Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 42
42
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Eitthvað getur valdið þér
gremju árdegis, en þegar á
daginn líður tekur þú gleði
þína á ný og skemmtir þér
konunglega.
Naut
(20. apríl - 20. maí) I
Erfiðleikar geta komið upp í
vináttusambandi vegna pen-
inga. En ástarsamband
styrkist og þú átt ánægjuiegt
kvöld.
Tvíburar
(21. ma! - 20. júní) 4»
Það gengur á ýmsu í vinn-
unni. I fyrstu miðar þér hægt
áfram, en síðar gengur þér
allt í haginn og árangur verð-
ur góður.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí) Híg
Þú ert eitthvað miður þín
fyrri hluta dags, en það lag-
ast fljótt og þín bíður
ánægjulegt kvöld í hópi góðra
vina.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Einhver sem þú hefur áður
rétt hjálparhönd leitar að-
stoðar þinnar á ný. Sumir eru
boðnir í samkvæmi í kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Vinur stendur ekki undir
þeim kröfum sem til hans eru
gerðar. Þér gengur vel að
leysa samstarfsverkefni í
vinnunni.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú átt góðu gengi að fagna
í viðskiptum, en samstarf við
vinnufélaga getur verið erf-
itt. Kvöldið verður róman-
tískt.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Einhver vandamál geta kom-
ið upp í dag í sambandi við
bamauppeldi. En ástin
blómstrar og þér berst heim-
boð frá vinnufélaga.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú rifjar upp löngu liðinn
atburð í dag. Einhver ágrein-
ingur kemur upp heima ár-
degis en úr honum greiðist
fljótlega.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Láttu ekki tafir í vinnunni á
þig fá í dag. Þú kemst í gott
samband við mikilvæga aðila
sem reynast þér vel í við-
skiptum.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þér gæti staðið til boða kaup-
hækkun, nýtt starf, stöðu-
hækkun eða sérlega hagstæð
viðskipti í dag og kvöldið lof-
ar góðu.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) 'LZD
Þú eignast nýtt áhugamál í
dag. Hafðu stjórn á skapi
þínu árdegis og njóttu
kvöldsins í faðmi fjölskyld-
unnar.
Stjörnusþána á aó lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast• ekki á traustum grunni
vísindalegra stadreynda.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
DÝRAGLENS
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
TOTA,þö H&TURN H^oRT' JTT
HAt=A VERJÞ é<5 VAg!, 1
/MBÐ /UA/ZTBÖOy
LJÓSKA
sbbðu Adée Fyesn segbo,
Hvoerþíe uz-Jm£cz pjesr
Aot hök> s Huoer t>ú
Xjyas/mÐ/e HdM
S£GE>u/néz jsrAou tu- -
pyerr//n5fi77 tö/ujm mat.
kée LtkflÐtfA/eHLé 06
HÖLPU/H suo’
)AFteAM
J. 3-4 w v:
FERDINAND
SMÁFÓLK
Færðu aldrei blek á fingnrna, þegar þú skrifar svona? Hvað?
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Á síðasta ári var f fyrsta sinn spil-
að í forgefin spil í undanúrslitum
Isiandsmótsins í sveitakeppni,
þ.e.a.s. sömu spil í öllum leikjum. I
undankeppninni nú var svo stigið
rökrétt skref í framhaldi af þessari
nýbreytni, nefnilega að skrásetja nið-
urstöðu úr hveiju spili í öllum leikjum
og reikna út árangur einstakra para
í svokallaðri „fjölsveit". Allir kepp-
endur íslandsmótsins — sem voru á
þriðja hundrað — munu á næstu
dögum fá þessi gögn afhent, en þar
er um að ræða tæplega 50 síðna lesn-
ingu. Siíkt er ómetanlegt fyrir spil-
ara sem taka íþróttina alvarlega og
vilja rannsaka eigin spilamennsku í
samvinnu við makker. Margt athygl-
isvert kemur í ljós þegar útkoman
úr einstökum spilum er skoðuð yfir
heildina. Til dæmis komst aðeins eitt
par af 40 inn í sagnir á NS-hendum-
ar hér að neðan, en 4 spaðar er
hreint ekki afleitur samningur í NS-
áttina.
Austur gefur; NS hættu.
Norður
♦ ÁD109
¥ 65
♦ 64
+ Á9832
Vestur
♦ KG
¥ KG9
♦ D108753
♦ KG
Austur
♦ 652
¥ Á1087432
♦ Á2
♦ 6
Suður
♦ 8743
¥D
♦ KG9
♦ D10754
Á 28 borðum fengu AV að spila
4 hjörtu. Þau unnust á 23ur borðum,
en töpuðust á fimm. Vörnin gegn
hjartageiminu verður að vera hnitm-
iðuð: spaði út, tígull til baka á kóng
suðurs, sem síðan verður að skila
laufi. Ekkert annað dugir í fjóra
slagi. Fimm pör í AV spiluðu þijú
grönd, sem unnust auðveldlega með
svörtu spili út frá norðri. Og sjö pör
voru í hjartabút, sem auðvitað vannst
alls staðar. Bigurbjörn Þorgeirsson
og Stefán Stefánsson í sveit Sigur-
björns Haraldssonar frá Norðurlandi
eystra voru þeir einu sem sögðu 4
spaða í NS. Sá samningur byggist á
því að hitta í tígulinn, sem virðist
hafa tekist, því útkoman var 620 í
NS.
En hvemig stendur á þessari lin-
kind í sögnum? Algengasta sagnröð-
in hefur líklega verið þijú hjörtu í
austur og hækkun í íjögur ; vestur.
Vissulega er ekki sjálfgefið að koma
inn á spii norðurs með dobli (sem
ætti að sýna spaðalit), en þar sem
vestur passar þijú hjörtu ætti ekki
að vefjast fyrir norðri að dobla til
úttektar. Eða hvað?
SKAK
Umsjón Margeir
Pétursson
Svartur leikur og mátar í
fimmta leik.
Eins og sjá má hótar hvítur
máti á g7, en svartur gat orðið
fyrri til. Staðan kom upp á Reykja-
víkurskákmótinu í febrúar. Stór-
meistarinn A. Kveinis (2.520)
hafði hvítt en Magnús Örn Úlf-
arsson (2.250) hafði svart og átti
leik. Hann gat mátað í fimmta
leik með glæsilegri hróksfórn: 28.
- Hxc+!!, 29. Kxc2 - Ba4+, 30.
Kbl (Eða 30. Kd2 - Dd4+, 31.
Ke2 - Bxdl mát!) 30. - Db5+,
31. Bb4 - Dxb4+, 32. Kcl - Db2
mát.
Því miður var Magnús í tíma-
hraki og missti af þessari kostu-
legu leið. í miðtaflinu hafði liann
teflt miklu betur en stórmeistarinn
og hafði áður misst af vinnings-
leið eins og sjá mátti hér í skák-
horninu í gær.
Marshraðskákmót Taflfélags
Reykjavíkur fer fram sunnudag-
inn 20.mars kl. 20 í Faxafeni 12.