Morgunblaðið - 23.04.1994, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
VIÐSKIFTIAMNNULÍF
Reikningsskil
Félögsem eiga ein-
göngu hlutabréf færa þau
á viðskiptaverði
ÁSTÆÐAN fyrir breyttri reikningsskilaaðferð Eignarhaldsfélagsins
Alþýðubankinn hf. í ársreikningi vegna ársins 1993 úr hlutdeildarað-
ferð í að færa hlutabréfaeign félagsins á viðskiptaverði í árslok er
að það gefur réttari mynd af stöðu félagsins að sögn Jóhannesar
Siggeirssonar, stjórnarformanns Eignarhaldsfélagsins. Aðaltilgang-
ur félagsins væri að eiga hluti í öðrum félögum og það hefur engan
annan rekstur með höndum. Bókhaldslegt tap félagsins varð 166
milljónum króna meira þar sem hlutabréfaeign var færð á viðskipta-
verði en það hefði verið ef áfram hefði verið beitt hlutdeildarað-
ferð, eins og kom fram í Morgunblaðinu á fimmtudag.
Jóhannes sagði að á árinu 1992
hefði verið ákveðið að breyta Eign-
arahaldsfélaginu úr því að vera fé-
lag um eignarhluta í íslandsbanka
eingöngu í það að vera eignarhalds-
félag um hlutabréf í fleiri fyrirtækj-
um. Þetta hefði verið endanlega
frágengið á aðalfundi í fyrra og
félagið ætti nú hlut í ellefu fyrir-
tækjum. Því hefði verið talið rétt
að fara sömu leið í reikningsskilum
og önnur hliðstæð félög, eins og til
dæmis Draupnissjóðurinn og Þró-
unarfélagið, sem væru einnig félög
sem hefðu þann tilgang að eiga
hlutabréf.
Hann sagði að að vísu væri tíma-
setningin óheppileg vegna þess að
hlutabréf félagsins í íslandsbanka,
sem væru megineign félagsins,
hefðu fallið mjög í verði eða úr 1,38
í 0,88 sem væri bókfært verð um
áramót. Hann sagði að öðru máli
gegndi um hlutabréfaeign fyrir-
tækja sem hefðu einhvem annan
rekstur að megimarkmiði með
starfsemi sinni. Hlutabréfeign
slíkra fyrirtækja væri iðulega færð
0,4% verðbólgaá
fyrsta ársþriðjungi
LÁNSKJARAVÍSITALA á næsta ársþriðjungi, frá maí til september,
hækkar um 0,27% sem jafngildir 0,8% verðbólgu samkvæmt endurmet-
inni verðlagsspá Hagfræðideildar Seðlabanka íslands. Spáin er endur-
metin til ársloka miðað við að gengi og laun haldist nánast óbreytt frá
því sem nú er.
Lánskjaravísitala fyrir maímánuð
hefur verið reiknuð 3.347 stig og
jafngildir hækkun vísitölunnar frá
janúar til maí um 0,4% verðbólgu á
ári. Þriggja mánaða hækkun fram-
færslukostnaðar til apríl jafngilti
hins vegar 1,4% verðbólgu á árs-
grundvelli. Verðlagsspáin nýja gerir
ráð fyrir 1% hækkun framfærslu-
kostnaðar á árinu og 1,5% meðal-
hækkun frá síðasta ári.
Þá gerir verðlagsspáin ráð fyrir að
lánskjaravísitalan hækki um 0,6% á
árinu í heild og að hækkun bygging-
ar- og launavísitalna verði svipuð.
Aðalfundur
Bilgreinasambandsins
verður haldinn laugardaginn 7. maí
nk. á Hótel Sögu og hefst kl. 9.15.
Dagskrá:
Kl. 9.15 Fundarsetning - Sigfús Sigfússon, formaður BGS.
Kl. 9.30 Starf og skipulag BGS. Tillögur stjórnar um starf
og skipulag BGS - Umræður.
