Morgunblaðið - 09.04.1994, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRIL 1994
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Á leið á Eiríksjökul
TUTTUGU manna hópur á sex jeppum og tveimur
vélsieðum hélt frá Reykjavík skömmu eftir miðnætti
og stefna leiðangursmenn að því að fara akandi á
efsta tind Eiríksjökuls í 1.672ja metra hæð á einum
jeppanna, sérstaklega breyttum Mitsubishi Pajero.
Þangað hefur ekki verið farið fyrr á bíl. Hafþór
Ferdinandsson, leiðangursstjóri og frumkvöðull ferð-
arinnar, sagði í samtali við Morgunblaðið að tveir
sólarhringar væru ætlaðir til ferðarinnar og reikni
menn með að ferðin verði erfið, ef hún takist á ann-
að borð. „Fari allt að óskum, verður ferðin góð þjálf-
un og undirbúningur fyrir Grænlandsleiðangur sem
er í bígerð hjá mér og fleirum," segir Hafþór. í leið-
angrinum eru m.a. viðgerðarmenn, kvikmyndatöku-
menn, ljósmyndarar, rafvirkjar og trésmiðír, eða
„góð blanda af hraustum mönnum sem vilja takast
á við þetta verkefni og leysa það eftir bestu getu“,
segir Hafþór.
Matvælaverð lækkaði um 6,7% um áramót
ASI segir að matar-
skattslækkun hafi
skilað sér til neytenda
KÖNNUN sem Samkeppnisstofnun gerði fyrir ASÍ, BSRB og Neyt-
endasamtökin bendir til að lækkun virðisaukaskatts, sem kom til
framkvæmda um áramót, hafi skilað sér að fullu til neytenda, segir
í frétt frá ASÍ. Könnunin sýnir að verð á þeim vörum sem skoðaðar
voru hefur lækkað um 6,7%, en áætlað hafði verið að skattalækkun
gæfi forsendu til 7% lækkunar.
Áður en endanleg ákvörðun var
tekin um að lækka virðisaukaskatt
á matvælum lýstu allmargir yfir efa-
semdum um að lækkunin myndi
skila sér til neytenda. ASÍ, sem barð-
ist fyrir lækkuninni, hefur því lagt
mikla áherslu á að fylgja verðlækk-
uninni fast eftir í verslunum.
Að beiðni ASÍ, BSRB og Neyt-
endasamtakanna gerði Samkeppn-
isstofnun verðkönnun í yfir 100
verslunum í nóvember sl. og svo á
sömu vörum í sömu verslunum síð-
ari hluta janúar og í febrúar. Þessar
verslanir eru staðsettar út um allt
land. í
Meðaltalslækkun í þessum versl-
unum var 6,7%. Ætla má að forsend-
ur til verðlækkunar á þeim vörum
sem komu til skoðunar hafi verið
að meðaltali um 7% sem er lítillega
hærri tala en niðurstöður úr könnun
Samkeppnisstofnunar. Athyglisvert
er að verð á landsbyggðinni virðist
ekki hafa lækkað minna en á höfuð-
borgarsvæðinu þvert á spár þar um.
Aætlað var að matvæli í fram-
færsluvísitölunni myndu lækka um
4,5% að meðaltali við virðisauka-
skattslækkunina. Miðað við saman-
burð á matvælum í framfærsluvísi-
tölunni frá nóvember 1993 til mars
1994 hafa matvæli lækkað í verði
sem nemur 4,67%. Ef tekið er til.lit
til þekktra verðbreytinga á nokkrum
matvælategundum má rekja þangað
um 0,5% verðlækkun. Þar með
stendur eftir um 4,2% verðlækkun
sem skal bera saman við áðurnefnd-
ar forsendur til lækkunar á 4,5%.
Hér stendur því út af um 0,3% sem
er svipaður mismunur í prósentustig-
um og var í niðurstöðum úr könnun
Samkeppnisstofnunar.
