Morgunblaðið - 18.03.1994, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
35
það er eins og svo oft áður, því
verður ekki breytt og enginn mann-
legur máttur fær skilið af hveiju
núna. Á fáum mánuðum náði illvíg-
ur sjúkdómur að bera hana ofur-
liði, en í baráttunni við hann sýndi
Hrefna þvílíkan lífsvilja og dugnað
að við sem fylgdumst með dáðumst
að styrk hennar og kjarki.
En þegar að kveðjustundinni
kemur streyma minningarnar fram
og við í saumaklúbbnum eigum þær
margar og góðar. Hrefna var sér-
stök hannyrðakona og handavinnu-
kennari að mennt. Allt lék í höndum
hennar, svo smekklega og fallega
unnið. Marga listilega hluti hefur
hún gert og alltaf var spennandi
og áhugavert að sjá hvað hún var
með á prjónunum hveiju sinni. Það
var alltaf glatt á hjalla hjá okkur
í klúbbnum og ýmislegt látið flakka.
Hrefna gat sagt sína meiningu en
aldrei svo að sár hlytust af. Það
var alltaf tilhlökkunarefni að koma
í saumaklúbb í Akurgerði, ávallt
eitthvað nýtt og spennandi á borð-
um og snyrtimennskan í fyrirrúmi.
Það er ljúft að líta til baka til síð-
asta saumaklúbbs þar sem við nut-
um þess að vera saman, Hrefna svo
glöð og kát þrátt fyrir veikindi sín,
ákveðin í að láta ekki deigan síga.
Sólin hækkar nú á lofti og bráð-
um er garðurinn hennar Hrefnu að
vakna úr vetrardvalanum og litlir
fijóangar að stinga upp kollinum.
Hún þekkti öll blómin sín með nafni
og talað um þau sem vini sína sem
þau og voru. Við höfum í áratugi
notið þeirrar fegurðar sem garður-
inn geislar frá sér og hefur hann
borið eigendum sínum fagurt vitni.
Við söknum góðs vinar og sam-
ferðamanns og þökkum þær góðu
stundir sem við áttum saman.
Eiginmanni og fjölskyldu sendum
við innlegustu samúðarkveðjur og
biðjum Guð um að styrkja þau á
erfiðri stundu.
Saumaklúbburinn.
Á kveðjustund viljum við með
nokkrum orðum minnast Hrefnu
Ólafsdóttur sem lést á Sjúkrahúsi
Suðurlands 9. mars sl.
Hún Hrefna var fyrsti kennarinn
okkar. Hún tók á móti okkur þegar
við komum í 1. bekk í Flúðaskóla.
Hún var okkur þá eins og góð
amma eða mamma auk þess sem
hún reyndist okkur góður kennari.
Hún vissi hvernig litlum sex ára
krökkum leið þegar eitthvað bjátaði
á. Fyrir það viljum við þakka nú.
Hrefna var handmenntakennari
við Flúðaskóla um langt árabil.
Skömmu eftir að skólinn hófst
síðastliðið haúst veiktist hún og
varð að fara á sjúkrahús. Við gerð-
um okkur þá ekki ljóst hversu alvar-
leg veikindi hennar voru og vonuð-
um að hún kæmi bráðlega aftur,
en sú varð ekki raunin. Guð hefur
tekið hana til sín.
Við fermingarundirbúning okkar
fýrir einu ári lærðum við mörg ritn-
ingarorð úr Biblíunni. Við viljum
tileinka Hrefnu eitt þeirra. Jesús
sagði: „Ég er upprisan og lífið. Sá
sem trúir á mig mun lifa þótt hann
deyi.“
Við viljum senda eiginmanni
hennar, Guðmundi Sigurdórssyni,
og fjölskyldunni allri innilegar sam-
úðarkveðjur.
Ragna Guðný, Anna Heiða,
Ragnhildur, Brynjar, Óskar,
Gústaf, Sveinn Rúnar og
Jóhannes.
Þau sorgartíðindi bárust okkur
miðvikudagsmorgnninn 9. mars sl.
að hún Hrefna okkar væri látin.
Margar góðar minningar þutu um
huga okkar allra og fannst okkur
óraunverulegt að hún kæmi ekki
aftur. Við munum öll svo sannarlega
sakna hennar og kennslustundanna
í skólanum. Hrefna kenndi handa-
vinnu í Flúðaskóla og einnig um
tíma yngstu nemendunum sem
komu í skólann og studdi þau mpð
umhyggju fyrstu sporin á mennta-
brautinni og fórst það vel úr hendi.
Frá því að við byrjuðum í skóla
hafði Hrefna verið einn af föstu
punktunum í skólanum og það er
skrýtið að hugsa til þess þegar hana
vantar skyndilega.
