Morgunblaðið - 30.03.1994, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994
KNATTSPYRNA
Sjö leikmenn
Arsenalá
hættusvæði
Tveirfengu að sjá gula spjaidið þegar Arsenal
náði jöfnu, 1:1, gegn St. Germain í París
LEIKMENN Arsenal gerðu góða ferðtil Parísar, þer sem þeir
náðu jafntefli, 1:1, gegn París St. Germain í fyrri leik liðanna
í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa. Tveir leikmenn
Lundúnarliðsins fengu að sjá gula spjaldið, Tony Adams og
Paul Merson, þannig að nú eru sjö leikmenn liðsins komnir á
hættusvæðið með gul spjöld og eiga yfir höfði sér leikbann,
ef þeir fá annað spjaldið.
Reuter
lan Wright gerði mark Arsenal í 1:1 jafntefli gegn PSG í fyrri leik liðanna
í undanúrslitum Evrópukeppninnar í París í gær. Þetta var 31. mark hans á
tímabilinu og í fyrsta sinn sem hann leikur með Arsenal á útivelli í Evrópu-
keppni. Hér hefur hann betur í baráttu við franska leikma/ininn Jean Luc Sassus.
Wimbledon
skellti Blackburn
Mm
FOLX
■ SÆNSKI landsliðsmaðurinn í
handknattleik, Robert Andersson,
sem leikur með Bayer Dormagen
í Þýskalandi, meiddist illa á hné
um helgina — krossbönd slitnuðu.
Hann verður frá keppni í hálft ár.
Kristján Arason tekur við þjálfun
Dormagen næsta keppnistímabil.
I FÁTT getur komið í veg fyrir
að Kiel verði þýskur meistari í
handknattleik í ár. Liðið hefur
þriggja stiga forskot, eftir stórsig-
ur, 26:19, á Scharnhausen.
■ RON Atklnson var ánægður,
þegar Aston Villa sigraði Manc-
hester United í úrslitum ensku
deildarbikarkeppninnar og tryggði
BggH sér þar með UEFA-
FráBob sæti, en gleðin var
Hennessy ekki eins mikil, þeg-
i Englandi ar Doug Ellis, for-
maður félagsins, til-
kynnti honum að hann fengi ekki
meira en 250.000 pund til að kaupa
nýja leikmenn.
■ VILLA skuldar tvær millj.
punda vegna leikmannaskipta síð-
*>' ústu 18 mánuði og félagið áætlar
að eyða liðlega 500 millj. kr. í stúku-
endurbætur í sumar. „Hann verður
að selja menn ef hann ætlar að
kaupa,“ sagði Ellis.
■ UM 13 milljónir manna sáu
bikarleik Villa og United í beinni
sjónvarpsútsendingu hjá ITV sjón-
varpsstöðinni. United tekur á móti
Liverpool í kvöld og er uppselt,
en eftir kvöldið hafa meira en millj-
ón manns greitt aðgangseyri til að
sjá United í vetur.
-NÉ HANS Segers, markvörður
Wimbledon, hefur gert nýjan
þriggja ára samning við félagið, en
hann hefur verið hjá því í fimm ár.
■ ÞÓRÐUR Guðjónsson lék
fyrstu 70 mín. með Bochum, þegar
félagið tapaði, 2:3, fyrir Mainz um
sl. helgi. Bochum komst í 2:0 eftir
aðeins tvær mín.
■ UWE Wegmann skoraði bæði
mörk Bochum með langskotum.
Félagið hefur nú sjö stiga forskot
í 2. deildarkeppninni.
■ BERTI Vogts, landsliðsþjálfari
Þýskalands, heldur enn þeim
möguleika opnum, að Rudi Völler,
miðherji Marseille, gefi kost á sér
á ný í landsliðið og leiki í HM í
— Bandaríkjunum.
■ JÚRGEN Klinsmann, miðheiji
Mónakó, er nú tilbúinn að breyta
til og leika á Spáni. Barcelona og
Real Madrid hafa sýnt áhuga á
að fá hann. Ef Klinsmann fer frá
Mónakó, hefur félagið áhuga á að
fá Brian Laudrup.
■ ARSENAL hefur einnig áhuga
á að fá Brian Laudrup til að
stjóma miðvallarspilinu hjá sér.
