Morgunblaðið - 18.03.1994, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN
KNATTSPYRNA
SKIÐI
Reuter
Brunmeistarar heimsbikarsins krýndir
MARC Girardelli frá Lúxemborg og Katja Seizinger frá Þýskalandi fögnuðu
sigri í heimsbikarkeppninni í bruni. Seizinger, ólympíumeistari í bruni, sigraði
í síðasta brunmótinu í Vail í Bandaríkjunum aðfaranótt fimmtudags og tiyggði
sér þar með brunbikarinn. Girardelli, sem fimm sinnum hefur unnið heimsbikar-
inn samanlagt, varð í sjöunda sæti í bruninu í Vail í gær og það nægði honum
til að vinna bruntitilinn.
ÚRSLIT
NBA-úrslit
Leikir aðfaranótt fimmtudags:
Boston — Chicago...............100:101
■Horaee Grant gerði 20 stig og Scottie
Pippen 17, þaraf þriggja stiga körfu þegar
51 sekúnda var eftir og tryggði þar með
sigur Chicago. Boston fékk tækifæri á að
gera út um leikinn en Dee Brown hitti ekki
úr þriggja stiga skoti sínu á lokasekúndun-
um. Brown var stigahæstur í liði heima-
manna með 27 stig, Xavier McDaniel kom
næstur með 18.
Charlotte — Atlanta..............92:79
■Alonzo Mourning gerði 20 stig fyrir
Charlotte sem hélt Atlanta aðeins í 34 stig-
um í fyrri hálfleik.
San Antonio — Portland.........110:102
■Dale Ellis og David Robinson gerðu 27
stig hvor fyrir Spurs, Vinny Del Negro
gerði 16 og átti 12 stoðsendingar og Denn-
is Rodman var með 14 og tók 19 fráköst.
Clifford Robinson var stigahæstur gestanna
með 21 stig og Rod Strickland var með 17.
Indiana — Phoenix...............109:98
■Reggie Miller var í miklu stuði er hann
gerði 34 stig fyrir Pacers og færði liði sínu
ellefsta heimasigurinn í röð. Kevin Johnson
var bestur í liði Phoenix, gerði 23 stig og
átti 8 stoðsendingar, Charles Barkley og
Cedric Ceballos gerðu 20 stig hvor.
Orlando — Dallas................100:98
■Donald Royal gerði sigurkörfuna á síð-
ustu sekúndu leiksins gegn Dallas, sem
hefur tapað níu leikjum í röð. Shaquille
O’Neal var stigahæstur heimamanna með
34 stig og tðk auk þess 21 frákast. Mas-
hbum var bestur hjá Dallas, gerði 34 stig.
L A Lakers — Washington.........129:94
■Nick Van Exel gerði 21 og Elden Camp-
bell 18 stig í leik þar sem allir í byijunar-
liði Lakers gerðu meira en tíu stig. Þetta
var fjórði sigur Lakers í síðustu fimm ieikj-
um. Rex Chapman var stigahæstur í liði
gestanna með 24 og Don MacLean var með
16 stig.
Sacrametno — New Jersey.......132:111
■Mitch Richmond skoraði 25 stig fyrir
heimamenn, en Derrick Coleman 29 fyrir
gestina.
Maradona
snýraftur
Diego Mara-
dona hefur
verið valinn í
landsliðshóp Arg-
entínu sem mætir
Brasilíu í vináttu-
leik í næstu viku.
„Ég get varla beðið
eftir því að leika
aftur með landslið-
inu,“ sagði Mara-
dona, sem var rek-
inn frá félagi sínu
Newell’s Old Boys
í síðasta mánuði
þar sem hann
mætti illa á æfing-
ar. Skömmu síðar
var hann kærður
fyrir að hleypa af
púðurskotum í átt að fréttamönnum
úr loftriffli. í framhaldi að því var
hann settur í farbann.
Maradona, sem er orðinn 33 ára,
æfði með landsliðinu í gær og sagð-
ist tilbúinn að leggja sig fram fyrir
þjóð sína í heimsmeistarakeppninni
í Bandaríkjunum næsta sumar.
