Morgunblaðið - 13.04.1994, Side 16

Morgunblaðið - 13.04.1994, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRIL 1994 Náttúra íslands — vannýtt auðlind eftir Sigvalda Asgeirsson Fjallað er um ýmsa möguleika til atvinnusköpunar, sem landið sjálft býður upp á. Landbúnaður á íslandi gæti átt sér bjarta framtíð, sé vel haldið á spöðum. Fjölbreytni at- vinnulífs þarf að aukast. Orkufrekur iðnaður — eina úrræðið? Á tímum minnkandi fiskgengdar og samdráttar í landbúnaði er eðli- legt að svipast sé um eftir nýjum auðlindum. í mörg ár hafa orkulind- imar verið taldar helsta von okkar Islendinga, þegar leitað er nýrra útflutningsleiða. Ekki verður séð, að annað álver geti talist ný stoð undir fábreytt atvinnulíf lands- manna. Auðvelt er að ímynda sér, hvílíkt áfall verðfall á áli undanfar- inn áratug hefði verið, ef hér á landi væri ekki aðeins ein álverksmiðja, heldur tvær eða þijár. Vissulega er auðveldara að benda á einn stóriðjukost en hundrað hug- myndir um smárekstur. Málið snýst um ólík grundvallarsjónarmið: Ann- ars vegar þeirra, sem trúa á forsjá einhverrar stóru mömmu, hvort sem hún heitir ríkið eða erlendur auð- hringur — hins vegar þeirra, sem hafa trú á hugmyndaauðgi og kunn- áttu fjöldans. Vatnsútflutningair Orkufrekur iðnaður er oftar en ekki slæmur mengunarvaldur. Hag- nýting ferskvatnsbirgða okkar Is- lendinga hlýtur í framtíðinni að beinast fremur að útflutningi drykkjarvatns en raforku. Utflutn- ingur raforku um sæstreng er ör- þrifaráð hugmyndasnauðra verk- fræðinga, sem hugsa fyrst og fremst um eigið skinn. Hvemig skyldi verða umhorfs á hálendinu, ef víraflækja frá virkjunum verður algengasta kennileitið þar um slóðir? Ifyrirsjá- anlega verða líka miklir sandstorm- ar fyrrihluta sumars á þurrum eyr- um söfnunarlóna víðs vegar um hálendið, ef villtustu draumar verk- fræðinga rætast. Nauðsynlegt er að gera strax ráð- stafanir til að hindra mengun þeirra vatnslinda, sem geta í framtíðinni reynst efnahag íslendinga jafnmikil- vægar, og olían er Norðmönnum í dag. Aðrar þjóðir Norður- og Vestur- Evrópu eiga nóg af menguðu vatni. Sérstaða Islands felst í ómenguðum ferskvatnslindum. Kjötútflutningur Kjötútflutningur var í mörg ár þungur baggi á skattborgurum. Eitthvað virðist vera að rofa til í þeim efnum. Er nú rætt um útflutn- ing á vistvænu kjöti. Ekki getur kjöt talist vistvænt, sé það framleitt í ofsetnum úthaga. Þetta þarf að hafa í huga, annars gæti ævintýrið endað illa. Þjóðum A-Asíu vex ört ásmegin efnahagslega. Samfara bættum efnahag mun kjötát aukast þar um slóðir. Þessar fjölmennu þjóðir fara létt með að éta allt það kjöt, sem hægt er að framleiða í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi. Þetta, ásamt GATT-samningum, gæti gert kjöt- útflutning frá Islandi ábatasaman, fyrr en varir. Bændur þurfa að geta aukið kjötframleiðslu í framtíðinni. Þess vegna er nauðsynlegt að auka uppskeru úr úthaga. Landgræðsla og lúpína Því aðeins verður hægt að auka uppskeru úthaga svo um munar, að mönnum leyfist að nota lúpínu til landbóta, enda allar aðrar leiðir margfalt dýrari. Of seint er að hefja landbætur, þegar möguleikar á kjötúflutningi blasa orðið við, því slíkar aðgerðir taka mörg ár. Mikil- vægt er, að leggja til hliðar þá for- dóma í garð lúpínunnar, sem nokkur hópur líffræðinga hefur reynt að breiða út. Hætt er við, að þetta góða fólk geri sér enga grein