Morgunblaðið - 18.03.1994, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
Fyrirsæturnar
fylltu vel
út í baðfötin
BAÐFÖT
Bandaríska íþróttatímaritið Sports Illustrated hefur
jafnan tileinkað eitt tölublað á ári baðfatatísk-
unni og fengið ýmsar af þekktustu fyrirsætum hins
vestræna heims til að smeygja sér í bíkínifötin. Þetta
hefur verið gríðarlega kroppasýning og blaðið runnið
út eins og heitar lummur. Batfatablaðið kom út nýver-
ið og á fremstu síðunni er myndin sem fýlgir þessum
línum. Eru þar á ferðinni þijár af frægustu fyrirsæt-
unum í afskaplega efnislitlum baðfötum. Þetta eru
þær Kathy Ireland og Rachel Hunter sem eru fremst
; ,pg Elle McPherson aftar. Ekki verður um deilt að
þetta er íturvaxið tríó, enda nefnt „The Dream Team“
að hætti Bandaríkjamanna og þá væntanlega sem
kvenlegt mótvægi við hið sigursæla körfuknattleiks-
landslið USA sem nefnt var sama nafni. Hitt er svo
annað mál, að finnist einhveijum að tvær þær fremstu
á myndinni séu þéttvaxnari heldur þeir hugðu, þá
er það hárrrétt. Þær Ireland og Hunter bera nefni-
lega börn undir belti þó það orðatiltæki eigi ekki við
myndina.
Þarna var brotið blað hjá tímaritinu, sem til þessa
hefur ekki gert út á aukakíló á fyrirsætum sínum.
Þvert á móti. Ireland var komin þijá mánuði á leið
, er myndin var tekin, Hunter gott betur, komin fjóra
mánuði á leið. Tim Wizz, sá er stýrði myndatökum
fyrir baðfatablaðið, sagði umstangið í kring um mynd
Þær fylltu vel út í baðfötin, sérstaklega tvær þær
fremstu ...
þessa hafa verið það mesta, erfiðasta og jafnframt
skemmtilegasta sem hann hefði lent í í tengslum við
baðfatablaðið í gegn um tíðina. Erfítt vegna þess að
vegna þess hve bijóst og magar stúlknanna voru
tekin að stækka, þá voru batfötin sem átti að mynda
ekki til í nema of litlum stærðum. Varð að notast
við það og útkoman er sem hér sést.
2*
Kynningardagur
r Stýrimannaskólans
í Reykjavík
laugardaginn 19. ntars 1994
Sfy&W**0?
vjóuM e**
Stýrimannaskólinn í Reykjavík heldur
kynningardag laugardaginn 19. mars nk.
Skólinn verður öllum opinn frá kl. 13.30-17.30.
Nemendur og kennarar kynna starfsemi skól-
ans, siglinga-, fiskileitar- og fjarskipatæki og
siglinga- og fiskveiðisamlíki Stýrimannaskólans.
Auk þess kynna fjölmargar stofnanir sjómanna
og fyrirtæki í þágu sjávarútvegs og siglinga
starfsemi sína og þjónustu.
Sýnd verða öryggis- og björgunartæki
Kvenfélagið Hrönn verður með kaffiveitingar,
góðar kökur og tertur!
Verið velkomin!
Stýrimannaskólinn
í Reykjavík
J
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Þorsteinn Hallgrímsson, íþróttamaður ársins í Eyjum.
VESTMANNAEYJAR
Þorsteinn íþrótta-
maður ársins
orsteinn Hallgrímsson, ís-
landsmeistari í golfi, var
kjörinn íþróttamaður ársins á
ársþingi IBV sem fram fór fyrir
skömmu. Þá voru á þinginu veitt-
ir styrkir úr afreksmannasjóði
Vestmannaeyjabæjar og hlutu
nokkur íþróttafélög og deildir
styrki auk tveggja einstaklinga.
Valnefnd ÍBV velur íþrótta-
mann ársins ár hvert á þingi
bandalagsins. Þorsteinn varð nú
fyrir valinu annað árið í röð en
hann varð á árinu Islandsmeist-
ari í golfi. Þá heiðraði valnefndin
fijálsíþróttakonuna Ámý Heið-
arsdóttur sérstaklega, en Árný
keppir í flokki öldunga og hefur
þar unnið fjölda móta, sett nokk-
ur íslandsmet og nýjasta afrek
hennar er Evrópumet í þrístökki.
Á þinginu var einnig úthlutað
úr afreksmannasjóði Vest-
mannaeyjabæjar. Sigurður Ein-
arsson, formaður tómstundaráðs
bæjarins, afhenti styrkina sem
skiptust k nokkrar deildir og fé-
lög innan ÍBV, en upphæð styrkj-
anna fer eftir ákveðnu stigakerfi
sem unnið er eftir. Þá var tveim-
ur einstaklingum veittur sérstak-
ur styrkur vegna góðs árangurs
á árinu, en það voru Þorsteinn
Hallgrímsson golfari og Eðvarð
Matthíasson snókerleikari.
BRETAPRINS
Pólóferillinn á enda
Karl Bretaprins hefur að
læknisráði ákveðið að leggja
pólókylfuna á hilluna. Hann hefur
um árabil verið snjall pólókappi
og leikið um 30 leiki á ári með
liði sínu. Hér eftir mun hann að-
eins koma fram á stöku góðgerð-
arleik. Söknuður Karls er sagður
mikill, því póló hefur alltaf verið
eftirlætisíþróttagrein hans.
Karl handleggsbrotnaði illa í
pólóleik fyrir fáum árum og var í
stökustu vandræðum að fá fullan
bata. Gekk það þó loks að mestu,
en þó kennir hann enn til í hand-
leggnum. Hann hefur einnig þurft
að kljást við þrálát bakmeiðsli og
nú hefur læknir hins 45 ára gamla
ríkisarfa Bretlands loks tekið af
skarið og hvatt hann til að láta
af iðju sinni. Þessi ákvörðun Karls
er sögð gleðja Elísabetu drottn-
DRÁTTARBEISLI
Bílavörubúðin
FJÖDRIN
Skeifunnu 2 - Sími 812944
ingu ósegjanlega, því hún hefur
verið óþreytandi við að suða í
Karli að hætta þeim háskalega
leik sem hún telur póló vera.
Karl Bretaprins,