Morgunblaðið - 23.04.1994, Síða 37
) MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
37
SJONARHORN
Sækjum landíð heim
ísland sækjum það heim - segfir í hvatning-arorðum Ferðamálaráðs,
sem nú hvetur fólk til að eyða sumarleyfum sínum hér innan lands.
Herferð þessi er tímabær, en hafa ferðamannastaðir landsins verið
undir það búnir að taka á móti auknum fjölda ferðamanna?
Víðtæk hlutlaus úttekt, einskon-
ar gæðamat, hefði þurft að fara
fram á allri aðstöðu og þjónustu á
þeim stöðum sem ferðamönnum er
beint að. Slíkar gæðakannanir er
gerðar erlendis og þykja nauðsyn-
legar svo finna megi veika hlekki
í ferðamannaþjónustunni áður en
þeir valda skaða. Niðurstöður
slíkra kannana eru síðan birtar
ferðafrömuðum til leiðbeiningar og
ferðamönnum til fróðleiks.
Mörg undanfarin ár hefur grein-
arhöfundur og lítill ferðahópur eytt
sumarleyfunum sínum í ferðlög um
landið og heimsótt marga þá staði
sem ferðamönnum er beint á. Verð-
ur hér gerð smá gæðaúttekt á
nokkrum þáttum, byggð á eigin
reynslu.
Þjónusta við ferðamenn hefur
stórbatnað á undanförnum árum
miðað við það sem áður var. Gisti-
staðir eru betri, viðmótið sem
mætir gestum er kurteislegt og
hlutlaust en ekkert sérstaklega al-
úðlegt, en á því eru að sjálfsögðu
undantekningar. Matur og verðlag
er málaflokkur sem þarf að fá
meiri umræðu. Eftir að hafa kynnst
ýmsum matsölustöðum víða um
landið er það ekkert undrunarefni
að erlendir ferðamenn reyni að
hafa eins mikið af mat með sér að
heiman og þeir geta.
Gistiaðstaða í höfuðborginni
Þar sém þessi grein er skrifuð
út frá höfuðstaðnum er ekki auð-
velt að meta hvemig gistiaðstaða
er hér nú. En sem einstaklingur
utan af landi, sem leita þurfti gist-
ingar hér í bænum á árum áður,
vona ég að ekki fyrirfinnist lengur
á gististöðum eða gistiheimilum
gijótharðar rúmdýnur, blýþungar
sængur og ofkynt og loftlaus her-
bergi. Erlendir gestir hafa þó
kvartað yfir því að hér séu til gisti-
heimili sem hafi of fá salerni miðað
við fjölda gesta á þessum stöðum.
Slíka þætti þarf að kanna, þeir em
mikilvægir.
Gistiaðstaða úti á landi
Ferðamenn sem ferðast um land-
ið og ekki gista í tjöldum reyna
flestir að fá gistingu þar sem verð-
lag er hóflegt. Edduhótelin verða
þá oft fyrir valinu eða bændagist-
ingin. Edduhótelin eru yfirleitt
þægileg, sérstaklega eftir að rúm-
kostur var bættur. Rúmfatnaður
gæti víða verið þægilegri, þessi
hamraði mætti hverfa. Bændagist-
ing er víða ágæt, mörgum finnst
hún þægilegri þar sem ekki er ver-
ið á gafli hjá húsráðendum.
Matur er of dýr
Málsverðir skipa miklu máli í
ferðalagi. Ef veðráttan er erfið eða
aðrir erfiðleikar hafa komið upp,
getur góð máltíð bætt það upp.
Matstaðir eru hér æði misjafnir.
íslenska veitingastaði má aðallega
greina í tvo flokka, „góða“ veit-
ingastaði þar sem matur er að jafn-
aði dýr og síðan skyndibitastaði. í
höfuðstaðnum em til veitingastaðir
sem selja mat á lægra verði í há-
degi en hækka síðan verðið að
kveldi. Hér þarf fleiri veitinga-
staði, fyrir utan skyndibitastaðina,
þar sem hægt er að fá einfaldan
góðan mat á hóflegu verði bæði í
hádegi og að kveldi.
Skyndibitastaðir þurfa
eftirlit
Skyndibitastaðir em mest áber-
andi allra veitingastaða á lands-
byggðinni. Þegar komið er á þessa
veitingastaði við þjóðveginn, mætir
gestum þessi þunga stæka lykt sem
fylgir margnotaðri djúpsteikingar-
feiti og megn þráalykt frá marg-
brenndum kjötleifum á steikarplöt-
um sem ekki era þrifnar á viðun-
andi hátt. (Ofnotuð steikarfeiti er
ekki aðeins lyktarslæm, hún getur
verið heilsu neytenda skaðleg.
