Morgunblaðið - 29.03.1994, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
B 3
KNATTSPYRNA
Reuter
Deildarbikarinn til Birmingham
DEAN Saunders var einn í framlínu Aston Villa og kom mikið við sögu í úrsiitaleiknum á Wembley, lagði upp eitt mark
og gerði tvö. Hér fagnar hann sigrinum með stjóranum Ron Atkinson.
Aston Villa stöðvaði
United í úrslitunum
Annað
tapAC
Milan
N APÓLÍ kom á óvart og vann
meistara AC Milan 1:0 í ft-
ölsku deildinni ífyrrdag. Þetta
var annað tap sigurstrangleg-
asta liðsins í deildinni í vetur.
Paolo Di Canio gerði eina mark-
ið 10 mínútum fyrir leikslok,
plataði þijá vamarmenn uppúr
skónum og skoraði með glæsilegu
skoti. Hann fagnaði gífurlega og
fór m.a. úr treyjunni, en fékk gula
spjaldið fyrir.
AC Milan átti fyrri hálfleik, en
Giuseppe Taglialatela stóð sig vel
í marki Napólí og varði m.a. glæsi-
lega frá Marco Simone og Gianlu-
igi Lentini, sem lék fyrsta heila
leikinn eftir að hafa verið lengi frá
vegna bílslyss.
I seinni hálfleik gáfu leikmenn
meistaranna eftir og Napólí náði
tökum á miðjunni.
Tórínó átti leikinn gegn Lazio,
en gekk illa upp við mark mótheij-
anna og jafnaði ekki fyrr en undir
lokin. Tvisvar small .boltinn í slá
Lazio eftir skot frá Andrea Silenzi
og hann lét veija vítaspymu frá
sér. Paul Gascoigne var með Lazio,
en náði sér ekki á strik og var
skipt út af í seinni hálfleik.
Marseille
gefur upp
vonina
MARSEILLE gerði 1:1 jafntefli
við Montpellier í frönsku
deildinni um helgina og er sex
stigum á eftir PSG, sem hefur
leikið 26 leiki í röð án taps.
Sjö umferðir eru eftir og gaf
Marseille upp vonina á titlin-
um eftir jafnteflið.
Auxerre er í þriðja sæti 10 stig-
um á eftir PSG og á ekki
möguleika frekar en Marseille.
„Við getum kvatt allar titilvonir,“
sagði Jean-Louis, varaformaður
Marseille. „París er á góðri sigl-
ingu og sex stig er of mikið. Tak-
markið er að halda öðru sætinu
og sigra í bikarkeppninni."
Evrópumeistararnir, sem sigr-
uðu í síðustu fimm heimaleikjum,
áttu í vandræðum með Montpellier
og aðeins frábær inarkvarsla Fabi-
ens Barthez kom í veg fyrir tap,
en 20.000 áhorfendur voru ekki
sáttir við jafnteflið og púuðu á
heimamenn.
BAYERN Múnchen er áfram
efst í þýsku úrvalsdeildinni, en
útlitið var ekki bjart í Hamborg.
Stundarfjórðungi fyrir leikslok
birti samt til, en þá jöfnuðu
gestirnir og gerðu sigurmarkið
áður en mínúta var liðin.
Jörg Albertz skoraði fyrir heima-
menn úr aukaspyrnu á 53. mín-
ASTON Villa er deildarbikar-
meistari í Englandi eftir 3:1 sig-
ur gegn Manchester United á
Wembley í fyrradag að við-
stöddum liðlega 77.000 áhorf-
endum. United sótti stift frá
byrjun, en Villa stóðst álagið,
var marki yfir í hálfleik og bætti
öðru við áður en United náði
að minnka muninn átta mínút-
um fyrir leikslok.
Dalian Atkinson braut ísinn um
miðjan fyrri hálfleik eftir
sendingu frá Dean Saunders.
útu, en Adolfo Valencia frá Kól-
umbíu jafnaði með glæsilegu marki,
lék inn í teiginn og skoraði í hornið
ijær. Stuðningsmenn Bayern voru
enn að fagna, þegar miðjumaðurinn
Michael Sternkopf óð upp völlinn
og skoraði með þrumuskoti úr
þröngu færi.
Leikurinn var góður og skemmtu
58.000 áhorfendur sér vel, en
Saunders bætti síðan tveimur mörk-
um við undir lokin, það seinna úr
vítaspyrnu á síðustu mínútu eftir
að Andrei Kanchelskis, sem lagði
upp mark fyrir Mark Hughes
skömmu áður, hafði varið með
höndum. Kanchelskis fékk að sjá
rauða spjaldið — fjórði brottrekstur-
inn hjá United í síðustu fimm leikj-
um.
Frakkinn Eric Cantona var ekki
eins og hann á að sér og virtist sem
hann væri fyrst og fremst að hugsa
um að bijóta ekki af sér og eiga á
hættu þriðja rauða spjaldið í jafn
heppnin var með gestunum. „Við
þurftum á mikilli heppni að halda
til að sigra og lengi vel leit ekki
út fyrir að það tækist,“ sagði yfír-
þjálfarinn Franz Beckenbauer.
Frankfurt og Stuttgart gerðu
markalaust jafntefli og því er
Frankfurt tveimur stigum á eftir
Bayern, en átta umferðir eru eftir.
mörgum leikjum. Hughes fékk gott
færi snemma í leiknum, en rétt
missti marks og skömmu síðar
skallaði Roy Keane að marki Villa
en Mark Bosnich bjargaði vel. En
Villa náði að koma lagi á varnarleik-
inn og sótti til sigurs.