fyrir því, hversu dýrt það yrði þjóðinni, að bíða þess, að þeim takist að sanna hið augljósa: Áð lúpína er Iand- nemi, sem víkur fyrir öðrum gróðri eftir ákveðinn tíma. Ég fæ ekki betur séð, en að for- dómar lúpínuandstæðinga séu af sama toga og málflutningur græn- friðunga í málefnum sædýra. Um- ræðan er af trúarlegum toga, þar sem blandað er saman hálfsannleik og tilfinningum. Gjörsamlega er sneitt hjá grundvallarspumingum eins og: Hvenær teljast jurtir ís- lenskar? Er lúpínan óíslensk, af því hún er há og blá, en snarrótin og baunagrasið þjóðlegar tegundir. Baunagrasið er jú bæði lágvaxið og blátt, en snarrótin há og grá. Margt bendir til þess, að allar þessar teg- undir hafi komið til landsins eftir landnám. Sömuleiðis leggur þetta fólk mik- ið uppúr tegundafjölda, en gerir minna úr mikilvægi uppskeru- magns. Samt er ljóst, að t.d. í frið- uðum birkiskógi em oftast mun færri tegundir en á örfoka melum. Er melagróður þá æskilegri og eðli- legri „villigróður" á íslandi en birki- skógur? Em melar og móar upp- runaleg gróðursamfélög á láglendi eða hafa þessi gróðursamfélög þró- ast, eftir að maðurinn kom til ís- lands með búsmala sinn? Gaman væri, ef verðir ósnertrar náttúm svömðu þessum og viðlíka spuming- um, en legðu til hliðar, í bili a.m.k., hálfsannleik og tilfinningavellu með tilheyrandi nornaveiðum. Úrgangur til uppgræðslu Hægt væri að nota nær allan líf- rænan úrgang á íslandi til upp- græðslu lands. Einkum hentar seyra vel til skógræktar. Áburðaráhrifin em langvinn og ókostir fáir. Reynd- ar fylgir slíkri nýtingu talsverður flutningskostnaður. íslendingar em skuldbundnir, skv. tilskipun EBE nr. 271 frá 1991, til að hreinsa frá- rennsli frá mörgum stórum þéttbýl- issvæðum, þ.m.t. höfuðborgarsvæð- inu. Erlendis er enginn kostur talinn jafnhagstæður og skógrækt, þegar leitað er leiða til að losna við þenn- an úrgang. Seyru og lífrænt sorp má líka nota til að framleiða gróðurmold, þ.e.a.s. ef ekki er of mikið af þung- Sigvaldi Ásgeirsson „Verið er að stórauka skógrækt í landinu. Er stefnt að því, að 2-3% landsins verði skógi- vaxin eftir 100 ár. Helst þyrfti að setja markið hærra. I nágrannalönd- um okkar er skógurinn víða mikilvægasta nátt- úruauðlindin, t.d. Finn- landi. Skógrækt leggur grunn að fjölbreyttara atvinnulífi í framtíð- inni.“ málmum saman við. Leitt er til þess að vita, að á Suðurnesjum, þar sem skortur á gróðurmold er landlægur og mikið atvinnuleysi, skuli mestall- ur lífrænn úrgangur, m.a.s. frá svína- og alifuglabúum, hafna í sjónum. Skógrækt Á íslandi er loftslag með þeim hætti, að eðlilegur ríkjandi gróður á láglendi væri barrskógur. Við til- heyrum sumsé barrskógabeltinu. Áður fyrr uxu hér á landi víðlendir barrskógar, en þessar tegundir týndu tölunni, á kuldaskeiðum ís- alda. Var svo komið, er síðustu ís- öld lauk, að einungis einir var eftir af barrviðum. Fjarlægðin til næstu meginlanda var orðin of mikil, til þess að fræ slíkra tegunda gætu borist hingað af sjálfdáðum. Um síðustu aldamót var farið að fíkta við innflutning barrviða. Eru nú fundnar tegundir og afbrigði, sem virðast. henta vel og ættu að geta myndað stórvaxna skóga hér á landi. Margar þessara tegunda gefa nú þegar af sér nóg fræ til að fullnægja allri þörf skógræktar í landinu. Undanfarin tvö haust hefur verið tínt talsvert fræ af sitka- grenitijám, sem sjálf uxu upp af íslensku fræi. Verið er