Morgunblaðið - 09.04.1994, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994
UM HELGINA
Körfuknattleikur
Úrslitakeppni karla:
LAUGARDAGUR
Njarðvík: UMFN - UMFG...........16
■Þetta er annar úrslitaleikur liðanna um
Islandsmeistaratitilinn.
Úrslitakeppni kvenna:
SUNNUDAGUR
Keflavík: iBK-KR................20
Aðalsmót
Aðalsmót verður haldið í körfuknattleik
dagana 11., 13. og 15. apríl og verður leikið
í Austurbergi. Mótið er fyrir Lávarða, 30
ára og eldri, og Kónga, 40 ára og eldri.
Þátttaka tilkynnist til Torfa Magnússonar
í síma 12523 í síðasta lagi á morgun.
Handknattleikur
Úrslitakeppni kvenna:
LAUGARDAGUR
—.Sarðabær: Stjarnan - Vikingur.16.30
■Þriðji leikur liðanna um Islandsmeistara-
titilinn.
Úrslitakeppni 2. deildar karla:
Digranes: HK-UBK..........'.....16
Fjölnishús: Fjölnir-Fram........16
Seltjamames: Grótta - ÍH........16
MÁNUDAGUR
Úrslitakeppni kvenna:
Víkin: Víkingur- Stjarnan.......20
■ Fjórði leikur liðanna og hugsanlega sá
síðasti.
Höllin: Fram - KR............20.30
■Þriðji leikur um 3. sætið.
Knattspyrna
Reykjavíkurmótið:
LAUGARDAGUR
Gervigrasið: ÍR - Valur.........17
MÁNUDAGUR
Gervigrasið: Ármann - Leiknir...20
Almenningshlaup
Kópavogshlaup Breiðabliks
Hlaupið fer fram í dag í Kópavogsdalnum
og hefst kl. 14. Keppt verður í þremur ald-
ursflokkum karla og kvenna auk þess sem
sérstakur fjölskylduriðill verður þar sem
þrír em í hverri sveit.
Breiðholtshlaup ÍR
Fyrsta Breiðaholtshlaup ÍR af þrertiur
verður í dag og hefst kl 11 við íþrótthús
Seljaskóla. Næstu hlaup verða 16. apríl og
23. apríl. Hlaupið er ætlað krökkum á aldr-
inum 6-15 ára, þau yngri hlaupa 800 metra
en þau eldri 1.600 metra. Engin þátttöku-
gjöld og skráning á staðnum.
Keila
Laugardagsmót Nýliða og Keiluhallar-
innar verður i kvöld og hefst kl. 20.
Vélsleðakeppni
íslandsmótið í vélsleðaakstri verður hald-
ið i Bláfjöllum um helgina á vegum Polaris-
klúbbsins. Keppnin hefst i dag kl. 10 með
fjallaralli og kl. 14 verður keppt í tvíhliða
braut. Á sunnudaginn verður spyrnukeppni
kl. 10 og snjókross hefst kl. 14, en þetta er
í fyrsta sinn sem keppt er til Isalndsmeist-
ara í krossinu. Aðgangseyrir er kr. 400 en
frítt fyrir 12 ára og yngri.
Hestaíþróttir
Framhaldsskólamót í hestaíþróttum hófst
í gær og heldur áfram í dag í Reiðhöllinni
kl. 9 með keppni í fimmgangi. Kl. 13. verð-
ur töltkeppni. Sautján skólar víðs vegar af
landinu taka þátt og eru um 50 keppendur
skráðir til leiks í hverri grein. Á morgun
kl. 20 hefjast úrslit í öllum greinum.
KORFUKNATTLEIKUR
Sextándi sigur
Knicks í sfðustu
sautján leikjum
Derek Harper var hetja New
York Knicks í fyrrinótt þegar
hann tryggði liði sínu sigur gegn
Cieveland Cavaliers, 97:94. Harper
setti niður þriggja stiga skot þegar
6,7 sekúndur voru eftir af fram-
lengingunni, en það var einnig hans
fyrsta verk í framlengingunni að
skora þriggja stiga körfu. Hann
átti annars ágætan ieik og gerði
22 stig og eru það jafn mörg stig
og hann hefur mest gert áður hjá
Knicks.
Þetta var níundi sigurleikurinn í
röð hjá Knicks á heimavelli og liðið
hefur nú unnið 16 af síðustu 17
leikjum sínum. Charles Oakley átti
stóran þátt í sigrinum því hann
gerði 24 stig, sem er metsjöfnun
hjá honum, og náði auk þess 15
fráköstum.
Terrell Brandon gerði 21 stig
fyrir Cavaliers og John Willimas var
með 18 stig og 16 fráköst. Það
vantaði þrjá fastamenn í lið Cavali-
ers, þá Brad Daugherty, Larry
Nance og Mark Price og Tyrone
Hill meiddist á fyrstu mínútunni og
lék ekki meira með. Þetta var sjö-
undi leikur liðanna í vetur og hefur
Knicks sigrað í þeim öllum.