Arsenal á eftir heimaleik sinn,
tii að tryggja sér rétt til að
leika úrslitaleikinn í Kaupmanna-
höfn gegn Benfica eða Parma, sem
léku í Lissabon í gærkvöldi og lauk
viðureigninni með sigri Benfica,
2:1. 48 þús. áhorfendur voru á
Parc des Princes-leikvanginum í
gær, þar sem Parísarliðið hefur
ekki tapað lik síðan í ágúst 1993
— leikið 26 deildarleiki án taps,
sex Evrópuleiki og þijá franska
bikarleiki.
Arsenal komst yfir með marki
Ian Wright á 35. mín., en hann
skoraði með skaila. Varnarmenn
Arsenal sofnuðu síðan á verðinum
í upphafi seinni hálfleiks, en þá
skoraði Knattspyrnumaður Frakk-
lands, hinn 26 ára David Ginola,
eftir hornspymu. Arsenal hefur
leikið átta leiki í röð án þess að
tapa, en félagið tapaði síðast deild-
arleik 18. desember.
„Til að vinna lið eins og Arse-
nal, þarf að leika mjög hratt. En
okkur tókst það ekki í þessum leik
og því fór sem fór,“ sagði Paul
Le Guen, fyrirliði P.S.G. Miðvallar-
leikmaðurinn Vincent Guerin sagði
að franska liðið ætti enn mögu-
leika á að komast áfram. „Ég tel
að möguleikar okkar á sigri á
Highbury séu 40 prósent og því
má búast við að ferð okkar til
Englands verði erfið,“ sagði hann.
Alls voru þrír Evrópuleikir
leiknir í gærkvöldi og komu sam-
tals 200 þús. áhorfendur á þá, sem
er svipaður áhorfendafjöldi og á
öllumleikjum 1. deildarkeppninnar
á íslandi sl. þijú ár.
Blackburn náði ekki að skjótast
upp að hlið Manchester United
í gærkvöldi, þegar leikmenn liðsins
sóttu hina baráttuglöðu leikmenn
Wimbledon heim. Leikmenn
Wimbledon gerðu út um leikinn
undir lokin, þegar þeir skoruðu þijú
mörk og tryggðu sér sigur, 4:1. Þar
með minnkuðu möguleikar Black-
burn á að næla sér í Englandsmeist-
aratitilinn, en leikmenn liðsins geta
þó huggað sig við að Manchester
United á eftir að heimsækja
Wimbledon, en heimavöllur Lund-
únarliðsins hefur oft verið hálfgerð-
ur kirkjugarður fyrir „stóru" félög-
in.
Þetta var aðeins annar ósigur
Blackburn í síðustu átján leikjum
liðsins. Jason Wilcox skoraði fyrir
liðið eftir 15. min., en John Fashanu
jafnaði, 1:1, fimm mín. eftir leikhlé.
Norðmaðurinn Henning Berg hjá
Blackburn skoraði sjálfsmark á 75.
mín. og við það hrundi leikur liðsins
og Wimbledon bætti tveimur mörk-
um við. Þetta var í fyrsta skipti sem
Blackburn fær á sig fjögur mörk í
vetur og ósigurinn var sá stærðsti
sl. þijú keppnistímabil.
Andy Cole skoraði fyrir Newc-
astle, 3:0, gegn Norwich og var
hann fyrsti leikmaður félagsins til
að skora 30 deildarmörk í sjö ár.
Nýju leikmennimir hjá Manc-
hester City, Paul Walsh og Þjóðveij-
inn Uwe Rosler skoruðu báðir sín
fyrstu mörk fyrir félagið, sem náði
jöfnu, 2:2, í Ipswich.
GrahamTaylor
þjátfar Úlfana
Graham Taylor, fyrrum
landsliðsþjálfari Englands í
knattspyrnu, tók við
stjórninni hjá Wolverhampton
Wanderes í gær, en hann gerði
þriggja ára samning við félagið.
Úlfarnir buðu Taylor velkominn
í gærkvöldi, með því að leggja
Bolton að velli, 3:1, á útivelli.
Graham Turner hætti hjá
Wolves fyrir hálfum mánuði eftir
að hafa verið við stjómvölinn í
sjö og hálft ár, en undir hans
stjóm fór liðið úr fjórðu í 1. deild,
þar sem það er nú.
