Morgunblaðið - 23.04.1994, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 23.04.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994 17 Tindar - Fjölskyldumeðferð Fjölskyldur unglinga sem eru í vímuefnaneyslu með Jóni Baldvin að gerð samnings- ins. Niðurstaða þessara fjórmenn- inga var furðuleg að því leyti að þeir sögðu að EES-samningurinn þryti ekki í bága við stjórnarskrána en segja svo i lok álitsgerðarinnar: „Þá bendum við á að síðar megi eða beri að gera stjórnarskrárbreyt- ingu, ef fram kemur, að forsendur okkar standist ekki.“ (Auðk. af HH). Álitsgerð fjórmenninganna var sem sé hvorki fugl né fiskur. Þegar haft er í huga það sem áður er sagt um hvernig fram- kvæmdavaldið er skert með EES- samningnum, hvernig löggjafar- valdið er skert og hvernig dóms- valdið er skert - þá er augljóst mál að samningurinn brýtur í bág við stjórnarskrána. Það voru fleiri lögfróðir menn en þeir fjórmenningarnir sem tjáðu sig um EES-samninginn og stjórn- arskrána. Aðrir sérfróðir menn komu við sögu. Ég nefni dr. Guð- mund Alfreðsson þjóðréttarfræð- ing, hæstaréttarlögmennina Ragn- ar Aðalsteinsson, Eirík Tómasson og Jóhann Þórðarson og loks Björn Þ. Guðmundsson prófessor. Allir þessir menn eru taldir vera miklir hæfileikamenn á sínum sérsviðum og allir voru þeir ósammála fjór- menningunum. Allir voru þessir fræðimenn á einu máli um að EES- samningurinn væri brot á stjórnar- skránni. Þarf frekari vitnanna við? Og það má líka spyija: Hvað varð um eið- staf eða drengskaparheit þeirra þingmanna sem samþykktu EES- samninginn? 5. Pyrir skömmu síðan greindi Ómar Ragnarsson fréttamaður á Stöð 2 frá aðilum sem stunduðu þá iðju úti á vegum landsins að breyta vegvísum, létu vegvísa sem áttu að snúa í norður snúa í suður eða vestur eða austur. Þetta var illt verk, en það minnir mig á það sem Jón Baldvin og sam- herjar hans hafa verið að gera. I síðari grein mun ég fjalla um kröfuna sem fram kom á sínum tíma um þjóðaratkvæði, um fisk- veiðilögsöguna og þær fíflalegu áróðursmyndir sem nú á dögunum voru sýndar margsinnis í sjónvarpi RÚV á vegum svokallaðrar Sam- starfsnefndar um kynningu á EES- samningnum. Höfundur er hagfræðingur og var aðstoðarmaður Lúðvíks Jósepssonar, ráðherra, 1971-74. eftir Sigrúnu Hv. Magnúsdóttur Það heyrist oft manna á meðal og í fjölmiðlum, „hvers konar fjölskyldur eru þetta,“ þegar sést til dauða drukk- inna og ofbeldishneigðra unglinga. Eins er stundum fullyrt að þessir krakkar búi við ástleysi og kæru- leysi. Foreldrar eru sakaðir og þeim kennt um drykkju bama sinna. Enn er haldið áfram: Eru þetta ekki bara vandamál fjöl- skyldunnar, þar sem foreldrar sjálfir eru dauða drukknir eða á fylleríi eða bara að skemmta sér og alveg sama um bömin sín? í þau 15 ára sem ég hef unnið með fólk sem á í erfiðleikum hef ég aldrei hitt foreldri sem ekki vill bami sínu vel. I þau rúm þijú ár sem unnið hefur verið á Tindum hafa lang flestir for- eldrar þeirra unglinga sem eru þar í meðferð, verið allir að vilja gerðir að vera með í þeirri fjölskylduvinnu sem boðið er upp á. Það em gerðar talsvert mikiar kröf- ur til foreldra, því það eru um 12 fundir, sem eru fastir liðir í dag- skránni, þar sem foreldrar og aðrir aðstandendur em boðaðir í hópmeð- ferð/ráðgjöf með ungling sem er í meðferð á Tindum. Við á Tindum vinnum þannig að foreldrar koma alltaf með unglingn- um þegar hann kemur í meðferð. Sem betur fer eiga allir unglingar sem komið hafa á Tinda, um 140 talsins, foreldrar eða nána aðstandendur sem em tilbúnir að styðja unglinginn. En ég tek eftir að þessar fjölskyld- ur em ákaflega óhamingjusamar. Það er svo margt búið að ganga á áður en leitað er eftir aðstoð. Trúlega er það algengast að fjöl- skyldur reyni að leysa sjálfar vand- ræði og sundmng. En víst era foreldr- ar með nagandi samviskubit og sköm- mustutilfinningu þegar bamið þeirra er komið á kaf í vímefnaneyslu. Þau hugsa: Hvað gerði ég rangt? Oftast er auðvelt að finna ástæður, allir for- eldrar hafa jú því miður gert eitthvað rangt í uppeldi bama sinna. Það að vera með samviskubit og vanmátta- kennd vegna ástands unglings sem komin er í ofneyslu vímuefna fellur „Það er ekki foreldrum að kenna að barnið þeirra drekkur. Við þurfum að fara að sjá það að vímefnaneysla er vandi í sjálfu sér, sem taka þarf á sér- staklega.