Kl. 10.30 Atvinnumái í bílgreininni. Svört atvinnustarfsemi.
Hugmyndir um aðgerðir. Umræður.
Kl. 11.30 Staða bílgreinarinnar í íslensku efnahagslífi.
Guðmundur Magnússon, prófessor.
Kl. 12.00 Hádegisverður- Hádegisverðarerindi.
Halldór Blöndal samgöngumálaráðherra.
Kl. 13.30 Dagskrá sérgreinafunda.
A. Verkstæðisfundur.
B. Bílamálarar og bifreiðasmiðir.
C. Bifreiðainnflytjendur.
D. Smurstöðvar.
E. Varahlutasalar.
Kl. 15.30 Niðurstöður sérgreinafunda. (Sal A - Hótel Sögu).
Kl. 16.00 Aðalfundur Bílgreinasambandsins. (Sal A - Hótel Sögu).
- Aðalfundarstörf skv. 9 gr. laga sambandsins.
Stjórn BGS hvetur sambandsaðila til að mæta á fundinn.
Stjórn Bílgreinasambandsins.
við framreiknuðu kostnaðarverði,
þó þess væru einnig dæmi að hluta-
bréfaeign væri færð á viðskipta-
verði. Auðvitað væri eðlismunur á
því hvort félag hefði það að megin-
tilgangi að eiga hlutabréf eða hvort
einhver annar rekstur væri aðaltil-
gangurinn með starfsemi þess.
Sfærstu hluthafar íslandsbanka
Nafnverð, þús. kr.
1. Ehf. Alþýðubankans hf. 492.358
2. Lffeyrissj. verslunarmanna 378.636
3. Fiskveiðasjóður íslands 275.967
112,70%
] 12,73%
4. Burðaráshf.
223.373
9,76%
9,57%
7,12%
7,12%
5,71%
5,91%
„Valfells" 229.167 . ........
— 5,91%
5. Lífeyrissj. Dagsbr. og Frams. 195.097 ll|Ii||i 5,03%
6. Sameinaðir verktakar
7. LÍÚ
8. Sjóvá-Almennar hf. 82.936
9. Lífeyrissj. verksmiðjufólks 62.369
10. Landssamb. iðnaðarmanna 58.025
4,05%
4,05%
Heildarhlutafé
3.878.671 þús. kr.
ESEGESEjQT
Góð viðbrögð við auglys-
ingu Péturs H. Blöndal
AUGLÝSING Péturs H. Blöndal, tryggingastærðfræðings, I
fyrradag I Morgunblaðinu eftir umboði hluthafa íslandsbanka
til að fara með atkvæðisrétt þeirra á aðalfundi bankans nk.
mánudag virðist hafa heppnast vel ef marka má fyrstu við-
brögð. Þegar Morgunblaðið ræddi við Pétur seinni hluta dags
í gær sagði hann að um 40 umboð hefðu borist. „Ég átti ekki von
á nema 6-10 umboðum fyrsta daginn þannig að þessi fyrstu
viðbrögð hafa verið framar vonum,“ sagði Pétur, en hann tekur
á móti umboðum hluthafa fram að aðalfundinum á mánudag. Á
fundinum mun Pétur gefa kost á sér í stjórnarkjöri og segir
hann ástæðuna fyrst og fremst þá að hann telji nauðsynlegt að
hluthafar geti haft áhrif á kjör bankaráðs.
Eins og áður hefur komið fram
í Morgunblaðinu er talið víst að
allir núverandi stjórnarmenn ís-
landsbanka gefi áfram kost á sér
til setu í stjórninni. í stjóm bank-
ans sitja nú Orri Vigfússon,
Sveinn Valfells, Magnús Geirsson,
Guðmundur H. Garðarsson, Einar
Sveinsson, Kristján Ragnarsson
og Öm Friðriksson. Ekki er vitað
um aðra en Pétur sem hafa ákveð-
ið að freista þess að komast inn
í stjómina, en framboðum þarf
ekki að skila fyrr en á aðalfundin-
um.
