Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
33
Minning
Emma Elíasdóttír
frá Laugalandi
Elsku amma okkar á Akureyri
er dáin, hné niður hægt og hljótt
eins og hennar var von og vísa.
Amma, það- er eitt fallegasta orð
sem okkur fer um munn, og þessi
amma sem okkur var svo kær, bar
þetta fallega nafn með rentu, þó
hvorki væri hún barmmikil eða með
fléttur. Þessi litla, granna, fallega
kona með hvíta kollinn hún vissi
nú hvað hún söng, ekki var það
hávaðinn eða fyrirferðin sem hún
hafði sitt fram með, nei, góðleg
festa, ákveðni og kímni í bland.
Allir gegndu ömmu og virtu mikils.
Á Syðra-Laugalandi var mann-
margt heimili og þröngt setinn
bekkurinn. Á meðan við áttum
heima á Akureyri fórum við oft
frameftir og fengum við barnabörn-
in stundum að verða eftir og þá var
nú gaman. Á laugardagskvöldum
var oftar en ekki dansað á eldhús-
gólfinu við danslögin í útvarpinu,
stórir og smáir skemmtu sér kon-
unglega. Þá voru stúlkurnar og pilt-
arnir jafnvel að búa sig undir að
létta sér upp og var þá gaman að
vera til og fylgjast með. Ærsl og
kátína af öllu tagi hafa einkennt
þessa stórfjölskyldu á hveiju sem
gengur. í minningunum frá Lauga-
landi var alltaf sól og sunnanvind-
ur. Eitt af alskemmtilegustu atvik-
unum var þegar mamma fór með
okkur krakkana og fullan bala af
blautum bleium frameftir á einum
af þessum góðviðrisdögum. Bleium-
ar voru hengdar suður á snúrur og
kýmar voru líka úti, og eitthvað
fannst þeim þetta forvitnilegt sem
blakti þama í sunnangolunni. Því
var það að þegar stúlkurnar litu
út þá héngu bara einhver rifrildi á
snúmnum. Eins og minkur hefði
komist í hænsnahóp komu þær flö-
grandi, skellihlæjandi og kýrnar
hlupu út um víðan völl eins og í
ævintýrunum, en bleiurnar hennar
mömmu voru eins og „tugga út úr
kú“.
Það er svo gott að vera hlekkur
í keðju sem er svo sterk, að þó að
einn og einn hverfi á braut þá
styrkjast þeir sem eftir em. Sterk-
ustu hlekkimir eru famir, afi,
amma og Ella. Afí, stóri myndar-
legi maðurinn sem stjórnaði öllum
með styrkri hendi og við bárum
óttablandna virðingu fyrir, en bak
við hrjúft yfirborðið var hann hlýr
og góður afi sem sagði okkur
skemmtilegar sögur. Amma, elsku
amma með breiða bakið, sem vildi
hvers manns vanda leysa og ekki
þiggja neitt í staðinn. Engin nú-
tímakona kæmist nokkurntíma með
tærnar þar sem hún hafði hælana.
Það litla sem við gátum gert fyrir
þig áttir þú svo sannarlega skilið
og meira til. Hjá góðum guði eru
englarnir og þar vitum við að þú
ert í heiðurssæti. Við kveðjum þig
með síðustu hendingunum úr ljóð-
inu Erla eftir Stefán frá Hvítadal.
„Dýrlega þig dreymi, og drottinn
blessi þig.“
Þorgerður, Hulda, Gunnar
Björn, Emma og Adda.
Emma frá Laugalandi er dáin —
og ég átti eftir svo margt ósagt við
hana. Aldrei trúum við að tíminn
til að finnast sé á enda. Hún sem
var hjá mér á mínum mestu ham-
ingjustundum og tók þátt í gleði
minn. Ef syrti í álinn stóð hún mér
nærri með hóglátari samúð. Hún
vildi aldrei láta á sér bera, vann
öll sín kærleiksverk í kyrrþey.
Þrátt fyrir stórt og annasamt
heimili hennar, var þar allt í röð
og reglu, hreint og fágað. Hún var
bæði hraðvirk og vandvirk, mark-
visst kom hún öllu í verk sem vinna
þurfti. Þó fann Emma alltaf tíma
til að sinna þeim sem áttu um sárt
að binda. Hún fann til með bág-
stöddum og lagði þeim lið.
Emma var fædd í Helgárseli í
Garðsárdal og ólst upp í hópi átta
systkina. Foreldrar hennar voru
Elías Árnason og Sigurmunda Sig-
urmundsdóttir, sem þekkt var fyrir
að skynja margt sem öðrum var
hulið. Hún vissi ætíð gestakomur
dagsins að morgni. Emma réðst ung
í vist að Syðra-Laugalandi og gift-
ist Birni Jóhannssyni, bónda þar,
1925. Á Laugalandi bjuggu þau
fjóra áratugi og þar fæddust og
ólust upp börn þeirra sex. Þau hjón
áttu miklu barnaláni að fagna,
systkinahópurinn hæfileikaríkt
kjamafólk, stolt og gleði foreldra
sinna.
