Morgunblaðið - 14.04.1994, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRIL 1994
51
IÞROTTIR
Jón Kr. Gíslason
íþróttamaður Suðurnesja
JÓN Kr. Gíslason körfuknatt-
leiksmaður hefur verið valinn
íþróttamaður Suðurnesja fyrir árið
1993. Að kjörinu stóðu íþrótta-
bandalag Keflavíkur og íþrótta-
bandlag Suðurnesja. Auk þess voru
valdir íþróttamenn Suðurnesja í 10
íþróttagreinum.
Þetta er í sjötta árið sem íþrótta-
maður Suðurnesja er valinn en tvö
síðustu ár hefur Karen Sævarsdótt-
ir kylfingur hlotið titilinn. Þetta er
í annað sinn sem Jón Kr. hlýtur
þessa viðurkenningu. í öðru sæti í
kjörinu um íþróttmann ársins varð
Eydís Konráðsdóttir sundkona sem
nú er komin í frenlstu röð og sett
íjölda íslandsmeta. Karen Sævars-
dóttir hlaut þriðja sætið að þessu
sinni. Aðrir sem hafa borið þennan
titil eru Eðvarð Þór Eðvarðsson Jón Kr. Gíslason íþróttamaður ársins á Suðurnesjum, enið lilið hans
sundmaður og Sigurður Bergmann stendur Eydís Konráðsdóttir sem varð í örðu sæti. Karen Sævarsdótt-
júdómaður. » ir sein varð þriðjá er ytra við nám.
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Nirvana var skipuð þeim Krist Novoselic, Kurt
Cobain og David Grohl.
UTGAFA
Plötur Nirvana
taka sölukipp
In Utero, nýjasta plata rokkhljómsveitarinnar Nirvana
hefur tekið sölukipp eftir lát söngvarans Kurts
Cobains í síðustu viku. „In Utero“ kom í kjölfar plötunn-
ar „Nevermind,“ sem seldist í milljónum eintaka árið
1991 þegar hún var gefin út. Hins vegar urðu nokkur
vonbrigði með viðtökur „In Utero“, því einungis seld-
ust tæplega tvær milljónir eintaka af henni í Bandaríkj-
unum þegar hún kom út í fyrrahaust. Þá hafa eldri
plötur hljómsveitarinnar einnig selst mjög vel undan-
farna viku og munu það einkum vera safnarar sem
hafa keypt þær.
Felco greinaklippurnar
á einstöku vikutilboði
meðan birgðir endast.
Fagmennirnir þekkja svissnesku Felco klippurnar.
Þær eru eru vandaöar og sterkar og fást í mörgum
stæröum og gerðum. Vinsælu Felco klippurnar nr. 4 fást
nú á sérstöku vikutilboði aöeins kr. 2.189- (áður 2.737-)
Aðrar gerðir eru á sértilboði.
FELCO klippur nr. 4, aöeins kr. 2.189-
Verslun athafnamannsins frá 1916
ÞAU
SKERA SIG ÚR!