Morgunblaðið - 23.04.1994, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRIL 1994
7
Aðgerðir til að minnka kjötfjallið
Markaðsátak erlend-
is á kostnað bænda
LANDBÚNAÐARNEFND Alþingis hefur lagt fram lagafrumvarp um
að heimila að taka sérstakt verðskerðingargjald af sláturafurðum sauð-
fjár og nautgripa fram til 31. ágúst á næsta ári sem verði notað til
greiða fyrir sölu á afurðunum erlendis. Er þetta vegna þessa að nú
stefnir í að miklar birgðir safnist upp af kinda- og nautakjöti í landinu.
Nú er innheimt 5% verðskerðing-
argjald af afurðaverði til bænda og
notað til markaðsstarfsemi. Land-
búnaðarnefnd leggur nú til að land-
búnaðarráðherra verði heimilt að inn-
heimta 5% gjald til viðbótar af af-
urðaverði fram til 31. ágúst á næsta
ári en þá hefst nýtt verðlagsár. Er
þetta gert að ósk Stéttarsambands
bænda til að treysta markaðsgrun-
dvöll nautgripa og kindakjöts með
auknum útflutningi.
Miklar umframbirgðir
Sauðfjárbændur hafa borið ábyrgð
á sölu afurða sinna síðan árið 1992.
Að sögn Hákonar Sigurgrímssonar
framkvæmdastjóra Stéttasambands-
ins hafa safnast upp birgðir síðan
þá, meðal annars vegna þess að rík-
ið setti kjöt á útsölumarkað árið
1992 sem hafði áhrif á kjötsöluna
fyrsta árið sem bændur báru ábyrgð
á sölunni sjálfir. „Þetta hefur leitt
til þess að þeir fjármunir sem lög
leyfa nú að sé veitt til markaðsstarf-
semi hafa ekki nægt,“ sagði Hákon.
Talið er að í lok næsta framleiðslu-
árs verði umframbirgðir kindakjöts
um 400 tonn ef ekkert verði að gert,
og að 100 milljónir króna skorti til
að ná jöfnuði í framleiðslu og sölu
kindakjöts. Sala á Framleiðslukvóti
er nú tæplega 8.000 tonn á ári.
Ársneysla nautakjöts hérlendis er
um 3.200 tonn og að sögn Guðbjörns
Árnasonar framkvæmdastjóra
Landssambands kúabænda stefnir í
að birgðir umfram framboð nemi 500
tonnum síðar á þessu ári. Sérstaka
verðskerðingargjaldið gæti numið
um 20 millj. kr. á ári á ungnautakjöti.
Framkvæmdir við
K-byggingu verði
endurskoðaðar
Alútboð á barnaspítala kannað
GUÐMUNDUR Árnl Stefánsson, heilbrigðisráðherra, hefur í tengslum
við þá ákvörðun að hefja byggingu barnaspítala óskað eftir því við
yfirsljórn byggingarmála á Landspítalalóðinni að kannað verði með
hvaða hætti verði hægt að taka næsta áfanga K-byggingar í notkun
fyrir sem minnsta fjármuni. Hann segir að þetta þýði ekki að fram-
kvæmdum við bygginguna verði seinkað.
Eftir að heilbrigðisráðherra lýsti
því yfir að hann myndi beita sér fyr-
ir því að hafín verði bygging barnasp-
ítala hið fyrsta hafa ýmsir látið í ljós
ugg um að þetta leiði til þess að fram-
kvæmdir við K-byggingu tefjist.
Guðmundur Árni sagði að þetta sé
ástæðulaus ótti.„Það er ráð fyrir því
gert að næsti nýtanlegi áfangi K-
byggingar komi í gagnið ekki síðar
en áform hafa verið uppi um.“
Guðmundur Árni sagði mikilvægt
að reyna að koma í notkun sem fyrst
þeirri miklu ljárfestingu sem fjár-
festingu sem liggur í K-bygging-
unni.„Það eru feikilega miklir fjár-
munir sem þarna liggja undir. Þar
sem verktíminn er svona langur ligg-
ur stór hluti þeirra lengi fastur í
steinsteypu án þess að nokkur arður
fáist af þeim. Ég hef því velt því upp
hvort menn séu tilbúnir að skoða
aðra verkefnaröðun í sambandi við
K-bygginguna, sem þýði það að fyr-
ir minni fjármuni en jafnvel fyrr,
fáum við í nýtingu 2.000 fermetra
sem spítalinn hefði gagn af,“ sagði
Guðmundur Árni.
