Morgunblaðið - 23.04.1994, Side 2

Morgunblaðið - 23.04.1994, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 Karl Bretaprins heiðrar Orra Vigfús- son fyrir laxavernd London. Prá Ólafi Þ. Stephensen, frcttaritara Morgunblaðsins. KARL prins af Wales heiðraði Orra Vigfússon framkvæmdastjóra með fátíðum hætti fyrir störf hans að vernd Atlantshafslaxins, síðast- liðið fimmtudagskvöld. Prinsinn hélt móttöku i höll sinni, St. James’s Palace, til heiðurs Orra og Norður-Atlantshafslaxasjóðnum, sem starfað hefur að því að stöðva laxveiðar í sjó meðal annars með því að kaupa upp laxakvóta. Ríkisarfinn afhenti Orra styttu í viðurkenn- ingarskyni fyrir brautryðjendastarf hans á þessu sviði, en Orri er stofnandi og helzti frumkvöðull sjóðsins. Orri Vigfússon hefur haft frum- kvæði um það síðastliðin fimm ár að laxveiði- menn frá löndum, þar sem Atlants- hafslax gengur í ár, sameinist um að kaupa upp Karl Prins laxakvóta Fær- eyinga og Grænlendinga. Norður- Atlantshafslaxasjóðurinn beitti sér einnig fyrir því að laxveiðar danskra báta undir hentifána á alþjóðlegum hafsvæðum yrðu stöðvaðar, og að lagningu rekneta við Bretland yrði hætt. Prinsinn af Wales er mikill lax- veiðimaður og hefur meðal annars margoft veitt lax á íslandi. Hann er verndari tvennra helztu samtaka stangveiðimanna í Bretlandi, The Salmon and Trout Association og The Atlantic Salmon Trust. Til móttökunnar í St. James’s Palace var boðið um 100 manns, sem tengzt hafa átakinu um að stöðva laxveiðar í sjó, þar á meðal sendi- herrum flestra aðildarlanda Norð- ur-Atlantshafslaxasjóðsins, en þeirra á meðal eru Kanada, Bret- land, írland, Rússland og Norður- löndin. Einstakur árangur Karl prins hélt ræðu, þar sem hann þakkaði Orra Vigfússyni fyrir störf hans að laxavemd. Prinsinn lét svo um mælt að einstakur árang- ur hefði náðst á þeim fimm árum, sem Norður-Atlantshafslaxveiði- sjóðurinn hefði starfað. Um væri að ræða nýtt og óvenjulegt form umhverfisvemdar, þar sem tveir hagsmunaaðilar ræddust við og gerðu með sér viðskiptasamning um vemd ákveðins náttúrufyrirbæris. Prinsinn lét í ljós þá von að aðrir myndu fylgja þessu fordæmi. Karl afhjúpaði því næst styttu af tveimur löx- um, sem hann afhenti Orra fyrir hönd brezku lax- veiðisamtakanna, í viðurkenningarskyni fyrir forystu hans um stöðvun laxveiða í sjó. Sjaldgæfur heiður Orri Vigfússon þakkaði þann heiður, sem honum væri sýndur. Að sögn Helga Ágústssonar, sendi- herra íslands í London, sem var viðstaddur móttökuna, er mjög fá- títt að Karl prins haldi móttökur í höll sinni og heiðri einstaklinga eða samtök með þessum hætti. „Prins- inn gerir slíkt aðeins í þágu þeirra málefna, sem eru honum sérstak- lega kær og hugleikin. Það er í sjálfu sér vísbending um þann heið- ur, sem Orra er sýndur,“ sagði Helgi í samtali við Morgunblaðið. Orri Vigfússon Undirbúningur fjárlagafrumvarps 1995 A Aætlun um jöfnuð í rflásrekstri eftír 3 ár Utgjöld í heilbrigðis- og tryggingamálum stefna fram úr fjárlögum VINNA að gerð fjárlagafrumvarps fyrir næsta ár er nú komin af stað af fullum þunga. Jafnframt vinna sérfræðingar fjármála- ráðuneytisins, í samvinnu við Þjóðhagsstofnun og Seðlabanka, að langtímaáætlun í tengslum við fjárlagagerðina, sem miðar að því að eyða fjárlagahallanum í þrepum á næstu þremur árum. Á fyrst og fremst að ná því markmiði með enn frekari niðurskurði og sparnaði. Fjárlög yfirstandandi árs gera ráð fyrir rúmlega 9 milljarða kr. halla á þessu ári en ýmis veikleika- merki hafa komið fram að undan- fömu sem stefna því markmiði í hættu á sviði heilbrigðis- og trygg- ingamála en þar stefnir í nokkur hundruð milljória kr. umframútgjöld ef ekkert verður að gert, skv. upp- lýsingum sem fengust í fjármála- ráðuneytinu. Hefur þegar verið sett í gang vinna við ráðstafanir til að koma í veg fyrir það, og stefnir Dorgað í Amarvatni Hvammstanga. ÍSLANDSMÓTIÐ í dorgveiði fer fram á Arnarvatnsheiði í dag, en þá munu tugir þátttak- enda dorga í gegnum ís á Arn- arvatni stóra. Dorgveiðifélag íslands ásamt Staðarskála, björgunarsveitinni í V-Húnavatnssýslu og veiðiréttar- höfum á Amarvatnsheiði standa að íslandsmótinu í dorgveiði að þessu sinni. Verðlaun verða veitt fyrir bestan árangur og verða þau afhent að mótinu loknu síðdegis í dag. Karl ríkisstjórnin enn að því að hallinn verði ekki meiri á þessu ári en fjár- Elín sagði að verið væri að