Morgunblaðið - 23.04.1994, Síða 10

Morgunblaðið - 23.04.1994, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 FASTEIGNAMIÐLUN. Síðumúla 33 S: 679490 OG 679499 Símatími í dag kl. 11-13 Einbýli/raðhús Stuðlasel. Nýkomið í sölu fallegt og vandað einb. á einni haeð, 162 fm m. innb. bílsk. ásamt ca 18 fm sól- stofu. Húsið stendur á besta stað við opið svæði. Verð 13,9 millj. Mánabraut — Kóp. Fallegt 170 fm einb. neðan götu ásamt 40 fm á neðri hæð svo og 30 fm bílsk. Arinn, parket, nýl. eldh. og bað. Húsið mikið endurn. Áhv. ca 7,0 millj. (húsbr.). Lækkað verð. Tunguvegur. í einkasölu mjög góð eign ca 110 fm raðh. á tveimur hæðum og hl. kj. Verð 7,5 millj. 4ra-7 herb. Fornhagi. Nýkomin í sölu sérl. falleg 125 fm efri hæð ásamt góðum bílsk. Útsýni. Áhv. hagst. ca 5 millj. Verð 11,9 millj. Smáíbúðahverfi. Nýkomin í sölu sérl. vönduð rishæð í nýl. húsi við Skálagerði. 3 svefnherb., vinnuherb. Bílsk. Áhv. 5,6 millj. Verð 10,5 millj. Háaleitisbraut. Nýkomin í sölu falleg 5 herb. íb. á 2. hæð. 4 stór svefn- herb. Parket. Áhv. byggsj. ca 3,3 millj. Verð aðeins 7,8 millj. Maríubakki. Nýkomin í sölu ca 90 fm íb. ásamt aukaherb. í kj. Áhv. ca 4,3 millj. hagst. lán. Verð 7,5 millj. Hraunbær. Nýkomin í sölu mjög góð 95 fm íb. á 2. hæð. 10 rása kapal- kerfi f. sjónvarp. Áhv. ca 4,0 millj. Verð 7,2 millj. 3ja herb. Vesturberg. Nýkomin t söiu 78 fm falleg íb. á efstu hæö. Parket á allri fb. Útsýni. Áhv. Byggsj. ca 3,9 millj. Verð 6,3 millj. Dvergabakki. Gullfalleg fb. á 1. hæð. Parket. Tvennar svalir. Nýtt eldh. 2 rúmg. svefnherb. Áhv. Byggsj. 3,3 m. Verð 6,7 millj. Laus strax. Miðleiti. í sölu glæsil. 121 fm íb. á efstu hæð. Mjög vönduð eign. Stæði í bílgeymslu. Áhv. ca 1,3 millj. Byggsj. Verð 10,1 millj. Ath. mögul. eigna- skipti nýl. einbhúsi eöa minni eign. Hraunteigur. Nýkominísölugóð risíb. Áhv. ca 1.300 þús. V. 4,9 m. 2ja herb. Kóngsbakki. Nýkomin ísölu sérl. falleg ca 67 fm íb. á 3. hæð. Parket. Verð 5,7 millj. Ásvallagata. Falleg 2ja herb. íb. á 1. hæð ásamt herb. í kj. Áhv. ca 2,0 m. Laus strax. Verð 4,8 millj. Kaupendur athugið Fjöldí fastelgna á söluskrá. Ármann H. Benediktss., sölustj., lögg. fasteigna- og skipasali. Geír Sigurðsson, lögg. fasteigna- og skipasali. Málþing um textatengsl og viðtöku- rannsóknir STOFNUN Sigurðar Nordals gengst fyrir málþingi um texta- tengsl og viðtökurannsóknir laug- ardaginn 23. april kl. 13.15 í stofu 101 í Odda, hugvísindahúsi Há- skóla íslands. Ráðstefnustjóri verð- ur Ulfar Bragason, forstöðumaður Stofnunar Sigurðar Nordals. Erindi flytja Soffía Auður Birgis- dóttir um textatengsl, tvítyngi og tvíburatexta, Jón Helgason um hetj- ur íslands og innflytjendur í Banda- ríkjunum. Um þýðingar og texta- tengsl. Torfi Tulinius um textatengsl og túlkun Egils sögu, Matthew J. Driscoll: Sólun sagna á 19. öld, Sveinn Yngvi Egilsson: