Morgunblaðið - 18.03.1994, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
Minning
Bergþóra Jór-
unn Guðnadóttir
Fædd 4. mars 1922
Dáin 10. mars 1994
Kveðja frá börnum og
fjölskyldum þeirra
Á þessum tíma árs þegar sólin
hækkar á lofti með hverjum degi
og skammt er til jafndægurs á vori
er gleði, bjartsýni og tilhlökkun eftst
í hugum flestra. Þetta á ekki síst
við um þá sem unna ræktun, blómum
og gróðri innan húss og utan. Hjá
því fólki eru vorverkin hafin, fræ
og sprotar eru sett í mold með nær-
fæmum höndum. Fyrstu merki um
'nýtt líf sem fylgir vori og sumri
gægjast brátt upp úr gróðurmold-
ínni.
Þannig er um að litast í stofu og
litlu gróðurhúsi á Álfhólvegi 82 í
Kópavogi. En þar ríkir sorg, mikil
og sár. Hún mamma er dáin. Hún
varð bráðkvödd á heimili sínu að
áliðnum degi 10. mars síðastliðinn.
Hjá henni á dánarstundinni vom
pabbi okkar Sigurður Guðmundsson
og Þórarinn Guðnason læknir, bróð-
ir mömmu.
Mamma var fædd í Gerðum í
Vestur-Landeyjum, næstelst fjög-
urra bama hjónanna Guðna Gísla-
sonar bónda þar og Helgu Maríu
Þorbergsdóttur frá Skógum í Mjóa-
firði.
Systkini mömmu sem upp komust
eru þijú. Þórarinn, iæknir í Reykja-
vík, er fæddur í Gerðum 8. maí 1914.
Þórhalla, starfsstúlka á sjúkrahúsi
Hvítabandsins í Reykjavík, er fædd
í Gerðum 25. febrúar 1925, yngst
er Guðrún, hjúkrunar-framkvæmda-
stjóri í Reykjavík, fædd á Krossi 29.
janúar 1929.
Skólaganga mömmu var ekki
löng. Hún var í barnaskóla á Krossi
með öðmm bömum úr Austur-Land-
eyjum. Að bamaskólanámi loknu var
mamma einn vetur í Héraðsskólan-
um að Laugarvatni. Þetta var undir-
búningur undir það nám sem hugur
hennar stóð til en það var hjúkmn-
amám.
Eftir dvölina á Laugarvatni innnt-
aðist mamma í Hjúkrunarskóla ís-
lands en lauk ekki námi þar. Á þess-
um tíma kynntist hún eftirlifandi
eiginmanni sínum og pabba okkar,
Sigurði Guðmundssyni frá Vík í
Mýrdal, og gengu þau í hjónaband
19. september 1943. Þau settust að
í Vík þar sem pabbi stundaði verslun-
arstörf en jafnhliða þeim var hann
kennari við Unglingaskóla Vestur-
Skaftfellinga og kennsla varð eftir
það lífsstarf hans. Eftir tveggja ára
dvöl í Vík fluttust ungu hjónin til
Reykjavíkur en þaðan fluttu þau
fljótlega austur í Rangárvallasýslu
inn á æskuheimili mömmu að Krossi
þegar pabbi gerðist kennari í Aust-
ur-Landeyjum. í vesturbænum á
Krossi bjuggu þau með afa og ömmu
í sjö ár og gengu þar að ýmsum
búskaparstörfum jafnhliða kennslu-
störfum pabba. Heimilisbragur í
vesturbænum á Krossi einkenndist
af göfuglyndi og glaðværð, góðvild
og greiðvikni. Þetta hafði mikil áhrif
á okkur krakkana sem ólumst upp
í skjóli þessa góða fólks. Kross var
kirkjustaður og afí var um langt
skeið bæði meðhjálpari og hringjari
'við Krosskirkju. Gestagangur var
því oft mikill á æskuheimili mömmu
og þar ríkti mikil gestrisni. Árið
1955 lá leiðin til kennslustarfa aust-
ar í sýslunni undir Eyjafjöllum, fyrst
í Seljalandsskóla og síðar í Skógum
en þaðan flutti fjölskyldan til
Reykjavíkur árið 1966 þegar við
vorum komin þangað til framhalds-
náms. Afi og amma bjuggu nokkur
ár ein á Krossi en dvöldu á heimili
okkar síðustu æviárin. Afi lést í
Skógum 1964 og amma í Reykjavík
1966.