leita leiða til að leysa málið en að óbreyttu stefndi í að kosningaúr- slitunum yrði eingöngu gerð skil í fréttum daginn eftir kjördag. Hún sagði að í fjárhagsáætlun frétta- stofunnar hefði ekki verið gert ráð fyrir kosningasjónvarpi heldur ákveðið að skoða það mál sérstak- lega. Elín Hirst er nýtekin við fréttastjórastarfínu og sagði að þetta væra sér vonbrigði. „I svona stöðu reynir maður að skoða allar leiðir. Það er mikill samdráttur í þessu fyrirtæki og uppsagnir sem fóru fram 1. febrúar era að taka lög gera ráð fyrir. Ljóst er að fjár- lagafrumvarpið fyrir næsta ár verð- ur lagt fram með umtalsverðum halla en ríkisstjórnin hefur sam- þykkt að stefna að því á næsta ári að hallatala framvarpsins verði undir 9 milljörðum kr. og svo verði áfram unnið að því að ná honum niður á núll skv. þriggja ára áætlun- inni. gildi 1. maí. Það er mikill spamað- arhugur í fyrirtækinu og menn setjast niður og ráða ráðum sínum hvort hægt sé að fínna leið út úr þessu. En þegar búið er að skera niður eins og hér var nauðsynlegt þá sér maður ekki alveg fyrir sér hvar er hægt að finna þessa pen- inga. Við eram að skoða málið en það verður engin sérstök fjárveit- ing til kosningasjónvarps," sagði Elín. Aðrar niðurskurðaraðgerðir hjá fréttastofunni hafa m.a. birst í því umræðuþátturinn Á slaginu sem sendur var út á sunnudögum hefur verið tekinn af dagskrá. Anatoíj Karpov Karpov teflirhér ANATOLÍJ Karpov, heims- meistari FIDE í skák, etur kappi við þrjá íslenska stór- ' meistara á atskákmóti í sjón- varpssal að kvöldi 2. maí. Hermann Gunnarsson, um- sjónarmaður skákmótsins, sagði í samtali við Morgun- blaðið að það væri mikill feng- ur fyrir íslenska skákáhuga- menn að fá Karpov hingað til lands. „Karpov vann nýlega með miklum yfirburðum á sterku móti í Linares á Spáni,“ sagði Hermann. „Hann kemur hingað þann 1. maí í boði Rík- issjónvarpsins og teflir við þrjá íslenska stórmeistara í beinni útsendingu i sjónvarpssal að kvöldi 2. maí. Ekki hefur verið ákveðið hvaða stórmeistarar tefla við heimsmeistarann, en þeir sem ekki komast að nú munu taka þátt í næsta at- skákmóti sjónvarpsins." Hermann sagði að atskák- mót sem sjónvarpið hélt á síð- asta ári og Judit Polgar tefldi á, hefði spurst út meðal skák- manna. „Sumir gengu svo langt að fullyrða að mótið væri eitt það besta sem sýnt hefði verið í sjónvarpi, enda tókst Agli Eðvarðssyni að gera það mjög myndrænt og skemmtilegt. Þetta varð til þess að Karpov samþykkti að koma hingað nú.“ Ekkert kosninga- sjónvarp á Stöð 2 ? STJÓRN íslenska útvarpsfélagsins hefur hafnað beiðni frétta- stofu Stöðvar 2 um sérstakt fjárframlag til að standa straum af kostnaði við kosningasjónvarp vegna sveitarsljórnakosning- anna í vor. Elín Hirst, fréttastjóri Stöðvar 2, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að á þessari stundu liti út fyrir að ekkert kosningasjónvarp yrði á vegum Stöðvar 2. Aðspurð sagði hún ekki fjarri lagi að áætlaður kostnaður vegna kosningasjónvarps- ins hefði numið 5-6 milljónum króna. # Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir Magnús Stefánsson og Jóhann Isleifsson ganga frá plöntum til Færeyinga. Trjáplöntur seldar til Færeyja Hveragerði. RÆKTUNARMIÐSTÖÐIN í Hveragerði er þessa dagana að búa til flutnings 11.000 tijáplöntur sem flytja á til Færeyja. Að sögn Jóhanns ísleifssonar, eiganda Ræktun- armiðstöðvarinnar, er það aðallega birki og fura sem Færeyingar sækjast eftir. Einnig eru fluttar út nokkrar tijátegundir sem Ræktunarmiðstöðin rækt- ar sérstaklega fyrir Færeyinga. Þar er um að ræða sérstök afbrigði trjáa sem flutt vora frá Eldlandi og hafa reynst vel í Færeyjum. Ræktunarmiðstöðin hefur selt Færeyingum trjá- plöntur undanfarin fjögur ár. Þessi viðskipti hafa reynst mjög vel og eru orðin fastur liður í vorverkun- um hjá Ræktunarmiðstöðinni. - A.H. í dag Sjávarútvegur Deilt um áhrif á skiptakjör 20 Samkeppnisstofnun - bank- arnir Bréfleg tilmæli eða ábendingar 28-29 Leiðari NATO setur Serbum úrslitakosti 28 bmt ► Hveijir fengu listamanna- íaun og hvers vegna - Tónleika- hald næstu viku - Myndlistar- sýningar sem opna um helgina - og margt fleira iggixMr ► Viðtal við Bodil Kaalund- Gránufélagshúsin í nýju hlut- verki - Bragi Skúlason um hlut- verk sjúkrahúspresta- Ný þ’óð Jóhanns Hjálmarssonar- Rabb: Þórður Helgason. /

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.