Á meðfylgjandi töflu má sjá röð
stærstu hluthafa íslandbanka en
þar hefur staðan lítið breyst frá
síðasta aðalfundi. Heildarhlutafé
bankans er 3.879 milljónir og eiga
tíu stærstu hluthafarnir samtals
um 52%.
Valfells-ættin_ á rúmlega 229
milljónir króna í Islandsbanka sem
er 5,91% af heildarhlutafé. Hluta-
fjáreignin er mjög dreifð og því
kemur hún alla jafna ekki fram á
lista yfir stærstu hluthafa. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Handsali
hf. er hlutur Valfells-ættarinnar
í gegnum 15 aðila eins og sjá má
á töflunni hér til hliðar.
Eígnanhlufdeild Ualfellsættanínnar í íslandsbanka hf. Nafnverð, þús. kr. %
Sútunarverksmiðjan 43.069 1,11
Steypustöð Suðurlands 42.590 1,10
Skeilan hl. 33.489 0,86
Sveinn Valfells 12.563 0,32
Vinnufataverksmiðjan 11.746 0,30
Db. Sveins B. Valfells 11.423 0,29
Skyrtugerðin hl. 10.864 0,28
Steypustöðin hf. 9.930 0,26
Skeifan 15 sf. 8.218 0,26
Vinnuvélar hf. 8.218 0,21
Ágúst Valfells 8.103 0,21
Fataverksmiðjan hf. 7.651 0,20
Vesturgarðar hf. 7.651 0,20
Sigríður Valfells 5.606 0,14
Helga Valfells 1.295 0,03
Jðn Valfells 1.237 0,03
Ágúst Valfells yngri 1.237 0,03
Sveinn Valfells yngri 1.237 0,03
Ársæll Valfells 1.237 0,03
Nanna Helga Valfells 670 0,02
Matthildur Valfells 566 0,01
Svava Valfells 566 0,01
Samtals 229.167 5,91
Bílaiðnaður
Endurskipulagning ákveðin
hjá Ford bílaverksmiðjunum
Dearborn, Michigan. Reuter.
FORD-bifreiðafyrirtækið hefur ákveðið að endurskipuleggja
starfsemi sína víða um heim á næstu árum og spara með því
allt að 3 milljarða dollara á ári fram til aldamóta.
Ætlunin er að setja helztu
rekstrareiningar undir einn hatt -
það er vöruþróun, framleiðslu, lag-
er og söludeild. Að sögn Alex Trot-
mans stjórnarformanns mun Ford
koma á fót fimm bifreiðamiðstöðv-
um. Ein þeirra verður í Evrópu
og skiptist milli rannsóknar- og
Hlutliafar Islandsbanka
Undirritaður fór fram ó umboð fró hluthöfum
íslandsbanka með auglýsingu í fimmtudags-
blaði Morgunblaðsins, þar láðist að geta
um faxnúmer mitt, sem er 680241.
Pétur tfl. Blöndal.
verkfræðimiðstöðva Fords í Dun-
ton í Bretlandi og Merkenich í
Þýzkalandi fyrir framhjóladrifna
smábíla. Hinar miðstöðvamar fjór-
ar verða í Bandaríkjunum og munu
fást við aðra tegundir bíla, sem
fyrirtækið framleiðir, og tengjast
rannsóknar- og verkfræðimiðstöð
Fords í Dearborn, Michigan.
Hver miðstöð ber ábyrgð á
hönnun, þróun og smíði allra bíla,
sem þeim verður falið að sjá um,
hvar sem þeir verða seldir í heimin-
um. „Með því að fella framleiðsl-
una saman í eina held,“ sagði Trot-
man, „notum við tækni okkar og
þekkingu á sem hagkvæmastan
hátt til þess að gera viðskiptavin-
inum allt til geðs.“
Endurskipulagningin mun ekki
leiða til hönnunarbreytinga í bráð,
en nokkrar breytingar verða á
æðstu stjórn fyrirtækisins.