Á árunum austur í Rangárvalla-
sýslu snerist lífið og tilveran mest
um það að halda myndarlegt heim-
ili, ala upp fímm börn og mamma
lagði sig alla fram við að koma okk-
ur til nianns og þrpska. En á þessum
árum var hún oft til þess kölluð að
annast hjúkrunarstörf í samvinnu
við héraðslækna á Stórólfshvoli og
má segja að hún hafi hlúð að bæði
mönnum og málleysingjum hvenær
sem þess var þörf og hún gat komið
því við.
Eftir að til Reykjavíkur var komið
hófst nýr þáttur í lífi og starfi
mömmu og pabba. Þau keyptu litla
íbúð á Bragagötu 35 og og héldu
þar heimili fyrir fjóra stráka á skóla-
aldri. Pabbi gerðist kennari við ný-
stofnaðan sérskóla fyrir fötluð börn,
sem fyrst hét Höfðaskóli en síðar
Öskjuhlíðarskóli, og starfaði þar til
ársins 1983 en hefur síðan unnið
við ýmis störf í fyrirtæki sona sinna
Guðna og Guðmundar. Mamma hóf
störf á ýmsum sjúkrastofnunum,
fyrst á Sólheimum, síðar á Kleppsp-
ítala, Heilsuverndarstöðinni og síð-
ast á Grensás, endurhæfíngardeild
Borgarspítalans. Þar fann hún vett-
vang sem hún naut til hins ýtrasta,
bæði meðal starfsfólks og sjúklinga,
innan stofnunarinnar sem utan.
Dagleg störf hennar á Grensásdeild-
inni voru í orði kveðnu fólgin í því
að vera til aðstoðar sjúkraþjálfurum
við líkamlega endurhæfingu sjúkra
og slasaðra. En mamma var þannig
gerð að hún lét sér það ekki nægja
né þar við sitja. Hún veitti skjólstæð-
ingum sínum alla þá umönnun sem
frekast var unnt, ekki síður andlega
og félagslega. Með glaðværð sinni
og léttlyndi, styrkmjúkum höndum
og mannkærleika fékk hún margan
dapran sjúklinginn til að líta upp,
horfast í augu við erfíða framtíð og
brosa. Þetta tókst henni oft þrátt
fyrir þungar þrautir og andlega vanl-
íðan. sjúklinga vegna veikinda eða
slysa. Mamma lauk sínu farsæla
starfi á Grensásdeildinni fyrir aldurs
sakir fyrir skömmu. Hún kvaddi þá
stofnun með söknuði en sátt við allt
og alla.
Elsku mamma. Það er erfitt að
koma orðum að hugsunum okkar til
þín nú þegar við kveðjum þig hinsta
sinni. Við minnumst með hlýhug
bernsku- og uppvaxtaráranna, fyrst
á Krossi með ykkur og afa og ömmu,
síðan í Seljalandsskóla og austur í
Skógum. Fyrir austan eigum við öll
okkar rætur og þangað dregur okk-
ur alltaf öðru hveiju einhver römm
taug til gamalla föður- og móðurt-
úna, engja, mýra og fjalla, jökla,
hafs og fjöru. Síðan urðu mikil um-
skipti þegar við öll fluttum hingað
suður á mölina og ógleymanlegar
eru okkur minningarnar frá þeim
árum þegar þú og pabbi unnuð bæði
svo mikið myrkranna á milli, pabbi
á daginn og þú á nóttunni til þess
að sjá okkur farborða. Og síðan
hefur tíminn haldið áfram að líða
eins og hann mun alltaf gera. Við
þökkum fyrir það hvað þú varst
honum pabba góð eiginkona og hvað
þið voruð alla tíð samhent í einu og
öllu. Þið voruð okkur fyrirmynd alls
góðs í lífínu og tilverunni. Og við
þökkum þér fyrir hvað þú varst okk-
ur yndisleg og elskandi móðir,
tengdamóðir, amma og Iangamma.
Ef blómálfar eru til þá eru þeir
áreiðanlega óvíða eins margir og í
stofunni, gróðurhúsinu og í garðin-
um á Alfhólsvegi 82. Og ef þeir
hafa tilfínningar þá fella þeir nú tár
líkt og við.
Guð geymi þig elsku mamma.
Njáll, Helga, Guðni,
Guðmundur, Egill
og fjölskyldur.
Við tengdadætur Bergþóru
Guðnadóttur viljum minnast elsku-
legrar tengdamóður okkar með fá-
einum orðum. Að öllum öðrum ólöst-
uðum teljum við okkur hafa átt þá
bestu tengdamóður sem hægt er að
óska sér. Okkur öllum reyndist hún
sem besta móðir og hjálpaði hverri
okkar vel og dyggilega og miðlaði
okkur af reynslu sinni. Það var sama
hversu bónin var stór, alltaf var
svarað: Þetta er nú mjnnsta ,mál í
heimi.
