Morgunblaðið - 29.03.1994, Qupperneq 5
B 5
h
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
vádandi
Morgunblaðið/Bj ami
gana Guðmund Bragason og Nökkva Má Jóns-
i á Skaganum á sunnudaginn og Grindvíkingar
Grayer óstödvandi
Skagamenn einráðiríframlengingunni. Grayergerði þá öll stig ÍA
SKAGAMENN með Steve Grayer í broddi fylkingar sigruðu Grind-
víkinga í öðrum undanúrslitateik liðanna í úrvalsdeildinni á sunnu-
daginn. Úrslit leiksins urðu 90:80 eftir framlengingu en staðan var
77:77 eftir venjulegan leiktíma. Skagamenn voru miklu sterkari í
framlengingunni og því þurfa liðin að mætast þriðja sinni, í Grinda-
vík á morgun.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
Það er óhætt að segja að Banda-
rikjamaðurin í liði Skagamanna
hafi farið á kostum. Steve Grayer
gerði 40 stig auk þess
sem hann tók 10
vamarfráköst og 11
sóknarfráköst. Grind-
víkingar áttu einfald-
lega ekkert svar við stórleik hans og
urðu að játa sig sigraða. En það var
fleira sem kom til; það er ekki nóg
að einn maður leiki vel. ívar Ásgríms-
son átti einnig mjög góðan leik og
hann var mjög ákveðinn og grimmur
á lokamínútunum þegar IA náði að
jafna og tryggja framlengingu.
Eins og í fyrri leikjum undanúrslit-
anna var mikill hraði í upphafi. Leik-
menn hittu vel enda var varnarleikur-
inn ekki til að hrópa húrra fyrir, en
hann átti eftir að lagast. Einar Ein-
arsson og Haraldur Leifsson léku
raunar einstaklega góða vörn. Þeir
skiptust á að gæta Wayne Casey
með þeim árangri að hann gerði „að-
eins“ 19 stig, en hann var með 24,4
stig að meðaltali í vetur.
Grindvíkingar reyndu einu sinni
pressuvörn sem mistókst herfilega.
Haraldur skilinn einn eftir og tróð
með tilþrifum. Þetta ýtti undir
heimamenn sem komust í 39:32 þeg-
ar skammt var til leikhlés en með
mikilli baráttu tókst Grindvíkingum
að komast yfir fyrir hlé. Skagamenn
komu boltanum ekki inní teiginn til
Grayer og langskotin misfórust.
Grindvíkingar náðu undirtökunum
smátt og smátt í síðari hálfleik og
var þróunin svipuð og í fyrri leik lið-
anna. En Skagamenn gættu sín á að
missa þá ekki eins langt framúr að
þessu sinni og varð munurinn mestur
9 stig, 59:68, þegar átta mínútur
voru eftir. Þá tóku heimamenn sig
til, léku gríðarlega sterka vöm og
gerðu sex stig í röð og vora allt í
einu komnir inní leikinn á ný. Þegar
5 mín. vora eftir og staðan 69:75
vora fjórir leikmenn IA komnir með
fjórar villur. Þar á meðal vora ívar
og Grayer.
Úrslitakeppnin
í körfwknattleik 1994
Annar leikurliðanm í undanúrslitum
úrvalsdeildaritmar. Leikið á Akranesi.
90 ÚRSLIT 80
20/27 Viti 24/31
4/19 3ja etiga 5/27
41 Fráköst 41
22 (vamar) 20
19 (sóknar) 21
5 Boltanáð 4
10 Bolta tapað 14
7 Stoðsendingar 5
26 Vlllur 23
Síðasta mínútan var lengi að líða.
Staðan var jöfn, 77:77, og UMFG
Altt Skagaliðið
lék stórkostlega
Þetta var mjög erfíður leikur.
Grindvíkingar eru með gott lið
og leika vel bæði heima og á úti-
velli. Ég er ánægður með minn leik
og sérstaklega fráköstin því liðið
hefur þörf fyrir að ég taki fráköst.
Ég hef ekki svo miklar áhyggjur
af því hvað ég skora mikið, fráköst-
in eru það sem liðið þarfnast mest
af mér, enda erum við með frekar
lágvaxið lið,“ sagði Steve Grayer
eftir sigurinn gegn Grindavík.
