Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
Islands-
meistara-
keppnií 10
dönsum
ÍSLANDSMEISTARAKEPPNI í
10 dönsum í suðuramerískum
og standard-dönsum með
~**fijálsri aðferð verður haldin
laugardaginn 19. mars í íþrótta-
húsinu Asgarði, Garðabæ. Einn-
ig verður einsdanskeppni í
grunnsporum fyrir 10 ára og
eldri.
Húsið opnar kl. 14. Keppnin
^sjálf hefst kl. 15 með setningarat-
höfn. Aðgangseyrir er 400 kr. fyr-
ir börn, 600 kr. fyrir fullorðna og
1.000 kr. í sæti.
Skipting Orkustofnunar boðuð á ársfundi hennar
Hlutafélag verði stofn-
að um orkurannsóknir
Bókfærð útgjöld Orkustofnunar
í fyrra námu 357 milljónum króna,
sem samsvarar að sögn Jakobs
Bjömssonar orkumálastjóra 10%
lækkun að raunvirði frá 1992.
Fjárveitingar námu 221,5 milljón-
um kr., sem er tæplega 12% lækk-
un að raunvirði frá 1992 en sér-
tekjur námu 161,2 milljónum kr.,
sem er um 6,5% hækkun frá 1992.
Stofnunin hagnaðist því um 25
milljónir í fyrra umfram rekstrar-
kostnað. Höfuðstóll stofnunarinn-
ar var jákvæður um rúm 10%o af
rekstrartekjum ársins í árslok
1993, eða rúmar 38 milljónir.
Orkulögin í endurskoðun
í ræðu ráðherra kom fram að
fyrirhugaðar breytingar á skipan
Orkustofnunar tengist umfjöllun í
ríkisstjórninni um frumvarp um
Rafmagnsveitur ríkisins sem og
frumvörp um eignarhald á auð-
lindum í jörðu og virkjunarrétt
vatnsfalla. í þeim er gert ráð fyrir
að felldir verði úr gildi þrír kaflar
orkulaganna; um Rafmangnsveit-
ur ríkisins, um vinnslu jarðhita og
um vemdun. jarðhitasvæða og
jarðhitavirki og eftirlit með þeim.
Undirbúningur að endurskoðun
þeirra kafla sem eftir standa er
þegar hafinn, en þar er fjallað um
Orkustofnun eins og áður er getið,
vinnslu raforku, héraðsrafmagns-
veitur, hitaveitur og um orkusjóð.
Hugmyndirnar eru sóttar til
stefnuskrár ríkisstjórnar, þar sem
segir m.a. að með endurskoðun
laganna verði leitast við að auka
samkeppni orkufyrirtækja, draga
úr miðstýringu þeirra og sérstöðu,
með breyttu eignarhaldi og
rekstrarformi. Orkufyrirtækin
muni greiða þjónustugjöld til opin-
berra aðila fyrir rannsóknir, leyfís-
gjald fyrir orkuvinnslu o.fl.
Orka, umhverfi, efnahagur
í ræðu sinni gat Jakob Bjöms-
son m.a. um helstu verkefni Orku-
stofnunar á liðnu ári á sviði vatns-
Frá ársfundi Orkustofnunar.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kringlukast
fer vel af stað
SJÖUNDA Kringlukastið er nú í gangi í Kringlunni og segir
Einar I. Halldórsson að tilboðsdagar þessir hafi farið vel af
stað og sala verið góð. Mikil aðsókn hefur verið í Kringlu-
kasti og fyrsta daginn komu milli 16 og 17 þúsund manns í
Kringluna og eru sum tilboð fyrirtækja langt komin með að
verða uppseld.
Flestar verslanir og þjónustu-
fyrirtæki Kringlunnar eru með
tilboð á nýjum vömm og nemur
afsiátturinn 20-40%. Kringlu-
kastið stendur til laugardags.
Einar sagði að fólk væri farið
að stíla sig inn á tilboðsdagana
sem haldnir era þrisvar á ári.
Hann segir að góð saia sé 'á til-
boðsvöranum, en Kringlukastið
hafi einnig jákvæð áhrif á sölu
annarra vara sem í boði era.
í tengslum við Kringlukast er
í gangi leikurinn Stóri afsláttur
þar sem þátttakendum gefst
kostur á að kaupa ákveðna hluti
á miklum afslætti. Fjögur fyrir-
tæki bjóða upp á hluti í leiknum
og er einn hlutur seldur daglega
frá hveiju fyrirtæki.
Aðalleikarar myndarinnar Leikur hlæjandi láns.
Sambíóin frumsýna
Leikur hlæjandi láns
SAMBÍÓIN sýna um þessar mundir stórmyndina Leikur hlæjandi
láns eða „The Joy Luck Club“ sem framleidd er af meistaranum
Oliver Stone og byggir á samnefndri metsölubók Amy Tan.
