Morgunblaðið - 23.04.1994, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRIL 1994
*
Arlegnr kymiiiigar-
dagnr Háskólans
ÁRLEG námskynning Háskólans á Akureyri verður í dag, laugar-
daginn 23. apríl, í húsakynnum skólans við Glerárgötu 36. Nám
í öllum deildum skólans verður kynnt auk þess sem almenningi
gefst kostur á að kynna sér rannsóknaraðstöðu skólans.
Nemendur og kennarar skólans
kynna starfsemi deildanna, en þær
eru fjórar, heilbrigðisdeild, kenn-
aradeild, rekstrardeild og sjávar-
útvegsdeild. Kynning tvegga
fyrstnefndu deildanna fer fram í
aðalbyggingu skólans við Þing-
vallastræti en hinna að Glerár-
götu.
Þrjár rannsóknarstofur starfa
nú í samvinnu við skólann. Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins hef-
ur haft útibú á Akureyri síðan
1979 og sinnir það margvíslegum
þjónusturannsóknum fyrir fiskiðn-
aðinn og hefur eftirspurn eftir
þjónustunni farið vaxandi á síð-
ustu árum. Hafrannsóknarstofnun
hefur haft útibú sitt á Akureyri
frá 1991 og hefur það gert um-
fangsmikla athugun á lífríki Eyja-
fjarðar. Nýjasta samstarfsstofn-
unin er Iðntæknistofnun, en
starfsmenn allra stofnananna hafa
kennsluskyldu við háskólann.
275 nemendur
Á yfirstandandi skólaári hafa
275 nemendur stundað nám við
Háskólann á Akureyri. Umsóknir
um skólavist fyrir næsta skólaár
eru famar að berast og hefur mik-
ið verið spurst fyrir um nám í
skólanum.
Bragi kosn-
inga sljóri
Framsóknar
BRAGI V. Bergmann, fyrrver-
andi ritsljóri Dags, hefur verið
ráðinn kosningastjóri Fram-
sóknarflokksins á Akureyri fyr-
ir bæjarstjórnarkosningamar í
vor.
Bragi hóf störf á skrifstofu
flokksins sl. þriðjudag og mun
starfa þar fram yfir kosningar.
Auk hans er Gunnlaugur Guð-
mundsson starfsmaður á skrifstof-
unni sem er til húsa í Hafnar-
stræti 90, 2. hæð. Kosningaskrif-
stofan er opin alla virka daga frá
kl. 11.00 til 19.00 virka daga og
frá 10.00 til 14.00 á laugardögum.
Frambjóðendur flokksins verða
til viðtals á skrifstofunni milli kl.
17.00 og 19.00 virka daga og á
öðrum tímum eftir samkomulagi
auk þess sem þeir eru tilbúnir að
mæta á fundi og önnur mannamót
til að kynna sig og stefnu flokks-
ins og svara fyrirspumum.
(Fréttatilkynning.)
Enskunám í Englandi
Við bjóðum enskunám við einn virtasta málaskóla Englands.
Skólinn sér þérfyrirfæði og húsnæði hjá enskri fjölskyldu.
Um er að ræða: Alhliða ensku, 18 ára og eldri, 2ja til
11 vikna annir.
Unglingaskóla, júlí og ágúst, 13-17 ára, 4ra vikna annir.
Viðskiptaenska - 2ja og 4ra vikna annir.
Allar nánari upplýsingar gefa Júlíus Snorrason
og Linda Ragnarsdóttir í síma 96-21173,
Bæjarsíðu 3, 603 Akureyri.
innréttingu, hjónaherbergi meö vönduðum skápum, baöherbergi
meö góöri innréttingu, allt flísalagt meö iöupotti. Á miöhæö er
stofa meö teppi á gólfi, mjög vandaöur arinn, blómaker er steypt
upp meö stigauppgöngu. Á neöri hæö eru 3 herbergi meö parketi
á gólfum, góöur saunaklefi með sturtu,
snyrtingu oggóöu hvíldarherbergi,
þvottahús flísalagt meö góöum
innréttingum. Lóöerfull _
frágengin meö gróöri. FASTEI6NASALAN
Brekkugötu 4, símar 21744 & 21820. Fax 27746.
tiu O llCIUOIgl II
urtu,
/i\
Bæjarsíða 3, Akureyri,
sem er einbýlishús á fjórum
pöllum samtals 307 fm.
