Morgunblaðið - 23.04.1994, Side 1
72 SIÐUR B/LESBOK
STOFNAÐ 1913
90. tbl. 82. árg.
LAUGARDAGUR 23. APRIL 1994
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Rabin boðar tilslökun í deilunni um hernumdu svæðin
Býðst til að flytj a
landnemana burt
Jerúsalem. Reuter, The Daily Telegraph.
YITZHAK Rabin, forsætisráðh'erra ísraels, sagði í gær að til
greina kæmi að flytja ísraelska landnema frá öllum hernumdu
svæðunum ef það mætti verða til þess að tryggja frið. Rabin
hafði daginn áður valdið uppnámi á meðal landnema á Gólan-hæð-
unum með því að lýsa yfir því að þeir kynnu að verða fluttir á
brott þaðan. Forsætisráðherrann sagði í gær að þetta ætti einnig
við um landnema á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum.
Rabin sagði að hann væri aðeins
að árétta fyrri ummæli sín og
kvað frið mikilvægari fyrir ísraela
en byggðir landnema.
Hægrimenn í ísrael og land-
nemar á hemumdu svæðunum,
sem eru alls um 100.000, brugð-
ust ókvæða við yfirlýsingu forsæt-
isráðherrans. „Ummæli Rabins
eru til marks um algjöra uppgjöf
Gekkán
aðstoðar
á Pólinn
Ósló. Reuter.
NORÐMAÐURINN Borge
Ousland varð í gær fyrstur
manna til að ganga einn síns
liðs á Norðurpólinn og án
nokkurrar aðstoðar.
Margir hafa komist á Norð-
urpólinn frá því Bandaríkja-
mennirnir Robert Peary og
Matthew Henson fóru þangað
á hundasleðum árið 1909.
Norðmaðurinn er hins vegar
fyrstur til að komast þangað
einn og án hundasleða, vél-
sleða eða matvælasendinga
frá flugvélum.
Ousland gekk á skíðum og
leiðin er um 1.000 km. Ferðin
tók 52 daga.
veiks forsætisráðherra," sagði
talsmaður Líkud-flokksins.
Ummælin koma hins vegar á
góðum tíma fyrir Warren Christ-
opher, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, sem heldur í sína fjórðu
ferð til ísraels og arabaríkjanna á
sunnudag. í ráði er að Christopher
ræði meðal annars við Hafez al-
Assad, forseta Sýrlands, enda
leggur Bandaríkjastjórn ríka
áherslu á að fá Sýrlendinga til að
hefja friðarviðræður við ísraela
að nýju. Stjórn Sýrlands hefur
krafist þess að Israelar flytji alla
landnema og hermenn sína frá
Gólan-hæðunum.
Reuter
Harmur á Vesturbakkanum
UNGUR ísraeli á Vesturbakkanum leggst á gröf bróður síns sem
beið bana í árás múslimsku öfgasamtakanna Hamas, sem eru andvíg
friðarsamkomulagi ísraela og Frelsissamtaka Palestínumanna (PLO).
Atlantshafsbandalagið setur Bosníu-Serbum úrslitakosti
Hótar loftárásum á
umsáturslið Serba
Sarajevo. Reuter.
ATLANTSHAFSBANDALAGIÐ (NATO) setti Bosníu-Serbum úrslita-
kosti í gær og hótaði loftárásum á umsáturslið þeirra í grennd við
múslimaborgina Gorazde ef það hætti ekki stórskotaárásum sínum
tafarlaust og færi ekki að minnsta kosti þrjá kílómetra frá borginni
fyrir miðnætti í kvöld.
Mandela boðar markaðshyggju
Reuter
Nelson Mandela, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, flutti ræðu í kauphöllinni í Jóhannesarborg í gær og kvaðst
stefna að hagkerfi sem yrði byggt á grundvallarreglum markaðshyggjunnar. Hann kvað helsta markmið
sitt að tryggja stöðugleika í efnahag landsins. *
NATO samþykkti einnig að veija
með sama hætti fjögur önnur griða-
svæði, borgirnar Srebrenica, Tuzla,
Bihac og Zepa.
„Grimmdarlegar, villimannslegar
árásir á varnarlausa borgara eru
svívirða," sagði Manfred Wörner á
blaðamannafundi þegar hlé var gert
á fundi sendiherra NATO. „Við höf-
um ákveðið að krefjast þess að
Bosníufht-Serbar hætti árásunum
tafarlaust, ég endurtek tafarlaust."
Wömer sagði að ef Serbar yrðu
ekki við kröfum bandalagsins myndi
það hafa alvarlegar afleiðingar fyrir
þá. Ef þeir færu ekki að minnsta
kosti þijá kílómetra frá Gorazde fyr-
ir miðnætti í kvöld, eða ef þeir hindr-
uðu störf friðargæsluliða eða flutn-
inga á særðu fólki frá borginni, ættu
þeir yfir höfði sér loftárásir á þunga-
vopn og fleiri hernaðarskotmörk í
allt að 20 km fjarlægð frá borginni.
Bandalagið gaf Serbum einnig
frest til miðnættis á þriðjudag til að
fiytja lið sitt a.m.k. 20 km frá
Gorazde.
Serbneska umsátursliðið hélt
áfram hörðum stórskotaárásum á
Gorazde meðan á fundi NATO stóð.
Tugir manna biðu bana í gær og
talsmaður Rauða krossins í Sarajevo
sagði að 97 manns hefðu fallið í árás-
unum á fimmtudag, en það er mesta
mannfallið í borginni á einum degi
frá því umsátrið hófst fyrir þremur
vikum. Árásirnar hafa kostað 486
manns lífíð og 1.467 hafa særst.
Yasushi Akashi, sérlegur erindreki
Sameinuðu þjóðanna i Bosníu, ræddi
við Radovan Karadzic og fleiri leið-
toga Bosníu-Serba í Belgrad í gær.
Akashi sagði í gærkvöldi að Serbarn-
Reuter
Serbar fordæmdir
MANFRED Wörner, fram-
kvæmdastjóri NATO, var óvenju
harðorður í garð Bosníu-Serba
þegar hann kynnti úrslitakosti
bandalagsins í gær.
ir hefðu fallist á vopnahlé í Gorazde
frá hádegi í dag.
Wömer kvaðst hafa skýrt Boutros
Boutros-Ghali, framkvæmdastjóra
Sameinuðu þjóðanna, frá ákvörðun
NATO og hann hefði samþykkt að-
fela erindreka sínum að færa
Bosníu-Serbum skilaboðin. Rússn-
esku stjórninni hefði einnig verið
skýrt frá úrslitakostunum.
Framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna þarf að veita heimild fyrir
fýrstu árásinni og Wörner kvaðst
sannfærður um að Boutros-Ghali
myndi gera það ef Serbar færu ekki
að kröfum NATO.