Morgunblaðið - 23.04.1994, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
2.000 manns æfa viðbrögð
við SuðurlandsskjáJfta í dag
skjálfti sem mælist 7.0 á Ric-
hterkvarða hefur riðið yfir í
Holtum og Landssveit í Rangár-
vallasýslu um klukkan 6 í morg-
un. Um 2.000 manns búa á þvi
svæði þar sem áhrifa „skjálft-
ans“ gætir mest en miðað við 7
stiga skjálfta á þessum slóðum
yrðu áhrifin á höfuðborgar-
svæðinu vart alvarlegri en þau
að hlutir féllu úr hillum, að
sögn talsmanna Almannavarna.
Á hamfarasvæðinu er hins veg-
ar gert ráð fyrir umtalsverðum
skemmdum á raflínum, síma-
sambandi, þremur brúm og 85
byggingum.
Æfingin miðast við að 80 manns
slasist vegna jarðhræringanna og
af þeim látist allt að 30. Búið er
að merkja tilteknar brýr og línu-
stæður sem eiga að hafa hrunið
og útbúa rústir þaðan sem ætlun
er að æfa björgun slasaðra. Ekki
er ætlunin, að sögn forsvarsmanna
UMFANGSMESTA almanna-
varnaæfing sem fram hefur
farið á landinu stendur yfir á
Suðurlandi í dag undir stjórn
Almannavarna ríkisins. Um
2.000 manns taka þátt í æfing-
unni og er verkefni þeirra að
bregðast við eftir að jarð-
Starfsmenn í höfuðstöðvum Almannavarna rikisins í Reykjavík að
störfum í gær.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 23. APRÍL
YFIRLIT: Yfir norðauaturströnd Grasnlands er víðéttumikil 1032 mb haeö. Suðsuð-
vestur af Irlandi er víðéttumikil og vaxandi lægð og mun hún hreyfast norður og fer
að hafa áhrif hér við land síðdegis ó morgun.
SPA: Norðaustanátt, allhvöss með slyddu eða rigningu við suðausturströndina en
annarsstaðar mun hægari norðaustan og úrkomulaust.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR A SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Austan- og norðaustanátt, víðast kaldi.
Léttskýjað um vestan- og norðvestanvert landið, en annars skýjað og smó skúrir
austanlands. Hiti 3 til 7 stig yfir daginn en hætt við næturfrosti vestan- og norð-
vestanlands.
HORFUR Á ÞRIÐJUDAG. Norðaustan gola eða kaldi og kólnandi veður. Smá él
norðanlands en þurrt og víðast léttskýjað syðra. Hiti 0 til 5 stig yfir daginn en
næturfrost um nær allt land.
O <4k
Heiðskírt Léttskýjað
/ / /
f f
f f f
Rigning
* f *
* /
/ * /
Slydda
&
Hálfskýjað
* * 4:
* *
* * *
Snjókoma
&
Skýjað
V $
Skúrir Slydduél
Alskýjað
*
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
ogfjaörimarvindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
5tig.,
FÆRÐA VEGUM;
(Kl. 17.30 ígær)
Það er góð færð á öllum helstu þjóðvegum landsins, en hálka er sumstaðar á
heiðum, einkum á norðanverðu landinu.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631600 og i grænni
línu 99-8316. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hitl veöur
Akureyri +3 skýjað
Reykjavfk +1 skýjað
Sergen $ alskýjað
Helsinki 8 úrkomafgrennd
Kaupmannahöfn 14 þokumóða
Narssarssuaq 2 aiskýjað
Nuuk 2 háHskýjað
Ósló ð atekýjað
Stokkhóimur 12 léttskýjað
Þórshöfn 2 úrkomaígrennd
Algarve 16 rigning
Amsterdam 16 mistur
Barcelona 17 mistur
Beriín 17 léttskýjað
Chicago 3 heiðskfrt
Feneyjar 20 heiðskírt
Frankfurt 18 léttskýjað
Glasgow 6 súld
Hamborg 14 iéttskýjað
London 15 skýjað
LosAngeles 13 léttskýjað
Lúxemborg 16 léttskýjað
Madríd 15 skýjað
Malaga 18 skýjað
Mallorca 19 léttskýjað
Montreal 1 léttskýjað
NewYork 8 léttskýjað
Orlando 20 skýjað
París 18 léttskýjað
Madelra 18 skýjað
Róm 17 léttskýjað
Vín 18 lóttskýjað
Washington 10 alskýjað
Winnipeg 2 heiðsklrt
Almannavama, að aðrir en þeir
sem taka þátt í æfingunni og
dvelja eða eru aferð um svæðið
verði fyrir neinum töfum eða
óþægindum vegna hennar en með-
al verkefna björgunarliðs verður
að fara á hvern bæ á svæðinu að
kanna tjón og meiðsli.
Fjölmargir þátttakendur
Auk almannavarnarráðs og 40
manna starfsliðs í stjórnstöð Al-
mannavarna í Reykjavík taka þátt
í æfiungunni fjórar almannavarna-
nefndir í viðkomandi sveitarfélög-
um, lögregla frá fjórum lögsagnar-
umdæmum, liðsafli og tæki frá
fimm slökkviliðum, læknar og
hjúkrunarlið frá 5 sjúkrahúsum,
Landhelgisgæslan, RARIK, Flug-
málastjórn, Póstur og sími, Vega-
gerð rikisins, Varnarliðið á Kefla-
víkurflugvelli og sendiráð Banda-
ríkjanna, auk þess sem allar björg-
unarsveitir allt frá Kirkjubæjar-
klaustri og vestur um í Borgar-
fjörð taka þátt í æfíngunum.