„Það var gaman að fást við varn-
armenn Grindvíkinga. Ég held að
baráttan um að ná fráköstunum
ráðist mikið á því hver hefur meiri
vilja til þess hveiju sinni. Ég hafði
svo sannarlega viljan til þess núna,“
sagði Grayer alsæll.
ívar Ásgrímsson þjálfari ÍA var
ánægður. „Við misstum þá ekki
eins langt frá okkur núna og í fyrri
leiknum. Þegar þeir skiptu yfír í
svæðisvörnina byijuðum við að
bijótast meira inní teiginn og ég
held að það hafi gengið ágætlega.
Þegar við keyrum inní vörnina losn-
ar aðeins um Grayer og þegar hann
fær boltann eru það örugg stig og
ætti að vera villa líka því það er
alltaf brotið á honum.
Mér fanst við vera of staðir í
sókinni framan af leiknum en síðan
lagaðist það og Steve átti frábæran
leik. Annars leikur hann ekki vel
nema við leikum vel og allt Skaga-
liðið lék stórkostlega. Okkur tókst
að stöðva Casey og það var mikil-
vægt. Við sigrum á miðvikudag-
inn,“ sagði ívar.
„Við töpuðum orustunni en stríð-
inu lýkur á miðvikudaginn með sigri
okkar,“ sagði Guðmundur Braga-
son þjálfari og leikmaður UMFG
eftir tapið á Akranesi. „Við verðum
að koma í veg fyrir að þeir taki
svona mörg sóknarfráköst og þá
aðallega Grayer. Hann skoraði mik-
ið og mest eftir að hafa tekið frá-
köst. Við náðum eiginlega aldrei
að komast alveg í takt við leikinn,
kanski var það vanmat eftir sigur-
inn heima, en ég lofa þér þvi að
við vanmetum þá ekki á miðviku-
daginn,“ sagði Guðmundur.
k leika þriðja undanúrslitaleikinn í kvöld eftir að UMFN jafnaði metin á laugardaginn
sar og talsverð harka þegar
kingar sigruðu Keflvíkinga
með bónusrétt eftir tíu mínútur.
Hraðinn í sóknarleiknum var einn-
ig mikill; fullmikill fyrir bæði lið því
það var alveg á mörkunum að þau
réðu við hraðann. Þar sem Njarðvík-
ingar léku mjög grimma vörn hljóp
nokkur harka í leikinn strax í upp-
hafi og það má þakka frábærum
dómurum leiksins að ekki fór allt í
vitleysu.
Síðari hálfleikur byijaði eins og
sá fyrri, með geysilegum hraða sem
menn réðu ekki við. Það kom fyrir
að leikmenn voru að skjóta langskot-
um úr hraðaupphlaupum þegar sam-
heijarnir voru allir víðsfjarri.
Eftir mikið fum og fát í sókninni
var staðan orðin 72:63 þegar átta
mínútur voru eftir og Brown kominn
með fjórar villur. Keflvíkingar gerðu
tíu stig gegn einu og jöfnuðu en
Rúnar var ekki á því að láta þá kom-
ast upp með neitt múður.
Lokasekúndurnar voru spennandi
og lengi að líða. Þegar 20 sekúndur
voru eftir skoraði Kristinn þriggja
stiga körfu langt utan af velli. Stað-
an 82:81. ÍBK braut á ísak er 18,9
sekúndur voru eftir. ísak hafði ekki
gert stig í leiknum og hann hitti
ekki úr bónusskotinu. ÍBK náði bolt-
anum en réttilega voru dæmd skref
á Kristinn. Þegar 11,1 sekúnda lifði
af leiknum tókst ÍBK að brjóta aftur
á ísak. Spennan var gríðarleg en
lsak lét það ekki á sig fá heldur
skoraði úr báðum bónusskotunum.
ÍBK reyndi þriggja stiga skot en hitti
ekki og Njarðvíkingar fögnuðu sigri.
Njarðvíkingar léku mjög fast og
stundum fullfast. Rondey Robinson
lék gríðarlega vel ef vítanýtingin er
frátalin. Hann tók 21 frákast, þar
af 12 í sókninni og hafði betur í ein-
víginu við Mike Brown. Valur var
traustur og tók 11 fráköst. Rúnar lék
vel og var með mjög góða nýtingu í
skotum sínum og Isak var mikilvæg-
ur liðinu. Hann róaði sóknarleikinn
þegar á þurfti að halda og lék frá-
bæra vörn. Þáttar Ásþórs er áður
getið.
