Morgunblaðið - 09.04.1994, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994
VIÐSKIFTIAIVINNUIÍF
Lífeyrismál
Raunávöxtun Lífeyríssjóðs
tæknifræðinga 11,2%
Viðræður um að VÍB taki alfarið við rekstri sjóðsins
RAUNÁVÖXTUN Lífeyrissjóðs tæknifræðinga á sl. ári var 11,2%
og hækkaði úr 7,9% frá árinu áður. AIls greiddu 575 aðilar iðgjöld
til sjóðsins á árinu. Námu iðgjöldin 127 milljónum og hækkuðu um
6% frá árinu áður. Á aðalfundi sjóðsins á fimmtudag voru kynntar
niðurstöður allsheijaratkvæðagreiðslu um framtíðarrekstrarform
sjóðsins. Urðu niðurstöður þær að meirihluti sjóðsfélaga samþykkti
að gengið yrði til viðræðna við Verðbréfamarkað íslandsbanka um
að annast rekstur sjóðsins.
Lífeyrissjóður tæknifræðinga er
séreignasjóður með örorkutrygging-
ar og námu heildareignir hans um
1.570 milljónum um síðustu áramót.
Umræða um framtíðarrekstrarform
sjóðsins hefur staðið yfir um langt
skeið. Fram kom í máli Frosta
Bergssonar á aðalfundi sjóðsins að
þijár leiðir hefðu helst verið taldar
koma til greina í því efni. í fyrsta
lagi var um að ræða að halda áfram
á þeirri braut að bæta reksturinn,
ná niður rekstrarkostnaði, auka ör-
yggi rekstrar og bæta ávöxtun. í
öðru lagi var skoðaður möguleiki á
samrekstri með Lífeyrissjóði verk-
fræðinga. Ekki voru hins vegar tald-
ar líkur á að slíkur samrekstur hefði
fjárhagslegan ávinning í för með sér
fyrir sjóðsfélaga í Lífeyrissjóði
tæknifræðinga og var þeim mögu-
leika hafnað. í þriðja lagi hefur ver-
ið til athugunar að fela verðbréfa-
fyrirtæki rekstur h'feyrissjóðsins.
í framhaldi af samþykkt aðal-
fundar á síðastliðnu ári var leitað
til fjögurra verðbréfafyrirtækja og
Flugfélög
Iberia
semur við
United
Airlines
Madrid. Reuter.
RÍKISREKNA Hugfélagið
Iberia á Spáni mun ganga frá
samningi við bandaríska flug-
félagið United Airlines fyrir
næstu mánaðamót samkvæmt
áreiðanlegum heimildum og
búizt er við að hann taki gildi
1. júlí.
Samkvæmt samkomulaginu
mun Iberia geta tengt áætlunar-
ferðir sínar til Bandaríkjanna
innanlandsflugáætlun United
Airlines og selja flugið saman-
lagt í einum „pakka“. Sama
getur United gert með tengingu
við Evrópuflug Iberia. Enn frem-
ur verður hægt að samræma
sætanýtingu félaganna og auka
hana hjá þeim báðum.
Eini núverandi samstarfsaðili
Iberia í Bandaríkjunum er litla
flugfélagið Carnival Air Lines,
sem hefur tekið við farþegum
og flutt þá til Miami.
Vísað er á bug fréttum um
að United muni kaupa hlut í
félaginu Aerolineas Argentinas,
en Iberia á 85% hlutabréfa þess.
Iberia vill að argentínskir fjár-
festar taki við hluta eignaraðild-
arinnar.
Argentínustjórn hefur heitið
60 milljónum dollara í ódýrum
lánum til þess að stuðla að þessu
og haldið er áfram viðræðum við
tvo hugsanlega fjárfesta — flug-
menn Aerolineas og ferðaskrif-
stofusamband Argentínu.
óskað eftir tilboðum í rekstur sjóðs-
ins. Var ákveðið að ef þessi leið yrði
fyrir valinu þá væri VÍB heppileg-
asti rekstraraðilinn. Eftir vandlega
skoðun samþykkti meirihluti stjórn-
ar síðan að fela VÍB reksturinn mið-
að við að viðunandi samningar tæk-
just og að allsherjaratkvæðagreiðsla
meðal sjóðsfélaga samþykkti þessa
leið. Varð niðurstaða hennar að af
130 aðilum sem greiddu atkvæði
voru 64 samþykkir þessari leið, 52
andvígir en ógildir seðlar voru 14.
Stefnt er að því að bjóða sjóðsfé-
lögum að kaupa lífeyristryggingu
sem felur í sér að þeir fái fastan
lífeyri til dánardægurs. Þá er stefnt
að því að gera átak í kynningarmál-
um sjóðsins og endurskoða fjárfest-
ingarstefnu hans til langs tíma í
samstarfi við sérfræðinga á þessu
sviði.
