Morgunblaðið - 18.03.1994, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
45s
Beethoven og Mlssy.
Beethoven 2 í Sam-
bíóum og Haskólabíói
SAMBÍÓIN og Háskólabíó hafa byrjað sýningar á myndinni Beethoven
2. Með aðalhlutverk fara Charles Grodin og Bonny Hunt. Leiksljóri
er Rod Daniel og myndin er framleidd af Ivan Reitman.
Samvinna um með-
ferð úrgangsefna
Á SKRIFSTOFU Sorpu í Gufunesi verður föstudaginn 18. mars
undirritað samkomulag sem náðst hefur á milli Sorpu og samtaka
atvinnulífsins, þ.e. Vinnuveitendasamband íslands, Samtaka iðnaðar-
ins og Kaupmannasamtaka íslands.
Uppboð Há-
skólakórs-
ins á not-
uðu o g nýju
HÁSKÓLAKÓRINN heldur upp-
boð í Kolaportinu helgina 19.-20.
mars nk. Uppboðið er haldið til
fjáröflunar fyrir tónleikaferð
sem farin verður til Eystrarsalts-
ríkjanna í vor.
Þar sem margir eiga hluti sem
þeir eru hættir að nota en fínnst
synd að fleygja fannst kórmeðlim-
um þetta kjörin leið til að aðrir
gætu eignast þessa hluti á viðráðan-
legu verði og skemmt sér í leið-
inni. Einnig verða boðnir upp ýmsir
nýir munir sem safnast hafa í fyrir-
tækjum og stofnunum þannig að
fólk ætti að geta gert þama góð
kaup. -
Fleiri hluti vantar á uppboðið
þannig að eigi fólk eitthvað nýtilegt
sem það má missa eða vill losna
við er allt vel þegið frá bókum og
húsbúnaði upp í húsgögn og raf-
magnstæki. Einnig eru seldir stærri
hlutir í umboðssölu og sóttir á stað-
---» » »
Nýársdag-
Newton-fjölskyldan er loks sátt
við veru Sankti Bemard-hundsins
Beethoven á heimilinu þrátt fyrir
ýmis strákapör sem hann tekur upp
á. Það nýjasta hjá Beethoven er að
verða ástfanginn af Sankti Bemard-
tíkinni Missy, en eigandi hennar er
ekki á þeim buxunum að hleypa
Beethoven nálægt tíkinni sinni, svo
Beethoven verður að taka til sinna
ráða til að hann geti verið með Missy.
Þegar Beethoven fer að haga sér
einkennilega verða krakkamir for-
vitnir og elta Beethoven eitt kvöldið
niður í kjallara þar sem Missy var
með fjóra hvolpa í felum, krakkarnir
taka hvolpana og smygla þeim heim
til sín en fljótlega kemst upp um
veru hvolpanna á heimilinu og þurfa
krakkarnir að skila hvolpunum til
eigenda Missy, sem selur þá eigend-
um hundahótels sem hafði Missy í
geymslu. Beethoven er ekki sáttur
við þessi endalok og fer og frelsar
Missy og hvolpana sína.
Markmiðið með samkomulagi
þessu er að leita leiða til að koma
á virkri samvinnu milli Sorpu og
atvinnulífsins um meðferð úrgangs
sem stuðli að: Lækkun kostnaðar
við meðferð úrgangs, auknum
heimtum úrgangs, einkum spilli-
efna, aukinni endurnotkun og end-
urnýtingu úrgangs og aukinni þátt-
töku atvinnulífsins í meðferð úr-
gangs.
Til að ná settum markmiðum
munu samningsaðilar skipa vinnu-
hópa sem skila eiga niðurstöðum
fyrir 1. janúar 1995.
Aðdraganda samkomulags þessa
má rekja til þeirrar umræður sem
var um málefni Sorpu á haustmán-
uðum og þeirrar gagnrýni sem sam-
tök atvinnulífsins héldu þá uppi á
starfsemi byggðasamlagsins, eink-
um gjaldskrárbreytingar.
Stjóm Sorpu hafði framkvæði
að því að stofna til samráðshóps
stjómar Sorpu, samtaka atvinnu-
lífsins og Neytendasamtakanna á
grundvelli þeirrar umræðu sem þar
hefur farið fram var ákveðið að
ganga til þess samkomulags sem
nú liggur fyrir.
----..♦...
Samkoma í
Aðvent-
kirkjunni
Á SAMKIRKJULEGU bænavik-
unni, sem nú stendur yfir, verður
samkoma í Aðventkirlqunni i
kvöld, föstudagskvöld, kl. 20.30.
Ræðumaður kvöldsins verður sr.
Jakob Rolland, biskupsritari kaþ-
ólsku kirkjunnar á íslandi. Fulltrúar
frá hinum ýmsu söfnuðum lesa ritn-
ingarorð. Miriam Óskarsdóttir frá
Hjálpræðishernum syngur einsöng.
Einnig syngur Kór Aðventkirkjunn-
ar undir stjórn Krystynu Cortez.