Á efri hæö er rúmgott eld-
hús meö vandaðri
Togarinn Svalbakur EA kominn til heimahafnar
Mögiileikar opnast
á nýjum verkefnum
SVALBAKUR EA-2, nýjasta skip Útgerðarfélags Akureyringa
kom til heimahafnar á Akureyri um hádegisbil í gær. Skipið
er um 2.400 tonn að stærð og kostaði um 500 milljónir króna.
Það var smíðað í Danmörku árið 1989 en er keypt frá Kanada.
Það var fátt sem minnti á sum-
arkomuna þegar skipið lagðist
að bryggju í gærdag en þrátt
fyrir norðannepju og hríð safnað-
ist saman fjölmenni á togara-
bryggjunni þegar skipið lagðist
að.
Halldór Jónsson bæjarstjóri og
formaður stjómar Utgerðarfé-
lags Akureyringa sagði félagið í
reynd standa á tímamótum. Þau
skip sem ÚA hefði keypt á undan-
fömum ámm hefðu öll tengst
kaupum á veiðiheimildum til að
styrka stöðu félagsins og við-
halda möguleikum til að nýta
vinnslugetu þess.
„Nú er þessu öðm vísi farið.
Það var orðið tímabært að hefja
markvissa endurnýjun á okkar
fiskiskipum sem mörg eru orðin
nokkuð gömul. Nú hefur fyrsta
skrefið verið stigið með kaupum
á þessu skipi - sem er stór og
öflugur frystitogari og með komu
hans opnast möguleikar til þess
að takast á við ný verkefni," sagði
Halldór.
Hann sagði Svalbak einn af
stærstu og fullkomnustu togur-
um íslendinga og er sérstaklega
styrktur til veiða í ís. „Á undan-
förnum árum hefur þróunin í
veiðum verið sú að sífellt er sótt
lengra og dýpra og því nauðsyn-
legt að aðlaga veiðitækin að þeim
aðstæðum sem eru á hveijum
tíma. Með þessu nýja skipi opn-
ast möguleikar okkar til veiða á
úthafinu og eins á rækju. Með
minnkandi aflaheimildum er mik-
ilvægt að geta nýtt sér þá veiði-
möguleika sem eru utan kvóta,“
sagði Halldór.
Svalbakur verður almenningi
til sýnins í dag, laugardag frá
kl. 13 til 18. Skipstjóri er Krist-
ján Halldórsson.
■ KOSNINGASKRIFSTOFA
Alþýðubandalagsins á Akureyri
verður opnuð í dag, laugardag.
Skrifstofan er í Lárusarhúsi, Eið-
svallagötu 18, og þar verður opið
hús milli kl. 16.00 og 18.00. Fram-
bjóðendur verða á staðnum og
boðið verður upp á kaffí og með-
læti. Skrifstofan verður opin alla
daga en fastur opnunartími er
milli kl. 16.00 og 18.00. Jón
Haukur Brynjólfsson hefur verið
ráðinn kosningastjóri.
I UM2.300 manns hafa séð ljós-
myndasýninguna ísland við alda-
hvörf í gamla Hekluhúsinu á
Gleráreyrum og er þetta ein fjöl-
sóttasta sýning sem haldin hefur
verið á Akureyri. Sýningin verður
opin frá kl. 14.00 til 18.00 bæði
í dag, laugardag og á morgun, en
henni lýkur á sunnudag. Jón Árn-
þórsson starfsmaður lýðveldishá-
tíðarnefndar sagði allt stefna í að
gestir yrðu um 3.000 talsins.
Atvinnumálanefnd Akureyrar auglýsir
Atvinnumálanefnd Akureyrar auglýsir hér með eftir aðilum, fyrirtækjum,
og einstaklingum, sem áhuga hefðu á að fá inni með atvinnustarfsemi í
Hekluhúsinu á Gleráreyrum.
Húsnæði þetta er alls um 3.000 fermetrar með sameiginlegri starfsmanna-
aðstöðu og getur hentað mjög vel fyrir ýmisskonar starfsemi.
Skriflegum umsóknum skal komið til atvinnumálanefndar Akureyrar, Strand-
götu 29, fyrir 30. apríl nk., þar sem fram kemur húsnæðisþörf og lýsing
á þeirri starfsemi sem ætlunin er að reka í húsnæðinu.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa atvinnumálanefndar í síma 21701.
Atvinnumálanefnd Akureyrar