Bjöm, maður Emmu, var ná-
frændi og mikill vinur föður míns.
Hann var glæsimenni og gleðimað-
ur, mikill aufúsugestur á heimili
foreldra minna. Hamingjudísir hans
færðu honum þann lífsförunaut sem
studdi hann í blíðu og stríðu, umbar
hans stóra skap og veiku hliðar.
Hann mátti vart af henni sjá. Eftir
lát hans árið 1980 bjó Emma hjá
Minning
Guðrún Mngnúsdóttir
Fædd 14. maí 1958
Dáin 20. febrúar 1994
Með fáum orðum langar mig til
að kveðja vinkonu mína, Guðrúnu
Magnúsdóttur, sem við kölluðum
Gurrý, en hún lést 20. febrúar sl.
Ég kynntist henni þegar ég kom
inn í fjölskyldu hennar fyrir um það
bil 11 árum, en þá var hún á leið-
inni heim frá Svíþjóð með dætur
sínar tvær, þá tveggja ára gamla
tvíbura.
Ég ætla mér ekki að fara að
rekja æviferil hennar, en langar að
minnast á kynni mín við hana. Það
sem ég tók strax eftir í fari hennar
var að hún var mikil fjölskyldu-
manneskja, alltaf með myndavélina
á lofti til að taka myndir af fólkinu
í fjölskyldunni.
Hún og dóttir mín, sem er að
verða sjö ára, voru miklar vinkon-
ur, en hún gaf sér alltaf tíma til
að spjalla við smáfólkið í ættinni
og minna það á hve fjölskyldan
væri mikilvæg.
Elsku Gurrý mín, ég á alltaf eft-
ir að sakna þín mikið, því við gátum
brallað ýmislegt saman. Ég veit að
þú fylgist með „stóru fjölskyldunni
þinni“ þar sem þú ert hjá Guði. Ég
votta litlu dætrunum þínum, for-
eldrum og systkinum mína dýpstu
samúð. Litla frænkan þín, Gréta
Björk, biður Guð að geyma þig og
þakkar þér fyrir allar stundir sem
hún átti með þér, þegar þú passað-
ir hana.
Þín vinkona,
Elínborg Traustadóttir.
Ég kveð þig með nokkrum fátæk-
legum orðum, elsku Gurrý mín.
Ég minnist góðu daganna þegar
^ Fyrir ferminguna ^
Vinsælu pífurúmfatasettin eru komín. Tilvaldar fermingargjafir.
Tek upp í næstu viku mikið úrval af bróderuðum, kínverskum
dúkum í öllum stærðum á ótrúlegu verði.
Verið velkomin.
Póstsendum.
Verslun Jórunnar Brynjólfsdóttur,
á horni Klapparstígs og Grettisgötu
v/hliðina á Pipar og salti. Sími 16088.
r
ég kom með litla drenginn minn í
afmæli til þín og telpnanna þinna
og svo komst þú og telpurnar þínar
til okkar í afmæli. Nú svo minnist
ég þess þegar ég bjó í Noregi og þú
í Svíþjóð að ég hringdi í þig og þú
bauðst mig velkomna: „Já, Ragga
mín, komdu bara.“
Það v.ar alltaf nóg rými hjá
Gurrý, þó að lífið væri ekki alltaf
eins og við óskuðum okkur.
Síðast töluðum við lengi saman
og hlógum dátt en enginn veit hve-
nær kallið kemur.
Hvíl þú í friði, elsku Gurrý mín.
Ég sendi foreldrum, systkinum
og dætrum innilegustu samúðar-
kveðjur mínar.
Ragnheiður.
Islandskosiur
hormhtijar
Verö trá 1400 kr. ániann
(>1 48 49
4
ÞUATT P>ER VWV/
LAUQARPALNUM
;g
o
^pr Sálarrannsóknafélag Islands
10 vikna námskeið i dulrænum fræðum hefst
laugardaginn 19. mars 1994.
Leiðbeinandi verður rússneski miðillinn,
huglæknirinn, dávaldurinn og visindamaðurinn
Josephina Inna Strajmeister.
Meðal efnis á námskeiðinu verður:
Vinna með orkustöðvar og orkubrautir.
Nota grunntækni í dáleiðslu og sjálfsdáleiðslu.
Sjá og skilja liti árunnar og breyta þeim í gegnum tilfinningalikamann.
Sjá karmísk bönd sem mögulegar orsakir fyrir núverandi ójafnvægi í
huga, likama og stefnu lífsins.
Opna fyrir sköpunargáfurnar.
Vekja fyrri lífs minningar.
Tengjast æðra sjálfinu.