að stórauka skógrækt í landinu. Er stefnt að því, að 2-3% landsins verði skógivaxin eftir 100 ár. Helst þyrfti að setja markið hærra. í nágrannalöndum okkar er skógurinn víða mikilvægasta nátt- úruauðlindin, t.d. bæði í Svíþjóð og Finnlandi. Skógrækt leggur grunn að fjölbreyttara atvinnulífí í framtíð- inni. Erlent fjármagn til skógræktar? Á skógrækt er líka önnur hlið. í skógi, sem upp vex á skóglausu landi, binst koltvísýringur. Sú loft- tegund er talin stuðla hvað mest að gróðurhúsaáhrifum. Mörg erlend stórfyrirtæki, sem menga andrúms- loftið með iðju sinni, vilja gjarnan bæta ímynd sína með aðgerðum, sem vinna gegn gróðurhúsaáhrifum. Sérstaklega er horft til skógræktar í þessu sambandi. Þessi áhugi fyrirtækja er svo út- breiddur, að stofnað hefur verið inn- an Alþjóðabankans sérstakt ráð, „The Global Environmental Facil- ity“, sem á að veita fjármagn frá þessum aðilum til styrktar skóg- rækt, sem er á mörkum þess að vera arðbær. Framtíðarnefnd forsætisráðherra (úr ráðherratíð Steingríms Her- mannssonar) gerði könnun á arð- semi skógræktar til timburfram- leiðslu á kjörsvæðum á íslandi. Nið- urstaða þeirrar könnunar leiddi í ljós arðsemi upp á 2-3% (Einar Gunnarsson, Edgar Guðmundsson og Ragnar Ámason, sérrit Skóg- ræktar ríkisins 1987). Ég hygg, að góðar líkur séu á því, að fyrrgreint ráð hjá Alþjóða- bankanum gæti lánað íslendingum allt það fé, sem við þurfum til skóg- ræktar, með 2% vöxtum. Ólíklegt er, að betri kjör bjóðist á erlendum lánamörkuðum! Höfundur er skógfræðingur. Toyotan var ekki ein í Köln eftir Snorra Ingimarsson Nýlega var haldin ein stærsta jeppasýning Evrópu í Köln í Þýska- landi. Þar voru sýndir tveir breyttir íslenskir jeppar sem áhugamaður um velgengni þeirra skellti ég mér á sýninguna til að sjá hana með eigin augum. Sýningin var hin áhugaverðasta og íslensku jeppamir vöktu óhemju mikla athygli. Reynd- ar voru ekki undirritaðir neinir sölu- samningar þrátt fyrir miklar vænt- ingar en báðir aðilar telja sig hafa náð góðum viðskiptasamböndum sem muni leiða til viðskipta. Þegar ég kom heim, beið sunnudagsmogg- inn með furðulega lýsingu Reynis Jónssonar verslunarstjóra aukahlut- deildar Toyota, af sýningunni. Ann- að hvort hefur Reynir ekkert skoðað sýninguna eða hann fer vísvitandi með rangt mál. Meðai annars er haft eftir Reyni, orðrétt: „Það er mikið af breyttum bílum hérna en það er ekki líklegt að hægt verði að aka nokkrum þeirra og enginn er skráður á þýsk númer annar en HiLux-inn. Hinir bílarnir hafa ekki farið í gegnum sérskoðun og fengju því ekki skrán- ingu. Það sem okkar bíll býður upp á umfram aðra bíla á sýningunni er að það er hægt er að keyra hann og hann stenst allar þýskar reglur í sambandi við bifreiðaskoðun." Þetta er alrangt. „Þaö er furðulegt að sjá Reyni Jónsson, sem er meðlimur í Ferða- klúbbnum 4x4 og telur sig væntanlega til ís- lenskra j eppamanna, reyna að slá Toyota á íslandi til riddara í Morgunblaðinu fyrir að selja jeppa á erlendri grund og beita fyrir sig ýkjum og ósannindum.