skuldbindur sig til að
„selja“ og hvað stjómvöld skuld-
binda sig til að „kaupa“.“
Friðrik segir að með þessu móti
verði stjómvöld betur upplýst um
starf stofnana og stjómmálamenn
og skattgreiðendur geti fylgst með
hvað stofnanir gera og hvemig
þeim vegnar. Reynslan sýnir okkur
að það er mikil vinna framundan í
samningsgerð við einstakar stofn-
anir.
„Þegar svona samningur er orð-
inn staðreynd verður stofnun ekki
lengur bara nafn á blaði í fjárhagsá-
ætlun sveitarfélags eða fjárlögum
ríkisins þar sem einungis er til-
greindur kostnaður við reksturinn,
heldur eru birt markmið og hvemig
stofnuninni hefur tekist til við að
ná þeim í samanburði við fyrri ár.
í framtíðinni eiga fjárlög íslenska
ríkisins að endurspegla þetta,“ seg-
ir Friðrik Sophusson.
Tegund127
Stærðir 25-31 - kr. 4.740
Stærðir 32-40 - kr. 5.420
Tegund 173
Stærðir 32-40 kr. 6.880
5% staðgreiðsluafsláttur,
einnig af póstkröfum
greiddum innan 7 daga.
mmúTiLíFPm
GLÆSIBÆ. SÍMI812922
Heilerma bómullarbolir
fyrir börn kr. 700
Hálferma bómullarbolir
fyrir fullorðna kr. 500
BómuUarbuxur fyrir
börn og fullorðna kr. 500
Leikfimibolir, barna kr. 400
Gallajakkar, bama kr. 1.100
VERZL. VIK
Allar bómullarpeysur
ákr. 990 og 1.190
Davíðsson útifatnaður
og útiföt 15% afsláttur.
VERZL. BORG
ÖIl handverkfær i
á lagerverði.
FJALAKOTTURII
Barnapeysur í úrvali
kr. 990
Gallabuxur, fullorðins
kr. 990
Afabolir á kr. 490, margir litir.
Gallabuxur, fullorðins kr. 990
ABar peysur með 30% afslætti.
GL411MBÆR
Geisladiskar í úrvaU á lægsta
verðinu.
T.d. Best of Smolde kr. 1.290,
Dreaming Best og Patsy
Cline aðeins kr. 990
VERZUNIN
BRISTOL
Notaðar Levi's gaUabuxur
frákr. 500
BRYDE VERZLUM
Acrylpeysur kr. 1.290
Áðurkr. 1.990
BómuUarpeysur kr. 1.990
Áðurkr. 2.990
EDINBORG
AUar golfmottur
á hálfvirði miðað
við búðarverð.
VERZL. VISIR
Peysur acryl og bómuU
kr. 1.990 10% afsáttur.
ódýrt skart á lægsta verðinu.
MÖRK
Úrval af skóm á
kr.500ogkr.900
ÁSBYRGI
Dömuskyrtur og blússur.
Áðurkr. 4.770 tUkr. 6.870.
Nú kr. 1.990
NORAMAGAZIN
Bómullarpeysur kr, 2.700
Áður kr. 3.700
GaUabuxur kr. 1.900
Hvítar herraskyrtur kr. 2.490
ASKJA
Barna flauelisbuxúr.
Áður kr. 1.890. Nú kr 990
Gallavesti. Áður kr. 2.500.
Núkr. 1.500
Barnapeysur. Áður kr. 1.890
nú kr. 990
VERZL. GEYSIR
Handunnin öðruvísi
fermingarkort.
öðruvísi kertastkjakar til
fermingargjafa.
Komið
til að vera!
ÞORPH)
B or garkr inglunni
Opið
mánudaga -föstudaga
kl. 12-18.30,
laugardaga kl. 10—16.