20 eru sakaðir uni aðild að
stærsta ffloiiefnahring hér
Sakaðir um innflutning á 48 kg af hassi og 6 kg af amfetamíni fyrir um 100 milli.
í HÉRAÐSDÓMI Reykjavíkur
var í gær þingfest mál sem ríkis-
saksóknari hefur höfðað gegn
20 manns, 18 körlum og 2 kon-
um á aldrinum 23-55 ára, í um-
fangsmesta fíkniefnamáli sem
komið hefur upp hér á landi og
snýst um innflutning á allt að
48,3 kg af hassi og tæpum 6 kg
af amfetamíni í 21 smyglferð á
í dag
Rússlandssérfræöingur
Christopher N. Donnelly segir
að alls ekki megi hægja á umbót-
um í Rússlandi 11
Litil sala húsnæðisbréfa
Húsnæðisstofnun hefur undan-
farna mánuði fengið tæpa fjóra
milljarða að láni hjá ríkissjóði 22
16% af kvóta töpuö
rúmlega tveggja ára tímabili frá
árinu 1992 og fram til júlímán-
aðar í fyrra. Um þijár ákærur
er að ræða, í einni eru 18 manns
ákærðir fyrir innflutning á allt
að 46,3 kg af hassi og tæpum
sex kg af ætluðu amfetamíni.
Þar er talið að um fíkniefna-
hring hafi verið að ræða og er
meintur höfuðpaur hringsins,
28 ára gamall maður sem setið
hefur í gæsluvarðhaldi frá 1.
september sl., talinn eiga aðild
að innflutningi á allt að 34,2 kg
af hassi og 5 kg af ætluðu amfet-
amíni í 13 smyglferðum. Flestir
18-menninganna eru taldir eiga
aðild að fleiri en einni smygl-
ferð, þar af nokkrir sem burðar-
dýr er tekið hafi að sér að bera
efnin inn til landsins gegn
greiðslu.
Við rannsókn málsins lagði lög-
regla hald á um 14 kg af hassi
og tæp 2 kg af ætluðu amfetam-
íni, en við efnagreiningu kom í ljós
að þar af reyndust um það bil 900
grömm vera glúkósi og koffín.
Áætla má að markaðsvírði allra
þeirra fíkniefna sem við sögu koma
í máli þessu hafi verið um það bil
100 milljónir króna.
Samhliða var í gær þingfest mál
sem höfðað hefur verið með tveim-
ur ákærum gegn tveimur mönnum
til viðbótar þar sem annar er
ákærður fyrir innflutning á 2 kg
af hassi og hinn á 170 grömmum
af amfetamíni. Mál þeirra tengjast
málum hinna.
Meðferð þessa umfangsmesta
fíkniefnamáls sem komið hefur upp
hérlendis, svokölluð aðalmeðferð
með yfirheyrslum, vitnaleiðslum
og málflutningi, hefst í Héraðs-
dómi Reykjavíkur 2. maí næstkom-
andi. Búist er við að hún standi í
nokkrar vikur.
Sakborningar fái að sjá
málsgögn
Við þingfestingu málsins í gær
óskuðu veijendur eftir því að af-
létt yrði banni sem verið hefur við
því að sakborningum verði sýnd
gögn málsins. Afstaða ákæru-
valdsins er sú að sakborningum
verði ekki sýnd málsgögn fyrr en
þeir hafi verið yfirheyrðir þar sem
hætt sé við að ella byggi þeir fram-
burð sinn á því sem þar kemur
fram. Urskurður um það hvort
bannið standi eða verði fellt niður
verður kveðinn upp eftir helgi.
Hinn svokallaði höfuðpaur máls-
ins hefur eins og fyrr sagði setið
í gæsluvarðhaldi frá 1. september
síðastliðnum. Síðast var gæslu-
varðhaldsúrskurður hans fram-
lengdur allt til þess tíma er dómur
gengur en þó ekki lengur en til
15. júní næstkomandi. Við rann-
sókn málsins sat alls hálfur annar
tugur manna í gæsluvarðhaldi um
lengri eða skemmri tíma og voru
tveir menn, sem ákærðir eru í
málinu, framseldir til landsins frá
Svíþjóð.