New York hefur nú ijögurra stiga
forystu á Atlanta í Austurdeildinni
og vantar aðeins tvö stig til að
tryggja sér sigur í Atlandshafsriðl-
inum annað árið í röð.
Derrick Coleman var stigahæstur
í liði Nets er það vann Atlanta
Hawks 93:87. Coleman gerði 24
stig en Kevin Willis var atkvæða-
mestur gestanna með 18 stig og
12 fráköst en Mookie Blaylock gerði
16 og átti 11 stoðsendingar. Cole-
man skoraði sigurkörfuna þegar
rúm sekúnda var eftir og hann
náði 13 fráköstum. Kenny Ander--
son gerði 10 stig og átti auk þess
11 stoðsendingar.
Denver sigraði SuperSonics
nokkuð óvænt 104:90 og þar náði
Dikembe Mutumbo annarri þrennu
sinni í jafn mörgum leikjum. Hann
gerði 13 stig, tók 13 fráköst og
varði 11 skot. Reggie Williams gerði
24 stig.
Hakeem Olajuwon gerði 26 stig,
tók 13 fráköst og átti 10 stosend-
ingar þegar Rockets vann Golden
State með 134 stigum gegn 102.
Þetta var í áttunda sinn sem
Olajuwon nær í þrennu í leik. Nýt-
ingin var góð hjá Houston og má
sem dæmi nefna að vítahittnin var
100% og liðið hitti í 12 þriggja stiga
skotum af 16.
Enn tapar Dallas og nú fyrír
Utah. Dallas hefur nú tapað 18
leikjum af síðustu 19 og þetta var
í 14. sinn í röð sem Utah vinnur
Dallas. Karl Malone gerði 23 stig
og tók 10 fráköst og Felton Spenc-
er var með 17 stig og 14 fráköst.
Morgunblaðið/Bjami
Barist í Njarðvík í dag
Lið Grindvíkinga og Njarðvíkinga mætast öðru sinni í dag, í úrslita-
keppni um íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik karla. Grindvíkingar sigr-
uðu í fyrsta leiknum á heimavelli í fyrrakvöld og í dag beijast liðin í Njarð-
vík. Leikurinn hefst kl. 16. Viðureign Suðurnesjaliðanna á fimmtudag þótti
frábær; eftir að heimamenn höfðu haft yfirburði í fyrri hálfleik og haft 25
stiga forystu í leikhléi, hrukku Njarðvíkingar vel í gang eftir hlé og náðu
að komast yfir. Jafnt var að loknum hefðbundnum leiktíma, þannig að fram-
lengja þurfti en þá náðu Grindvíkingar að knýja fram sigur. Á myndinni
sést vel hve hart var barist á fimmtudag; það eru Njarðvíkingarnir Rondey
Robinson og Teitur Örlygsson (11) sem reyna að handsama knöttinn ásamt
einum Grindvíkinga.
Þess má geta að leikurinn í dag verður sýndur beint í Ríkissjónvarpinu.
RÚV sýnir síðari hálfleik beint í þriðja leik liðanna á þriðjudag. Einnig
verður sýnt frá fjórða og fimmta leik, ef svo marga leiki þarf til að fá
fram úrslit; sá fjórði fer þá fram nk. fimmtudag og sá fimmti á laugardag
eftir viku.
Rúnar úrskurðað-
ur í eins leiks bann
Rúnar Árnason, ieikmaður með Njarðvíkurliðinu, var í gær úrskurð-
aður í eins leiks bann af aganefnd Körfuknattleikssambandsins.
Rúnar var rekinn af velli í fyrri hálfleik gegn Grindvíkingum f fyrra-
kvöld, í fyrsta úrslitaleik liðanna, fyrir að hrinda Pétri Guðmundssyni
í gólfið. Bannið tekur strax gildi og Rúnar missir því af leiknum í
Njarðvík í dag.
Jón Otti hættir
Jón Otti Ólafsson körfuknattleiksdómari hefur ákveðið að hætta að dæma
eftir þetta keppnistímabil og í dag dæmir hann sinn síðasta leik, annan
leik UMFN og UMFG í úrslitum um Islandsmeistaratitilinn. Jón Otti dæmdi
sinn fyrsta leik árið 1961 og síðan þá hefur hann verið iðinn við kolann og
er búinn að dæma um 1.100 leiki. Jón Otti verður heiðraður að leik loknum
af KKÍ og Körfuknattleiksdeild KR, en hann lék með KR áður en hann
snéri sér að dómgæslu.
„Nú ætla ég að láta verða af því að hætta. Ég er búinn að tala um
þetta nokkuð lengi og nú hef ég ákveðið að hætta og þá verður ekki aftur
snúið,“ sagði Jón Otti við Morgunblaðið.