Sameining Eyja- og
Miklaholtshrepps
Þrjár tíllög-
ur um nafn
Borg í Miklaholtshreppi
SAMEINING Eyja- og Miklaholts-
hrepps var samþykkt fyrir
nokkru. Síðan hafa verið haldnir
nokkrir samráðsfundir með
hreppsnefndarmönnum þessara
hreppa þar sem meðal annars var
rætt um hvað sveitafélagið skuli
heita.
Beðið var um tillögur um nafn á
hreppinn á hverju heimili í báðum
sveitarfélögum. Búið er að kanna þá
niðurstöðu. Alls bárust 32 nöfn en 3
eftirtalinna nafna fengu mestan
stuðning; Eyja- og Miklaholtshrepp-
ur, Ljósufjallahreppur og Fellssveit,
en það nafn er tilkomið af Hafurs-
felli sem hefur verið merkipunktur
milli sveita um aldaraðir.
Páll
Guðmundur Arni sagðist leggja
mikla áherslu á að tryggja fjármagn
til byggingu bamaspítala áður en
hafist verður handa þannig að fram-
kvæmdir tefjist ekki eins og oft hef-
ur gerst með opinberrar byggingar.
Hann sagði að til skoðunar væri í
heilbrigðisráðuneytinu að láta fara
fram svokallað alútboð, en það þýðir
að verktaki sér um allt verkið, hönn-
un, byggingu og frágang. Guðmund-
ur sagðist hafa hug á að hefja fram-
kvæmdir eins fljótt og mögulegt er.
Mjög brýnt sé að bæta hag sjúkra
barna á íslandi.
Nýjum barnaspítala verður vænt-
anlega fundinn staður á milli kvenna-
deildar Landspítalans og gamla
kennaraskólans. Verið er að vinna
frumdrög að teikningum að spítalan-
um. Á þessu og næsta ári er fyrir-
hugað að framkvæma fyrir um 250
milljónir í K-byggingu. Þar er aðal-
lega um að ræða framkvæmdir við
lagnagang og fleira. Hvort erindi
heilbrigðisráðherra breytir eitthvað
þeim áformum liggur ekki fyrir. í
K-byggingu verður til húsa krabba-
meinsdeild spítlans, skurðstofur og
tæknisetur spítalans. Framkvæmdir
við bygginguna hafa staðið í 10 ár
og búið er að framkvæma fyrir um
þriðjung af heildarkostnaði við bygg-
inguna.
-----» ♦ »---
Eldhúsdags-
umræðum
frestað
ÁKVEÐIÐ hefur verið að fresta
eldhúsdagsumræðum, sem fram
áttu að fara á Alþingi næstkom-
andi mánudagskvöld.
Að sögn Valgerðar Sverrisdóttur
1. varaforseta þingsins, var ákveðið
að fresta umræðunum meðal annars
vegna þess að ólokið væri umræðu
um sjávarútvegsfrumvarpið. „Það er
meira eftir en maður hefði gjarnan
viljað," sagði hún. Þá sagði hún óljóst
hvort tækist að ljúka þingingu um
aðra helgi eins og stefnt hefði verið
að. Líkur á því færu minnkandi.
Fimm lyfsalar fluttír tíl
ÁSTA Júlía Kristjánsdóttir lyfsali tók við rekstri Apóteks Siglufjarðar
1. apríl síðastliðinn en henni var nýlega veitt lyfsöluleyfi, að sögn
Guðmundar Reykjalín framkvæmdastjóra Apótekarafélags Islands.
Forsaga málsins er sú að Matthí-
as Ingibergsson lyfsali lét af rekstri
Kópavogs apóteks fyrir aldurs sakir
á síðasta ári og tók Jón Björnsson
lyfsali í Akraness apóteki við rekstri
Kópavogs apóteks frá og með 1.
janúar. Þá tók Gylfi Garðarsson,
sem áður var lyfsali í Rangár apó-
teki á Hellu, við rekstri Akraness
apóteks 1. janúar. Rak hann jafn-
framt Rangár apótek til 1. mars,
eða þar til Sigurður Gestsson fyrr-
verandi lyfsali á Siglufirði tók við
rekstri þess. Sigurður sá jafnframt
um rekstur Apóteks Siglufjarðar til
1. apríl þegar Ásta Júlía Kristjáns-
dóttir lyfsali tók til starfa en hún
hefur ekki rekið apótek áður.
