Morgunblaðið - 18.03.1994, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Örlagahelgi
YS OG ÞYS kl. 5.
Kenneth Branagh og Emma Thompson í gleðileik Shakespeares.
VANRÆKT VOR kl. 5 og 7.
Stórskemmtileg dönsk mynd um endurfundi gamalla skólafélaga.
*** Al. MBL.
*** HH Pressan
Spennumynd með Al Pacino og
Sean Penn. Leikstj. Brian de Palma.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 11.
HASKOLABIO
SÍMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
LISTISCHINDLERS
„Að líkindum hefur aldrei áður verið gerð slík mynd né verður gerð
...Spielberg leiðir okkur miskunnarlaust alla leið... lýsing og
kvikmyndataka eru sömuleiðis meðal bestu þátta myndarinnar sem
hlýtur að teljast sígilt tímamótaverk þegar fram líða stundir...
Niðurstaðan ein veigamesta mynd síðari tíma."
★ ★★★ SÆBJÖRN VALDIMARSSON, MBL.
/ NAFN! FÖÐURINS
135 MÍN.
DANIEL DAY-LÉWI8 EMMA TIIOMPSON PETE POSTLETHWAITE
1N THE NAME 0F THE FATHER
Stórmynd sem ýtir hraustlega við fólki og hefur hlotið mikla aðsókn.
Guilford fjórmenningarnir sátu 15 ár saklaus í fangelsi og breska
réttarkerfið þverskallast enn við að veita þeim uppreisn æru.
SÝND KL. 5, 9 og 11. Bönnuð innan 14 ára.
★★★* A.l. MBL
★★★★ H.H. PRESSAN
★★★★ Ö.M. TÍMINN
★★ÍÉd.K. EINTAK
TILNEFND TIL
12 ÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA MYND |
BESTILEIKSTJÓRI 5
BESTIAÐALLEIKARI *
BESTA HANDRIT /
BESTILEIKARI í AUKAHLUTVERKI
BESTA FRUMSAMDA TONLIST
BESTA KVIKMYNDATAKA
Leikstjóri Steven Spielberg
Stórbrotin saga þýska iðjuhöldsins Oskars Schindler sem bjargaði 1100
gyðingum úr klóm nasista. Fjárhættuspilarinn og kvennaflagarinn
Schindler hugðist græða á hermanginu og nýtti sér ódýrt vinnuafl
gyðinga úr útrýmingarbúðum nasista. Þeir sem komust á lista Schindlers
voru hólpnir, hinna beið dauðinn. Aðalhlutverk Liam Neeson, Ben
Kingsley og Ralph Fiennes.
Bönnuð innan 16 ára. Miðaverð 600 kr.
SÝND KL. 5 OG 9.
Fómarlamb snýr við blaðinu
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
ÖRLAGAHELGI („Dirty
Weekend"). Sýnd í Háskóla-
bíói. Leikstjóri: Michael
Winner. Handrit: Winner og
Helen Zahavi eftir sam-
nefndri sögti hennar. Aðal-
hlutverk: Lia Williams,
David McCallum og Rufus
Sewell.
Breski leikstjórinn Michael
Winner er ekki óvanur því að
fjalla um sjálfskipaða refsi-
vendi á meðal almennra borg-
ara. Fómarlömbin í ofbeldis-
myndum hans - frægust er
Dauðaóskin með Charles Bron-
son - taka Iögin í sínar hendur
og ganga í skrokk á óþokkun-
um í grófum ofbeldisatriðum
sem skilja helst ekkert eftir
fyrir ímyndunaraflið. I mynd-
inni Örlagahelgi, sem sýnd er
í Háskólabíói, er fómarlambið
einhleyp kona og óþokkamir
ýmsar gerðir af kynferðislega
afbrigðilegum karlmönnum.
Myndin virðist eiga að taka á
áþreifanlegu þjóðfélagslegu
vandamáli er snýr að kúgun
kvenna í því karlrembusamfé-
lagi sem lítur aðeins á konur
sem kynverur og helst dræsur,
en í höndum Winners er hún
fíflaleg afsökun fyrir blóðug
ofbeldisatriði, klámfengið óeðli
og klúrt orðbragð. Örlagahelgi
er ógeðfelld mynd.
Sögumaður myndarinnar er
ung kona sem lýsir viðskiptum
sínum við karlmenn sem byija
á því að hún flytur frá London
til Brighton þar sem öfuguggi
í glugga beint á móti íbúðinni
hennar tekur að hringja í hana
með hótanir og klúryrði á vör-
um. Hinn vamarlausi einstakl-
ingur reynir að lýsa þessu fyr-
ir iögreglumanni sem næstum
því nauðgar henni (lögreglu-
menn í Winnermyndum eru
fávitar upp til hópa) og til að
gera eitthvað leitar hún til
persnesks kennimanns í ótil-
greindum fræðum sem kennir
henni að vörn sé besta sóknin.
Sá ágæti leikari Ian Richard-
son leikur kennimanninn og er
ömurlegt að sjá hann í svo
hálfvitalegri rullu.
Og allt í einu er konan orðin
að sálsjúku morðkvendi og
Winner skiptir úr einhverskon-
ar raunsæi í kaldhæðnislegan
ýkjustíl með furðulegri popp-
tónlist, sem undirstrikar fárán-
leikann. Fúll á móti lætur lífíð
á voveiflegan hátt þegar hið
nýskapaða morðkvendi læðist
upp í herbergið hans og lemur
hann í hausinn með hamri,
atriði sem Winner hefur greini-
lega unun af að mynda, og
síðan koll af kolli: Hún fer með
akfeitum og viðbjóðslegum
manni uppá hótelhergbergi og
kæfír hann með plastpoka; hún
ekur hvað eftir annað yfír
tannlækninn sinn (í bæði skipt-
in lætur hún fyrst eftir kyn-
ferðislegum löngunum þeirra)
og hún skýtur þijá ofbeldis-
seggi til bana auk þess sem
hún stútar fjöldamorðingja
staðarins svona sem aukabú-
grein.
