Morgunblaðið - 23.04.1994, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRIL 1994
23
Deutsche Bank
Starfsmönnum
bankans kennt um
Schneider-hneykslið
Frankfurt. Reuter.
DEUTSCHE Bank AG, helzti lánardrottinn hrunins fasteignaveldis
auðjöfursins Jurgens Schneiders, sem er horfinn, segir að kenna
megi háttsettum starfsmönnum bankans um tap bankans á lánum
til hans. En bankinn vísar á bug ásökunum um að hafa látið dragast
að skýra yfirvöldum frá málinu.
„Þegar við vitum hvað gerðist
verða starfsmenn að taka afieiðing-
unum,“ sagði aðalframkvæmda-
stjóri Deutsche Bank, Hilmar Kopp-
er, í sjónvarpsviðtali. „Rannsókn
málsins er í höndum endurskoðenda
og farið verður ofan í saumana á
því sem gerðist og án tillits til þess
hve háttsettir menn eiga í hlut,“
sagði hann.
Síðan Schneider hvarf fyrir hálf-
um mánuði „að læknisráði" og fyr-
irtæki hans bað um gjaldþrota-
skipti hefur komið í ljós að skuldir
hans og fyrirtækjasamsteypu hans
nema um fímm milljörðum marka.
Þar af nemur skuldin við Deutsche
Bank 1,2 milljörðum marka.
Kopper vísaði á bug þeirri gagn-
rýni að yfirvöld hefðu ekki verið
látin vita nógu fljótt um hvarf
Schneiders þegar bankanum barst
bréf frá honum 7. apríl. „Embætti
ríkissaksóknara barst einnig bréf
7. apríl og hafðist ekkert að,“ sagði
Kopper.
Hann sagði að mat á muninum
á verðmæti eigna leifanna af
Schneidersamsteypunni og skuldum
hennar við bankann gæti tekið
mörg ár. Þótt lán Deutsche Bank
hafi verið tryggð með veði í eignum
Schneiders „leiki grunur á að þær
séu ekki eins mikils virði og lánin
sem hann fékk“.
Kopper viðurkenndi að Deutsche
Bank hlyti að hafa orðið á nokkur
mistök í Schneider-málinu. „Við
vorum einnig þolendur í þessu máli
Morgunblaðið/Kristinn
ÚTFLUTNINGSVERÐLAUN — Sæpiast hf. á Dalvík
hlaut Utflutningsverðlaun forseta Islands sem veitt voru í sjötta sinn
sl. fimmtudag. Er það í fyrsta skipti sem Útflutningsverðlaun forseta
íslands fara til fyrirtækis með höfuðstöðvar og framleiðslu utan
Reykjavíkur. í úthlutunarnefnd eiga sæti Guðmundur Magnússon pró-
fessor sem er formaður nefndarinnar, María E. Ingvadóttir fulltrúi
Útflutningsráðs, Ólafur B. Thors fulltrúi landsnefndar Alþjóða verslun-
arráðsins, Sveinn Björnsson fulltrúi forsetaembættisins, Þórunn Svein-
björnsdóttir fulltrúi Alþýðusambands íslands. Á myndinni eru frá vinstri
Kristján Aðalsteinsson framkvæmdastjóri Sæplasts, Guðmundur Magn-
ússon og forseti íslands Vigdís Finnbogadóttir.
og ég harma þetta mjög,“ sagði
hann. „Þetta særir stolt okkar, en
jafnvel beztu nemendur koma upp
um sig þegar þeir vanrækja heima-
vinnuna."
Kopper kvaðst aldrei hafa hitt
Schneider, en sagði að hann ætti
að standa fyrir máli sínu. „Hann
ætti að snúa aftur og láta sjá sig,“
sagði hann.
Kaffi
Heimsverð
hækkar
Kuala Lumpur. Reuter.
TILFINNANLEGUR skortur á
kaffi í Asíu hefur leitt til veru-
legrar verðhækkunar í álfunni
og heiminum á undanförnum vik-
um og búizt er við að skorturinn
haldi áfram enn um hríð sam-
kvæmt heimildum í Kuala Lump-
ur, Malasíu.
Birgðir frá Víetnam og Thailandi
eru á þrotum og nýjar birgðir frá
Indónesíu eru lengur að berast á
markað en á sama tíma í fyrra
samkvæmt heimildunum.
Kaffi frá Asíu er aðallega notað
til þess að blanda saman við annað
kaffi og er ódýrara. Vegna skorts-
ins hefur kaffí til afhendingar síðar
ekki verið keypt við eins háu verði
í London í fimm ár — 1. 625 pund
tonnið.
í Skútahrauni 9, Hafnarfirði,
í dag, laugardag, sunnudag og næstu daga frá kl. 13.00-18.00.
Sumarhúsasýnins í
I o I
--.. „ . .-ur- - ^ jl
I
Þér gefst einstakt tækifæri til
þess að skoða þetta fullbúna
hús og önnur hús, sem við
erum með í smíðum.
Komdu og ráðfærðu þig við
fagmenn.
Hjá okkur færðu hugmyndir,
teikningar, kostnaðaráætlanir,
myndir og allar upplýsingar
um framleiðslu
heilsárssumarhúsanna okkar.
ALLIRVELKOMNIR
m a r h ú s
Skútahrauni 9,220 Hafnarfirði,
símar 91 -53755 og 91-50991
Tilkynning um útgáfu markaðsverðbréfa
Samvinnusj óður
íslands hf.
Útboð skuldabréfa í apríl 1994
1. flokkur 1994 A-D
Kr. 100.000.000,-
Kr. eitt hundrað milljónir 00/100
Útgáfudagur:
Gjalddagar:
Sölutímabil:
Grunnvísitala:
Eíningar bréfa:
20. apríl 1994
20.08.1996 25.000.000 kr.
20.12.1996 25.000.000 kr.
20.03.1997 25.000.000 kr.
20.07.1997 25.000.000 kr.
20. apríl 1994 - 20. október 1994
3346
Kr. 250.000,-
Verðtrygging og ávöxtun: Ofangreind bréf eru verðtryggð miðað við hækkun lánskjaravísitölu.
Ársávöxtun, umfram verðtryggingu, er 6,50% á útgáfudegi.
Söluaöilar:
Skráning:
Umsjón meö útgáfu:
Landsbréf hf., Suðurlandsbraut 24, Reykjavík, og umboðsmenn í Lands-
banka íslands um allt land. Útboðslýsing liggur frammi hjá söluaðilum.
Sótt hefur verið um skráningu bréfanna á Verðbréfaþingi íslands.
Landsbréf hf.
fl
LANDSBRÉF HF.
Landsbankinn stendur með okkur
j* Suðurlandsbraut 24, 108 Rcykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598
< Löggilt verdbréfafyrirtæki. Adili ad Verdbréfaþingi íslands.
FERÐALÖÚ OC LmYl5T1994
Stórglæsileg sýning í Perlunni 21. - 24. apríl
Opið í dag laugardag kl. 13-18
Sunnuudag kl. 13-18
Island
sækjum
þah neim