Hulduljóð sem pastoral elegía og Margrét Eg- gertsdóttir flytur erindið Hefðin og hlutverk skálds á 17. öld. Að erindum loknum verða umræð- ur og þingslit um kl. 17.30. -----» ♦ 4----- Listakosn- ingar í Laug- ardalshreppi í fyrsta skipti Laugarvatni. í FYRSTA skipti í sögu sveitar- stjórnarkosninga í Laugardals- hreppi verður nú kosið um mis- munandi lista. Það nýmæli blasir nú við íbúum Laugardalshrepps að boðnir verða fram a.m.k. tveir listar til næstu sveitarstjórnarkosninga. Mikil um- ræða hefur verið um sveitarstjórn- armál í hreppnum í vor eftir að fram kom beiðni frá kjósendum um að kosningar yrðu hlutbundnar. Nú hafa komið fram tveir listar, L-listi áhuga- fólks um „mannvænt og vistvænt" samfélag og K-listi sitjandi hrepps- nefndar sem setið hefur óbreytt sl. tvö kjörtímabil. Þessir tveir listar verða með opið prófkjör nú um helg- ina, L-listinn á sunnudagskvöld en K-listinn á sunnudag og mánudags- kvöld. Endanleg röð framboðslist- anna verður gerð kunnug í næstu HOacgfeft ŒEgD Umsjónarmaður Gísli Jónsson 741. þáttur Björn Arnórsson í Reykjavík sendir þættinum ágætt bréf, og birtir umsjónarmaður það óstytt: „Kæri Gísli! Þakka þér alla þættina þína, sem svo sannarlega eru bæði áhugaverðir og gagnlegir. Það er orðið ansi tímabært að fj'alla aðeins um landafræði- þekkingu þá, er ræður ferðinni á fjölmiðlum. Þannig heyrist ráðherra, sem vígir nýja flug- braut á Egilsstöðum, tala um að hún muni auka og auðvelda flutninga á vörum og fólki til og frá Evrópu. Mun hann ekki hafa átt við flutninga til og frá meginlandi Evrópu, eða til og frá öðrum löndum Evrópu? En mér finnst þetta langt frá því að vera einsdæmi, að talað er eins og ísland sé utan Evrópu. Sömu sögu er að segja um Norðurlöndin. Það líður nánast ekki fréttatími án þess að við séum upplýst um eitt-eða annað á hinum Nogðurlöndunum. í minni landafræði fundust ekki nema ein Norðurlönd. Hins veg- ar voru margar þjóðir á Norður- löndum. Því geta atburðir átt sér stað meðal annarra þjóða á Norðurlöndum eða einfaldlega annars staðar á Norðurlöndum. I krossgátu var skýringin „til útlanda“ og svarið tveggja stafa. Á ég að hætta að láta fara í taugarnar á mér að svarið var „út“ í stað „utan“? Ég hef lent í því að panta farmiða til út- landa og allt gekk vel uns kom að því að ég vildi panta miða út aftur. Viðmælandi minn taldi umhugsunarlaust að ég væri farinn að tala um aðra ferð til útlanda. Hvað hefur þú um þetta að segja? Merkir „út“ nú orðið það sama og „utan“? Með bestu kveðjum.