“ líka í góðan jarðveg í íslensku samfé- algi. Því það er hrópað „hvers konar foreldrar em þetta?“ með vandlæt- ingu. Þeir hrökkva í kút, einangrast og vandamálið eykst. Foreldrar og fjölskyldur þeirra unglinga sem komið hafa í greiningu og meðferð á Tinda em alla vega fólk. Fólk eins og ég og þú, með menntun eins og ég og þú með tekjur eins og ég og þú, sem sagt fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Það er ekki foreldmm að kenna að barnið þeirra drekkur. Við þurfum að fara að sjá það að vímefnaneysla er vandi Vorhátíðin hefst í Hótel Reynihlíð með djasskvöldi föstudaginn 29. apríl, þar sem Viðar Alfreðsson, trompetleikari, Kristinn Svavarsson, saxófónleikari, Guðjón Pálsson, píanóleikari, Grímur Sigurðsson, bassaleikari og Karl Petersen, trommuleikari, spila íjörmikla djass- tónlist. Á föstudeginum verður einn- ig opnuð sýning í Hótel Reynihlíð á málverkum Ragnars Jónssonar og sýning á handverki eldri borgara í Mývatnssveit, s.s. postulíni, slæðum og dúkum. í sjálfu sér, sem taka þarf á sérstak- lega. Vissulega er áhugavert að rann- saka hvers vegna sumir ánetjast vímuefni en aðrir ekki, einnig er áhugavert að pæla í því hvers vegna sumir byija að drekka ungir en aðrir eldri. En það hjálpar ekki unglingnum eða fjölskyldu hans. Hvorki móður sem er logandi hrædd, því sonur sem bara er 16 ára fór út í æðiskasti fyr- ir einum sólarhring, eða sekt föður sem missti stjóm á sér og sló til 15 ára dóttur sinnar þegar lögreglan kom með hana ósjálfbjarga heim. Foreldrar átta sig oft ekki á að unglingurinn er í neyslu fyrr en hún er orðin mjög mikil. Þeir verða ringl- aðir í samskiptum reyna að beita ýmsum ráðum til að hafa stjóm á unglingnum til að bæta ástandið. Verða þá öfgakenndir í viðbrögðum þannig að þeir verða ýmist með yfir- drifna afskiptasemi eða allt of eftir- látsamir. Slíkar örvæntingarfullar til- raunir auðvelda unglingnum að hafa óbeina stjórn á foreldmm sínum og halda áfram neyslu. Fjölskyldum þessara unglinga líður mjög illa og þær þurfa aðstoð. Keppt í dorgveiði Á laugardagsmorgun klukkan 11 standa Veiðifélag Mývatns, Dorg- veiðifélag íslands og Ferðamálafélag Mývatnssveitar fyrir dorgveiði- keppni úr Mývatni, sem er öllum opin. Keppni lýkur klukkan 16 og verður mestu veiðiklónni veitt verð- laun. Klukkan 14 verður boðið upp á mývetnskt bakkelsi á veitinga- staðnum Hvernum, Reykjahlíð. Hót- el Reynihlíð mun hafa silungs- og kjötrétti á boðstólum um kvöldið. Keppendur í dorgveiðinni geta einnig Sigrún Hv. Magnúsdóttir Það hefur verið mjög ánægjulegt að fá tækifæri til að vera með í upp-. byggingu fjölskylduprógrams Tinda. Finna hvemig von og gleði vaknar að nýju eftir langan tíma vonleysis. Styðjum fjölskylduna á ári fjölskyld- unnar, hjálpum henni að finna styrk sinn og getu í stað þess að einblína á veikleika hennar. Höfundur er félagsrá ðgjafi og deildarstjóri Tinda, vímuefnadeildar Unglingaheimilis ríkisins. fengið veiði dagsins matreidda á hótelinu. Minning um skáldkonu Klukkan 21 á laugardagskvöld hefst minningardagskrá um skáld- konuna Jakobínu Sigurðardóttur í Skjólbrekku í Mývatnssveit. Þar verður lesið úr verkum hennar og leikið á píanó verk eftir sr. Örn Frið- riksson. Sama kvöld verður haldið „barkvöld" á Hótel Reynihlíð. Tónlistarskóli Mývatnssveitar heldur vortónleika sína í Reykjahlíð- arskóla á sUnnudag kl. 14, en um morguninn er hugvekja og tónlistar- flutningur í Reynihlíðarkirkju. Á Vorhátíð við Mývatn verður fleira gert til afþreyingar og skemmtunar og boðið upp á ýmis útivistartækifæri og matartilboð, svo eitthvað sé nefnt. Vori fagnað við Mývatn VORHÁTIÐ við Mývatn nefnist dagskrá sem haldin verður helgina 29. apríl til 1. maí og er lögð sérsök áhersla á mannlíf í Mývatns- sveit. Meðal þess sem boðið verður upp á er djasstónlist, dorgveiði- keppni, tónleikar, málverkasýning og minningardagskrá um Jakobínu Sigurðardóttur, rithöfund, sem lést fyrr á þessu ári. Einnig verða leikin á píanó frumsamin lög eftir sr. Örn Friðriksson, prófast og sóknarprest á Skútustöðum í Mývatnssveit. Fögnnm sumri með kvnningu á nýjnm Suzuki Swift GLSi Bílasýning um helgina Sýnum 1994 árgerðina af Suzuki Swift og Suzuki Vitara. Opið laugardag frá kl. 10-16, sunnudag frá kl. 13-16. SUZUKIBILAR HF SKEIFUNNI 17 SlMI 68 51 00

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.