Morgunblaðið - 18.03.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
25
Tonya Harding sek um yfirhylmingn
Reuter
Samið við yfirvöld
TONYA Harding hlýðir á lögmann sinn, Robert Weaver, áður
en hún undirritar dómssátt þar sem hún játar sig seka um yfir-
hylmingu með fyrrum eiginmanni sínum og lífverði, sem undir-
bjuggu árás á Nancy Kerrigan.
Ur sviðsljósinu í
sálfræðiráðgjöf
Portland. Reuter.
SKAUTAKONAN Tonya Harding hóf í gær störf í þágu sam-
félagsins auk þess sem hún hlýtur sálfræðilega ráðgjöf. Harding
játaði á miðvikudag að hafa átt þátt í því að halda upplýsingum
um árásina á keppinaut sinn, Nancy Kerrigan, leyndum. Samdi
Harding við yfirvöld um að hún myndi sæta skilorðsbundnum
þriggja ára dómi og 160.000 dala sektum. Þar með lauk keppnis-
ferli Harding, sem getur þó áfram starfað sem atvinnumaður á
skautum.
Lögfræðingur Harding sagði
að hún myndi nú hverfa úr sviðs-
ljósinu og einbeita sér að því að
fá aðstoð við rjúfa ýmis óæskileg
hegðunarmynstur, s.s. að eiga í
samböndum þar sem hún verður
undir. Sagði Harding þetta vera
sér mun mikilvægara nú en
skautarnir.
í dómnum felst að Harding
verður að sæta geðrannsókn og
vinna 500 klukkustundir í þágu
samfélagsins. Er aðstoðarsak-
sóknari í málinu var spurður
hvort í dómnum fælist að Harding
væri saklaus af því að hafa undir-
búið árásina, neitaði hann. Sagði
hann að fyrir lægju sönnunar-
gögn sem tengdu hana undirbún-
ingnum og að samningur Harding
við yfirvöld fæli ekki í sér að þau
sönnunargögn væru á nokkurn
hátt athugaverð.
Það kom Jell Gillooly, fyrrver-
andi eiginmanni Harding, í opna
skjöldu að hún skyldi játa sig
seka um yfirhylmingu og semja
við yfirvöld. Hvorki hann né lög-
menn hans vildu tjá sig frekar
um málið. Þá eru aðdáendur
Harding og stuðningsmenn furðu
lostnir. Sagðist formaður aðdá-
endaklúbbs hennar vera miður
sín en sagði aðdáendurna ekki
myndu bregðast trausti Harding
á erfiðum tímum.
Reuter
Sakaður um
stríðsglæpi
RÉTTARHÖLD hófust í gær fyrir
dómstóli í Versailles, skammt frá
París, í máli Pauls Touviers, fyrsta
Frakkans sem ákærður hefur verið
fyrir glæpi gegn mannkyninu. To-
uvier er 78 ára gamall og er hann
sakaður um að hafa valið af handa-
hófi sjö gyðinga til að senda í
dauðabúðir nasista í Þýskalandi
1944. Hann var yfirmaður leyni-
þjónustu franskra liðsmanna Þjóð-
veija í Lyon í seinni heimsstyijöld
og var tvisvar dæmdur til dauða
ijarverandi eftir stríð. Kaþólska
kirkjan skaut yfir hann skjólshúsi
þar til hann var handtekinn í
klaustri árið 1989. Miklar öryggis-
ráðstafanir eru í og við dómhúsið
og sést sakborningurinn hér sitja í
skotheldu glerbúri í réttarsalnum.
Búist er við að réttarhöldin taki
fimm vikur.
Vitnaleiðslur vegna Whitewater?
Washington. Reuter.
AUKNAR líkur eru á, að efnt verði til vitnaleiðslna á Bandaríkja-
þingi vegna Whitewater-málsins svokallaða. Demókratar, sem eru
í meirihluta í báðum þingdeildum, eru ekki á einu máli urn vitna-
leiðslurnar en þar sem kosningar verða í mörgum ríkjum síðar á
árinu er ekki búist við, að þeir muni standa gegn þeim. Þá hefur
sérstakur rannsóknardómari í málinu ákveðið að yfirheyra fleiri
háttsetta embættismenn Clinton-stjórnarinnar.
Repúblikanar leggja áherslu á, að yfirhylmingu á kosningaári en halda
Whitewater-málið verði tekið fyrir í því fram, að repúblikanar séu ekki
vitnaleiðslum á þingi og búist er við, að biðja um neitt annað en pólitískan
að demókratar samþykki það. Þeir skrípaleik. Whitewater-málið snýst
vilja síst af öllu vera sakaðir um um samnefnt fasteignafyrirtæki,
sem varð gjaldþrota 1978, en þótt
enginn hafi sakað þau Clinton-hjónin
um lagabrot, þá hafa komið fram
ásakanir um að þau hafi misnotað
pólitíska aðstöðu sína.
Aðstoðarmenn Roberts Fiske, sér- ■
legs rannsóknardómara í White-
water-málinu, sögðu í gær, að fleiri
embættismenn Clinton-stjórnarinnar
yrðu kallaðir til yfirheyrslu, þar á
meðal Harold Ickes aðstoðarstarfs-
mannastjóri og Jean Hanson, heisti
lögfræðingur dómsmálaráðuneytis-
ins.
pið hús
í tilefhi 80 ára afmæiis
Hagstofunnar verður kynning
á starfsemi hennar helgina
19. - 20. mars frá kl. 13-17.
Hvað stendur í Þjóðskránni?
Hvað eru vísitölur?
Hvernig er mannfjöldinn talinn?
Hvernig er atvinnuleysið kannað?
Hvað borðar landinn mörg kíló af kjöti á ári?
Hversu margir eru í framhaldsskólunum?
....og margt annað sem fróðlegt er að vita.
Við bjóðum alla fjölskylduna
velkomna, léttar veitingar og
nemendur
úr Tónskóla
Sigursveins
leika kl. 14 á
laugardag.
purningarleikur.
Páskaegg í verðlaun!
*
Hagstofa Islan
Skuggasundi 3
GLÆSILEG AMERISK RUM
iidi
DESIGNSÍnc.'
í rúmunum eru hinar vönduðu amerísku Sfíriingwfcllt'
dýnur sem kírópraktorar mæla með. Þær eru byggðar
upp eftir MULTILASTIC PLUS kerfinu, sem tryggir jafnan
stuðning og beinan hrygg í svefni. n
ií? U Ð U R L A N D |S B, R A , U T 2 2
S Í M I 3 6 0 II
linmiííiusbíiðís i .loasinH 1