Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
51
i
i
i
i
í
(
I
<
(
I
<
I
(
(
(
<
<
(
GOLF
Sigurjón sló
358 metra!
Sigurjón Arnarsson, landsl-
iðsmaður í golfi, keppti í
sjöunda atvinnumannamótinu í
Orlando í Flórída í gær. Hann
hafnaði í 25. sæti af 144 þátt-
takendum — lék á 218 höggu
(73-72-73), sem er tveimur
höggum yfir pari Southem Du-
nes-golfvallarins.-Mótið vannst
á 207 höggum. Sigutjón upp-
lifði það á þessu móti að ná
lengsta upphafshöggi sínu á
ferlinum er hann sló 392 jarda
eða 368 metra.
KORFUKNATTLEIKUR
Fögnuður á Akranesi
Skagamenn leika í úrslitakeppninni ásamt Suðrunesjaliðinum Keflavík, Njarðvík og Grindavík
Geysileg stemmning var á Akra-
nesi í gærkvöldi, þegar nýliðar
Skagamanna tryggðu sér rétt til að
leika í úrslitakeppni
úrvalsdeildarinnar —
á fyrsta keppnisári
sínu, með því að
leggja Snæfell að
velli 99:77. „Þetta var mikill baráttu-
leikur. Ég get ekki annað en verið
ánægður með mína menn — pressan
Gunnlaugur
Jónsson
skrifar
var mikil á þeim, en þeir stóðust álag-
ið. Við ætlum ekki að leggja árar í
bát við þetta, heldur viljum við
meira,“ sagði ívar Ásgrímsson, þjálf-
ari Skagamanna.
Þegar búið var að kynna leikmenn
Snæfells fyrir leikinn, var slökkt á
ljósunum í íþróttahúsinu — og ljós-
geisla kastað á mitt gólf. Þá hófst
kynning á leikmönnum Skagaliðsins
við geysilegan fögnuð áhorfenda, sem
troðfylltu húsið. Leikmennimir hlupu
inn í geislann þegar nöfn þeirra voru
kölluð upp í hátalarakerfi hússins.
Stemmningin hélt síðan áfram —
bæði á áhorfendapöllum og hjá leik-
mönnum Skagaliðsins, sem tóku leik-
inn fljótlega í sínar hendur — kom-
ust í 15:2 og þá var ekki aftur snú-
ið. Skagamenn komu ákveðnir til
leiks, börðust vel og þá var varn-
arleikur þeirra góður. Steven Grayer
URSLIT
Handknaftleikur
Stjarnan - Haukar 22:14
Ásgarður, l. deild kvenna - úrslitakeppni,
1. leikur, fimmtudaginn 17. mars 1994.
Gangur leiksins: 3:1, 4:2, 6:4, 7:5, 12:5,
15:7, 18:8, 18:10, 20:12, 22:14
Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður Stephen-
sen 6/5, Una Steinsdóttir 3, Herdis Sigur-
bergsdóttir 3, Margrét Vilhjálmsdóttir 3,
Þuríður Hjartardóttir 3/1, Ásta Sölvadóttir
2, Guðný Gunnsteinsdóttir 1, Sigrún Más-
dóttir 1.
Varin skot: Nina Getsko 9, Sóley Halldórs-
dóttir 4.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Hauka: Harpa Melsted 9/4, Kristín
Konráðsdóttir 2, Berglind Hallgrímsdóttir
2, Heiðrún Karlsdóttir 1.
Varin skot: Alma Hallgrímsdóttir 5, Brynja
Guðjónsdóttir 3.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Gisli Jóhannsson og Hafsteinn
Ingibergsson.
KR-ÍBV 18:17
Laugardalshöll:
Mörk KR: Anna Steinsen 4, Sigríður Páls-
dóttir 4, Laufey Kristjánsdóttir 4, Brynja
Steinsen 2, Selma Grétarsdóttir 2, Nellý
Pálsdóttir 1, Guðrún Stvertsen 1.
Utan vallar: 2 minútur.
Mörk ÍBV: Judit Esztergal 5, Andrea Atla-
dóttir 4, Ingibjörg Jónsdóttir 4, Katrín
Harðardóttir 2, Sara Ólafsdóttir 1, Sara
Guðjónsdóttir 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Vigfús Þorsteinsson og Gunn-
laugur Hjálmarsson.
Guðrún R. Kristjánsdóttir.
2. DEILD KARLA
Urslitakeppnin:
FVam - Fjölnir..................23:25
Breiðablik - HK.................17:20
ÍH - Grótta.....................24:21
■HK er með 11 stig, Grótta 8, ÍH 8,
Breiðablik 6, Fram 2, Pjölnir 2.
Körfuknattleikur
Akranes - Snæfell 99:78
íþróttahúsið á Akranesi, Úrvalsdeildin,
fimmtudagur 17. mars 1994.
