Morgunblaðið - 18.03.1994, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
49'
Þú, öku-
maður!
Frá Sigurlaugu Halldórsdóttur:
Þú, ökumaður, sem jóst yfir mig
og litlu dóttur mína for og drullu
austan megin á Snorrabrautinni
mánudaginn 14. mars kl. 13.30,
ætlar þú að borga hreinsunina á rú-
skinnsúlpunni minni? Eða ætlar þú
ef til vill að kaupa handa mér nýja
þegar í ljós kemur að tjörublettimir
nást ekki úr í hreinsun? Því miður
náði ég ekki númerinu á bílnum þín-
um, ég sá reyndar ekki á hvernig
bíl þú varst, því ég blindaðist af
krapadrullunni sem rann úr hári mér
niður á andlitið og í augun. En þú
ókst líka það hratt að þú varst löngu
horfínn fyrir næsta horn þegar ég
áttaði mig á ósköpunum. Krapadrull-
an var í vösunum á úlpunni minni,
hettunni, meira að segja ofan í handt-
öskunni minni. Hví í ósköpunum
ókstu ekki miðað við aðstæður
þennnan dag? Borgin var á kafí í
snjó, alls staðar háir ruðningar með-
fram gangstéttarbrúnum og krapa-
pollar á götunum. Það fór ekki á
milli mála að þama voru á ferð gang-
andi vegfarendur. Getur það verið
að það gleymist stundum í umferðar-
menningu þjóðarinnar að virða rétt
gangandi vegfarenda? Þú virtir alla
vega ekki minn síðasta mánudag!!
SIGURLAUG HALLDÓRSDÓTnR
Rekagranda 3, Reykjavík.
Pennavinir
NÍU ára tékknesk stúlka með
áhuga á skátastarfi og bókalestri:
Veronika Glovanova,
Zamecka 511,
507 81 Lazne Belohrad,
Czech Republic.
ÁTJÁN ára fínnsk stúlka með
áhuga á tónlist, dýrum, börnum,
sundi, ferðalögum og kvikmyndum:
Mirri Simila,
Tehokatu 18,
04400 Jarvenpaa,
Finland.
NÍTJÁN ára fínnsk stúlka með
áhuga á köttum, íþróttum, tónlist
og mikinn íslandsáhuga:
Aila Karkkainen,
Tuohikoivuntie 17 C,
00780 Helsinki,
Finland.
Gagnasafn
Morgnnblaðsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
NÍTJÁN ára norsk stúlka með
áhuga á tungumálum, ferðalögum,
dýrum, tónlist, dansi, karate o.fl..
Vill skrifast á við 18-23 ára pilta
og stúlkur:
Áshild K. Hallanger,
5730 Ulvik,
Norway.
GHANASTÚLKA 25 ára að aldri
með áhuga á ferðalögum, kvik-
myndum, dansi og samræðum við
opinskátt fólk:
Nancy Asmah,
Box 390,
Oguaa,
Centra Region,
Ghana.
LEIÐRÉTTING
Verð á tímaritnm
Prentvillupúkinn braut sér leið inn í
upplýsingatöfiu um verð á erlendum
tímaritum sem birtist á neytendasíð-
um í gær. Verð á tímaritinu Wild
about animals er 152 krónur út úr
búð í Englandi og 375 krónur á ís-
landi, en ekki 288 kr. í Englandi og
570 kr. á íslandi. Réttar upplýsingar
um verð komu fram í texta með töfl-
unni. Jafnframt var uppgefíð rangt
verð í töflu á tímaritinu Game Zone,
sem kostar 271 krónu út úr búð í
Englandi, en ekki 371 krónu. Verð-
munur milli landa í prósentum, sem
gefínn var upp í töflu er réttur mið-
að við rétt verð, en senst vitaskuld
ekki, sé miðað við rangt verð í töflu.
VELVAKANDI
ÞEKKIR EINHVER
FÓLKIÐ
MYND þessi kom með fleiri
myndum úr dánarbúum. Ef ein-
hver þekkir fólkið er hann vinsam-
lega beðinn að hringja í síma
25287.
Kristín Guðmundsdóttir.
GÓÐUR ÞÁTTUR
MIG langar að þakka fyrir góðan
þátt í sjónvarpinu sl. þriðjudags-
kvöld þar sem rætt var um sið-
ferðilega ábyrgð fjölmiðla í um-
fjöllun um persónur. Allir þátttak-
endur stóðu sig með prýði og voru
mjög málefnalegir. Sérstaklega
fannst mér athyglisvert það sem
Jóna Rúna Kvaran sagði um af-
drif barna fólks sem fjallað væri
um í fjölmiðlum. Konurnar tvær,
Jóna Rúna og Bessí Jóhannsdótt-
ir, komu alveg sérstaklega vel
fyrir og þó þessi þáttur hafi ekki
endað í neinu rifrildi eða með lát-
um er örugglega margt í honum
sem á eftir að vekja fólk til um-
hugsunar um þessi efni.
Sigrún Björnsdóttir
STÖNDUM SAMAN
í Velvakanda 16. mars er smá-
grein eftir Fríðu sem ber yfir-
skriftina Eftirsjá í Markúsi. Áuð-
vitað sé ég líka eftir Markúsi
Erni, þeim ágæta borgarstjóra
sem hefur staðið sig með prýði.