Það var eins og að vera tekin í
hlýjan faðm að koma inn á heimili
Bergþóru og Sigurðar og samrýnd-
ari hjón eru vandfundin.
Margs er að minnast og margt
ber að þakka þegar komið er að
kveðjustund. Ogleymanlegar eru
okkur fjölskylduferðirnar sem farnar
voru árlega þar sem slegið var upp
tjaldbúðum, tengdapabbi þandi
harmóníkuna á meðan tengda-
mamma smurði flatkökur og hitaði
kakó fyrir yngstu kynslóðina. Því
alltaf var mesta hlýjan og best að
borða í tjaldinu hjá ömmu.
Þá var oft sungið: „Snert hörpu
mína himinborna dís, svo hlusti engl-
ar guðs í Paradís."
Börnunum okkar sýndi hún ávallt
einstaka umhyggju, fylgdist náið
með þeim og vakti yfír velferð þeirra.
Því er þeirra missir mikill.
Elsku tengdapabbi. Við viljum
votta þér okkar dýpstu samúð. Megi
minningin um elskulega eiginkonu
vera ljósið sem lýsir þér og þínum
um ókomna framtíð.
Guð geymi þig, elsku tengda-
mamma, og hafðu þökk fyrir allt.
Svanfríður, Bergþóra,
Helen og Guðbjörg.
Það kemur fyrir að svo óvænt og
svipleg tíðindi berast manni að mað-
ur neiti í fyrstu að trúa þeim, sætti
sig ekki við hryggilegar staðreyndir.
Þannig fór okkur hjónunum, þegar
okkur var tilkynnt lát vinkonu okk-
ar, Bergþóru Jórunnar Guðnadóttur,
sem lést skyndilega á heimili sínu,
Álfhólsvegi 82 í Kópavogi, hinn 10.
þ.m. Hún hafði samband við okkur
í síma daginn áður, hress og uppör-
vandi eins og hennar var vandi.
Við áttum því láni að fagna að
eiga Bergþóru og eftirlifandi eigin-
mann hennar að nánum vinum um
áratuga skeið og þessar línur eru
skrifaðar til að þakka löng og góð
kynni, einlæga vináttu og tiyggð,
en maður fínnur sárt til þess hve
vanmegnug orð manns eru að túlka
þær kenndir sem á hugann leita í
slíkum tilvikum.
Við minnumst með innilegu þakk-
læti ótal samverustunda með Berg-
þóru og eiginmanni hennar, bæði á
lengri og skemmri sumarferðalögum
og á heimili þeirra í Espigerði og á
Álfhólsveginum, þar sem þau höfðu
búið sér unaðslegan blómareit.
Ég dáðist oft að því á ferðalögum
okkar hvað Bergþóra var skjótráð
og úrræðagóð á hveiju sem gekk,
dugnaðurinn og hjálpsemin voru ein-
stök. Eða þá hvað hún vissi deili á
fjölmörgu fólki víðsvegar um landið;
mörgum hafði hún kynnst í starfí
sínu, m.a. á Grensásdeild Borgar-
spítalans. Hugljúfastar eru þó minn-
ingar frá samverustundum í blóma-
ríkinu hennar á Álfhólsveginum. Og
við eigum erfitt með að sætta okkur
við þá tilhugsun að geta ekki framar
heimsótt hana þar og skoðað með
henni ný afbrigði af fallegum blóm-
um og rifjað upp ljóð og-lausavísur
sem hún hafði dálæti á.
Þegar frá líður verður okkur þó
efst í huga innilegt þakklæti fyrir
að hafa ánim saman fengið að njóta
hlýrrar og traustrar vináttu góðrar
og mikilhæfrar konu.
Við Ingibjörg vottum eftirlifandi
eiginmanni og öðrum vandamönnum
innilegustu samúð.
Blessuð sé minning Bergþóru
Guðnadóttur.
Böðvar Guðlaugsson.
Okkur systkinin, foreldra og fjöl-
skylda okkar langar að skrifa nokk-
ur kveðjuorð um hana Bergþóru
hans Sigga frænda. Það var mikið
áfall að heyra um skyndilegt fráfall
Bergþóru sem reyndist okkur sem
besta vinkona og félagi alla tíð.
