Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994
7
Forsvarsmenn Sióvár-Almennra og Vátryggingafélags íslands
Bjóðum ekki húsnæðis-
eigendum lakari kjör
EIGENDUM húsnæðis í Reykjavík mun bjóðast að kaupa bruna-
tryggingar á kjörum sem standast samkeppni við iðgjöld Húsa-
trygginga Reykjavíkur, að sögn framkvæmdastjóra Sjóvár-Al-
mennra og forstjóra Vátryggingafélags Islands.
Samkvæmt upplýsingum frá
Eyþóri Fannberg, forstöðumanni
hjá Húsatiyggingum Reykjavíkur,
er iðgjald af íbúðarhúsnæði 14%o
af brunabótamati. Það er innheimt
með fasteignagjöldum og nefnir
Eyþór sem dæmi að iðgjald af 10
milljóna króna eign sé 1.400 krón-
ur á ári. Ólafur Thors, fram-
kvæmdastjóri Sjóvár-Almennra,
segir að ekki liggi ljóst fyrir á
hvaða kjörum brunatryggingar
muni bjóðast húsnæðiseigendum í
Reykjavík en segir ljóst að þau
muni ekki verða óhagstæðari.
„Miðað við þær upplýsingar sem
borgin hefur látið frá sér sýnist
mér vera svigrúm til þess að bjóða
iðgjöld sem alls ekki yrðu óhag-
stæðari. Til dæmis mætti hnýta
saman innbústryggingu og bruna-
tryggingu," segir Olafur. Axel
Gíslason, forstjóri Vátryggingafé-
lags Islands, tekur í sama streng.
„Hinn almenni íbúðareigandi mun
ekki fá lakari kjör hjá okkur en
hann nýtur hjá borginni í dag. Við
erum fyllilega samkeppnisfærir,"
segir Axel.
Kappakstri
lauk með
sviptingu
TVEIR ökumenn voru stöðv-
aðir á Kringlumýrarbraut á
laugardagskvöld, eftir að
lögreglan hafði mælt hraða
bíla þeirra 136 km á klukku-
stund.
Á þeim kafla, þar sem öku-
mennirnir mældust á þessum
ofsahraða, er leyfilegur há-
markshraði 70 km. Ökumenn-
irnir höfðu hins vegar valið
þessa götu til að reyna með
sér, en þurftu báðir að bíta í
það súra epli, að vera sviptir
ökuskírteini sínu og fá þau
ekki aftur í hendur næstu mán-
uðina.
Sameining
felld í
staðahreppi
Bakkafjörður.
ÖNNUR kosning um samein-
ingu Vopnafjarðar og Skeggja-
staðahrepps var haldin 9. apríl
í Skeggjastaðahreppi. A kjör-
skrá voru 92 og þar af kusu
75 eða 82%. Nei sögðu 43 eða
57% þeirra sem kusu, já sögðu
32 eða 43% þeirra sem kusu.
Á Vopnafirði eru á kjörskrá 611
manns og þar af greiddu 294 at-
kvæði sem er 48% kosningaþátt-
taka. Nei sögðu 110 eða 37%
þeirra sem kusu, já sögðu 181 eða
62% þeirra sem kusu. Auðir og
ógildir seðlar voru þrír, eða 1%.
Að sögn séra Gunnars Sigurjóns-
sonar, oddvita Skeggjastaða-
hrepps, er hann mjög ánægður
með niðurstöðu kosninganna þar
sem með henni er eytt þeirri óvissu
sem uppi var með afstöðu íbúa
Skeggjastaðahrepps til sameining-
ar þessarar tveggja sveitarfélaga.
-----» ♦ ♦---
Stal dem-
antshring
RÚMLEGA tvítug stúlka var
síðdegis á föstudag staðin að
því að stela demantshring úr
skartgripaverslun við Lauga-
veg.
Stúlkan skoðaði hringi í
versluninni og setti verðlítinn
hring sinn í stað demantshrings í
sýningarkassa. Þjófnaðurinn upp-
götvaðist strax og var stúlkan
handtekin skömmu síðar og flutt
á lögreglustöðina.
-----♦ ♦ ♦---
Fjórir bílar
í árekstri
FJÓRIR bílar skullu saman á
mótum Hringbrautar og
Njarðargötu um kl. 15.15 á
sunnudag.
Áreksturinn var ekki mjög harð-
ur og sluppu allir sem í bílunum
DaupHIN
Heilsuverndarinn
Að baki góðu fyrirtœki er gott
og heilbrigt starfsfólk sem líður
vel. í því fólki liggur styrkur
fyrirtœkisins.
Það er því nauðsynlegt að
starfsfólkið sitji rétt í góðum stól
við vinnu sína.
Til að tryggja vellíðan
starfsfólksins viljum við þenda ó
Dauphin 2347 stólinn sem
heilsuverndara.
Dauphin 2347 skrlfstofustóllinn er
með samhœfðum stilllngum fyrir
setu og bak og er búinn öllum
kostum sem góðan skrifstofustól
mó prýða. Auk þess hefur
hönnuðunum tekist að
samrœma fallegt útlit frdbœru
notagildi.
Dauphin2347
býöst nú á aðeins kr.
39.873,-mv,k
Verö áður kr
%
60
c
*
FRA 1932
HÚSGÖGN
HALLARMÚLA 2, 108 REYKJAVÍK
813509 og 813211 FAX. 689315.
voru áp^mqið^. ^fnjrlétu hins. tj ijvAi l:
vegar nokkuð á sjá. t^ilról hoídqIoH íqIoH OO.OC .líiÍMÖt mny)IÓ
yu.t ionð2?Dnal íaesnóí. v * k l
00.^ .no22gnibyI niléS eúlð
u itic .uor.d .guoionor.ii . .nouyMK ga nu>iltn3 tðdodli :t'ó;iinU i icd i'bo
£0.31 qiovlúolöfmupsFQ £0.öf .no? .litlóbrtójimA <ifció4
r.auijv. ij
ibnfrii s! P0r?iubla8 acisl? hóit.iliðl