Níu mánaða undirbúningur
Æfíngin hefur verið í undirbún-
ingi í 9 mánuði, að sögn Guðjóns
Petersen framkvæmdastjóra Al-
mannavama ríkisins, og var öllum
íbúm svæðisins tilkynnt um æfíng-
arnar með bréfí sem sent var um
páska. Guðjón sagði að ekki væri
verið að prófa viðbragðsflýti með
æfíngunni heldur verið að þjálfa
lið manna í að vinna með skipuleg-
um og samræmdum hætti við
neyðarástand til að kanna áreiðan-
leika og skilvirkni neyðaráætlana.
Mikilvægi æfingarinnar fælist
ekki síst í þeim undirbúningi sem
inntur væri af hendi og tryggði
að nauðsynleg tæki og búnaður
væra til staðar ef til alvörannar
kæmi, auk þess sem mikilvægt
væri að vekja fólk til umhugsunar
um málið. Hann sagði íbúa svæðis-
ins hafa sýnt málinu skilning, vel-
vild og áhuga.
í upphafí æfíngarinnar verður
flogið yfir hamfarasvæðið til þess
að kanna áhrif skjálftans og meta
m.a. tjón á raflínum og brúm.
Ráðgert er að 5 þyrlur verði við
æfíngamar að flytja slasaða og
ferja björgunarlið yfír ár þar sem
brýr hafa skemmst.
Bækistöðvar á fjórum stöðum
Hinir slösuðu verða fluttir á
bækistöðvar sem komið verður upp
á Hellu, Flúðum og á Brautarholti
á Skeiðum en þaðan er gert ráð
fyrir að flogið verði með þá til
Reykjavíkur verði ástæða til. Höf-
uðtöðvar verða á Laugalandi í
Holtum, á miðju hamfarasvæðinu.
Guðjón Petersen sagði að al-
menn sé gert ráð fyrir að Suður-
landsskjálfti muni ríða yfír á
næstu áratugum. Aðspurður hvort
æfíngin væri staðsett með þann
stað í huga þar sem mestar líkur
eru á Suðurlandsskjálfta sagði
Guðjón Petersen að líklegustu
upptökin væra talin 2 km. vestan
við æfíngasvæðið.
Auk fyrrgreindra skemmda á
byggingum er gert ráð fyrir að
raflínur falli en að sögn Hafþórs
Jónssonar Hafþórs Jónssonar, að-
alfulltrúa hjá Almannavörnum rík-
isins og æfíngarstjóra, era virkj-
unarmannvirki á þessu svæði ekki
talin í mikilli hættu. Fram kom
að við hönnun allra húsa sem
byggð hafí verið á þessu svæði
eftir árið 1976 hafí verið tekið
sérstakt mið af jarðskjálftahættu
en óljóst væri hve vel eldri bygg-
ingar væra í stakk búnar til að
þola sterka jarðskjálfta.
Æfingin í dag er lokapunktur
fjögurra daga æfínga hjá Al-
mannavörnum. Fyrri dagana var
ekki um vettvangsaðgerðir að
ræða en þá var m.a æft úr stjórn-
stöðvum viðbrögð vegna vísbend-
inga um auknar líkur á eldsum-
brotum í Vestmananeyjum og við-
brögð við vísbendingum um elds-
umbrot þar og jarðhræringar á
Suðurlandi.
Hag’smunasamtök
fiskvinnslustöðva
NOKKRIR aðilar í fiskvinnslu ætla að stofna um helgina ný
hagsmunasamtök fiskvinnslustöðva. Jón Ásbjörnsson, fískverk-
andi og einn af þeim sem undirbúið hafa stofnun félagsins, seg-
ir að Samtök fiskvinnslustöðva séu ekki raunverulegir fulltrúar
fiskvinnslunnar í landinu. Samtökin séu fyrst og fremst hags-
munasamtök útgerðarmanna því að innan þeirra séu aðilar sem
séu bæði í vinnslu og útgerð. Þess vegna sé þörf fyrir hagsmuna-
samtök fyrirtækja sem eingöngu sinni fiskvinnslu.
Jón sagði brýnt að efla íslenska
fískvinnslu. Hagsmunum hennar
hefði oftar en ekki verið ýtt til
hliðar fyrir hagsmunum útgerðar-
innar. Frumvarp um breytingar á
lögum um stjóm fiskveiða sé dæmi
þar um. Hann sagði að félagið
vilji beita sér fyrir því að mótuð
verði á íslandi fískvinnslustefna
sem taki mið af heildarhagsmun-
um þjóðarinnar. Félagið vilji einnig
beita sér fyrir því að öll viðskipti
með fisk fari um innlenda físk-
markaði, auka atvinnuöryggi fisk-
vinnslufólks, hamla á móti útflutn-
ingi á óunnum físki og vaxandi
bolfisksvinnslu á grannmiðum.
Allir sem stunda fískvinnslu
geta gerst aðilar að samtökunum
að því undanskyldu að 90% af
hráefni þeirra byggist á viðSkipt-
um óskyldra aðila. Jón sagðist
hafa fundið fyrir miklum áhuga á
stofnun samtakanna. Hann sagð-
ist reikna með að stofnfélagar
verði aðallega smáfyrirtæki í fisk-
vinnslu, fyrirtæki sem kaupi mikið
af fiskmörkuðum og smábátum.
Stofnfundurinn verður haldinn
næstkomandi sunnudag kl. 14.00
í veitingahúsinu Gaflinum í Hafn-
arfírði.