Morgunblaðið - 23.04.1994, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. APRÍL 1994
45
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
Ég veit þú kemur í kvöld til mín. Eyjólfur og Kristjana fluttu þetta
hugljúfa lag frábærlega vel.
VESTMANNAEYJAR
Skemmtun byggð
á verkum Asa 1 Bæ
Aveitingastaðnum Höfðanum í
Eyjum var um síðustu helgi
frumflutt skemmtidagskrá sem
byggð er á lögum, ljóðum og rit-
verkum Ástgeirs heitins Olafsson-
ar, Ása í Bæ. í tali, tónum og með
myndum er farið í gegnum mörg
af meistaraverkum Asa og var
greinilegt að áhorfendur á Höfðan-
um kunnu vel að meta dagskrána
og hylltu flytjendur vel að loknum
flutningi.
Sigurgeir Scheving leikstjóri tók
dagskrána saman og stjórnaði sýn-
ingunni en flytjendur eru auk
Sigurgeirs hljómsveitin Hálft í
hvoru og söngkonan Kristjana
Ólafsdóttir. Sýningin ber heitið
Gefi nú góðan byr og er nafnið
fengið úr söngtextanum í Verum
sem er einn af mörgum lands-
þekktum textum Ása í Bæ. í upp_-
hafi sýningarinnar hljómar lagið Ó
fylgdu mér í Eyjar út, í flutningi
Ása sjálfs en Ási flutti þetta lag
á ákaflega skemmtilegan og sér-
stakan hátt. Sigurgeir Schewing
leiðir fólk síðan inn í sýninguna
þar sem hann stiklar á æviferli
Ása en síðan tekur við flutningur
laga og Ijóða sem yfirleitt byija
með stuttum inngangi, lesnum úr
einhveijum af verkum Ása, og
skiptist á lagaflutningur og lesinn
texti.
Synir Ása í Bæ, þeir Gunnlaug-
ur og Ólafur, ásamt eiginkonum
sínum, voru sérstakir heiðursgestir
á frumsýningunni en móðir þeirra
og systir sem einnig var boðið til
sýningarinnar áttu ekki heiman-
gengt. Fyrir lokalag sýningarinnar
voru þeir bræður kallaðir upp, þeir
hylltir og þeim afhentir blómvendir
en síðan sungu þeir með hljóm-
sveitinni lagið Göllavísur. Gunn-
laugur flutti síðan stutt ávarp en
sveiflaði sér síðan í sönginn með
hljómsveitinni og söng um Undra-
hattinn á eftirminnilegan hátt en
að því loknu tók Ólafur bróðir hans
Grásleppuvalsinn sem hann sagði
sitt uppáhaldslag.
Hljómsveitin Hálft í hvoru ásamt söngkonunni Kristjönu Ólafsdóttur
sá um að flylja texta og tóna og náðu að vanda upp hörkustemmningu.
Bræðurnir Gunnlaugur og Ólafur Ástgeirssynir ásamt eiginkonum
sínum syngja Göllavísurnar.
AFREKSFOLK
Arna Steinsen útnefnd
Iþróttaniaður KR
Arna Steinsen, knattspyrnukona,
var kjörin íþróttamaður KR
fyrir keppnistímabilið 1993 til 1994
á aðalfundi félagsins fyrir skömmu.
Hún er með reyndari knattspyrnu-
konum landsins og byijaði að æfa
og leika fyrir um tveimur áratugum,
en á síðasta keppnistímabili leiddi
hún kvennalið KR _sem þjálfari og
leikmaður til fyrsta íslandsmeistara-
titils KR utanhúss í 1. deild kvenna.
íþróttadeildir KR tilnefna íþrótta-
menn ársins og var þetta í 14. sinn,
sem kjörið fer fram, en aðalstjórn
sá um útnefninguna sem fyrr. Arna
er þriðji knattspyrnumaður félagsins
til að hljóta nafnbótina, en áður voru
Ágúst Már Jónsson og Atli Eðvalds-
son útnefndir. Kristinn Jónsson, for-
maður KR, afhenti Örnu platta til
eignar og glæsilegan farandbikar,
sem Georg L. Sveinsson gaf félaginu
á sínum tíma.
Myndir/Guðmundur Kr. Jóhannesson
Arna Steinsen var sérstaklega hyllt á 95 ára afmælishófi KR. Hér
afhendir Benedikt Jónsson, varaformaður knattspyrnudeildar KR,
henni farandbikarinn, sem fylgir nafnbótinni Iþróttamaður KR. Á
milli þeirra stendur Lúðvík S. Georgsson, formaður knattspyrnu-
deildar KR, en Ásbjörn Einarsson, varaformaður KR, er í ræðustól.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Ása Lind Finnbogadóttir og Árni Pétur Reynisson voru á meðal
þeirra sem spreyttu sig í söngprufu fyrir Hárið. Jón Ólafsson lék
undir á slaghörpu.