Bullukollurinn Winner held-
ur utanum þetta af einstöku
smekkleysi vita hæfileikalauss
kvikmyndagerðarmanns.
Hann er fyrst og fremst að
sækjast eftir einhveiju í ofbeldi
og klámi sem hann heldur að
kitli og fer niður á sérstaklega
lágt plan í þeim tilgangi. Lia
Williams leikur voðakvendið
og gerir hvað hún getur við
fáránlega skrifað hlutverk.
Örlagahelgi er vond mynd í
alla stáðf.
Orar í Arizóna
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Regnboginn:
Arizona Dreams
Leikstjóri Emir
Kusturica. Handrit
David Atkins. Aðalleik-
endur Johnny Depp,
Faye Dunaway, Jerry
Lewis, Lili Taylor, Vinc-
ent Gallo, Paulina
Porizkova. Frakk-
land/Bandaríkin 1993.
Þessi annarlega mynd
hefst á draumum Axels
(Johnny Depp) þar sem
hann dormar á sorphaug-
um New Yorkríkis. Þeir
snúast um þrekraunir inú-
íta á frera norðursins.
Hann er rifinn uppúr þess-
um kuldalegu draumför-
um af Paul (Vincent
Gallo), gömlum vini frá
Arizóna, sem kominn er
að sækja hann þar sem
Axel á að verða svaramað-
ur Leós frænda síns (Jerry
Lewis) þar vestra.
Er þangað kemur vill
Leó frændi að Axel gerist
sölumaður á bílasölu sinni
en Axel kynnnist tveim
snarrugluðum mæðgum,
Elaine (Faye Dunaway),
sem reyndar er stjúpmóðir
Grace (Lili Taylor). Axel
verður ástfanginn af
mömmunni og þykir nú
mun álitlegra að leggjast
með kerlu í flugvélasmíðar
en höndla kádiljákana
hans frænda.
Þetta er hið dularfyllsta
verk og vafamál að hand-
ritshöfundurinn botni upp
né niður í því, hvað þá
aðrir. Hvað svo sem höf-
undar hafa verið að bræða
með sér þá virðist það
ekki ganga upp,
a.m.k.ekki í mínum aug-
um. Draumórar persón-
anna eiga að hnýta þær
og söguna saman og taka
rúman tíma af myndinni.
Það eru norðurhjara-
draumar Axels, leiklistar-
draumar Pauls, tunglreisa
Leós, endurfæðingar-
draumar Grace í skjald-
bökulíki og ekki síst flug-
órar Elaine. Útkoman er
mestan part seigdrepandi
leiðindi þar sem áhorfand-
inn má hanga yfir dæma-
laust óspennandi persón-
um, í hálfan þriðja tíma í
ofanálag. Og ekki er efnið
áhugaverðara. Arizona
Dreams leggur talsvert á
sig að vera fyndin og
framkallar örfáar bro-
sviprur þegar best lætur.
En fyrst og fremst reynir
hún að vera listræn og
'utangarðsleg en þær til-
raunir renna flestar útí
sandinn í Arizóna og klak-
ann í norðri. Leikstjórinn,
serbneski músliminn Emir
Kusturica, á að baki tvær
athyglisverðar myndir;
When Father Was Away
on Business, meinfyndna
gamanmynd um þjóðfé-
lagsástandið í Júgóslavíu
á sjötta áratugnum, og
hina minnisstæðu og
grimmu Times of the
Gypsies, sem fjallar um
kaup og sölu á sígauna-
börnum í Mið-Evrópu sam-
tímans og sýnd var á kvik-
myndahátíð fyrir örfáum
árum. Hér er Kusturica á
bandarískri grund og nær
ekki áttum og kemst ekki
með tærnar þar sem evr-
ópskir leikstjórar á svip-
uðu róli, eínsog Wenders,
Aki Kaurismaki og Pat
O’Connor, hafa hælana.
Arizona Dreams er hæg-
gengt og innantómt
freakshow þar sem flest
fer forgörðum annað en
frammistaða ágætra leik-
ara. Það er mesta furða
hvað Depp, Lewis, Gallo
og ekki síst Dunaway
tekst að gera úr sínum
absúrd-hlutverkum. En
það er Lili Taylor sem stel-
ur þessu furðuverki í hlut-
verki slagverksþenjandi
ruglukollu sem má horfa
á kerlingu móðir sína hafa
betur í baráttunni um hjá-
svæfurnar.
Aðsóknarmet í Kolaportinu
TALIÐ er að aðsóknarmet
hafi verið slegið á vöru-
sýningu í Kolaportinu um
síðustu helgi en áætlað er
að 32.000 gestir hafa kom-
ið á stórsýninguna Tölvur
& tækni ’94.
Á sýnihgunni 'kynntu 36
fyrirtæki nýjungar í tölvum,
hugbúnaði og margvísleg-
um tæknibúnaði og voru
forráðamenn þessara fyrir-
tækja almennt mjög ánægð-
ir með árangur.
Þetta verður að öllum lík-
ihdum síðasta vörusýning
Kolaportsins á gamla staðn-
um því reiknað er með að
Kolaportið verði flutt á jarð-
hæð tollhússins við Geirs-
götu áður en sú næsta verð-
ur á dagskrá seinni hluta
maímánaðar.