Morgunblaðið - 18.03.1994, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
Starfshópur um byggingu flotkvíar á Akureyri
Kostnaður við fram-
kvæmdir um 240 millj.
KOSTNAÐUR við kaup á notaðri flotkví og gerð sérútbúins lægis
fyrir hana auk viðgerðar á dráttarbraut Akureyrarhafnar nemur um
240 milljónum króna að því er fram kemur í skýrslu starfshóps sem
bæjarráð Akureyrar skipaði í mars í fyrra til að skilgreina þörf fyrir
flotkví og heppilega stærð, gera kostnaðaráætlun og kanna möguleika
til fjármögnunar. Helstu niðurstöður skýrslunnar voru kynntar á blaða-
mannafundi í gær og verða kynntar samgönguráðherra um helgina
auk þess sem iðnaðarráðherra og þingmönnum kjördæmisins verður
kynnt málið í næstu viku.
Halldór Jónsson bæjarstjóri sagði
að fiskiskipaflotinn væri sífellt að
stækka og nokkur skip væru það
stór að þau kæmust ekki í slipp hér
á landi en það ásamt fleiri atriðum
hefði komið umræðunni af stað. Enn
væri mikil vinna eftir áður en málið
væri í höfn en menn horfðu mjög
til þess að um fýsilegan kost væri
að ræða. Tilkoma flotkvíar myndi
styrkja mjög skipasmíðaiðnaðinn í
bænum og því væri verulegur akkur
að því að koma henni upp.
Notuð flotkví
Helstu niðurstöður starfshópsins
sem í áttu sæti Guðmundur Thulin-
ius, Guðmundur Sigurbjörnsson,
Guðmundur Stefánsson og Birna
Sigurbjörnsdóttir, voru þær að gera
eigi við dráttarbraut Akureyrarhafn-
ar þannig að gert sé ráð fyrir minna
álagi en nú er og hún teljist örugg
til slipptöku skipa alit að 1.000 tonn-
um að þyngd. Kostnaður við slíka
viðgerð er áætlaður um 30 milljónir
króna.
Hópurinn telur að kaupa eigi not-
aða flotkví með lyftigetu a.m.k.
3.500 tonn sem geti tekið skip með
djúpristu allt að átta metra. Lengd
slíkrar kvíar er 90-120 metrar og
heildarbreidd 25-35 metrar. Heild-
arkostnaður við slíka kví komna til
Akureyrar og tilbúna til notkunar
er áætlaður um 115-135 milljónir
króna. Staðsetningin er best talin
vera í sérútbúnu lægi með varnar-
garði norðan skemmu Slippstöðvar-
innar-Odda og er kostnaður við
þannig hafnarmannvirki áætlaður
tæpar 75 milljónir króna.
I niðurstöðu hópsins kemur fram
að flotkvíin og hafnarmannvirki eigi
að vera í eigu Akureyrarhafnar en
einnig talið mögulegt að stofna um
eignarhald kvíarinnar sérstakt
hlutafélag. Slippstöðin-Oddi eigi
hins vegar að reka flotkvína í tengsl-
um við aðra starfsemi sem lýtur að
skipasmíðum og -viðgerðum.
Fram kemur í skýrsiunni að fjár-
magna eigi flotkví og hafnarmann-
virki að mestu með opinberu fé eins
og hafnarlög kveða á um en leita
verði sérstakra leiða til að fjármagna
það sem upp á vantar.
Mikilvægt öryggistæki
Þá kemur einnig fram að auk
þess sem flotkví af þessari stærð
myndi styrkja starfsgrundvöli skipa-
smíða og skipaviðgerða hér á landi
sé hún mikilvægt öryggistæki þar
sem stærstu fiskiskip íslendinga
þyrftu ekki að sigla til annarra landa
ef þau skyndilega þyrftu á slipptöku
að halda vegna óhappa eða af öðrum
orsökum.
Fylgstu meb á föstudögum!
Heimili/fasteignir kemur út á föstudögum. Fasteignablabib er helsti vettvangur
fasteignavibskipta hvort sem um er ab rasba húsnæbi til eigin nota eba til atvinnurekstrar. Þeir
sem hugsa sér til hreyfings eba vilja bara fylgjast meb fasteignamarkabinum og kynnast
nýjungum á svibi skipulags, viðhalds og nýsmíbi fasteigna láta þetta blab ekki fram hjá sér
fara. í blabinu er einnig ab finna innlendar og erlendar fréttir sem tengjast fasteignum auk
þess sem fjaliað er um heimiiib og ótai möguleika tíi ab prýba þab og lagfæra.
UA kaupir frystitogara frá Kanada
CAPE Adair, Kanadatogarinn sem Utgerðarfélag Akureyringa
hefur í hyggju að kaupa.
Kaupverð 2.400 tn
skips um 500 millj.
ÚTGERÐARFÉLAG Akureyringa hefur gert bráðabirgðasamning
um kaup á nýlegum frystitogara, Cape Adair frá Kanada. Kaup-
verðið er um 500 milljónir króna en skipið, sem er 5 ára gamalt,
er sérstaklega styrkt til siglinga í ís og verður notað til úthafs-
og rækjuveiða. Með tilkomu þess verður eitt skip tekið út úr
rekstrinum, en það er Svalbakur EA, elsta skip félagsins.