= 95 ára
haldin í íþróttahúsi KR
laugardaginn 16. apríl
Hátíðin hefst með fordrykk kl. 18.00
Bagökrá:
Afhencting helöursviðurkennlnga
Borðhaia við undirleik Reynis Jónassonar
á&kemmttatríöt:
Sönghópurinn Yrjurnar
örn Amason
Ræðumaður kvöldslns:
Sveinn Jónsson fyrrv. form. KR
cömlu Brýnin leika fyrir dansl fram á nótt
veislustjóri: Asbjörn Elnarsson
Miðaverð aðeins kr. 3000
Innifalið: Fordrykkur, 3 rétta máltíö og öorövin.
“■■i sala aðgöngumiða laugardaginn 9. apríl kl. 11-14
hb9b««. og.mánudaglnn 11. aprfl kl. 18-21. Samkvæmisklagönaður.
IVTT TlMABÍL ^ * * ’ í iifi U Ífíl * I r. C*
E
KNATTSPYRNA
Miðamir á HM-
leikina ijúka út
SALA á aðgöngumiðum að leikjum heimsmeistarakeppninnar
í knattspyrnu í Bandaríkjunum í sumar hefur gengið ákaflega
vel. Svo vel að Bandaríkjamenn — sem þykja nú ekki mestu
knattspyrnuáhugamenn heims — eru margir að vakna upp við
vondan draum og geta ómögulega fengið miða á leiki í heima-
borgum sínum, eða hafa ekki efni á þeim miðum sem bjóðast.
sé uppselt á flesta leikina er þó
enn hægt að ná sér í miða á svört-
um markaði. En þrátt fyrir að
þrír mánuðir séu fram að keppn-
inni hafa slíkir miðar þegar sex
til tífaldað upprunalegt verðgildi
sitt.
Von er á fjölmörgum áhangend-
um með landsliðunum, og þannig
er gert ráð fyrir að 70.000 Brasil-
íubúar fylgi sínu liði til San Franc-
isco og að minnsta kosti 15.000
Beigar mæti til Orlando. Og ekki
kemur á óvart að sæti eru á þrot-
um hjá flugfélögum dagana fyrir
keppni og eru ráðamenn þegar
farnir að leita úrráða til að sam-
göngur til og frá þessum níu leik-
borgum gangi sem best — og að
þeir sem engan áhuga hafa á
knattspyrnu verði fyrir sem
minnstu ónæði. , ,
01 u6«-a líBd ,ínu>iIijjf,-lDi ájri hl
Einar Falur
Ingólfsson
skrífar frá
New York
Keppnin hefst 17. júní og næstu
íjórar vikurnar þar á eftir
munu liðin 24 leika 52 leiki í níu
borgum. Að sögn
talsmanns fyrir-
tækisins sem ann-
ast hefur sölu á
bestu miðum á leik-
ina, þá hefur hún
gengið framar vonum. Þannig
voru allir miðar á þá leiki sem
verða í Washington uppseldir í
maí fyrir tæpu ári og sérstakir
„pakkar" með miðum á alla leikina
í viðkomandi borgum eru uppseld-
ir í þeim flestum. Og verðið er
ákaflega mismunandi, allt eftir því
hvar er leikið. Þannig eru fjórir
leikir í Michigan á 425 dollara,
meðan sjö leikir á Giants-leikvang-
inum utan við New York kosta
4.900 dollara, eða rúmlega
‘3‘5Ö.jj$0 k^ónpr. í>ótt 'oþinbpjjjéga
ÍÞRÚmR
FOLK
■ JEAN-Pierre Papin, franski
landsliðsmiðherjinn hjá AC Milan á
Ítalíu, hefur fengið tilboð frá Bay-
ern Miinchen í Þýskalandi. Þetta
kom fram í franska íþróttadagblað-
inu L’Equipe í gær. „Þegar maður
fær tilboð frá félagi eins og Bayern
er ekki hægt að hunsa það,“ sagði
Papin.
■ AC Milan keypti Papin frá
Marseille fyrir 8,5 milljónir dollara
en hann kveðst reikna með að félag-
ið sé tilbúið að láta hann fara fyrir
3,5 milljónir doilara. Enska félagið
Tottenham hefur einnig sýnt Papin
áhuga, en hann hefur átt erfitt upp-
dráttar hjá Milan.
I ÞYSKU landsliðsmennirnir Gu-
ido Buchwald — félagi Eyjólfs
Sverrissonar hjá Stuttgart — og
Uwe Bein hjá Frankfurt fara báð-
ir til Urawa Reds í japönsku 1.
deildinni fyrir næsta haust.
■ KATRIN Krabbe þýska frjáls-
íþróttakonan kunna, sem er í keppn-
isbanni vegna lyfjamisnotkunar,
missti fóstur á dögunum, á tíundu
viku meðgöngunnar.
Leiðrétting
Rangt var farið með nafn besta sóknar-
mannins á Iceland cup mótinu I handknatt-
leik í blaðinu á fimmtudaginn. Hann var
sagður heita Siguijón Ari en hið rétta er
hnitir Sigurgifir. Ánji, Ægiram.
' Beðist er velvirðingar á mistökunum.
.miriMin'Di