Taylor var stjóri hjá Lincoln,
kom Watford úr fjórðu í 1. deild
og Aston Villa úr annarri deild
í annað sæti í 1. deild 1990 áður
en hann tók við landsliðinu eftir
HM 1990. Hann sagði landsliðs-
þjálfarastarfínu lausu í nóvem-
ber s.l. þegar fyrir lá að England
yrði ekki í úrslitakeppni HM í
Bandaríkjunum. „Takmarkið hjá
mér er að koma félaginu í úrvals-
deildina og gera liðið aftur að
einu af þeim bestu í heiminum.
Það komu fá lið til greina hjá
mér, en þetta er eitt þeirra,"
sagði Taylor.
SKIÐAMOTISLANDS
Allir þeir bestu með
Skíðamót íslands, það 56. í röð-
inni, verður sett í Siglufjarðar-
kirkju kl. 20.30 í kvöld. 70 keppend-
ur er skráðir til leiks og eru allir
bestu skíðamenn Islands þar á með-
al. Keppni hefst síðan á morgun kl.
10 og verður þá keppt í stórsvigi
karla. Mótinu lýkur á páskadag.
Mótsstjóri landsmótsins er Rögnvald-
ur Þórðarson. Hann sagði að undir-
búningur mótsins hafi byijað í febr-
úar með kosningu mótsstjórnar.
Keppendur verða 50 í alpagreinum
og 20 í normæum greinum og koma
þeir frá Reykjavík, Akureyri, Isafirði,
Ólafsfirði, Dalvík, Austfjörðum auk
siglfirsku keppendanna.
Ólympíufararnir fimm, Kristinn
Björnsson, Haukur Amórsson, Ásta
Halldórsdóttir, Daníel Jakobsson og
Rögnvaldur Ingþórsson verða meðal
keppenda. Auk þess þeir Vilhelm
Þorsteinsson, Amór Gunnarsson og
Sigurgeir Svavarsson sem börðust
um ólympíusæti fyrri í vetur og vilja
þeir ömgglega sýna-hvað í þeim býr.
Skíðamót íslands er í augum Sigl-
firðinga meira en keppnin ein því
ætíð myndast viss stemmning í kring-
um mótið um páskahátíðarnar.
Dag-skrá mótsins:
Miðvikudagur 30. mars:
Mótið sett í Siglufjarðarkirkju kl. 20.30.
Fimmtudagur 31. mars:
Stórsvig karla, fyrri ferð, kl. 10.00
Svig kvenna, fyrri ferð, kl. 11.00
15 km ganga karla kl. 13.00
10 km ganga pilta kl. 13.00
5 km ganga kvenna kl. 13.00
Stórsvig karla, síðari ferð, kl. 13.00
Svig kvenna, síðari ferð, kl. 14.00
Föstudagur 1. apríl:
3 X 10 km boðganga karla kl. 13.00
Laugardagur 2. apríl:
Stökk kl. 10.00
Stórsvig kvenna, fyrri ferð, kl. 10.00
Svig karla, fyrri ferð, kl. 10.45
Stórsvig kvenna, síðari ferð, kl. 13.00
Svig karla, síðari ferð, kl. 13.45
Ganga í norrænni tvíkeppni kl. 15.00
Sunnudagur 3. apríl:
Samhliðasvig karla og kvenna kl. 10.00
30 km ganga karla kl. 13.00
15 km ganga pilta kl. 13.00
7,5 km ganga kvenna kl. 13.00
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sex ungir róðramenn, sem hafa æft reglulega í vetur — einu sinni á dag, eru farnir til Posgrun í Noregi, þar sem
þeir verða í æfingabúðum um páskana með norskum unglingum. Hér er um að ræða fimm 17 ára nemendur úr
Kvennaskólanum og einn úr MR. Þjálfari ræðaranna er Italinn Leone Tingnelli, fyrrum landsliðsmaður Italíu, en
fararstjóri er Jón Magnús Jónsson. Það eru ár og dagar síðan róður hefur verið æfður reglulega hér á landi, eða
síðast 1950. Á myndinni fyrir ofan er Tingnelli að ýta úr. vörn frá Nauthólsvík á leið út á Fossvoginn til æfinga.
Ræðarar bótsins eru Jón Einar Sverrisson, stýrimaður, Ármann K. Jónsson, Geir Steinþórsson, Guðmundur Gísli
Ingólfsson og Róbert Örn Arnarsson. Friðrik Örn Guðmundsson var í landi, enda tekur báturinn ekki nema fimm.