Morgunblaðið - 13.04.1994, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 1994
* # _ i * j j * Morgunblaðið/Sverrir
Arbæjarlaug bratt vigð
VERIÐ er að leggja síðustu hönd á framkvæmdir við nýju sundlaugina í Árbæjarhverfi og er reiknað með
að hún verði opnuð almenningi 1. maí næstkomandi, að sögn Erlings Þ. Jóhannssonar íþróttafulltrúa
Reykjavíkurborgar. Köldu vatni hefur verið hleypt í laugina svo að unnt sé að stilla hita- og hreinsibún-
að. „Þetta er mjög fullkominn búnaður og verktakar eiga að skila honum þannig að hann starfi rétt,“
sagði Erling. „Þess vegna er vatn í lauginni þegar búnaðurinn er reyndur."
VEÐURHORFUR í DAG, 13. APRÍL
YFIRL.IT: Skammt suður af Jan Mayen er 995 mb lægð sem hreyfist norðaustur.
Um 600 km suður af Hvarfi er 982 mb lægð sem hreyfist norður. Vestur af irlandi
er 1.035 mb hæð.
SPÁ: Vestanlands verður suðaustan stinningskaldi eða allhvasst og dálftil súld
með köflum. Suðaustantil verður suðvestan stinningskaldi og sums staðar dálftil
súld. Norðaustanlands verður sunnan kaldi og hætt vlð smé skúrum. Hlti verður
á bilinu 4-9 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Suðvestanátt, vfðast stlnningskaldi eða allhvasst. Skúr-
ir eða slydduél um vestanvert landið, en þurrt og víða léttskýjað um landið austan-
vert. Hiti á bilinu 1-4 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestanátt, allhvasst norðanlands, en kaldi eða stinnings-
kaldi syðra. Délitil slydduél vestanlands, en þurrt og bjart veður um austanvert
landið. Hiti 1-4 stig.
HORFUR A LAUGARDAG: Vestan- og norðvestanétt, víðast kaldl. Dáiítll súld við
vestur- og norðurströndina, en annars þurrt og víða léttskýjað. Hiti 3-6 stig.
o 'tik & ■PÉ> m Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig..
/ / / * / * * * * . ? * 10° Hitastig
/ / / / / * / / * / * * * * * V v V V “ !d
Rigning Slydda 7'— Snjókoma Skúrír Slydduél El = Þoka '
FÆRÐÁ VEGUM: (Kl. 17.30fgær)
Á Vestfjörðum er ófært um Kleifeheiði, Háffdán og um Steingrimsfjarðarheiði, en
þungfært er um isafjarðardjúp. Breiöadatsheiði er fær en Bptnsheiði er ófær. Fært
er um Holtavörðuheiði, en þungfært er til Siglufjarðar. Á Öxnadalsheiði er nokkur
skafrennlngur. Möðrudalsöræfi éru ófær og færð farin að þyngjast á Fjarðarheiði,
á Oddskarði er skafrenningur.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti f sfma 91 -631BOO og ó grænni
línu, 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 3 úrkoma
Reykjavlk 3 léttskýjað
Bergen 8 skýjaö
Helsinki 12 léttskýjað
Kaupmannahöfn 13 léttskýjað
Narssaresuaq 1 skýjað
Nuuk +6 léttskýjað
Ósló 11 léttskýjað
Stokkhólmur 14 léttskýjað
Þórahöfn 6 skúrír
Algarve 20 heiðskírt
Amsterdam 13 léttskýjað
Barcelona 16 léttskýjað
Berlín 14 alskýjað
Chlcago 6 rigning
Feneyjar 11 alskýjað
Frankfurt 12 skýjað
Glasgow 10 úrkoma
Hamborg 12 skýjað
London 12 alskýjað
Los Angeles 15 skýjað
Lúxemborg 6 þokumóðe
Madríd 14 heiöskírt
Malaga vantar
Mallorca 17 léttskýjað
Montreal 3 skýjað
NewYork 9 alskýjað
Orlando 20 Iéttskýj8ð
París 12 skýjað
Madeira 16 skýjað
Róm 12 skýjað
Vín 6 alskýjað
Washington 11 alskýjað
Winnipeg 2 léttskýjað
Borgarráð um brunatryggingar
Húseigendum verði
heimilað að kaupa
tryggingar af öðrum
BORGARRÁÐ hefur samþykkt umsögn borgarritara um frumvarp til
laga um brunatryggingar. Lagt er til að þrátt fyrir ákvæði í lögum
frá 1954 um brunatryggingar í Reykjavík verði húseigendum heimilt
að tryggja hjá öðrum aðiia.
í umsögn Jóns G. Tómassonar
borgarritara segir að vegna samn-
ings um Evrópskt efnahagssvæði sé
talið nauðsynlegt að fella niður
einkarétt Reykjavíkurborgar á
brunatryggingum í Reykjavík. Fram
kemur að undanþága Reykjavíkur-
borgar á rekstri Húsatrygginga
Reykjavíkur gildi að öðru leyti áfram
gagnvart EES-samningnum. Því sé
óeðlilegt og óþarft að fella ákvæði
iaga úr gildi og setja ákvæði um
starfsemi Húsatrygginga Reykjavík-
ur í bráðabirgðaákvæði eins og gert
er í frumvarpinu.