Á aðalfundinum voru þeir Frosti
Bergsson og Páll Á Pálsson endur-
kjörnir í stjórn.
NISSAN I ANNAÐ SÆTI
mest seldu fólks-
bílategundirnar
í jan.-mars 1994
Fjöldi %
1. TOYOTA 309 25,8
2. NISSAN 178 14,9
3. HYUNDAI 137 11,4
4. VOLKSWAGEN 100 8,4
5. MITSUBISHI 86 7,2
6. VOLVO 45 3,8
7.-8. MAZDA 40 3,3
7.-8. RENAULT 40 3,3
9. FORD 36 3,0
10.-11. LADA 35 2,9
10,11. SUZUKI 35 2,9
Bifreiða-
innflutningur
1.197 íjan.-mars
1993 og
1994
- FÓLKSBÍLAR
nýir
VORU-, SENDI- og
HÓPFERÐABÍLAR
TÆPLEGA 15% samdráttur varð á innflutningi nýrra fólksbíla
á fyrsta fjórðungi þessa árs miðað við sama tíma í fyrra. Þá
varð sömuleiðis lítilsháttar samdráttur í innflutningi vöru-,
sendi- og hópferðabifreiða. Þá hefur enn orðið breyting á röð
söluhæstu fólksbílategunda miðað við söluna á tveimur fyrstu
mánuðunum. Nissan hefur nú skotist upp í annað sætið
meðan Hyundai hefur færst í það þriðja.
Húsnædisstofnun
Tæpir fjórir milljarðar
teknir að láni hjá ríkissjóði
Sala húsnæðisbréfa hefur verið margfalt minni en á sama tíma á síðasta ári
HÚSNÆÐISSTOFNUN ríkisins hefur á
undanförnum mánuðum fengið tæpa fjóra
milljarða króna að láni hjá ríkissjóði til að
standa við skuldbindingar sínar, en sala á
skuldabréfum stofnunarinnar hefur gengið
mjög illa eftir að vextir lækkuðu vegna
aðgerða stjórnvalda um mánaðamótin okt-
óber/nóvember. Vegna þessa hefur verið
ákveðið að hætta beinni sölu skuldabréfa
til lífeyrissjóða og er unnið að því að móta
nýtt fyrirkomulag á sölu skuldabréfanna
með milligöngu verðbréfafyrirtækja hér á
landi.
Stofnunin fékk 2,3 milljarða króna að fáni
hjá ríkissjóði um áramótin til 20 ára með 5%
vöxtum og var sú upphæð notuð til að ganga
frá uppgjöri vegna síðasta árs. í febrúar fékk
stofnunin síðan 1.600 milljóna króna bráða-
birgðalán til viðbótar, sem ætlunin er að endur-
greiða af skuldabréfasölu þessa árs.
Samkvæmt lánsfjárlögum er gert ráð fyrir
að lántaka Húsnæðisstofnunar á innlendum
lánamarkaði nemi 9,1 milljarði króna í ár alls,
en það sem af er þessu ári hefur aðeins tekist
að selja húsnæðisbréf fyrir 694 milljónir króna
í fimm útboðum. Til samanburðar má gera ráð
fyrir að mánaðarleg sala á skuldabréfum stofn-
unarinnar á sama tíma á síðasta ári hafi num-
ið á bilinu 6-800 milljónum króna. í síðustu
þremur útboðum sem eru venjulega á hálfs-
mánaðarfresti hafa selst á bilinu 11-20 milljón-
ir króna í hvert skipti, en næsta útboð er
áætlað 19. apríl. Meðalávöxtun í síðasta út-
boði var 5%, en um mánaðamótin maí/júní í
fyrra var meðalávöxtunin rúmlega 7,3% og þá
seldust um 570 milljónir króna í tveimur útboð-
um.
Sigurður E. Guðmundsson, forstjóri Hús-
næðisstofnunar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að stofnunin hefði ákveðið að hætta
beinni skuldabréfasölu til lífeyrissjóðanna eftir
að hafa þann hátt á viðskiptunum í 25 ár og
hér eftir myndi útgáfa og sala skuldabréfa
fara fram í gegnum þau verðbréfafyrirtæki sem
væru fullgildir aðilar að Verðbréfaþingi ís-
lands. Mikil vinna hefði verið lögð í að endur-
skoða fyrirkomulag á skuldabréfasölu stofnun-
arinnar. Nefnd á vegum fjármála- og félags-
málaráðuneytis, auk fulltrúa Lánasýslu ríkisins
og Húsnæðisstofnunar hefði skilað tillögum í
þeim efnum og þær tillögur hefðu verið sendar
verðbréfafyrirtækjunum til skoðunar. Þau
hefðu sýnt þessu mikinn áhuga, en það væri
ljóst að það kostaði mikla vinnu að hasla sér
völl á þessum vettvangi. Tillögurnar fælu í sér
ýmsar nýjungar og aðlögun að kröfum markað-
arins. Þær væru hins vegar ekki komnar í
endanlegan búning, en viðbragða frá verð-
bréfafyrirtækiunum væri að vænta á næstu
dögum. Strax og þau lægju fyrir yrði hafist
handa um að hrinda nýju fyrirkomulagi í fram-
kvæmd.