Gangur leiksins: 4:2, 15:2, 27:12, 32:24,
41:26, 47:32. 53:43, 67:50, 72:59, 77:69,
84:71 99:78.
Stig ÍA: Steven Grayer 33, Einar Einarsson
20, ívar Ásgrímsson 12, Jón Þórir Þórðar-
son 13, Haraldur Leifsson 9 Eggert Garðar-
son 10, Dagur Þórisson 2.
Stig Snæfells: BMdie Collins 20, Kristinn
Einarsson 23, Hreiðar Hreiðarsson 22,
Bárður Eyþórsson 9, Hreinn Þorkelsson 2,
Sverrir Þór Sverrisson 2.
Áhorfendur: Fullt hús (Um 900).
KR-UMFG 69:74
íþróttahúsið Austurbergi:
Gangur leiksins: 2:0, 10:4, 10:10, 15:12,
15:17, 24:19, 24:24, 31:26, 33:30, 34:30,
34:39,“38:43, 47:43, 55:51, 55:57, 62:61,
62:65, 67:67, 69:69, 69:74.
Stig KR: David Grisson 26, Ösvald Knuds-
en 24, Hermann Hauksson 6, Lárus Áma-
son 5, Ólafur Ormsson 5, Tómas Hermanns-
son 2, Hrafn Kristjánsson 1.
Stig UMFG: Nökkvi Már Jónsson 20, Wa-
yne Casey 19, Guðmundur Bragason 18,
Hjörtur Hjartason 11, Marel Guðlaugsson
4, Pétur Guðmundsson 2.
Dómarar: Kristinn Albertsson og Kristján
Möller leyfðu mikið en ekki alltaf.
Áhorfendur: Um 170.
■Enn tókst Grindvíkingum að næla sér inn
mikilvæg stig á síðustu mínútu. Leikurinn
var mjög hraður í upphafi, hraðari en leik-
menn réðu við og mistökin alltof mörg.
Vesturbæingar leiddu yfirleitt en undir lok-
in þegar liðið höfðu misst Hermann Hauks-
son og Ósvald Knudsen útaf með 5 villur
og léku með David Grissom haltrandi tókst
Grindvíkingum að knýja fram sigur.
Stefán Stefánsson
1. DEILD KARLA
Úrslitakeppnin:
ÍR - Breiðablik.................89:86
Þór - Höttur....................91:65
Knattspyrna
DEFA-keppnin
f«ikur í 8-liða úrslitum.
Inter - Dortmund..................1:2
Manicone (80.) — Zorc (88.), Ricken (46.).
33.000.
■inter vann samanlagt 4:3.
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Þorkell
Brynja Steinsen, sem átti mjög góðan leik með KR, sækir að marki Eyjamanna. Ingibjörg Jónsdóttir og Stefanía
Guðjónsdóttir eru til vamar.
KR aflur út í Eyjar
EYJAMENN og KR-ingar verða að leika þriðja leik sinn í úrslita-
keppni 1. deildar kvenna, eftir að KR-stúlkurnar iögðu ÍBV að
velli, 18:17, í Laugardalshöllinni i gærkvöldi í jöfnun og spenn-
andi leik. Aftur á móti vann Stjarnan öruggan sigur, 22:14, á
Haukum í Ásgarði.
Leikur KR og ÍBV var eins og
fyrr segir jafn og spennandi
allan leikinn og skiptust liðin á for-
ystunni. KR-ingar
vom tveimur mörk-
um yfir í hálfleik
8:6, en Eyjastúlkur
jöfnuðu og komust
yfir í byrjun seinni hálfleiks. Undir
lok leiksins náðu KR-ingar tveggja
Guðrún R.
Krístjánsdóttir
skrífar
marka forystu sem Eyjastúlkur
náðu ekki að vinna upp og KR vann
18:17. Vigdís Finnsdóttir, mark-
maður KR, varði vel í leiknum og
Sigríður Pálsdóttir og Brynja Stein-
sen léku einnig vel. Judit Esztergal
og Andrea Atladóttir voru bestar í
liði. ÍBV.
ÍBV vann KR í Eyjum á þriðju-
daginn og verða því liðin að spila
Sigmar Þröstur hefur
varið flest skot
Sigmar Þröstur Óskarsson, landsliðsmarkvörður úr KA, er mark-
vörður ársins í 1. deildarkeppninni. Hann hefur varið 305 skot,
en Bargsveinn Bergsveinsson, landsliðsmarkvörður úr FH, kemur
næstur á blaði með 263 skot — vel á eftir Sigmari Þresti, þegar að-
eins ein umferð er eftir í deildinni.
Magnús Sigmundsson, markvörður ÍR, er í þriðja sæti með 233
skot, þá kemur Hermann Karlsson, Þór, með 220 skot, Guðmundur
Hrafnkelsson, landsliðsmarkvörður úr Val, með 217 og Ingvar Ragnars-
son, Stjömunni, með 212 varin skot
Sigmar Þröstur hefur varið 21 vítakast, Magnús 17, Hermann 15
og Guðmundur og Alexander Revine, KR, eru með 14 varin vítaköst.