Brown átti ágætan leik en hann
lenti í villuvandræðum. Kristinn átti
einnig góðan leik og Guðjón byijaði
mjög vel. Albert átti ágæta spretti
eins og Kristján, sem var þó full
kappsamur í vörninni.
Úrslitakeppnin
i körfuknattleik 1'
Annar leikur liðanna i undanúrslitum
úrvalsdeildarinnar. Leikið i Njarðvik.
84 ÚRSUT 81
19/37 Viti 17/23
7/24 3ja stiga 6/17
55 Frákóst 40
34 (varnar) 31
21 (sóknar) 9
12 Boltanáð 6
15 Bolta tapað 13
16 Stoðsendingar 8
24 Villur 31
með knöttinn en tókst ekki að skora.
Á tók tíma er 6,2 sek. voru eftir
en sóknin var ekki nægilega vel
skipulögð og Grindavík var dæmdur
boltinn er 1 sekúnda var eftir. Sá
tími nægði ekki til að skora þrátt
fyrir að liðið tæki leikhlé.
Það er skemmst frá því að segja
að í framlengingunni var Grayer frá-
bær, gerði öll 13 stig ÍA og nýtingin
í vítunum var einstök. Grindvíkingar
gerðu hins vegar aðeins þrjú stig.
Stór dagur í sögu körfuknattleiksins
í knattspyrnubænum Akranesi var
að kveldi kominn og stuðningsmenn
héldu sælir heim.
Grayer var maður vallarins. Þegar
hann fékk boltann skoraði hann eða
dæmd var villa á Grindvíkinga. Hann
fór oft illa með varnarmenn UMFG
þegar hann snéri þá af sér í teignum.
Ivar var einnig gríðarlega sterkur
og varnarleikur Einars og Haraldar
öflugur. Jón Þór átti frábæra spretti
og sýndi að margur er knár þó hann
sé smár. Annars lék allt Skagaliðið
með miklum ágætum þó svo Grayer
og Ivar hafi skorað mest.
Hjá Grindvíkingum munaði miklu
hvað Casey var haldið niðri. Guð-
mundur átti góðan dag, Nökkvi góða
spretti eins og Marel og Pétur.
ÉfÚHR
FOLK
■ UMGJÖRÐ leiksins á Akranesi
var öll hin glæsilegasta. Tíu mínút-
um fyrir leik voru Iiðin kölluð af
velli og ljósin slökt. Sterkum ljós-
geisla var beint að Skagaliðinu sem
hljóp inná völlinn í einni röð og blök-
uðu knettinum í körfuspjaldið. Síð-
astur fór Steve Grayer sem tróð
knettinum í körfuna.
■ LJÓSIN voru einnig slökt þegar
liðin voru kynnt, það er að segja
þegar kom að liði heimamanna.
Ljóskastaranum var þá beint að þeim
sem kynntur var. Ætlunin var að
varpa mynd af viðkomandi upp á
stóran sjónvarpsskjá, en það fórst
fyrir einhverra hluta vegna.
■ SKAGAMENN létu vel í sér
heyra á sunnudaginn, eins og raunar
í Grindavík á föstudaginn. Þegar
lið UMFG var kynnt púuðu áhorf-
endur á hvern einn og einasta leik-
mann gestanna. Einnig var áberandi
hversu hátt hljómkerfi hússins var
stillt þegar liðin tóku leikhlé, og
sumir af fylgismönnum UMFG
sögðu að það heyrðist aðeins úr þeim
hátalara sem var fyrir aftan vara-
mannabekk UMFG.
■ GRINDVÍKINGAR tóku í notk-
un nýja klukku í fyrsta leiknum
gegn IA á föstudaginn. Fjögur fyr-
irtækiý bænum gáfu klukkuna.
■ RÁÐIST var í að koma síðustu
tveimur bekkjaröðunum fyrir og nú
komast um 800-850 áhorfendur í
sæti í Grindavík.
■ FORRÁÐAMENN fyrirtækisins
Stakkavíkur hétu á lið UMFG fyrir
leikinn við KR í deildinni að ef liðið
yrði deildarmeistari þá fengi deildin
100 þúsund krónur.