AHEYRNARPROF
Hárið sett á svið
Ástrós Gunnarsdóttir, í svörtum bol og gráum buxum, kom vænt-
anlegum dönsurum á sporið í nýrri uppfærslu á Hárinu.
Undanfarið hafa meira en 200
söngvarar og dansarar
gengið í gegnum hreinsunareld
áheyrnarprófa vegna uppsetningar
á söngleiknum Hárinu. Auglýst var
eftir áhugasömum þátttakendum
og um síðustu helgi voru haldin
úrtakspróf. Sungið var í Islensku
óperunni og dansað í Þjóðleikhús-
inu.
Það var spenna í loftinu í Is-
lensku óperunni þegar söngvara-
efnin stigu á svið. Þau komu eitt
eða tvö í salinn og sungu við und-
irleik á slaghörpu. I myrkvuðum
salnum sátu Hallur Helgason leik-
hússtjóri og Baltasar Kormákur
leikstjóri og sperrtu eyrun. Eftir
hveija prufu skutu þeir á fundi
með Jóni Ólafssyni tónlistarstjóra
og kváðu upp sinn dóm.
Það er Flugfélagið Loftur hf.
sem setur Hárið á svið í samvinnu
við Þjóðleikhúsið. Flugmennirnir
hjá Flugfélaginu Lofti hf. era þrír
og setja markið hátt eins og flug-
mönnum sæmir. Auk þeirra Halls
og Baltasar Kormáks er Ingvar
Þórðarson í stjórn Flugfélagsins.
Þeir félagar hafa ráðið lykilfólk í
áhöfn Hársins, Jón Ólafsson flug-
jjjónn er tónlistarstjóri og yfirfreyja
Ástrós Gunnarsdóttir sér um dans-
mennt. Sýningar heljast í júlí í
Reykjavík.
KRIPALUJOGA
Jóga er andleg og líkamleg iðkun.
Næstu byrjendanámskeið hefjast
í byrjun maí. Kenndar verða teygj-
ur, öndunaræfingar og slökun.
Kennarar. Kristín Norland og
Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Upprifjunarnámskeið fyrir þá, sem
hafa veriö á byrjendanámskeiði
verður haldið 6. og 7. maí.
Kynning verður þriðjudaginn
26. april kl. 20.00.
Verið velkomin.
Jógastöðin Heimsljós
Skeifunni 19, 2. hæð, sími
679181 milli kl. 17 og 19.
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E
v/Reykjanesbraut
Kopavogi, sími
671800
Opið sunnudaga
kl. 13-18.
MMC Colt GLi '93, rauður, 5 g., ek. að-
eins 2 þ. km. V. 1040
Subaru Legacy Arctic 2,0 ’93, 5 g., ek.
aðeins 9 þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl.
V. 2060 þús., sk. á ód.
rafm. i ruöum, central læsing o.fl. V. 1090
þús., sk. á ód.
Toyota 4Runner EFi '85, rauður, 5 g., ek.
113 þ., sérskoðaður, 35" dekk, 4:10 hlut-
föll, sóllúga o.fl. Gott eintak. V. 1080 þús.
Nissan SLX 1.6 station 4x4 '91, 5 g.,
ek. 31 þ., rafm. í öllu. V. 1090 þús.
Toyota Corolla XL ’88, 3ja dyra, 4 g., ek.
61 þ., reyklaus. V. 520 þús.
Toyota Carina II GLi 2000 '90, sjálfsk.,
ke. 70 þ., m/öllu. V. 990 þús.
Nissan Sunny 1600 SLX 4x4 '90, 5 g.,
ek. 70 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 830 þús.,
sk. á ód.
Toyota Coroila STD ’90, rauður, 4 g., ek.
79 þ. V. 590 þús.
MMC Colt GLX '89, rauður, 5 g., ek. 85
þ. V. ‘690 þús., sk. á ód.
Daihatsu Charade TX ’90, 5 dyra, 5 g.,
ek. 73 þ. V. 590 þús.
Subaru Justy J-12 '87, 5 g., ek. 96 þ.,
sóllúga o.fl. V. 390 þús.
Nissan Micra GL '91, 5 g., ek. 45 þ.
Toppeintak. V. 590 þús.
MMC Pajero V-6 '91, 5 g., ek. 40 þ., ál-
felgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1890 þús.,
sk. á ód.
Honda Civic LSi ’92, 3ja dyra, 5 g., ek.
40 þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1150
þús.
MMC Galant GLSi hlaðbakur '92, sjálfsk.,
ek. 40 þ. V. 1450 þús.
Renault 21 GTX Nevada 4x4 station
’90, dökkgrænn, 5 g., ek. 61 þ., rafm. í
rúðum o.fl. V. 1180 þús., sk. á ód.
MMC Lancer GLX station 4x4 ’88, silf-
urgrár, 5 g., ek. 69 þ., rafm. í rúðum,
centrallæs. V. 750 þús., sk. á ód.
Fjörug bílaviðskipti
Vantar góða bíla á sýningarsvæðið.
%2terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!