þriðja leikinn í Eyjum á laugardag-
inn um hvort liðið kemst áfram í
undanúrslitin í íslandsmótinu og
má búast við hörkuleik þar.
Haukar byijuðu leikinn á því að
taka Ragnheiði Stephensen úr um
ferð og virtist það koma Stjöm-
ustúlkum í opna skjöldu því Hauk-
amir „héngu“ í þeim fyrstu fimmtán
mín. í leiknum. En þá skildu leiðir
og Stjaman sigldi fram úr og staðan
í hálfleik var 12:5. Stjaman komst
svo í 10 marka forystu í seinni hálf-
leik og unnu 22:14. Liðsheildin var
mjög jöfn hjá Stjömunni en Harpa
Melsted var best í liði Hauka.
átti stórleik og skoraði 38 stig. Einar
Einarsson og Jón Þórur Þórðarson
voru einnig góðir, en annars léku
allir leikmenn Skagaliðsins vel. Krist-
inn Einarsson var besti leikmaður
Snæfells.
Skagamenn leika að öllum líkind-
um gegn Grindvíkingum i úrslita-
keppninni, en í hinni viðureigninni
mætast gömlu keppinautamir frá
Keflavík og Njarðvík.
FOLK
KÍNVERSKU hlaupakonurnar
hans Ma Munren þjálfara, sem svo
mjög vora í sviðsljósinu á síðasta
ári, verða með í London-maraþon-
inu 17. apríl. Þar á meðal er Wang
Junxia, sem var kosinn besta
fijálsíþróttakona heims á síðasta
ári. Kínversku stúlkurnar hafa ekki
keppt síðan á HM í Stuttgart í
ágúst í fyrra.
■ JOHANN Olav Koss hefðiekki
sigrað í 1.500 m skautahlaupi á
ÓL í Lillehammer, ef hann hefði
notað sams konar skauta og flestir
aðrir keppendur. Þetta eru niður-
stöður hollenskra sérfræðinga, sem
segja að blöðin á skautum Norð-
mannsins hafi minnkað viðnámið
um 40%, en það hefði ekki haft
áhrif í hinum tveimur sigurgreinum
Koss.
■ ANDRE Ag-assi frá Banda-
ríkjunum gerði sér lítið fyrir og
sigraði Þjóðverjann Boris Becker
6:2 og 7:5 í þriðju umferð á opnu
móti í Flórída á þriðjudag. Ag-
assi, sem er númer 31 á heimslist-
anum, er að stíga upp úr þrálátum
meiðslum og því kom sigur hans
töluvert á óvart. Tap Beckers var
enn verra fyrir þjálfara hans, Nick
Bollettieri, sem hætti að þjálfa
Agassi í júlí sl. og tók við Becker.
■ THOMAS Stuer-Lauridsen
frá Danmörku er efstur á heims-
lista Alþjóða badmintonsam-
bandsins, IBF. Hann er með 715
stig en Ardy B. Wiranata frá
Indónesíu kemur næstur með 660
stig og Jens Olsson frá Svíþjóð í
þriðja sæti með 600 stig. Susi
Susanti frá Indonesíu er efst í
kvennaflokki með 600 stig, Kim
Ji-hyun frá Suður-Kóreu í öðru
með 555 stig og landa hennar,
Bang Soo-hyun, í þriðja með 480
stig.
■ MIGUEL Indurain, hjólreiða-
kappi frá Spáni sem sigraði í Tour
de France í fyrra, verður í sviðs-
ljósinu í næstu viku því þá fer fram
þriggja daga keppni nokkurra
bestu hjólreiðakappa heims.
Keppnin fer fram í suður Frakk-
landi og hefst 25. mars. Meðal
keppenda em: Tony Rominger frá
Sviss, ítalinn Claudio Chi-
appucci, Alex Zuelle frá Sviss,
Frakkinn Charly Mottet og Chris
Boardman frá Bretlandi.
LISTHLAUP
Tonya Harding með
fullar hendur Ijár
Tonya Harding stendur uppi með
fullar hendur fjár, þó að hún
hafi verið dæmd til að greiða 11,5
millj. ísl. kr. í sekt vegna árásina
á keppinaut sinn, Nancy Kerrigan.
Harding sópaði að sér peningum
á meðan Ólympíuleikamir í Lille-
hammer stóðu yfír, en hún gerði
viðtalssamninga við sjónvarpstöðv-
ar í Bandaríkjunum, sem hafa orð
á sér fyrir að vera óvandaðar —
æsifréttastöðvar. Samningamir
gáfu henni 36 millj. ísl. kr., þannig
að hún á eftir háar peningaupphæð-
ir þegar hún hefur borgað sektir
sínar. Harding þénaði því mikið á
því að „frysta" málið fram yfir
Ólympíuleikana.