Sveinbjöm
endurkjör-
inn rektor
SVEINBJÖRN Björnsson var í
gær endurkjörinn rektor Há-
skóla íslands.
Sveinbjörn hlaut 196 atkvæði
kennara og 183 atkvæði stúd-
enta, eða 80,8% atkvæða alls sem
er tilskilinn meirihluti. Sveinbjörn
verður því rektor Háskóla íslands
til þriggja ára frá og með byijun
næsta skólaárs, 5. september nk.
Þrjár brugg-
verksmiðjur
upprættar
LÖGREGLAN á Húsavík stöðv-
aði brugg á þremur stöðum á
Húsavík og nágrenni í fyrradag.
Alls var um 1.400 lítrum af
gambra hellt niður. Hald var lagt
á rúmlega 80 lítra alls af landa auk
tækja og tóla á öllum stöðunum
þremur. Úr tveimur stærri verk-
smiðjunum hafði landi verið seldur
til Reykjavíkur og Akureyrar. í
þriðju verksmiðjunni virtist ein-
göngu hafa verið bruggað til heima-
nota.
Norðlensk fískiskip hafa tapað
um 16% af þorskvóta sínum frá
1991 25
Leiðari
Vísindi, tækni, nýsköpun 28
Hrísey verður
i.iaatfig
► Verkefni í húsafriðun um
allt land - Hraunþúfuklaustur
í Vesturdal - Rannsóknarþátt-
ur um heimilisgarðrækt -
Kvæði eftir Verlaine - Heim-
spekiþáttur Atla Harðarsonar
jWorgtmbCaMb
—HW6
► Tónlistarmenn á Akureyri
- Listasafnið á Akureyri -
Norræn menningarhátíð í
Stokkhólmi - Hulda Hákon á
Kjarvalsstöðum
áfram á Höfn
BÆJ ARSTJORN Hafnar í Hornafirði ákvað á fundi í fyrradag að neyta
forkaupsréttar síns á bátnum Hrísey SF 48. Gengið var frá kaupunum
við Ríkisábyrgðasjóð í gær og er kaupverðið 205 milljónir.
Að sögn Sturlaugs Þorsteinsson-
ar bæjarstjóra varð útgerð bátsins
gjaldþrota síðasta haust og átti þá
að selja bátinn til Þorlákshafnar.
Lögum samkvæmt var bæjarfélag-
inu boðið að neyta forkaupsréttar
síns og var í fyrradag tekin ákvörð-
un um að gera það. Sturlaugur
sagði að þegar hefði verið auglýst
eftir útgerðaraðilum og sagðist
hann hafa vissu fyrir því að menn
á Höfn hefðu áhuga á að ganga inn
í forkaupsréttinn en það væri þó
ekki endanlega ákveðið. Bæjarfé-
Iagið ætlaði a.m.k. ekki að fara að
reka bæjarútgerð.
Sturlaugur sagði að bátnum
fylgdu 900 þorskígildi í blönduðum
kvóta þorsks, ýsu, ufsa, rækju og
humars myndi Hrísey sennilega
fara á humarveiðar í sumar.
Forsvarsmenn bæjarstjórnarinn-
ar héldu til Reykjavíkur í fyrrinótt
til að ganga frá kaupunum og sigldu
bátnum síðan úr höfn í Reykjavík
áleiðis £il Hafnar í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Sverrir
Hrísey SF á leið til Hafnar
HRÍSEY í Reykjavíkurhöfn áður en lagt var af stað til Hafnar.
Bæjarsljórn Hafnar neytti forkaupsréttar og keypti skipið af Ríkis-
ábyrgðasjóði á 205 milljónir.