Gunnar Ragnars framkvæmda-
stjóri Útgerðarfélags Akureyringa
sagði, að hugað hefði verið að
skipakaupum frá því á síðasta ári
en kaupin á Kanadatogaranum
væru til þess að gera nýtilkomin.
Þrír menn frá félaginu fóru út í
febrúar, skoðuðu skipið og leist
vel á, þannig að ákveðið var að
festa kaup á því.
Skipið er smíðað árið 1989 og
er það 67 metra langt, 14 metra
breitt og mælist um 2.400 tonn.
Það er sérstaklega styrkt til sigl-
inga í ís með 4.488 ha. aðalvél og
að öðru leyti vel búið tækjum og
er sambærilegt við nýjustu og
öflugustu skip íslenska flotans.
Standist a.llar áætlanir varðandi
kaupin á hinu nýja skipi er gert
ráð fyrir að það komi til Akur-
eyrar síðari hluta næsta mánaðar.
„Það er ekki inni í myndinni hjá
okkur að auka eigi sjófrystinguna
á kostnað landvinnslunnar þó svo
að við séum að kaupa frystitog-
ara. Það verða gerðar nauðsynleg-
ar ráðstafanir til að halda sömu
starfsemi í frystihúsinu og verið
hefur. Við erum með góða aðstöðu
í landi og höfum ekki í hyggju að
minnka nýtingu hennar," sagði
Gunnar. „Þessi skipakaup gera
okkur mögulegt að sækja í úthafs-
og rækjuveiðar, en það hefur okk-
ur ekki verið kleift með núverandi
flota. Við munum því í auknum
mæli fara í utankvótaveiðar, en
það má líka segja, að með kaupun-
um verðum við komnir með tvö
öflug frystiskip," sagði Gunnar.
Fyrirhugað er að taka Svalbak
EA út úr rekstri í stað þess nýja,
en hann er elsta skip félagsins og
það sem minnst hefur verið haldið
við.
I
Söngdeild-
artónleikar
SÖNGDEILD Tónlistarskóla
Eyjafjarðar efnir til tónleika í
Blómaskálanum Vín í Eyjafjarð-
arsveit í kvöld, föstudagskvöldið
18. mars, kl. 20.30.
Þar kom fram söngnemendurnir
Hulda Björk Garðarsdóttir, Anna
Júlíana Þórólfsdóttir, Elvý G.
Hreinsdóttir, Jóhannes Gíslason og
Ingólfur Sigþórsson. Undirleikarar
á píanó eru Dóróthea Dagný Tóm-
asdóttir og Guðjón Pálsson en einn-
ig leikur Hulda Björk á selló. Árni
Friðriksson les efnislegar þýðingar
þeirra ljóða sem flutt verða á er-
lendum tungumálum.
í tónleikahléi gefst kostur á að
kaupa veitingar. Aðgangur er
ókeypis og allir velunnarar skólans
velkomnir. (Fréttatilkynning.)
-----»♦ ♦
■ TÓNLEIKAR verða í Deigl-
unni, Grófargili, í kvöld, föstu-
dagskvöldið 18. mars, og hefjast
þeir kl. 22. Hljómsveitirnar Hún
andar og Hver dó? spila rokk, en
fyrrnefnda hljómsveitin mun einnig
leika nokkur glæný lög. Miðaverð
er 300 krónur.
■ HIN spræka og glaðbeitta
hljómsveit Marmilaði frá Akureyri
skemmtir Skagfirðingum næstkom-
andi laugardagskvöld, 19. mars.
Hljómsveitin er í miklum ham þessa
dagana og félagarnir tH alls líkleg-
ir, en þeir eru Karl Örvarsson,
Jakob Jónsson, Jón Rafnsson og
Valur Halldórsson.
■ ÁHUGAMENN um sportfisk-
veiðar verða með opið hús í kvöld,
föstudagskvöldið 18. mars, á
Punktinum, (fýrrverandi húsnæði
skóverksmiðjunnar Striksins á
Gleráreyrum) og hefst það kl. 20. *
Ýmsar kynningar verða, s.s. á j
fluguhnýtingarefni frá KEÁ, dorg-
veiðiútbúnaði frá Leirunesti og
einnig munu einstaklingar kynna
ýmislegt áhugavert_ á þessu sviði.
Dorgveiðifélag íslands mun
kynna starfsemi sína og það sem
er á döfinni hjá félaginu. Sjóstanga-
veiðimenn sýna útbúnað og kynna
sinn félagsskap. Fyrir þá sem vilja
læra að hnýta flugur verður kenn-
ari á staðnum sem skráir fólk á 1
námskeið. (Fréttatilkynning.)
------»■-»-■»-----
Fyrirlestur um
gelísk áhrif
GÍSLI Sigurðsson, íslenskufræð-
ingur við stofnun Árna Magnús-
sonar á íslandi, heldur fyrirlest- i
ur um gelisk áhrif á íslandi við ^
Háskólann á Akureyri á morgun,
laugardag. 1
Gísli hefur skrifað margt um efni
þetta, þar á meðal bók á ensku sem
gefin var út í ritröðinni Studia Is-
landica fyrir nokkrum árum. Auk
þess hefur hann birt fjölda greina
í blöðum og tímaritum víðs vegar
og flutt fyrirlestra um íslenska (
tungu og bókmenntir við ýmis tæki-
færi.
Fyrirlesturinn verður fluttur í I
stofu 16 í byggingu Háskólans á
Akureyri við Þingvallastræti á
morgun, laugardaginn 19. mars,
kl. 14.