Námskeiðið verður á fimmtudagskvöldum frá kl. 19—22 og laugar
dagsmorgna frá kl. 9—12.
Nánari upplýsingar hjá Sálarrannsóknafélagi íslands, Garðastræti 8, *
í sima 18130 og 618130. |
Brodda syni sínum á Akureyri. Fjöl-
skylda hans var henni mjög kær
og átti hún þar hlýtt ævikvöld.
Emma varð aldrei gömul. Fáum
dögum fyrir andlát hennar sá ég
hana úti á gangi, granna og beina
í baki, fallega og smekklega
klædda, létta í spori. Þannig kvaddi
hún, eins og hún lifði, með reisn.
Ég votta samúð þeim sem henni
unnu og hana syrgja.
Freyja Eiríksdóttir.
Sú hönd sem leiðir hússins störf
og heimilið prýðir og bætir,
og ann sér ei hvíldar, þó hvíldar sé þörf,
en hveiju því gegnir, sem mætir;
sú hönd er lögð þreytt á hinn hinzta beð,
og hana með virðingu ég þrýsti - og kveð.
(S.J.)
Þegar þessi aldraða heiðurskona
er lögð til hinstu hvílu, er sá hópur
stór er lýtur höfði, þakkar og sakn-
ar. Það segir meira en mörg orð.
Öllu því fólki sendi ég hugheilar
samúðarkveðjur.
Sigríður Magnúsdóttir,
Selfossi.
4=BUZZAFiD
skíði á góðu veiði
Fermingartilboð
á skíðapökkum
mmúTiLíFmm
GLÆSIBÆ • SÍMI 812922
auglýsingar
LIFSSÝN
Samtök til sjálfsþekklngar
Mætum öll í friðarstund í Frfkirkj-
unni sunnudaginn 20. mars kl.
14.00
Kópavogur
Opið hús alla laugardaga kl.
10-12. Bæjarfulltrúar og fram-
bjóðendur Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals í Hamraborg 1.
I.O.O.F. 12 = 1743188Vz = 9.lll.
I.O.O.F. 1 = 1743188'/2 = 9.0*
\v—77
KFUM
V.
SÍK, KFUM/KFUK, KSH
Kristniboðsvika -
Með nýtt land undir fótum
Samkoma í kvöld kl. 20.00 í
Kristniboðssalnum, Háaleitis-
braut 58-60. „Barátta í nýju
landi" - Skúli Svavarsson talar.
Upphafsorð hefur Halldóra Lára
Ásgeirsdóttir og Kristfn Bjarna-
dóttir hefur myndaröð frá Kenýu
„I landi Pókotmanna". Yngri
deild KFUK í Garðabæ sýnir
kristniboðsþátt og Laufey Geir-
laugsdóttir syngur einsöng.
Munið bænastundina kl. 19.40.
Kaffi selt eftir samkomuna.
Samkomur Kristniboðsvikunnar
r
NY-UNG
KFUM & KFUK
Holtavegi
Fjölmennum á samkomu kristni-
boðsvikunnar í Kristniboðssaln-
um, Háaleitisbraut 58-60, f kvöld
kl. 20.00. Sjá auglýsingu!
St. St. 5994031916 VIII Sth.
kl. 16.00
Frá Guðspeki-
fólaginu
Ingólfsstrætl 22.
Áskríftarsfml
Ganglera ar
39S73.
I kvöld kl. 21 flytur Einar Aðal-
steinsson erindi um hamingjuna
í húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15 til 17 er opið
hús með fræðslu kl. 15.30 í
umsjón Einars Þorsteins Ás-
geirssonar. Á sunnudögum kl.
17 er hugleiðslustund með
fræðslu í umsjón Sigurðar Boga
Stefánssonar. Allir eru vel'comnir
á fundina og aðgangur ólceypis.
UTIVIST
Hállveigarstig 1 • smii 614330
Árshátíð Útivistar 1994
verður haldin í kvöld í Hlégaröi
í Mosfellsbæ.
Fordrykkur og frábær matur.
Útivistarfélagar skemmta og
hljómsveitin Þn’und leikur fyrir
dansi. Rútuferðfrá BSl kl. 19.30.
Miðaverð aðeins kr. 2.900.
Helgarferð 26.-27. mars
Skíðaferð yfir Hellisheiði í Nes-
búð. Á sunnudag til baka á Litlu
kaffistofuna. Matur i Nesbúð
laugardagskvöld og sunnudags-
morgun. Góð æfing fyrir páska-
ferðirnar. Verð kr. 4.400/4.800.
Páskaferðir:
31. marstil4. aprfl:
Sigalda - Landmannalaugar -
Básar; skíðagönguferð.
Esjufjöll; skíöagönguferð.
Skaftafell - Öræfi; gönguferðir
fyrir alla.
1 .-3. aprfl:
Básar við Þórsmörk.
Gönguferðir fyrir alla fjölskylduna.
Útivist.