“ Umsjónarmaðuiy víkur fyrst að hinu síðasta. Ut merkir að vísu í sumra manna máli „til útlanda", það sem áður var tíð- ast sagt utan. Ekki held ég þó að sömu menn tali um *útlands- ferðir, heldur utanlandsferðir. Skýring á þessu er sú, að út getur táknað vestur, og þegar menn fóru frá Noregi til ís- lands, var stefnan út. „Út vil eg“, sagði Snorri. Frá Islandi, gagnstætt út, var þá utan, og enn langar margan íslending til þess að fara utan, fara í utan- landsferðir. Um Norðurlöndin fer um- sjónarmaður enn í smiðju Ara Páls Kristinssonar og tekur upp úr Tungutaki, nr. 67 í sl. jan- úar, máli bréfritara til enn frek- ari styrktar: „Rétt er að vekja á því at- hygli, og ekki í fyrsta sinn, að það eru bara til ein Norðurlönd í heiminum. Þess vegna telst ekki gott að segja sem svo: „það þrengir nokkuð stöðuna fyrir þau Norðurlönd sem sótt hafa um inngöngu" eins og heyrðist í Útvarpinu í nóvember, rétt eins og einhvers staðar annars staðar í heiminum væru Norðurlönd sem ekki hefðu sótt um inn- göngu. Þama hefði frekar átt að segja eitthvað á þessa leið: fyrir þau ríki á Norðurlöndum sem sótt hafa um inngöngu.“ Mér þykir vænt um að bréfrit- ari skuli minnast á, hversu menn taka stundum til orða um Evr- ópu, rétt eins og Island sé ekki í henni. Kannski eru menn að stytta mál sitt og sleppa orðinu meginland. En auðvitað er firra að stilla upp Evrópu og íslandi, rétt eins og andstæður væru. ísland er í Evrópu, eins og Kúba er í Ameríku, þó hún sé ekki á meginlandi þeirrar miklu álfu. Mig langar svo til þess að nota tækifærið og andæfa enn hinum enska framburði „júró“. Við tök- um þátt í söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva, evró- vísjón, ekki „júróvísjón“, og margir nota evrókort. Burt með ómyndina „júrókard“! ★ Hlymrekur handan kvað: Jóngeir og Geirjón grétu, því Geiijón og Jóngeir létu meina sér náðir að þeir máttu ekki báðir, Geiijón og Jóngeir, fá Grétu. ★ Margir kunna eftirfarandi vísupart: Örkin sat á Ararat, út um gat leit Nói. Ungur þykist ég hafa lært fyrri hlutann þannig: Stilltist hvata strauma at, styggðarhrat svo grói. Ekki skal fullyrt að rétt hafi verið numið, enda ber þessi fyrri partur ljós merki þess að vera hortittshnoð til þess að koma saman oddhendu. Og má með góðum vilja skýra fyrri hlutann. Hvata er þarná vafalítið lýsing- arorð í veikri beygingu = hið hvata, og á við straumaatið = straumflóðið. Styggðarhrat er væntanlega nafnorðsauki = styggð, en styggð getur þýtt sundurlyndi eða óþægð. Hall- grímur Pétursson tók börnum vara fyrir því, að veita foreldrum sínum styggð. Hér er um að ræða guð föður og börn hans mennina, og skyldi nú gróa um heilt á milli. Reiði guðs var þorr- in, straumurinn stilltist, flóðið sjatnaði, og sátt varð. Þá gat Nói farið að skima út um arkar- gluggann, svo hann mátti um síðir hugga sólarljóma birtan þekk. Og var þarna aftur vitnað í blessaðan Hallgrím. ★ Anonymus sendir frá Strass- borg: „Megi hefjast á himin upp lofský,“ mælti Helena röddinni sposk í, berandi bakkana, þegar bíaði út Frakkana sá svíngalni Zírínovskíj. 