Sama er að segja um margbrennd-
ar kjötleifar.)
Það er áberandi að á mörgum
þessum stöðum virðist matseldin,
steiking og umhirða látin í hendur
unglinga sem eðlilega hafa litla
þekkingu á að sjá um slíka staði.
Ég minnist hamborgara í veitinga-
skála einum á Norðurlandi fyrir
nokkrum áram sem voru súrir af
því að standa í stafla við heitt eld-
stæðið áður en þeir voru steiktir.
Fiskveitingahús vantar við
sjávarsíðuna
Ótrúlega lítil áhersla hefur verið
lögð á það á landsbyggðinni eða
við sjávarsíðuna að setja upp veit-
ingastaði sem bjóða upp á einfalda
góða fiskrétti. Menn hafa velt fyrir
sér hvernig þeim hafi reitt af jap-
önsku hjónunum sem komu til
lands og tóku sér bíl á leigu til að
geta farið um landið og borða fisk-
rétti á öllum litlu veitingastöðum í
sjávarþorpunum allt í kringum í
landið.
Erlendir ferðamenn vilja gjarnan
borða íslenskan fisk og vinsældir
fiskrétta hafa einnig aukist hjá
innlendum ferðamönnum. Hér á
höfuðborgarsvæðinu hefur veit-
ingastaðurinn Við Tjömina unnið
sér verðugan sess fyrir mjög góða
fiskrétti. Við minnumst einnig frá-
bærra fiskrétta á veitingastað við
Höfn í Hornafirði. Aftur á móti
gleymist seint bragðið af þráa \
steika fisknum á veitingastað ein- ’
um á Norðausturlandi. En svo
minnumst við með mikilli ánægju
mjög góðrar fískmáltíðar og vin-
gjamlegs viðmóts á veitingastað á
Vopnafirði.
Vingjarnlegt viðmót laðar að
ferðamenn
Viðmótið sem mætir gestum
skiptir máli. Okkur er sérstaklega
minnistætt frábært kaffiborð og
einstaklega alúðlegar móttökur á
Hótel Jórvík á Þórshöfn. Af sömu
ástæðu var mjög ánægjulegt að
gista á Húsmæðraskólanum á Hall-
ormsstað.
Gæði þeirra þjónustu sem ferða-
menn fá skiptir miklu máli. Alúð-
legt viðmót kostar ekkert, en vekur
löngun að heimsækja staðinn aft-
ur. Vert er að hafa hugfast að
gott orðspor fer víða og er ein
besta kynning sem ferðamanna-
land getur fengið.
M.Þorv.
RADAUQ YSINGAR
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti 1,
3. hæð, þriðjudaginn 26. apríl 1994, kl. 14.00, á eftirfarandi eignum:
Bakkavegi 1, Isafirði, þingl. eig. Guðmundur Þór Krístjánsson og
Elínborg Helgadóttir, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður ísafjarðar.
Hafnarstræti 14, Flateyri, þingl. eig. Allan W. Matthews, gerðarbeið-
andi Lffeyrissjóður Vestfirðinga.
Hafnarstræti 14, Isafirði, þingl. eig. Vélbátaábyrgðarfélag Isafjarðar,
gerðarbeiðandi Fjárfestingarfélagið Skandia h.f.
Hafnarstræti 19, Flateyri, þingl. eig. Guðbjartur Jónsson, gerðarbeið-
andi innheimtumaður ríkissjóðs.
Heimabæ, Arnardal, 0001, ísaftrði, þingl. eig. Asthildur Jóhannsd.
d.b. Marvins, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður ísafjarðar.
Heimabæ, Arnardal, 0101, Isafirði, talinn eig. Jóhann B. Maivins-
son, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður l'safjarðar.
Hlíðarvegi 12, neðri hæð, Isafirði, þingl. eig. Stefán Björgvin Guð-
mundsson, Guðlaug Soffía Jónsdóttir og Elva Sigurðardóttir, gerðar-
beiðendur Byggingarsjóður rikisins og Bæjarsjóður (safjarðar.
Hliðarvegi 12, Isafirði, þingl. eig. Kristján Finnbogason og María
Sonja Hjálmarsdóttir, gerðarbeiðandi Tryggingastofnun riksins.
Hlíðarvegi 15, Isafirði, þingl. eig. Einar Garðar Hjaltason og Bergljót
Halldórsdóttir, gerðarbeiðandi Landsbanki Islands, (safirði.
Mb. Elías Már fS-99, þingl. eig. Elías Már, gerðarbeiöandi Sölumið-
stöð hraðfrystihúsanna.
Mb. Guðni (S-52, þingl. eig. Konráð Guðbjartsson og Konráð Kr.