Sagan segir frá June, ungir
stúlku af kínverskum bergi brotin.
Þegar móðir hennar andast tekur
hún sæti hennar í spilaklúbbi með
gömlum frænkum sínum sem hitt-
ast vikulega til að spila hið forna
kínverska spil, Mahjong. Samræður
frænknanna eiga eftir að fræða
June um förtíð sem henni var með
öllu hulin fram til þessa; fortíð sem
hrífandi og ævintýraleg en óhugan-
leg og sorgleg í senn.
Leikstjóri myndarinnar er Wayne
Wang en með helstu aðalhlutverk
fara Kieu Chinh, Tsia Chin, Tamlyn
Tomota og Frances Nuyen.
Stefnir í Hafnarfírði fundar með oddvita D-listans
Kosningamálin rædd
STEFNIR FUS í Hafnarfirði heldur laugardaginn 19. mars hádegis-
verðarfund með Magnúsi Gunnarssyni, efsta manni á Iista Sjálfstæðis-
flokksins í komandi bæjarsljórnarkosningum.
Efni fundarins verður komandi
bæjarstjórnarkosningar. Fundurinn
verður í Sjálfstæðishúsinu, Strand-
götu 29 í Hafnarfirði, kl. 12 og er
öllum opinn. Boðið verður upp á
súpu og brauð.
> Morgunblaðið/Ámi Sæberg
I bæjarferð
ANNA Ásgeirsdóttir var í bæjarferð með þremur börnum sínum,
þeim Dóru (t.v.), Ásgeir og Asthildi en þau búa á ísafirði. Hún
sagði að verulegur verðmunur væri á verði á fötum í Reykjavík
og á ísafirði og ekki væri verra þegar svona tilboð væru í gangi.
Henni virtist tilboðin sem í boði væru eru góð.
Nýr leðurjakki
INGIBJÖRG Sigurjónsdóttir var á ferð með syni sínum Aroni
Gauk Andrasyni og hafði keypt sér leðuijakka á tilboðsverði í
Hanz. Hún sagðist hafa beðið eftir tilboðsdögunum og hafa skoð-
að það sem væri í boði í flestum verslunum. Hún segist fylgjast
vel með verði en ekki gera sér sérstaka ferð. „Þetta er meira
að maður er að skoða það sem til er og sér eitthvað sem maður
ætlaði að kaupa.“
TIL GREINA kemur að skipta Orkustofnun í tvennt á þann
hátt að annar hlutinn, sem bæri áfram nafn stofnunarinnar,
yrði stjórnsýslustofnun ríkisins er fari með yfirumsjón með orku-
málum landsmanna, en hins vegar yrði stofnað hlutafélag um
orkurannsóknir sem ríkissjóður legði í rannsóknarbúnað sem
hlutafé og myndi síðan kaupa rannsóknir af félaginu. Þetta kom
fram í erindi Sighvats Björgvinssonar iðnaðarráðherra, sem
Þorkell Helgason ráðuneytissljóri flutti á ársfundi Orkustofnun-
ar í gær. Gert er ráð fyrir að orkufyrirtæki landsins verði
meðeigendur í félaginu og leggðu fram hlutafé, en hlutverk
Orkustofnunar verði að fylgjast með þróun orkumála, veita
stjórnvöldum ráðgjöf, hafa forgöngu um gerð áætlana í orkumál-
um og móta tillögur um verkefni ríkisins á sviði orkurannsókna.
orku, jarðhita og orkubúskapar.
Hann rakti jafnframt samhengi
orku, efnahags og umhverfís, og
gat þess að þegar rætt er um að
manninum sé nauðsynlegt að
draga stóriega úr orkunotkun
sinni til að vernda umhverfið, vilji
efnahagurinn oft gleymast. „Ef
við eyðileggjum umhverfið hrynur
efnahagurinn fyrr en varir. En
gott og heilnæmt umhverfi er dýrt
og traustur efnahagur er því for-
senda þess,“ sagði Jakob.
Líst vel á þetta
KRISTÍN Waage var að skoða
bómullarboli í Hagkaup. Henni
leist vel á Kringlukastið, sagði
að henni fyndust tilboðin góð.
„Sérstaklega þegar ég finn eitt-
hvað sem passar á mig.“ Hún
sagðist oftast vera að versla á
sjálfa sig, en fyrir kæmi að hún
keypti eitthvað á barnabörnin.
Meiri umferð
SIGRÍÐUR Auðunsdóttir,
verslunarsljóri í Búsáhöldum
og gjafavörum segir að umferð
í Kringlunni aukist verulega
þegar Kringlukast er í gangi.
Hún segir að að margir virtust
bíða eftir tilboðsdögum. Einnig
seljist aðrar vörur betur.