Alfio Basile, landsliðsþjálfari, hefur
mikið álit á Maradona og því vill
hann hafa hann í hópnum. „Reynsl-
an er mjög mikilvæg i HM-leikjum,
en skiptir þó ekki öllu máli,“ sagði
Basile. „Til að geta verið leikhæfur
í HM þarf hann að spðila reglu-
lega. Við munum gefa Maradona
góðan tíma til að
komast í leikæf-
ingu, ætlum ekki
að pressa á hann
of fljót. Við viijum
öll sjá hann leika í
úrslitum HM, en
hann þarf meiri
tíma.“
Maradona hefur
ekki leikið knatt-
spyrnu í tvo mán-
uði, en hann er
maðurinn á bak við
sigur Argentínu í
HM 1986 og kom
liðinu í úrslit HM á
Ítalíu árið 1990.
„Ég er ekki í lei-
kæfmgu, en ég get
varla beðið eftir að leika í úrslitum
HM — ég er meira en tilbúinn,"
sagði Maradona „Ég mun heíja
undirbúninginn strax á morgun (í
dag). Það er æðislegt að geta eytt
öllum mínum tíma í að hugsa um
landsliðið."
Maradona kom aftur til Argent-
ínu frá Evrópu í október á síðasta
ári eftir að hafa verið rekinn frá
Sevilla á Spáni. Hann var síðan
rekinn frá Newell’s Old Boys í febr-
úar eftir að hafa leikið aðeins sjö
leiki. Hann mætti illa á æfingar og
það sættu forráðamenn félagsins
sig ekki við.
Golfvörur til
fermingargjafa
Góð unglingasett:
(1 tré, 3 járn, pútter og poki)
Howson kr. 10.900
Tom Walker kr. 13.900
Góð byrjendasett:
(2 tré, 5 járn, pútter og poki)
Verðfrákr. 16.300
Góð merki og mikið úrval.
Sendum í póstkröfu um
land allt
Póstverslun fyrir golf
Sími/fax. 98-33363
Karaoke kvenna
Hagsmunafélag knattspymu-
kvenna stendur fyrir hinni árlegu
karaoke-keppni fyrir leikmenn 1.
og 2. deildar kvenna í Ölvefi í
Glæsibæ í kvöld kl. 21.
FOLK
■ PERNILLA Wiberg, ólympíu-
meistari í tvíkeppni frá Svíþjóð,
datt í brunkeppninni í Vail í Banda-
ríkjunum í gær. Hún var á 111
km hraða þegar hún féll og skall
utan í öryggisnet við hlið brautar-
innar. Meiðsli hennar vom sem bet-
ur fer lítilsháttar og þykir það undr-
un sæta miðað við ferðina. Hún
brákaði rifbein og hefur ákveðið að
taka ekki þátt í risasviginu í dag.
Svíar gera sér vonir um að hún
geti verið með í stórsviginu á morg-
un og sviginu á sunnudag, sem er
lokagrein heimsbikarsins á þessu
keppnistímabili.
■ FRÁNZ Heinzer brunkappi frá
Sviss, sem hefur þrívegis unnið
heimsbikartitilinn í bruni, náði að-
eins 14. sæti í bruninu í Vail í
gær, en það var jafnframt síðasta
brunkeppni hans. Heinzer er 31
árs og hefur keppt í heimsbikarnum
í 14 ár.
■ MARC Girardelli er fyrsti
skíðamaðurinn til að vinna bruntitil
heimsbikarsins án þess að vinna
eitt einasta brunmót á tímabilinu.
Girardelli, sem er þrítugur, hefur
einu sinni áður unnið bruntitilinn,
árið 1989.
B REBECCA Brown, 16 ára
stúlka frá Ástralíu, bætti heims-
metið í 200 metra bringusundi um
meira en hálfa sekúndu á móti í
Brisbane í Ástralíu á miðvikudag.
Hún synti á 2.24,76 mín. og bætti
met Anitu Nall frá því í mars 1992
um 0,59 sek. Brown er fyrst ástral-
skra kvenna til að setja heimsmet
.í sundi síðan Tracey Wickham
gerði það í 1.500 metra skriðsundi
árið 1979.
■ BAI Xiuyu frá Kína náði besta
tíma sem náðst hefur í 50 m bak-
sundi í 50 metra laug á heimsbikar-
móti í Malmö í Svíþjóð í gær-
kvöldi. Hún synti á 27,64 sek og
bætti eigið met frá því á móti í
Desenzano á Ítalíu sl. laugardag
um 0,02 sek. Metið er ekki skráð
sem heimsmet, þar sem 50 m bak-
sund telst ekki til helstu keppnis-
greina.