Konráðsson, gerðarbeiðendur innheimtumaður rikissjóðs og Lands-
banki (slands, aðalbanki.
Mb. Sævaldur EA-203, þingl. eig. Nökkvi sf., geröarbeiöendur Bæjar-
sjóður ísafjarðar og Landsbanki Islands, Bildudal.
Mjallargötu 1, 0201, Isafirði, þingl. eig. Gréta Jónsdóttir, gerðarbeiö-
endur Byggingarsjóður ríkisins og Bæjarsjóður Isafjarðar.
Seljalandi 21, Isafiröi, þingl. eig. Halldóra Jónsdóttir, gerðarbeiðandi
Landsbanki íslands, (safirði.
Sindragötu 6, 0103, (safirði, þingl. eig. Handtak sf., gerðarbeiðandi
Iðnlánasjóður.
Sindragötu 6, 0203, (safirði, þingl. eig. Handtak sf., gerðarbeiðandi
IðnlánqsjóðUr.
Smiðjustíg 3, Suðureyri, þingl. eig. Bima Guöríður Þorleifsdóttir,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Smárateigi 6, (safirði, þingl. eig. Trausti M. Ágústsson, geröarbeið-
andi Búnaöarbanki Islands, aðalbanki.
Stefnisgötu 8, Suðureyri, þingl. eig. Jenný Eygló Benediktsdóttir,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður Vestfirðinga.
Sæbóli II, Mýrahreppi, þingl. eig. Elísabet A. Pétursdóttir og Ágúst
G. Pétursson, gerðarbeiðandi Grávara hf.
Árvöllum 6, Isafirði, þingl. eig. Húsnæðisnefnd ísafjarðar, gerðarbeiö-
andi Bæjarsjóður (safjarðar.
Sýslumaðurinn á Isafirði,
20. april 1994.
Sólstofur
Seljum mjög vandaðar sólstofur. Fást með
sérstöku gleri með háu einangrunargildi,
með vörn gegn ofhitun inni vegna sólarorku.
Sýning í dag, kl. 10.00-17.00, í Kirkjulundi 13,
Garðabæ, ekið inn frá Vífilsstaðavegi.
Tæknisalan, sími 656900.
ÍÍMOLI
Vuokattiá íslandi
Skúlagötu2S &1399S
Sumarbú-
staðasýning
Höfum sýningu á
hinum frábæru
sumarhúsum frá Finnlandi ídag og ámorgun.
Tilkynning frá lögreglustjóranum
í Reykjavík
Skotvopnanámskeið
fyrir árið 1994 verða haldin á vegum embætt-
isins sem hér segir:
1. Frá 19.-24. maí 1994.
2. Frá 9.-13. júní 1994.
3. Frá 4.- 8. ágúst 1994.
Ekki eru fleiri námskeið fyrirhuguð á árinu.
Þeir, sem fyrirhuga að taka þátt, eru vinsam-
lega beðnir að skrá sig tímanlega.
Opið hús
Kvennalistans í Kópavogi
í dag, laugardaginn 23. april, í Hamraborg 7,
2. hæð, kl. 14-17. Kynning á stefnu Kvennalist-
ans í bæjarmálum Kópavogs. Frambjóðendur
verða á staðnum ásamt fleiri gestum.
Kaffi á könnunni. - Allir velkomnir.
Lóðahreinsun í
Reykajvík vorið 1994
Umráðamenn lóða í Reykjavík eru hvattir til
að flytja nú þegar af lóðum sínum allt, er
veldur óþrifnaði og óprýði.
Til að auðvelda fólki að losna við rusl eru
gámar við eftirtalda staði:
Ánanaust móts við Mýrargötu.
Sævarhöfða móts við malbikunarstöð.
Gylfaflöt austan Gufunesvegar.
Jafnasel í Breiðholti.
Sérstakir hreinsunardagar verða laugardag-
ana 7. og 14. maí og verða ruslapokar afhent-
ir í hverfabækistöðvum gatnamálastjóra.
Næstu tvær vikur eftir hreinsunardagana
munu starfsmenn Reykjavíkurborgar fara um
hverfi borgarinnar og hirða upp fyllta poka.
Rusl, sem flutt er til eyðingar, skal vera í
umbúðum eða bundið og hafa skal ábreiður
yfir flutningakössum.
Umráðamenn óskráðra og umhirðulausra
bílgarma, sem eru til óþrifnaðar á götum, ^
bílastæðum, lóðum og opnum svæðum í
borginni, eru minntir á að fjarlægja þá hið
fyrsta, annars má búast við að þeir verði
teknir til geymslu um takmarkaðan tíma en
síðan fluttir til förgunar.
Gatnamálastjórinn i Reykjavík,
hreinsunardeild.