Elsku Hrefna okkar, við þökkum
þér samfylgdina í gegnum árin.
Guðmundi og ijölskyldu sendum við
samúðarkveðjur.
Nemendur 10. bekkjar
Flúðaskóla.
Ámi Stefánsson
póstmaður frá Vest-
mannaeyjum - Mimúng
Okkur langar að minnast með
nokkrum orðum Áma Stefánssonar
eða Árna afa eins og við_ kölluðum
hann. Ámi var fæddur í Ási í Vest-
mannaeyjum 11. október 1919.
Foreldrar hans voru Stefán Gísla-
son útvegsbóndi í Hlíðarhúsum og
kona hans Sigríður Jónsdóttir frá
Mandal í Vestmannaeyjum. Þau
bjuggu í mörg ár í Ási við Kirkju-
veg. Árni var næstyngstur sjö
systkina sem komust til fullorðins-
ára. Eiginkona Árna var Guðrún
Sigurðardóttir frá Reykjavík. Hún
lést 1972. Fósturdóttir hans er Elín
S. Aðalsteinsdóttir, Bjarnhólastíg
1, Kópavogi. Sonur Árna er Þor-
steinn, búsettur í Vestmannaeyjum.
Árni starfaði sem vörubílstjóri í 17
ár bæði í Eyjum og Reykjavík. Einn-
ig starfaði hann um 20 ár sem bréf-
beri allt fram til ársins 1984.
Amma og afi voru stór hluti af
tilveru okkar systranna sérstaklega
þegar við vorum litlar og búandi í
sama húsi, fyrst í Eyjum og síðar
í Reykjavík. Afi var bréfberi í
Reykjavík frá 1965 og þegar við
vorum í heimsókn hjá þeim fengum
við að fara með honum að bera út
póstinn. Voru þetta oft langir
göngutúrar og alltaf var hann jafn
þolinmóður við okkur. Við eigum
góðar minningar frá Ölfusborgum
en þangað fórum við með ömmu
og afa á hveiju sumri í nokkur ár.
I Það var hápunktur sumarsins að
I fá að fara þangað með þeim. Þar
var hver stund notuð í gönguferðir,
spil eða tafl en skákin var aðal
áhugamál Árna afa. Hann sat löng-
um yfir taflinu að fara yfír skákir
og fengum við þá oft að færa tafl-
mennina eftir fyrirmælum hans.
Árni afi var einstaklega reglu-
samur og snyrtilegur maður og við
munum ávallt minnast hans sem
ljúfs og góðs afa. Hafðu þökk fyrir
allt og allt.
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fyigi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Guðrún, Pálína og Ester.
Minning
Sigríður Helgadóttir
Fædd 10. júlí 1905
Dáin 8. mars 1994
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin Strið.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Okkur langar með fáum orðum
að minnast ömmu okkar, Sigríðar
Helgadóttur frá Melshúsum í Hafn-
arfirði. Alla okkar bernsku var
heimili ömmu og afa, Bjarna Guð-
mundssonar frá Stóra-Nýjabæ í
Krísuvík (f. 18. september 1897,
d. 20. febrúar 1976), miðpunktur
tilverunnar og þar hittum við ætt-
ingjana, bæði unga og aldna.
Heimili ömmu og afa var fyrst á
Strandgötu 50 og er okkar fyrsta
bemskuminning tengd þeim stað.
Við fengum að sofa hjá ömmu og
afa og rifumst um hvor okkar fengi
að sofa í skúffunni. Afi sagði okkur
furðusögur af Eiríki í Vogsósum og
amma gaf okkur smákökur með
glassúr og fór með bænirnar með
okkur. Amma kenndi okkur reglu-
lega nýjar bænir og fórum við alltaf
með þær í þeirri röð sem við lærðum
þær.
Seinna fluttu amma og afi í næsta
hús við okkur á Suðurgötu 52,
Mýrarhús, þannig að ekki leið sá
dagur að við kíktum ekki inn hjá
ömmu og fékk maður þá ævinlega
eitthvað gott að borða og ef við
vorum ekki svangar spurði hún okk-
ur alltaf að því hvort við vildum þá
ekki fá okkur epli eða appelsínu í
nesti.
Það var ekki nóg að amma vildi
gera vel við mannfólkið, heldur var
hún með heilu kattafjölskyldurnar í
fæði hjá sér og hann Stubbur á
henni örugglega líf sitt að launa því
ekki gat hann veitt sér til matar,
vanskapaður eins og hann var.
Reyndi hann samt mikið að veiða
andahjónin sem einnig litu til henn-
ar ömmu og þáðu af henni brauð-
bita.
