Morgunblaðið - 23.04.1994, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRIL 1994
Stólar á
sýninguí
Stöðlakoti
OPNUÐ verður sýning á stólum
eftir Þórdísi Zoega, húsgagna-
hönnuð, í Stöðlakoti við Bók-
hlöðustíg 6 í Reykjavík í dag,
laugardaginn 23. apríl nk.
Á sýningunni verða m.a. frum-
gerðir af tveimur nýjum stólum sem
koma á markað á næstunni. Stólarn-
ir bera nöfnin Tjaldur og Stelkur og
eru eldhús- eða kaffihúsastólar, sem
Sólóhúsgögn hf. munu annast fram-
leiðslu á. Einnig verða til sýnis aðrir
stólar sem Þórdís hefur hannað á
undanförnum 5 árum og hafa síðan
verið í framleiðslu og sölu. Þar má
t.d. nefna raðstólinn Loka, sem
Penninn hf. framleiðir og vakið hef-
ur verðskuldaða athygli frá því hann
var fyrst sýndur, á Hönnunardaginn
1993.
Þórdís Zoéga er fædd í Reykjavík
1955. Hún stundaði nám í hús-
gagna- og innanhúshönnun við Skol-
en for Brugkunst og Kunstakademi-
ets Arkitektskole í Kaupmannahöfn
á árunum 1976 til 1981. Hún hefur
síðan unnið við hönnun og rekur nú
teiknistofu. Þórdís hefur tekið þátt
í fjölda samsýninga hér á landi og
erlendis og vakið athygli fyrir vand-
aða hönnun og nýstárlega efnisnotk-
Kœrlega þakka ég öllum sem minntust mín á
áttrœðisafmœli mínu 5. apríl síðastliÖinn.
Gunnar Gislason
frá Glaumbæ.
Stóliinn Tjaldur, sem Þórdis Zo-
ega hefur hannað.
Sýningin í Stöðlakoti er fyrsta
einkasýning Þórdísar og er hún opin
alla daga frá kl. 14 til 18 en henni
lýkur 8. maí.
Trjónukrabbi skoðað-
ur í Reykjavíkurhöfn
TRJONUKRABBINN í sælíf-
skerunum á Miðbakka í Gömlu
höfninni í Reykjavík var vafalít-
ið eitt vinsælasta dýrið í Reykja-
vík á sl. ári. Útlit hans, hreyf-
ingar, atferli og aðlögunar-
hæfni gerðu hann nijög forvitni-
legan.
Eftir að hafa yfirunnið ástæðu-
lausa hræðslu við hann í byrjun
varð hann nánast gæludýr yngstu
kynslóðarinnar. Sú hagnýta
reynsla sem fengist hefur við
þessa kynningaraðferð undanfarin
tvö ár verður nýtt við að koma
með ýmsar nýjungar í sumar á
Miðbakka, m.a. er ráðgert að
kynna botndýralíf Kollafjarðar,
Skerjafjarðar og Hvalfjarðar og
grunnsævisfiska í sérhönnuðum
kerum.
Morgunblaðið/Þorkell
ATVIN Nlf A UGL YSINGA R
Kennsla
Verzlunarskóli íslands óskar að ráða kennara
til þess að kenna eftirtaldar námsgreinar
næsta vetur:
Stærðfræði (á stærðfræðibraut)
Lögfræði (V2 staða)
Skriflegum umsóknum skal skila til skóla-
stjóra fyrir lok aprílmánaðar.
Verzlunarskóli íslands.
IÐUNN
• VANDAÐAR BÆKTJR í 45 ÁR •
Ertu atvinnulaus eða
vantar aukavinnu?
Ef svo er gætum við á söludeild Iðunnar átt
erindi við þig. Við rekum kraftmikla sölu-
deild, sem náð hefur góðum árangri með
þróun nýrra aðferða við sölu og kynningu
bóka.
Við höfum pláss fyrir fleiri sölumenn og/eða
kynningarfulltrúa í það verkefni, sem nú er
í gangi, og ný, sem eru í undirbúningi.
Það kostar lítið að hafa samband og fá nán-
ari upplýsingar.
Þetta gæti verið tækifæri fyrir þig.
Upplýsingar í síma 28787 í dag á milli kl. 14
og 17 og á morgun milli kl. 13 og 17.
Organisti
óskast að Digraneskirkju, sem verður vígð í
lok september nk. með nýju 19 radda orgeli.
Starfsbyrjun eftir samkomulagi.
Umsóknir, er greini menntun og reynslu, ber-
ist fyrir 15. júní formanni sóknarnefndar, Þor-
björgu Daníelsd., Víghólastíg 21,200 Kópavogi.
Digranessöfnuður.
P*4
SIMON
JERSEY
THE UNIFORM COMPANV
er alþjóðlegt fyrirtæki, sérhæft í framleiðslu
á (einkennis)fatnaði fyrir hótel, veitingahús
og aðrar starfsgreinar. Vörurnar eru þekktar
og viðurkenndar og seldar um alla Evrópu
og Bandaríkin.
Með einkaumboð á íslandi leitum við eftir
samstarfsaðila til að annast markaðssetn-
ingu og sölu. Um væri að ræða mjög dríf-
andi einstakling, gjarnan konu, topp sölu-
mann með þekkingu á hótel-, veitinga- og
ferðabransanum.
Möguleiki er að gerast eignaraðili að rekstr-
inum.
Áhugasamir vinsamlega sendi sem ítarleg-
astar viðeigandi upplýsingar til auglýsinga-
deildar Mbl. fyrir 30. apríl nk., merktar:
„Tækifæri - 4781".
Atvinna óskast
34 ára harðduglegur maður óskar eftir fram-
tíðarstarfi sem fyrst. Hefur reynslu í verslun-
arstörfum og vinnu á tölvu. Hefur meirapróf.