En ég mun ekki láta það koma
niður á flokknum. Árni Sigfússon
er indæll maður, mjög duglegur
og gerir margt gott og ég efa
ekki að svo verði áfram. Ég mun
svo sannarlega gefa flokknum
atkvæði mitt og reyna að sópa
atkvæðum með mér því nú er um
að gera að standa saman. Vona
ég að Fríða eigi eftir að skoða hug
sinn.
Sveinbjörg Her-
mannsdóttir,
Hraunbæ 188.
SLÆM ÞJÓNUSTA
FYRIR nokkru pantaði ég pizzu
frá Hlíðapizzu og verð að segja
að þjónustan þar er ekki nógu
góð. Ég beið í u.þ.b. 1 klukku-
stund eftir að fá pizzuna senda
heim og þegar hún loksins kom
vantaði eina áleggstegundina á
hana. Ég hringdi því til að kvarta
undan þessu en mætti eingöngu
dónaskap eiganda staðarins. Eftir
að hafa þrefað við hann nokkum
tíma sættumst við á að ég fengi
aðra pizzu þó ég þyrfti að bíða
eftir henni í 1-1‘/2 klukkustund.
Eigandinn tilkynnti mér einnig
að ef svo mikið sem eitt korn af
nautahakki, en það var áleggið
sem vantaði, væri á pizzunni, þá
fengi ég ekki aðra. Þegar síðari
pizzan kom svo var hún alveg
nákvæmlega eins og sú fyrri. I
bæði skiptin óskaði ég eftir því
að fá senda kvittun með pizzunni
en það var víst ekki hægt.
Óttar Guðlaugsson,
Sléttuvegi 7,
Reykjavík.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Seðlaveski tapaðist
LÍTIÐ bleikt samanbrotið seðla-
veski með skilríkjum tapaðist fyr-
ir tæpum tveimur vikum, líklega
fyrir utan verslunina Síld og físk.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
76940.
Bók óskast
GUÐBJÖRG Runólfsdóttir leitaði
til Velvakanda í leit sinni að bók-
inni Tröll í enskri þýðingu. Hún
er úr íslenskri þjóðsagnaveröld,
gefin út af Erni og Órlygi og
myndir í bókinni em eftir Hauk
Halldórsson myndlistarmann.
Geti einhver séð af þessari bók
er hann vinsamlega beðinn að
hafa samband i síma 98-66761.
Pennaveski og úr fundust
TÖLVUÚR og pennaveski fund-
ust á á bílastæði við Krabba-
meinshúsið, Skógarhlíð 8, fyrir
nokkru. Spurt hafði verið um
þessa muni nokkru áður en þá
voru þeir ekki komnir í leitimar.
Upplýsingar í síma 621414.
Leðurhanski fannst
SVARTUR karlmannsleður-
hanski fannst við strætisvagna-
biðskýli á Hlíðarvegi í Kópavogi
sl. miðvikudagsmorgun. Eigandi
hafí samband í síma 644126;
Lyklakippa fannst
LYKLAKIPPA með þremur LA-
Gear merkjum hangandi á fannst
í Garðabæ sl. sunnudag. Eigandi
hafi samband í síma 656807.
Úr tapaðist
CANDINO-úr með ljósrofa týnd-
ist við Háskólabíó þann 8. mars
si. Finnandi vinsamlega hringi í
síma 18512. Eyvindur.
GÆLUDÝR
Lína er týnd
LINA er 7-8 mánaða smávaxin
læða, svört með lítin hvítan blett
á maganum. Hún hvarf frá heim-
ili sínu í Breiðholti þann 17. febr-
úar sl. Sést hefur til hennar í
Seljahverfi. Ef þið hafið séð hana
vinsamlega hringið í síma 77552
eða 74239.
V 1 K I N G A
Vinningstölur
miövikudaginn:
16. mars 1994
VINNiNGAR FJÖLDi VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
n 6 af 6 3 12.116.000
5 af 6 +bónus 0 1.708.494
5 af 6 4 65.482
Q 4 af 6 187 2.228
m 3 af 6 +bónus 813 220
á fsi.: 2.565.918
fjj Uinningur fór til: Danmerkur (2), Svíþjóðar
LÝSINGAR,
LUKKULÍNA 99 10 00 • TEXTAVARP 451
BIRT MEO FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
VANGO
..þar sem ferðalagið byrjar!
SEQLAGERÐIN
ÆGIR
EYJASLOÐ 7 101 REYKJAVIK S. 91 -621 780
Bakpokar
frá kr. 4.300
Svefnpokar
frá kr. 3.600
QLLn 83 GVd V ÐINM3AH
jr
...við leysum málin!
Við leigjum út samkomutjöld af ótal gerðum og staerðum -allt frá
50 og upp í 5000 fermetra fyrir hverskonar samkomur. Tjaldið sjálf
- eða látið vana starfsmenn aðstoða ykkur við að reisa tjöldin á svip-
stundu hvar á landinu sem er. Þau eru fljótleg I uppsetningu og geta
staðið hvort heldur sem er á grasi, möl eða malbiki.
f—————— IM W ■ ■ ■
Leigjum nú einnig út falleg tréborð og klappstóla,
trégólf og gasofna, Ijós og fánaborgir.
v
PANTIÐ TÍMANLEGA - í SÍMA 625030
g] ELECTROLUX GOODS PROTECTION
m
Metsölublad á hvetjum degi!