Lagt er til að heiti frumvarpsins
verði „Frumvarp til laga um bruna-
tryggingar utan Reykjavíkur“. Þá er
lagt til að sett verði inn ákvæði um
að þrátt fyrir ákvæði laga um bruna-
tryggingar í Reykjavík verði húseig-
endum í Reykjavík heimilt að tryggja
hjá öðrum aðila. Jafnframt að hús-
eigendur skuli í síðasta lagi fyrir 30.
nóvember tilkynna Húsatryggingum
Reykjavíkur skriflega, hyggist þeir
flytja þessar tryggingar til annars
félags frá næstu áramótum. Tilkynn-
ingu um uppsögn skal fylgja stað-
festing vátryggingafélags þess efnis
að stofnað hafi verið til lögboðinnar
brunatryggingar frá og með 1. jan-
úar næsta ár. Að öðrum kosti fram-
lengist vátryggingin tii eins árs í
senn.
Tvísköttun
Borgarritari vekur athygli á að
samkvæmt 2. gr. frumvarpsins skal
Fasteignamat ríkisins annast virð-
ingu skylduvátryggðra húseigna.
Starfsmenn vátryggjandans meta
tjón vegna eldsvoða. Vegna Húsa-
trygginga er hins vegar nauðsynlegt
að dómkvaddir matsmenn meti tjón
vegna eldsvoða. Rökrétt væri því að
sömu aðilar meti virðingarverðið.
Bent er á að fyrirhugað sé að allir
húseigendur verði krafðir um árlegt
gjald til að standa undir kostnaði við
framkvæmd virðingargjörðar hjá
Fasteignamati ríkisins. Af öllum hús-
eignum I Reykjavík hefur þegar ver-
ið greitt virðingargjald og því yrði
um tvísköttun að ræða vegna hús-
eigna sem þegar væru í mati.
Skoðanakönnun Gallup fyrir RÚV
Meirihluti hlynntur
viðræðum við ESB
SJÖ af hverjum tíu kjósendum vilja að íslendingar hefji viðræður
um aðild að Evrópusambandinu (ESB) og nýtur sú skoðun fylgis
meirihluta kjósenda allra stjórnmálaflokka, samkvæmt könnun sem
Gallup vann fyrir Ríkisútvarpið. Fylgi stjórnarflokkanna er nú meira
en verið hefur í könnunum Gallup undanfarið eitt og hálft ár og
njóta þeir stuðnings yfir 47% kjósenda.
Gallup kannaði hug kjósenda til
stjórnmálaflokka og aðildarvið-
ræðna við ESB. Þrír af hveijum
fjórum kjósendum Sjálfstæðisflokks
og Alþýðuflokks vilja helja viðræð-
ur um aðild. Sömu afstöðu tóku 63%
kjósenda Kvennalistans, um 60%
kjósenda Framsóknarflokksins og
54% kjósenda Alþýðubandalags.
Konur virðast hlynntari ESB en
karlar, 76,5% kvenna vilja hefja
viðræður en 64% karla.
Stjórnarflokkar styrkjast
Kvennalistinn hefur tapað mest-
um stuðningi frá því í síðustu könn-
un Gallup, eða um þriðjungi, og
mælist nú með 13% fylgi. Alþýðu-
bandalagið hefur einnig misst fylgi
og mælist með 12,5%. Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur bætt stöðu sína
og hlýtur nú mesta stuðnings sem
mælst hefur hjá Gallup í 18 mán-
uði eða 38%, Framsóknarflokkurinn
bætti einnig stöðu sína og naut
stuðnings 26,5% kjósenda og Al-
þýðuflokkurinn hefur 9% fylgi.
------» ♦ ♦----
Arekstur á
Breiðadalsheiði
TVEIR bílar skullu saman á
Breiðadalsheiði uppúr miðjum
degi í gær. Þrennt var flutt á
Sjúkrahúsið á ísafirði með minni-
háttar meiðsl og fékk að fara
heim að lokinni rannsókn.
Slysið varð með þeim hætti, að
tveir bílar, er komu úr gagnstæðri
átt, óku framan á hvor annan í
snjógöngum á heiðinni. Bílarnir eru
taldir ónýtir.
Nafnlaust áheit barst í pósti
RITSTJÓRA Morgunblaðsins barst í gær umslag sem innihélt 101
þúsund króna áheit til Strandarkirkju. I umslaginu var bréf, undirritað
N.N., með ósk um að peningunum yrði komið til skila. Morgunblaðið
mun að sjálfsögðu verða við þeirri ósk, en vill ítreka að það hefur
ekki lengur milligöngu um að koma áheitum til Strandarkirkju. Er
fólki bent á að snúa sér til skrifstofu bj|kups.