Bergþóra var dóttir hjónanna
Guðna Gíslasonar og Helgu Þor-
bergsdóttur frá Krossi i Landeyjum.
Hún giftist föðurbróður okkar Sig-
urði Guðmundssyni og eignuðust
þau fimm börn, þau Njál, Helgu,
tvíburana Guðmund og Guðna og
Egil. Barnabörn þeirra hjónanna eru
þrettán og barnabarnabörnin eru
orðin þijú.
Áhugamál Bergþóru einkenndust
að miklu leyti af því að hún var
mikill náttúruunnandi. Hún hafði
íast um landið
og ekki sist í
gaman af því að ferf
og njota natturunnar
góðum hópi ættingja og vina. Garð-
rækt var henni í blóð borin og naut
hún þess að rækta blóm. Á meðan
þau hjónin bjuggu í Espigerðinu
höfðu þau ekki garð til að rækta og
voru svalimar þá notaðar hkt og um
gróðurhús væri að ræða. Á Álfhóls-
veginum höfðu þau hjónin breytt
lóðinni sinni í hreinasta skrúðgarð
með margvíslegum afbrigðum úr
náttúrunni. Handavinna var henni
einnig afar hugleikin og notaði hún
tækifærið þegar barnabörnin voru í
heimsókn hjá henni að kenna þeim
handtökin við pijónaskap.
Umhyggju Bergþóru fyrir öðmm
voru engin takmörk sett. Hún starf-
aði við Grensásdeild Borgarspítalans
og eignaðist hún þar marga vini.
Heilsufar annarra hafði ávallt for-
gang fram yfír hennar eigið og til
marks um það hafði hún mestar
áhyggjur af því síðustu lífdagana
að meðlimir okkar fjölskyldu sem
nýkomnir voru út af spítala fengju
þá umhyggju sem þeir þyrftu og
bauð hún fram aðstoð sína.
Þegar hugsað er til baka kemur
upp í hugann hve Bergþóra hafði
gott lag á bömum. Hún átti sérstak-
lega gott með að gerast félagi okkar
krakkanna í hveiju því sem við tók-
um okkur fyrir hendur. Margar góð-
ar minningar rifjast upp um tjaldúti-
legur og veiðiferðir við Grænalón.
Bergþóra var ætíð höfðingi heim
að sækja hvort sem það var á Skóg-
um eða eftir að þau hjónin fluttu til
Reykjavíkur og nú síðustu árin í
Kópavogi. Heimsókn til Sigga og
Bergþóru var alltaf hápunktur
Reykjavíkurferða okkar krakkanna.
Þá snerist Bergþóra í kringum okk-
ur, gaf okkur heitt kakó og nýbakað-
ar pönnukökur, á meðan Siggi
frændi sagði sögur og hermdi eftir.
Á kveðjustund em okkur ofarlega
í huga allar skemmtilegu samveru-
stundirnar í gegnum árin. Þá er for-
eldrum okkar afar minnisstæð
ánægjuleg ferð með Sigga og Berg-
þóru um Norðurlandið sumarið
1991. Þá eigum við öll skemmtilegar
minningar frá ættarmótinu á síðasta
sumri og ekki má gleyma Verslunar-
mannahelginni í Vík. Hveijum hefði
þá dottið í hug að við ættum ekki
öll eftir að sitja og syngja saman
við varðeldinn í brekkunni.
Að leiðarlokum viljum við öll
þakka Bergþóru ánægjuleg kynni
um leið og við óskum henni góðrar
ferðar inn í ríki föðurins. Við munum
sakna látinnar vinkonu en hlýjar
minningar munu lifa áfram með
okkur.
Elsku Siggi og fjölskylda, Guð
gefi ykkur styrk og blessun á erf-
iðri skilnaðarstundu. Okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur til ykkar allra.
Blessuð sé minning þín, Bergþóra
Guðnadóttir.
Guðgeir og Katrín,
Bryndís, Egilína, Pétur og
Ragnar og fjölskyldur.
Okkur systkinin, börn Helgu,
langar að minnast ástkærrar ömmu
okkar á Álfhóisvegi, sem tekin var
frá okkur svo skyndilega. Amma
hafði verið tiltölulega heilsuhraust
hin síðustu ár og tekið var eftir því
hversu hress hún var nú síðustu
daga. Því var fréttin um andlát henn-
ar reiðarslag fyrir okkur. Aðeins
nokkrum dogum áour hoiðum við
komið saman í tilefni afmælis henn-
ar.