■ ALEXANDER Popov frá
Rússlandi bætti heimsmet sitt í 100
m skriðsundi í stuttri laug, þegar
hann fékk tímann 47,12 sekúndur
á heimsbikarmóti í Desenzano um
síðustu helgi. Þetta var í þriðja sinn
á árinu, sem hann setur heimsmet
í greininni. Hann fór vegalengdina
á 47,83 á heimsbikarmóti í Hong
Kong 1. janúar og síðan á 47,82 í
Peking 5. janúar. Á laugardaginn
var hann í sérflokki, fékk millitím-
ann 22,95 og var meira en tveimur
sekúndum á undan næsta manni.
Morgunblaðið/Einar Falur
John Stark leikur ekki með New York fyrr en í úrslitakeppninni. Liðbönd í
hné hans slitnuðu í leik gegn Atlanta.
Pat Riley er klókur
New York ekki á flæðiskeri statt, þrátt fyrir meiðsli
og hefur leikið geysilega vel. Það er
sagt að Riley hafi aðeins keypt Har-
per fyrir þetta keppnistímabil, til að
Chicago næði ekki i hann. Fyrir utan
þessa tvo sterku leikmenn er Rolando
Blackmann, fyrrum stjömuleikmað-
ur frá Dallas, á bekknum, þannig
að New York er ekki i bakvarðavand-
ræðum.
Scottie Pippen, leikmaður
Chicago, hefur oft öfundað sterkan
varamannabekk New York og á dög-
unum sagði hann: „Sjáið New York
— ef leikmaður í byrjunarliðinu meið-
ist, þá kallar Riley á mjög sterkan
leikmann af bekknum. Okkur vantar
þessa breidd."
Þegar Riley þjálfaði Los Angeles
Lakers og gerði félagið af margföld-
um NBA-meistara, var það sóknar-
leikurinn sem var aðalsmerki liðsins.
Hjá New York ræður geysilega
sterkur vamarleikur ríkjum og hefur
New York leikið sjö leiki í röð án
þess að fá meira en 90 stig á sig.
PAT Riley hefur enn sýnt hvað
snjall og útsjónasamur þjálfari
hann er. Þrátt fyrir að New York
Knicks hefur misst tvo sterka
bakverði í meiðsli, er liðið ekki
á flæðiskeri statt. Félagið missti
Doc Rivers á dögunum, en nú
er búið að skera John Stark upp
vegna meiðsla f hné — liðbönd
slitnuðu f leik gegn Atlanta.
Stark meiddist snemma leiks, fór
af leikvelli, en kom aftur inná.
Fyrst var talið að hann yrði frá í
þrjár vikur, en siðan
Frá kom í ljós að liðbönd
Gunnari voru slitin og var
Valgeirssyni i hann skorinn upp sl.
Bandarikjunum sunnudag. stark
verður frá í sex vikur — byrjar ekki
að leika með New York fyrr en í
úrslitakeppninni í maí.
„Þetta er ekki vandamál fyrir okk-
ur. Við erum með þá Derek Harper
og Hubert Davis," sagði Riley, en
fyrir stuttu lét hann hinn unga, 24
ára, Davis taka stöðu Stark í byrjun-
arliðinu. Harper, sem var keyptur frá
Dallas, tók stöðu Rivers á dögunum
Morgunblaðið/Einar Falur
Pat Riley, þjálfarinn snjalli, gefur
leikmönnum sínum góð ráð.
íslandsmótið í fimleikum
18., 19. og 20. mars
Sjáið besta fimleikafólk landsins
í Laugardalshöll um helgina.
Föstudagur kl. 20.00 - Keppni í skylduæfingum.
Laugardagur kl. 13.30 - Keppni frjálsum æfingum.
Sunnudagur kl. 13.30 - Úrslit á einstökum áhöldum.
Fimleikar - fögur íþrótt.
í kvöld
Fimleikar
íslandsmótið í áhaldafimleikum hefst
í Laugardalshöll kl. 20.
Sund
Innanhússmeistaramótið í sundi verð-
ur sett í Vestmannaeyjum kl. 17.00.
Handknattleikur
1. deild kvenna, úrslitak.
Valsheimili: Valur - Fram.... ....20.30
2. deild karla, úrsiitak.
Strandgata: ÍH - Grótta 20
Körfuknattleikur
1. deild kvenna:
Grindavík: UMFG-KR 20
Hlíðarendi: Valur-ÍR 20
FELAGSLIF