A Eldavél
Competence 5000 F-w:
60 cm -Undir- og yfirhiti,
blástursofn, blástursgrill, grill,
geymsluskúffa.
Verð kr. 62.900,-.
EHSi ▲ Eldavél
Competence 5250 F-w.:
60 cm með útdraganlegum
ofni - Undir- og yfirhiti, klukka,
blástursofn, blástursgrill, grill
og geymsluskúffa.
Verð kr. 73.663,-
WX a helluborð
Competence 110 K:
-stál eða hvítt með rofum -
Tvær 18 cm hraSsuSuhellur,
önnur sjálfvirk.Tvær 14.5 cm
hraðsuSuhellur.
Verð kr. 26.950,-
♦ keramik
-helluborb
- Competence 6110 M-wr.:
Ein stækkanleg hella 12/21 cm,
ein 18 cm og tvær 14.5 cm.
Verð kr. 43.377,-.
keramik-helluborb
meö mfum - Competence
6210 K-wn: Ein 18 cm
hraðsuSuhella.Ein stækkanleg
12/21 cm og tværl4.5cm.
Verð kr. 56.200,-
4 Undirbor&sofn -
Competence 5000 E - w:
Undir- og yfirhiti, blástursofn,
blástursgrill og grill.
Verð kr. 57.852,-
Sami ofn í stáli (sjá mynd), verð
kr. 68.628,- eða 65.196,- staðgreitt.
Vifta
teg. 105 D-w.:
60 cm - Fjórar hraSastillingar.
BæSi fyrir filter og útblástur.
Verð kr.9.950,-
BRÆÐURNIR
ðlOBMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
A KSEM helluborb
Competence 3100 M-w.:
Tvær hraðsuSuhellur
18 cm og tvær
hraSsuSuhellur 14.5 cm.
Onnur þeirra er sjálfvirk .
Verð kr. 17.790,-
«. rofaborb
-Competence
3300 S- w:
Gerir allar hellur sjálfvirkar.
Barnaöryggi.
Verð kr. 24.920,-
a veggofn
- Competence
$200 B-stál.:
Undir- og yfirhiti, blástursofn,
blástursgrill, grill og klukka.
Verð kr. 62.936,-
Hvítur ofn kostar
Verð kr.57.450,-
eða 54.577,- staðgreitt.
Umboösmenn Reykjavík og nágrenni:
BYKO Reykjavík, Hafnarfiröi og Kópavogi.
Byggt & Búiö Reykjavík, Brúnás innróttingar,
Reykjavík. Fit, Hafnarfiröi. Þorsteinn Bergmann,
Reykjavík. H.G. GuÖjónsson, Reykjavík.
Rafbúöin, Kópavogi.
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Rafverk, Bolungarvík.
Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Haligrímsson,
Grundarfiröi. Asubúö.Búöardal
Vestfiröir: Rafbúö Jónasar Þór.PatreksfirÖi.
Edinborg, Bíldudal. Verslun Gunnars
Sigurössonar, Þingeyri.Rafverk, Bolungarvik
Straumur.lsafiröi.
Noröurland: Kf. Steingrímsfjaröar.Hólmavlk.
Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga,
Blönduósi. Skagfiröingabúö, Sauöárkróki.
KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.
KEA, Dalvík. Bókabúö, Rannveigar, Laugum.
Sel, Mývatnssveit. Kf. Þingeyinga, Húsavik.
Urö, Raufarhöfn.
Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstööum.
Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröi. Stál, Seyöisfiröi.
Verslunin Vík, Neskaupsstaö. Hjalti Sigurösson,
Eskifiröi. Rafnet, Reyöarfiröi Kf. Fáskrúösfiröinga
Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn
Suöurland: Kf. Rangæinga. Hvolsvelli.
Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi.
Rás, Þorlákshöfn.
Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri.
Brimnes, Vestmannaeyjum.
Reykjanes: Stapafell, Keflavík.
Rafborg, Grindavík.
m AEG ASO
Á nálægt
20.000
íslenskum
heimilum
-eru AEG eldavélar. Engin
eldavélategund er á fleiri heimilum.
Kaupendatryggð við AEG er (82.5%).*
Hvað segir þetta þér um gæði AEG ?
* Samlcvæml MarkaSskönnun Hagvangs í dos. 1993.
AEG kostar minna en þú heldur.
Mjög hagstæb verb á eldavélum, ofnum,
helluborbum og viftum.