Allt kemur til greina.
Upplýsingar í síma 643094.
Framkvæmdastjóri
hf. Djúpbátsins
á ísafirði
Staða framkvæmdastjóra hf. Djúpbátsins á
ísafirði er laus til umsóknar.
Óskað er eftir umsóknum frá framsæknum,
duglegum einstaklingi, sem hefur m.a. áhuga
fyrir uppbyggingu ferðamála tengt núverandi
rekstri. Umsækjendur þurfa að hafa menntun
og reynslu á viðskiptasviði.
Starfið felst í daglegri stefnumótun og
rekstri, sölustarfi og kynningu á starfseminni
út á við.
Umsóknum skal skila fyrir 10. maí nk. til
stjómarformanns, Engilberts Ingvarssonar,
Víkurtúni 2, 510 Hólmavík eða skrifstofu
hf. Djúpbátsins, Aðalstræti 1, 400 ísafirði,
merktum honum.
Upplýsingar veitir stjórnarformaður í síma
95-13213. Farið verður með allar umsóknir
sem trúnaðarmál.
F.h. stjórnar hf. Djúpbátsins,
Engilbert Ingvarsson.
m
auglýsingor
fÉLAGSÚF
Spíritistafélag Islands
Anna Carla Ingvadóttir miðill
verður með einkatíma.
Hver tími er 50-60 mínútur.
Verð kr. 2.500.
Opið alla daga frá kl. 10-22.
Upplýsingar í síma 40734.
Euro - Visa.
Stjórnin.
Sálarrann-
sóknafélag
Suöurnesja
Höldum námskeið um sálarrann-
sóknir þann 18.-25. júní nk.
Námskeiðið verður í formi fyrir-
lestra og þjálfunar I umsjá
welsku miðlana Irisar Hall, Juliu
Grifftths og Colins Kingshott.
Innritun hafin í síma félagsins
92-13348 og í síma 92-14517
(Sigmar). Staðfesting þarf að
hafa borist fyrir 10. maí.
Hvítasunnukirkjan
Filadelfía
Bænasamkoma kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Rich Moring frá
Kal'rforníu.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður John Warren jr. frá
Kaliforníu.
Miðvikudagur:
Skrefið kl. 18.00.
Biblfulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Vorferö eldri safnaðarmeðlima.
Brottför kl. 9.00.
Bænasamkoma kl. 20.30.
Miðilsfundir
Miðillinn Iris Hall verður með
einkafundi frá 26. aprfl.
Einnig er fyrirhugað námskeið á
lestri úr Tarpt-spilum.
Upplýsingar og tímapantanir í
síma 811073.
Silfurkrossinn.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ¦ SÍMI 682533
Sunnudagsf erðir 24. april
kl. 13.00
Lýöveldisgangan 2. áfangi
Hraunshoftslækur - Elliðavatn
Brottför er með rútu kl. 13.00
frá BSÍ, austanmegin (hægt er
að koma í rútuna m.a. við Mörk-
ina 6 og Bitabæ, Garðabæ).
Ath. að fjölskyidufólk getur
stytt gönguna og farið til baka
kl. 15.30, en fyrir aðra er áætl-
að að göngunni Ijúki við Elliða-
vatn kl. 17.00. Gönguleiöin er
meðfram Hraunsholtslæknum
og austan Rjúpnahæðar að
Þingnesi og bænum Elliðavatni.
Lýðveldisgangan er skemmti-
leg raðganga f 8 áföngum frá
Bessastöðum til Þingvalla í til-
efni lýðveldisafmælis og árs
fjölskyldunnar. Þátttökuseðill
gildir sem happdrættlsmiðl.
Nú er um að gera að byrja. i
fyrsta áfanganum mættu 200
manns. Afsláttarverð kr. 400
og frítt f. börn 15 ára og yngri.
Skíðagönguferðir
1. Kl. 10.30 Kjölur - Fossá. Enn
er nægur snjór til skíðagöngu-
ferða og leiðin yfir fjallið Kjöl
niður í Hvalfjörð er með betri
skfðagönguleiðum.
2. Kl. 13.00 Mosfellsheiði.
Skíðaganga fyrir þá, sem vilja
auðveldari leið en Kjalarferðina.
,Verð 1.100 kr. Brottför frá BSl,
austanmegin, og Mörkinni 6.
Á laugardag 23. og sunnudag
24. apríl eru skógargöngur um
Öskjuhlfð f tengslum við ferða-
sýninguna í Perlunni. Brottför
fró anddyri Perlunnar. Um 1
kist ganga. Ekkert þátttöku-
gjald.
Ferðafélag fslands.
KRISTID SAMFÉLAG
Dalvegi 24, Kópavogi
Laugardagur - fræðsla.
i dag kl. 11.00 f.h. verður Thollý
Rósmundsdóttir með fræðslu.
„Tilgangur tónlistar - tiibeiðsla
til Guðs eða Satans?"
Laugardagur - samkoma.
Almenn samkoma kl. 14.00.
Þriðjudagur - fræðsla.
Kl. 20.00 verður Gréta Sigurðar-
dóttir með fræðslu og segir frá
reynslu sinni, „úr kukll til Krists,
af spíritisma, reiki og nýöld".
Allir hjartanlega velkomnir.
UTIVIST
Dagsferð sunnud. 24. apríl
Kl. 10.30 Selatangar
Ekið suður með sjó og gengið
verður að Selatöngum en þar
standa enn gamlar minjar um
útræði hlaðnar úr hraungrýti.
Skemmtileg strandganga fyrir
alla fjölskylduna.
Verð kr. 1.500/1.700. Brottför
frá BSi bensínsölu.
Útivist.