Mikið fannst okkur skrítið að hún
amma gat lesið blöð og bækur á
dönsku, en þegar hún var ung stúlka
útskrifaðist hún gagnfræðingur frá
Flensborg, sem var fremur fátítt
um stúlkur á þeim tíma. Þó að ekki
hafi orðið úr frekara námi hafði hún
alltaf mikinn áhuga á menntun
barnabarnanna og gladdist ósvikið
með þeim þegar vel gekk.
Afi var með kindur í Melshúsum
og hjálpuðust allir að við að heyja
handa þeim. Var þá oft glatt á
hjalla, bæði á túninu í Melshúsum
og í Brandsbæ. Við systurnar vorum
ekki háar í loftinu þegar við reynd-
um að hjálpa til en ekki fannst okk-
ur við vera fullgildar við heyskapinn
fyrr en afi hafði gefið okkur hrífu
sem hæfði bæði hæð og aldri.
Þegar hey var komið í hlöðu og
haustið rétt að byija kom tilhlökkun
í mannskapinn því nú voru réttir í
nánd. Amma bakaði pönnukökur og
fleira góðgæti og svo fór öll hersing-
in í réttirnar. í réttunum var alltaf
líf og fjör en við systurnar munum
þó best eftir því hvað nestið sem
afi hafði haft með sér í smala-
mennskuna var gómsætt á bragðið,
alveg sérstakt fjallabragð.
Síðan tók við sláturtíðin. Amma
tók mikið slátur og var þá hjálp
okkar við að brytja mörinn og sauma
fyrir vel þegin. „Sá þarf mikið að
sjóða sem mörgum vill bjóða" er
málsháttur sem á vel við um ömmu
því oft og iðulega voru í mat hjá
henni bæði vinir og kunningjar fyr-
ir utan alla þá sem stóðu henni næst.
Það var árviss viðburður að hitt-
ast hjá ömmu og afa á jóladag.
Amma hafði skreytt stofuna með
músastigum, bakað loftkökur og
hálfmána og afi var kominn í spari-
fötin. Það var svo sannarlega hátíð
í bæ, mikið spjailað og hlegið og
alltaf tekið í spil. Þegar amma gat
ekki lengúr haldið jólin heima tók
Auður frænka við, en hún er fædd
á jóladag, þannig að þessi siður
helst enn innan fjölskyldunnar. Þeg-
ar amma hætti búskap og fór á
Sólvang fylgist hún áfram vel með
öllu. Það var alltaf gaman að koma
til hennar því hún hafði svo mikinn
áhuga á því sem við vorum að gera
og vildi að okkur gengi vel í lífinu.
Þegar nokkur af barnabörnunum
voru við nám erlendis sýndi hún
okkur glöð í bragði kortin sem hún
fékk send frá þeim. Já, það var
ekki amalegt að kíkja til hennar og
fá fréttir af fjölskyldunni.
Síðasta ár var erfitt fyrir ömmu.
Hún var oft mikið lasin og er ekki
ólíklegt að hún hafi verið kallinu
fegin þegar það kom.
Elsku amma. Við munum ævin-
lega búa að því sem þú gafst okkur
af gæsku þinni og kærleika. Við
kveðjum þig með sömu orðum og
þú sagðir svo oft við okkur: „Guð
geymi þig og gefí þér góða nótt.“
Blessuð sé minning þín.
Silla og Birna.
Hinn 8. mars andaðist á Hjúkrun-
arheimilinu Sólvangi Sigríður
Helgadóttir frá Melshúsum. Hún
fæddist 10. júlí 1905 í Melshúsum
í Hafnarfirði, sem nú er Suðurbraut
4. Foreldrar hennar voru Guðrún
Þórarinsdóttir frá Fornaseli á Mýr-
um og Helgi Guðmundsson frá Hellu
í Hafnarfírði. Þau eignuðust fímm
börn, og er Gyða ein eftir.
Það mun hafa verið í kringum
1946, þá er ég var fimm ára, að
mig rak á fjörur Sigríðar, sem þá
bjó á Strandgötu 50 við sjóinn í
Hafnarfirði. Ég átti heima á Suður-
götunni, götunni fyrir ofan, og lagði
á mig talsvert ferðalag til þess að
leita að dúkkukerrunni minni. Ekki
fann ég kerruna í það sinnið, en
hinsvegar fann ég þá fjölskyldu sem
ég átti eftir að bindast vináttu og
tryggðarböndum ævilangt. Ég var
stödd á eldhúsgólfinu hjá þeim
mætu hjónum, Sigríði og Bjarna
Guðmundssyni verkamanni, sem
þarna bjuggu ásamt sex börnum
sínum. Þarna var lítil jafnaldra mín,
Birna H. Bjarnadóttir, og við urðum
strax vinkonur, gengum saman í
barnaskóla og leiðir okkar hafa
ávallt legið saman síðan.