Sjávarútvegur
Tap Hraðfrystihúss
Grundarfjarðar 7 7 millj.
TAP Hraðfrystihúss Grundarfjarðar nam alls um 77,5 milljónum króna
á sl. ári samanborið við tæplega 38 milljóna tap árið 1992. Rekstraraf-
koma félagsins var ekki fjarri áætlunum en fjármagnskostnaður varð
hins vegar mun meiri en gert var ráð fyrir vegna óhagstæðrar gengis-
þróunar. Skuldir eru að mestu í bandaríkjadollurum, japönskum jenum
og reikningseiningu Fiskveiðasjóðs sem hækkuðu langt umfram inn-
lent verðlag. Hraðfrystihúsið gerir út tvö togskip auk reksturs frysti-
húss, skelfiskvinnslu og rælquvinnslu í Grundarfirði.
Heildarvelta félagsins árið 1993
var alls 573 milljónir á sl. ári ogjókst
um tæpar 212 milljónir frá árinu
áður. Tekið var á móti 4.862 tonnum
af hráefni samanborið við 3.922 tonn
árið 1992. Framleidd voru 1.670 tonn
af freðfiski, 102 tonn af hörpudiski
og 90 tonn af rækju. Afli skipa nam
5.055 tonnum samanborið við 1.835
tonn árið áður.
í ársskýrslu félagsins er greint frá
því að félagið keypti 404 tonna tog-
skip bv. Drang í byijun árs 1993.
Með þeim kaupum var aukið á ör-
yggi í hráefnisöflun fyrir vinnsluna
og segir í skýrslunni að afkoma henn-
ar hafi batnað verulega. Ákveðið
hefur verið að auka vinnslu á rækju
á þessu ári til að bæta nýtingu fjár-
festinga fyrirtækisins og er ætlunin
að halda rækju- og skelvinnslu gang-
andi allt árið. Liður í þessari viðleitni
var leiga á togaranum Sæfara frá
Akranesi sem gerður er út til rækju-
veiða. Hins vegar þykir Ijóst að
kvótaskerðing á yfirstandandi fisk-
veiðitímabili muni hafa verulega
áhrif til hins verra í útgerð togara
fyrirtækisins. Þó er vonast til að
endurbætur á skipunum sem ráðist
var í á sl. ári muni skila sér í auk-
inni sókn á þessu ári og meira afla-
magni af vannýttum físktegundum.
Veltufé frá rekstri nam alls 61
milljón króna samanborið við 30,4
milljónir árið áður. Heildareignir
HraðfrystihúsS Grundarfjarðar námu
alls um 943 milljónum og höfðu auk-
ist úr 580 milljónir frá árinu áður.
Eigið fé var 193 milljónir en var
180,3 milljónir árið áður. Var hlutafé
aukið um 81 milljón á árinu en óseld
hlutabréf í árslok nema 31,6 milljón-
um. Keypti Olíufélagið m.a. hlutabréf
fyrir 31 milljón.
Stærstu hluthafar Hraðfrystihúss
Grundarfjarðar eru nú Fiskiðjan hf.
á Sauðárkróki með 33,15% hlutafjár,
Olíufélagið með 32,65%, Hlutafjár-
sjóður með 22,92%, Reginn hf.
3,77%, Eyrarsveit 3,65%, Snasi hf.
1,63%, og Verkalýðsfélagið Stjarnan
0,86%.
BS
Herald Tri-
bune með
sérblað um
ísland
DAGBLAÐIÐ International
Herald Tribune sem gefið er
út víða um heim hyggst gefa
út sérstakt aukablað um ís-
land í tilefni af 50 ára afmæli
Iýðveldisins. Ætlunin er að
sérblaðið komi út 17. júní og
verður auglýsingastjóri blaðs-
ins Finn G. Ishdal hér á landi
12. og 13. apríl af þessu tilefni.
International Herald Tribune
er gefið út af The Washington
Post og The New York Times
pg kemur út í París. Það er jafn-
framt gefið út um allan heim
meðal annars í Róm, Tókýó og
Singapóre. Þeir sem áhuga hafa
á að kynna sér málið geta haft
samband við auglýsingastjórann
á Hótel Holt.