Þetta var í fjórða sinn, sem Villa
sigrar í úrslitum deildarbikarkeppn-
innar, síðast 1977. Liðið hefur ekki
staðið undir væntingum í vetur, en
stjórinn Ron Atkinson, sem var
áður hjá United, sagði þetta jafnast
á við aðra sigra sína á Wembley.
United var með 16 stiga forystu
fyrir níu vikum, en Blackburn
hefur ekkert gefið eftir. Liðið hefur
aðeins tapað einum af síðustu 16
deildarleikjum og hélt settu marki,
þó Swindon næði forystunni
snemma leiks. Shearer, sem hafði
ekki skorað í síðustu fimm leikjum,
jafnaði tveimur mínútum síðar og
innsiglaði sigurinn úr umdeildri
vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok,
30. mark hans á tímabilinu.
Arsenal skaust í þriðja sætið með
1:0 sigri gegn Liverpool og hefur
Arsenal leikið 13 deildarleiki í röð
án taps. Paul Merson gerði íjórða
mark sitt í fjórum leikjum og Roy
Evans, stjóri Liverpool, hrósaði
mótheijunum. „Liðið hefur sýnt að
það er verðugur fulltrúi landsins í
Evrópukeppni bikarhafa og ég vona
að það haldi þar áfram á sömu
braut. Fólk talar um leiðinlega Ars-
enal, en það er kominn tími til að
hætta því. Liðið verst vel og sóknar-
leikurinn er eins góður og lijá öðr-
um. George Graham hefur gert
Óbreytt
staða
efstu
liðaá
Spáni
DEPORTIVO er áfram með
tveggja stiga forystu í spænsku
deildinni, en liðið vann Bilbao
4:1 Barcelona átti í erfiðleikum
með Tenerife í spænsku deild-
inni og Real Madrid þurfti einn-
ig að hafa mikið fyrir sigri gegn
Valencia.
Bebeto frá Brasilíu lét ökla-
meiðsl ekki á sig fá og gerði
tvö mörk fyrir Deportivo, en fór
útaf 20 mínútum fyrir leikslok.
Jose Soler tryggði Atletico
Madrid fyrsta útisigurinn, þegar
hann skoraði gegn Osasuna. Þetta
var 1.800. deildarleikur Atletico og
fyrsta mark Solers fyrir félagið, en
það skaut Osasuna í neðsta sætið.
Meho Kodro frá Bosníu skoraði
úr vítaspyrnu fyrir Real Sociedad
gegn Ray Vallecano og er þar með
kominn með 21 mark, sem er met
hjá félaginu. Það varð samt að
sætta sig við jafntefli, því Antonio
Calderon jafnaði fyrir gestina um
miðjan seinni hálfleik.
Romario tryggði meisturum
Barcelona sigur með marki um
miðjan seinni hálfleik. Tenerife átti
fyrri hálfleik, en Ronald Koeman
skoraði fyrir heimamenn á 11. mín-
útu. Argentínumaðurinn Oscar
Dertycia jafnaði í byijun seinni
hálfleiks og gestirnir voru óheppnir
að ná ekki að jafna aftur undir lok-
in, en þá fengu þeir tvö góð mark-
tækifæri.
Real Madrid átti leikinn gegn.
Valencia, en andaði ekki léttar fyrr
en íjórum mínútum fyrir leikslok,
þegar Butragueno gerði sigurmark-
ið.
góða hluti og á hrós skilið."
Tottenliam fagnaði fyrsta sigrin-
um í síðustu 11 deildarleikjum, vann
Everton 1:0 og er fimm stigum frá
hættusvæðinu á botninum. Þetta
var fyrsti sigur liðsins síðan 28.
desember. Anders Limpar fékk gott
tækifæri til að jafna á síðustu mín-
útu, en Ian Walker sá við honum.
„Þegar ég gekk af velli sagði pabbi
„vel gert“ en ég hef áhyggjur af
því hvað mamma segir,“ sagði
markvörðurinn og sonur Mikes
Walkers, stjóra Everton. „Þetta var
góð markvarsla hjá mér og ég var
ánægður með að leggja mitt af
mörkum í sigrinum. Onnur úrslit
voru okkur hagstæð og sjálfstraust
okkar er mikið,“ bætti hann við.
Limpar, sem lék fyrsta leik sinn
með Everton og var útnefndur besti
maður leiksins, sagði að Everton
félli ekki og Mike Walker tók í sama
streng. „Við verðum að vera
ákveðnari til að losna við fallbar-
áttu, en við fömm ekki niður."
Reuter
GUIDO Buchwald hjá Stuttgart hefur betur í baráttu við Anthony Yeboah
hjá Frankfurt í leik liðanna á laugardag, en þau gerðu markalaust jafntefli.
Bayem með tvö mörk
á innan við mínútu
Blackburn nálg
ALAN Shearer gerði tvö mörk, þegar Blackburn vann botnlið
Swindon 3:1 í ensku úrvalsdeildinni á laugardag. Þar með er lið-
ið aðeins þremur stigum á eftir Manchester United og jafnar
metin með sigri gegn Wimbledon í kvöld, en toppliðin mætast
um næstu helgi.