Amma var einstök kona og var
alltaf tilbúin að hjálpa fólki hvort
sem það voru börnin hennar, barna-
bömin, ættingjar, venslafólk eða vin-
ir. Hjá ömmu og afa höfum við átt
okkar annað heimili, fyrst á Braga-
götu, í Espigerði og síðast á Álfhóls-
vegi. Upp í hugann koma nú ótal
minningar um ógleymanlegar sam-
verustundir með ömmu og afa á
hátíðisdögum, jólum, áramótum,
páskum, sunnudögum og öðrum
tyllidögum. Ógleymanleg eru ferða-
lögin sem við fórum saman öll sum-
ur, oftast um Suðurland og þá jafn-
an á æskuslóðir ömmu og afa, að
Krossi og í Vík og að Skógum, þar
sem amma og afí bjuggu og störf-
uðu á sínum tíma. Ömmu þótti vænt
um landið og ferðaðist því mikið
innanlands en fór aldrei út fyrir land-
steinana. Á því hafði hún ekki
áhuga.
Amma og afí hafa veitt mömmu
og okkur systkinunum ómetanlegan
stuðning, hlýju og ástúð í gegnum
tíðina og verður það aldrei fullþakk-
að. Nú hefur afí misst eiginkonu
sína og félaga eftir rúmlega fímmtíu
ára hjónaband og mamma okkar
móður sína og trúnaðarvin og nú á
kveðjustundinni er söknuður okkar
allra mikill. Megi algóður Guð
styrkja afa og alla aðstandendur í
sorg þeirra.
Og seinna þar sem enginn telur ár
og aldrei falla nokkur harmatár,
mun herra tímans, hjartans faðir vor,
úr hausti tímans gjöra eilíft vor.
(Ó.H.)
Gunnar Freyr, Helga
María, Sigurður Narfi og
litla langömmubarnið.
í dag kveðjum við elskulega
ömmu okkar, Bergþóru Guðnadóttur
frá Krossi, Austur-Landeyjum, okk-
ur langar til að minnast hennar með
örfáum orðum.
Það má segja að amma hafí verið
stór þáttur í uppvaxtar- og æskuá-
rum okkar systkinanna. Arið 1974
fluttum við í blokk ásamt ömmu og
afa. Við bjuggum á fyrstu hæð og
amma og afi á þeirri efri. Eftir að
við tvíburarnir fæddumst var mikið
að gera hjá mömmu og pabba, eftir
átta mánuði tóku amma og afí ann-
an okkar upp til sín til að létta álag-
ið á neðri hæðinni, og það var eins
og við ættum heima á báðum hæð-
um. í þessari tilteknu blokk bjuggum
við í sjö ár, og var yndislegt að eiga
æskuárin með ömmu og afa. Það
var nánast alla daga sem við systkin-
in fórum upp til ömmu í kakó og
ristað brauð, og álitum við ömmu
vera snilling í kakógerð þótt henni
tækist ekki alveg eins vel til með
ristaða brauðið, því það átti til að
brenna við í gömlu brauðristinni, og
hljóðið sem myndaðist þegar þurfti
að skrapa það brennda af var okkur
afar minnisstætt.
Amma vann lengi á Grensásdeild
Borgarspítalans og má segja að við
systkinin höfum verið tíðir gestir þar
á bæ um tíma. Á Grensás kynnt-
umst við mörgu yndislegu fólki, jafnt
starfsfólki sem sjúklingum. Það er
okkur afar minnisstætt þegar við
fórum í ferðalag með Grensásdeild
austur að Skógum. í förinni voru
með starfsfólk og sjúklingar og áttu
allir mjög góðar stundir saman.
Einnig fórum við ósjaldan í göngu-
ferðir í Öskjuhlíðina.
Sauma og pijónaskapur ömmu
var til mikillar fyrirmyndar og má
segja að hún hafí haldið okkur frá
kvefi og lungnabólgu með því að
pijóna heimsins bestu gammósíur.
I dag kveðjum við systkinin elsku-
lega ömmu okkar með söknuði og
biðjum góðan Guð um að styrkja afa
okkar og aðra í fjölskylduni í þess-
ari miklu sorg.
Óttar, Ómar og Bergþóra.
Nú ert þú á leiðinni á einhvern
annan stað sem við þekkjum ekki.
Okkur langar til að rifja upp með
þér það sem þú gerðir, við gerðum
með þér, þú sagðir við okkur og við
munum svo vel eftir. Það er gott
að geta geymt allar þessar góðu
minningar um þig af því að þá getur
m^ður stundum látið sér finnast eins
og þú sért ennþá hjá okkur. Við