“ Hið sanna er að Toyota-jeppinn frá ísfari var ekki á þýskum númer- um á sýningunni. Áð sögn Jóns Baldurs Þorbjörnssonar, eins af sölumönnum Isfars, er hann ekki kominn með TUV viðurkenningu sem mun vera forsenda fyrir þýskri skráningu, hins vegar sé líklegt að hún fáist. Því er óskiljanlegt hvaða þýsku skráningu hefur verið hamp- að. Þama var líka Ford Econoline, í eig^u félaga í Ferðaklúbbi 4x4, breyttur á íslandi, með íslenska sér- skoðun og á íslenskum númerum. Honum hefur verið ekið um landið og yfir jökla undanfarin tvö ár. Miðað við viðtökurnar og sam- Snorri Ingimarsson anburð við breytta jeppa með þýska skráningu er næsta öruggt að þessi jeppi fengi þýska skráningu. Orð Reynis eru því meira en ýkjur, hann ber lygar að Morgunblaðinu. Til dæmis segir Reynir að enginn annar breyttur jeppi hafi verið með skráningu. Reynir er heppinn að þessi orð em birt á íslensku sem fáir Þjóðveijar skilja, því þama var fjöldinn allur af meira og minna breyttum jeppum og margir á þýsk- um númemm. Sá sem var einna mest breyttur var Jeep á 15-39/18 Mickey Thompson hljólbörðum, með 3 sm hliðrunarhring undir 14“ Alcoa felgunum og 15 sm hækkun á yfir- byggingu. Hann var með þýsk núm- er og að sögn forsvarsmanna með TUV viðurkenningu! Hann var til sölu á 144.000 þýsk mörk sem er nálægt 6.000.000 íslenskra króna. Það eitt að þessi jeppi skyldi vera á þýskum númemm, sýnir okkur svart á hvítu að gæði íslensku jeppa- breytinganna em langt umfram það sem gerist í Evrópu. Virðing mín fyrir TUV hrapaði mikið á þessari sýningu og að mér læddist sá gmn- ur að sú fullkomna Evrópuveröld sem svo mikið hefur verið vitnað til undanfarið sé kannski ekki svo full- komin þegar betur er að gáð. Það er furðulegt að sjá Reyni Jónsson, sem er meðlimur í Ferða- klúbbnum 4x4 og telur sig væntan- lega til íslenskra jeppamanna, reyna að slá Toyota á íslandi til riddara 1 Morgunblaðinu fyrir að selja jeppa á erlendri gmnd og beita fyrir sig ýkjum og ósannindum. Það em fleiri en Toyota aukahlutir sem standa að útflutningi Toyota jeppans og það em fleiri aðilar sem vinna að' útflutningi íslensku jeppanna, þeirra hlutur gleymist til dæmis alveg í umfjöllun Morgunblaðsins. í rauninni er það jeppaáhugafólk- ið í Ferðaklúbbnum 4x4 sem fann upp íslensku jeppana. Og nú em þeir að verða raunhæf útflutnings- vara. Á undanförnum 20 ámm hafa íslensku ,jeppastrákarnir“ unnið að þróuninni, án opinberrar aðstoðar og lengst af í erfíðri baráttu við þröngsýni yfírvalda. Margir lögðu hönd á plóginn og með seiglunni hafðist það að lokum. Samhliða þessu hafa þróast inn- flutningsfyrirtæki og breytinga- verkstæði sem samtals skapa hundmðum manna á íslandi at- vinnu. Á allra síðustu ámm hafa stærri fyrirtæki sem lengi vel vildu ekkert við fmmkvöðlana styðja, séð sér hag í að byggja upp eigin auka- hlutadeildir. Áð einhveiju leyti er þetta góð þróun því útflutningur íslensku jeppanna er aðeins á færi aðila sem hafa bolmagn til að leggja mikið af mörkum. Og góður árang- ur íslenskra fyrirtækja, í eigu Is- lendinga, er sigur okkar allra. En heiðurinn er fmmheijanna í Ferða- klúbbnum 4x4 og því skyldi Reynir Jónsson verslunarstjóri aukahluta- deildar Toyota, ekki reyna að breyta. Full ástæða er til að vara við of mikilli bjartsýni eða einhveiju gull- æði á þessu sviði. Enn hefur enginn bíll selst og tæknimenn erlendra breytingafyrirtækja voru áhuga- samir að kynna sér vinnubrögð og búnað í íslensku jeppunum. Forskot Islendinga og útflutningur í ein- hveijum mæli er því sýnd veiði en ekki gefín, en hvað sem gerist á þessu sviði í framtíðinni er athyglin sem íslensku jepparnir vöktu í Þýskalandi mikill sigur fyrir ís- lenska jeppamenn. Höfundur er verkfræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.