Allir era velkomnir.
ur í mars
TÆPLEGA 400 íslendingar
halda upp á nýársdag á voijafn-
dægri, 21. mars. Þetta eru Bahá-
’íar, en tímatal þeirra hófst um
miðbik síðustu aldar.
Þá kunngerði Báb, 24 ára gam-
all maður frá borginni Shíraz í ír-
an, að í hönd færi nýtt tímabil,
þegar menn myndu skilja að öll
trúarbrögð heims væra greinar á
einum og sama stofni og allar þjóð-
ir hluti einnar fjölskyldu mannsins.
Báb var fyrirrennari Bahá’uTláh,
höfundar Bahá’í-trúarinnar. Kenn-
ingar Bábs og Bahá’u’lláh vöktu
gífurlegt umrót í íran. Báb var líf-
látinn árið 1850, Bahá’u’lláh var í
fangelsi og útlegð í 40 ár og tugir
þúsunda Bahá’ía hafa verið teknir
af lifí fyrir trú sína í íran allt fram
á þennan dag. Bahá’í-tímatalið
hófst árið 1844 og það er því árið
151, sem er að hefjast núna.
-----» ♦ ♦----
Árshátíð FÍ
um helgina
HALDIN verður árshátið Ferða-
félags íslands og Homstranda-
fara á Hótel Selfossi laugardag-
inn 19. mars.
Rúta fer frá Mörkinni 6 kl. 18
og er kvöldverðarhlaðborð og for-
drykkur innifalið í miðaverði. Horn-
strandafarar sjá um skemmtiatriði.
Jóhannes Kristjánsson kynnir per-
sónur með sínum hætti.
V
$
1954 var veitingarekstur hafinn í Naustinu.
í tilefni 40 ára afmælisins bjóðum við þríréttaða
máltíð fyrir aðeins 1954 kr.
eFrtr'r'é/tit'
Rækjukokkteill með ristuðu brauði og smjöri
Þrjár tegundir af síld með brauði og smjöri
Gratineruð frönsk lauksúpa
K/tífatíéttv*
Steikt skarkolaflök „Bangkok"
með rækjum, ananas, hrísgrjónum og karrísósu
Djúpsteiktur körfúkjúklingur Naustsins
með hrásalati og frönskum kartöflum
Lambageiri með grilluðum tómati og sveppasósu
^ftítH*éttíf*
Djúpsteiktur camembert með kexi
Perur „Bella Helena"
‘tíet'fl adei/ts (f)S4 ^
Út
fftXV*
Pifandi
h4/‘"'
Veitingahúsið Naust
4 -19 9 4_
B o r ð ap an tan ir i stma 17759
Glæsileg Austfjarðarhátíð
á Hótel íslandi í kvöld.
Húsið opnar fyrir matargesti kl. 19.
Fjölbreytt skemmtiatriði að austan.
VÍSNAVINIR:
Stefán Bragason, Ámi Óðinsson, Guðlaugur Sœbjömsson
flytja gamanmál og söng að hætti austfirðinga.
Ásta Sveinsdóttir, söngkona
Félögin sem standa að hátíð þessari eru:
Átthagasamtök Héraðsbúa, Borgfiröingafélagið, Esktirðingafélagið,
Fáskrúðsfirðingafélagið, Félag austfirskra kvenna, Reyðfirðingafélagið,
Austfirðingafélagið og Vopfirðingafélagið.
Verði er stillt í hóf eða aðeins
3.500 krónur fyrir kvöldverð,
skemmtiatriði og dansleik.
Veislustjóri Helgi Seljan.
Haukur Heiðar Ingólfsson
leikur undir borðhaldi.
Austfirska hljómsveitin
BERGMÁL leikur fyrir dansi
til kl. 03.00
Verð aðeins kr. 3.500,-
Sértílboð á gistingu, sími 688999
Matseðill
Jtjómalöguó sjávarréttasúþa
Nautalundir meó rjómasósu, baiaðri
Apþdsínutjómarönd meá mokkasósu.
tlÖl'EL IAUjAND
Miða- og borðapantanir í síma (91) 687111 alla virka daga frá kl. 13-17.
VAGfiHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI 685090
Gömlu og nýju dansarnir í kvöld
frá kl. 22-3
Hljómsveitin Túnis leikur
Miðaverð kr. 800.
\ Miða-ogborðapantanirí
símum 685090 og 670051.
DANSBARINN
Grensásvegi 7, símar 33311-688311
Hin eldhressa danshljómsveit
Halli Olgeirs, Svenni Guðjóns, Palli Páls, Einar Bragi og Þórður Áma
Gömlu brýnin um helgina
Kvöldverður og miði á dansleik kr. 1.480,-
M0NG0UAN BARBECUE
——---
Þorvaldi
Gunn
ná upp gö
dórsson
vason
emmningu
| Þægilegt umhverfi
- ögrandi vinningar!
OPIÐ FRÁ KLUKKAN 19:00 - 03:00