Heimilið iðaði af lifi og fjöri, og
það kunni ég að meta, þar sem ég
ólst upp nánast sem einbirni, og
heimilisfólkið var gott fólk. Þarna
átti ég gott skjól og varð daglegur
gestur öll mín bernskuár. Heimilið
var frábrugðið öllum öðrum heimil-
um sem ég hafði kynnst. Það bar
með sér menningararf liðinnar ald-
ar. Fábrotið hvað veraldleg gæði
snertir, en samt svo auðugt að
gnægð hjartans, og í raun og veru
fannst mér þar ekkert á skorta.
Allir undu þar glaðir við sitt af iðni
og nægjusemi. Stofan þar sem hið
daglega líf fór fram var sem bað-
stofa. Þar var stórt borðstofuborð
og fyrir ofan það var stór mynd,
eins og skólaspjald, af foreldrum
húsbóndans og systkinunum sautján
frá Stóra-Nýjabæ í Krýsvík. Við
borðið var oft tekið í spil á kvöldin,
en þegar Passíusálmarnir voru lesn-
ir í útvarpinu, voru spilin lögð til
hliðar og hlýtt á þá með andakt.
Svefnherbergið var fyrir innan. Þar
var stór klukka, sem alltaf var ein-
um fimmtán mínútum of fljót, sann-
kölluð búmannsklukka. Þá man ég
eftir húsbóndanum spinna ullina
sína, en þau hjónin áttu nokkrar
kindur. Einu sinni á ári fór húsmóð-
irin til Reykjavíkur í „prívatbíl" að
selja ullina. Og þá eru að mestu
upptaldar þær ferðir sem Sigríður
tók sér fyrir hendur um dagána.
Líf hennar var á heimilinu og hjarta
hennar sló fyrir eiginmanninn, fjöl-
skylduna og alla þá er inn á heimil-
ið komu. Hún var einstaklega gest-
risin. Margan bitann snæddi ég hjá
Sigríði og ég man enn hversu góður
mér fannst rúsínublóðmörinn henn-
ar.
Bjarni var vinnunnar maður.
Hann var fáskiptinn, en sagði skoð-
anir sínar umbúðalaust. Var hann
stundum spaugsamur, þá mynduð-
ust glettnishrukkur og hýran skein
úr augum hans. Mér var hann alltaf
góður. Á sínum yngri árum var
hann félagi í Karlakórnum Þröstum.
Bjarni lést árið 1976.
Sigríður var hávaxin með dökkt
hár sem hún fléttaði. Er hún var
komin í peysufötin var hún tignar-
leg. Hún var fríð sýnum. Birta og
góðvild stafaði frá henni og lýsti
heiðríkju andans. En henni leið ekki
alltaf vel og átti löngum við veik-
indi að stríða. Hún var hógvær í
allri framkomu og tillitssöm, vel
greind og bókhneigð, fékk að fara
í Flensborgarskólann og varð gagn-
fræðingur. Hún kunni vel að segja
frá og naut þess. í blaðaviðtali í
Fjarðarpóstinum fyrir jólin 1992
segir hún t.d. frá ferðum sínum í
bernsku fram að Görðum, en þang-
að sóttu Hafnfirðingar kirkju til
1914. Fór hún gangandi á skinns-
kóm, sem hún tók af sér og geymdi
í gijótgarði meðan á messu stóð og
þá var hún í „dönsku skónum" sem
hún hafði meðferðis. Það var alltaf
tilhlökkunarefni að komast til
kirkju.
Allt hennar líf byggðist á trú á
æðri máttarvöld og á manneskjuna
sjálfa. Bömum sínum og barnaböm-
um var hún mikils virði og öllum
þeim sem henni kynntust. Ég á
þessari konu óendanlega mikið að
þakka. Hún lét mig ávallt fínna,
hversu vænt henni þótti um mig.
Síðast er ég heimsótti hana á Sól-
vangi kvaddi hún mig með þakk-
læti og blessunaróskum og sagði
sem oftar. „Mér finnst þú alltaf,
Gulla mín, vera eins og eitt af börn-
unum mínum.“
Þegar þessi fáu minningarorð eru
skrifuð, er ég á förum næsta dag
til útlanda og verð ekki viðstödd
kveðjustundina.
Ég flyt börnum Sigríðar, Krist-
ínu, Þórarni, Rúnu, Birnu og Auði,
og fjölskyldum þeirra samúðar-
kveðjur.
Minnumst þess að hún var tilbúin
til fararinnar og vel undirbúin, auð-
ug að þeim sjóði sem er gjaldgengur
hinum megin og mölur og ryð fær
eigi grandað.
Velgjörðarkonu mína kveð ég
með virðingu og þökk fyrir allt.
Guðlaug Elísa Kristinsdóttir.
'erfidrykkjur'
^eWngahús^
HÖTEL ESJA
sími 689509