911 RA 91 97A L^RUS Þ' VALDIMAR8S0N framkvæmdastjóri L I \j\JmL\OI\J KRISTINN SIGURJÓNSSON, HRL. löggiltur fasteignasali Til sýnis og sölu meðal annarra eigna: Skammt frá Fossvogsskóla Glæsilegt steinhús, ein hæð, 153,8 fm auk bílskúrs 46 fm. Byggt um 1980. Innréttingar og tæki af bestu gerð. Glæsileg lóð. Úrvalsstaður. Góð eign á góðu verði Mjög gott timburhús, ein hæð, um 150 fm á vinsælum stað í Skerja- firði. Húsi er nýlega endurbyggt og stækkað. Ný sólstofa. Eignarlóð 816 fm. Tilboð óskast. Góð íbúð á góðu verði 3ja herb. íbúð á 1. hæð 85,3 fm við Álfheima. Sólrík með suðursv. Sérþvaðstaða. Húsið nýmálað og sprunguþétt að utan. Geymsla í kjall- ara. Verð aðeins kr. 6,3 millj. 3ja herb. íbúð á 3. hæð í suðurenda við Dvergabakka. Parket. Stórar svalir. Ágæt sameign. 40 ára húsnæðislán kr. 3,3 millj. Verð aðeins kr. 5,8 millj. Úrvaisíbúð við Rekagranda 2ja herb. ibúð á 1, hæð. Öll eins og ný. Rúmg. sérlóð. Skipti mögul. á 3ja herb. góðri íbúð í nágr. Góð íbúð á góðu verði 3ja-4ra herb. góð rishæð í Smáíbúðahverfi. Nokkuð endurbætt. Sér- hiti. Svalir á suðurhlið. Þríbýli. Verð aðeins kr. 4,9 millj. Á söluskrá óskast Suðuríbúð með útsýni í lyftuhúsi við Austurbrún. Skipti mögul. á 3ja herb. úrvalsíb. í nýja miðbænum. Ennfremur óskast góð húseign meö tveimur 120-140 fm sérhæðum. Traustir kaupendur. • • • Opið í dag kl. 10-14. Teikn. á skrifstofunni. Almenna fasteignasalan sf. ____________________________ var stofnuð 12. júlí 1944. LAliGAVEG118 SÍMAR 21150-21370 m lnrguwM Metsölubloð á hverjum degi! AIMENNA FASTEIGNtStUH DAGBOK ÁRNAÐ HEILLA ára afmæli. Mánudaginn 25. apríl nk. verður sjö- tugur Þorgrímur Jónsson, málmsteypumeistari, Rauða- læk 19. Eiginkona hans er Guðný Árnadóttir. Þau hjónin .taka á móti gestum í dag, laugardaginn 23. apríl, frá kl. 20 í Veislurisinu, Hverfisgötu 105, Reykjavík. fræðingur, Vesturási 51, Reykjavík, bifreiðasfjóri hjá Osta- og smjörsölunni, verður sextugur í dag, laugardag. Eigin- kona hans er Guðrún Guð- mundsdóttir. Þau hjónin verða með heitt á könnunni og taka á móti gestum á heimili sínu eftir kl. 15 á afmælisdaginn. MINNINGARSPJÖLD MINNINGARKORT Safn- aðarfélags Áskirkju eru seld hjá eftirtöldum: Kirkjuhúsinu, Kirkjubergi 4, Holtsapóteki, Langholtsvegi 84, Þjónustu- íbúðum aldraðra, Dalbraut 27, Pélags- og þjónustumið- stöð, Norðurbrún 1, Guðrúnu Jónsdóttur, Kleifarvegi 5, s. 681984, Rögnu Jónsdóttur, Kambsvegi 5, s. 812775, Áskrkju, Vesturbrún 30, s. 814035. Þá gefst þeim, sem ekki eiga heimangengt, kostur á að hringja í Áskirkju, sími 84035 milli kl. 17.00 og 19.00. /?/~kára afmæli. í dag, 23. UU apríl, er sextugur Karl Jóhannsson, Jöklafold 8, Reykja- vík. Eiginkona hans er Unnur Óskarsdóttir. Þau eru að heiman. /\ára afmæli. í dag, 23. apríl, O \/ er fimmtug Ólöf Magnús- dóttir, Holtsbúð 48, Garðabæ. Hún tekur á móti gestum milli kl. 16-19 á afmælisdaginn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.